Morgunblaðið - 30.03.2000, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000 31
Hvatt til baráttu
gegn „þræla-
viðskiptum“
Manila. AFP.
MADELEINE Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, hvatti til
þess í gær að gripið yrði til aðgerða
um allan heim til að stemma stigu
við sölu og þrælkun kvenna og
bama.
„Sala á fólki er síversnandi vanda-
mál, sem brýnt er að takast á við af
festu,“ sagði Albright í ávarpi sem
sjónvarpað var á ráðstefnu í Manila.
A ráðstefnunni var fjallað um sölu á
konum og bömum sem þvinguð era
til vændis eða hneppt í ánauð á
vinnustöðum þar sem aðstæður em
mjög bágar, kjörin léleg og vinnu-
tími langur.
„Slík viðskipti em þriðja helsta
tekjulind skipulagðra glæpasam-
taka,“ sagði Ralph Boyce, aðstoðar-
utanrfldsráðherra Bandaríkjanna í
málefnum Austur-Asíu og Kyrra-
hafsríkja.
Samkvæmt varfærnislegustu út-
reikningum bandarískra embættis-
manna er ársvelta glæpasamtak-
anna vegna þessara viðskipta að
minnsta kosti sex milljarðar dala,
andvirði tæpra 440 milljarða króna.
Embættismenn á ráðstefnunni
sögðu að á ári hverju væri að
minnsta kosti milljón manna flutt á
milli landa með valdi eða blekking-
um og þvinguð til vændis eða
hneppt í ánauð. Þeir segja þetta
mjög varfærnislegt mat og fjöldi
fómarlambanna kunni að vera
helmingi meiri.
Talið er að 250.000 manna í Suð-
austur-Asíu séu seldir eins og þræl-
ar á ári fyrir andvirði 400-750.000
króna hver. Allt að 200.000 íbúar
fyrrverandi sovétlýðvelda séu seldir
fyrir andvirði 1-2 milljóna hver. Sala
á fólki er einnig alvarlegt vandamál í
Suður-Asíu og Rómönsku Ameríku,
að því er fram kom á ráðstefnunni
sem bandaríska stjórnin stóð fyrir í
samstarfi við stjórn Filippseyja.
Bandaríkjastjórn áætlar að árlega
komi 50.000 fómarlömb skipulagðra
glæpasamtaka til Bandaríkjanna frá
sovétlýðveldunum fyrrverandi,
Suðaustur-Asíu og Rómönsku
Ameríku.
Ófrískir
foringjar
Stokkhólmi. AP.
SVIAR hafa ákveðið að gera her-
þjónustuna bærilegri fyrir ófrísk-
ar konur og í því skyni hefur ver-
ið sniðinn fyrir þær nýr búningur.
Ófrískir foringjar eða kannski
öllu heldur kvenforingjar þurfa
ekki lengur að troða sér í aðskor-
inn einkennisbúninginn, heldur
geta þær nú fengið að klæðast
öllu þægilegri kyrtli. Er hann sér-
stakur fyrir landher, flugher og
flota og strípur á öxlum gefa nán-
ari upplýsingar og deild og stöðu.
Áður þurftu ófrískar konur í
hernum að vera í hefðbundnum
einkennisbúningi eins lengi og
unnt var en sfðan í borgaralegum
klæðum.
I sænska hernum eru 367 konur
í foringjastöðu eða 3% af alls
14.000 foringjum.
AP
Boel Mannström, foringi í
sænska sjóhemum, í nýja
búningnum sínum.
Ellilaunin
lækkuð í Japan
Spara og spara af ótta við
gjaldþrot lífeyriskerfísins
Tókýó. Daily Telegraph.
JAPANSKA þingið samþykkti fyrr í
vikunni að lækka ellilífeyri um 5%.
Er ástæðan sú, að lífeyriskerfið
stefnir í gjaldþrot enda er hlutfall
aldraðra hvergi hærra en í Japan.
Lækkunin nær til þeirra, sem fara
á eftirlaun frá og með næstu viku en
auk þess er stefnt að því, að á ár-
unum 2013 til 2025 verði eftirlauna-
aldur karlmanna hækkaður úr 60 ár-
um í 65 og og fyrir konur á sú
breyting að verða um garð gengin
2030.
Þróunin í Japan hvað varðar ald-
urssamsetningu þjóðarinnar er sú
sama og í Evrópu og alveg Ijóst, að
lífeyriskerfið stefnir í gjaldþrot. Nú
eru fjórir Japanir á vinnumarkaði
íyrir hvem einn lífeyrisþega en
verða líklega aðeins tveir 2025. Á síð-
asta ári fjölgaði Japönum aðeins um
0,16%, sem er það minnsta, sem um
getur.
Ekki er víst, að aðgerðir japanska
þingsins dugi til langframa en hefði
ekkert verið að gert, hefði lífeyris-
sjóðsiðgjald vinnandi fólks orðið að
hækka úr 17,35% nú í 34,5% 2025.
Vegna breytingarinnar hækkar það
nokkuð minna eða í 27,6%. Að auki
ætlar ríkið að auk sína framlög til
sjóðanna.
Venjuleg eftirlaun fyrir kvæntan
mann eru nú rétt rúmlega 100.000
ísl. kr. á mánuði en hefðu samkvæmt
núverandi reglum farið í 182.000 kr.
2025. Vegna lækkunarinnar verða
þau um 178.000 kr.
Eins og fyrr segir er ekki víst og
raunar mjög ólíklegt, að fyrmefnd
ellilaunalækkun breyti miklu um
gjaldþol lífeyriskerfisins. Hefur al-
menningur af því miklar áhyggjur,
að hann lendi í fátækt á gamals aldri
og þess vegna sparar hver sem betur
getur. Það vinnur hins vegar þvert
gegn tilraunum ríkisstjómarinnar til
að örva efnahagslífið með því að
auka eftirspurn og eyðslu innan-
lands.
Rauðvínslegnar
svínakódelettur
Páskaleikur
Ef þú verslar ffyrir 10.000 kr. eða melra,
færðu í kaupbæo Nettó páskaegg
250 gr. að verðmæO 610 kr.
Tilboðið gildir til 2. apríl.
Vanillustangir
Fabreze regular,
lyktareyðir
Ávaxtastangir
Crest tannkrem
Closan flush,
wc-„steinar"
Closan flush,
wc-„steinar", refill
MMlai
Alltaf von á góóu!