Morgunblaðið - 30.03.2000, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000 35
s
Morgunblaðið/Dagur Gunnarsson
Halldór Guðmundsson og Sigurður Svavarsson.
Islensk leiklist í Þjóðleikhúsinu
ITILEFNI af
50 ára afmæli
Þjóðleikhússins
stendur leik-
húsið fyrir
margvíslegum
viðburðum og
er einn liður í
hátíðarhöldun-
um leiklestrar-
öð í Listaklúbbi
Leikhússkjalla-
rans sem ber
yfirskriftina
Gullkistan. Les-
in eru brot úr
leikritum nokk-
urra íslenskra
höfunda sem
settu svip á
fyrstu áratugi hins nýja Þjóðleik-
húss og fjallað um höfundarverk
þeirra. Þegar hefur verið fjallað um
Halldór Laxness en önnur leikskáld
sem minnst er á þennan hátt eru
Agnar Þórðarson, Oddur Björnsson
og Guðmundur Steinsson.
Næstkomandi mánudagskvöld,
Morgunblaðið/Ásdís
Lausnargjaldið samlesið. Erlingur Gíslason, Jón Viðar Jónsson og Kjartan Guðjónsson.
kl. 20.30, verður farið yfír sögu ís-
lenskrar leikritunar í Þjóðleikhús-
inu á tveimur fyrstu starfsáratug-
um þess og fjallað verður
sérstaklega um Agnar Þórðarson
og Odd Björnsson. Leiklesin verða
brot úr Lausnargjaldinu eftir Agn-
ar og fluttur verður einþáttungur
Odds, Jóðlíf. Umsjón með dag-
skránni hefur Jón Viðar Jónsson.
Leikarar sem lesa úr verkunum eru
Erlingur Gíslason, Kjartan Guð-
jónsson, Ragnheiður Steindórsdótt-
ir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir og
Vigdís Gunnarsdóttir. Húsið verður
opnaðkl. 19.30.
Giuliani sættist við
Brooklyn-listasafnið
RUDOLPH Giuliani, borgarstjóri
New York-borgar, batt á mánudag
enda á baráttu sína fyrir því að
Brooklyn-listasafninu verði vísað
burt úr byggingu í eigu borgarinn-
ar, auk þess sem greiðslur til safns-
ins voru hafnar að nýju, en þær
voru lagðar niður í kjölfar Sensa-
tion-sýningarinnar sem sett var upp
í Brooklyn-safninu á síðasta ári.
Sýningin var að mati Giuliani
bæði viðbjóðsleg og óguðleg, en þar
mátti m.a. sjá mynd af Maríu mey
unna úr fílamykju. Nýtt samkomu-
lag Giulianis við safnið gerir hins
vegar, að því er dagblaðið New
York Times greindi frá, ráð fyrir að
Giuliani reyni ekki frekar að fá
Brooklyn-listasafninu vísað á brott
úr húsnæði sínu og að borgin hefji
að nýju greiðslu mánaðarlegra
fjárframlaga til listasafnsins.
I framhaldi sættust stjórnendur
listasafnsins á að fella niður mála-
ferli sem voru uppi gegn borgar-
stjóranum og lýstu safnaðaryfirvöld
yfir ánægju sinni með tillhögun
mála. En með því að forðast dóms-
mál hefur Giuliani, sem nú keppir
við Hillary Rodham Clinton um öld-
ungadeildarþingsæti New York,
komið í veg fyrir að sér verði vikið
úr embætti á meðan á kosninga-
baráttunni stendur.
• Undirbúningur prófa - próftaka
Lestraraðferðir - skipulag - hugarfar
Stundafjöldi 4x2 klst. Skráning er hafin
• Stjórnun prófkvíða
Tengsl hugsana, kvíðaviðbragða og náms
Lestraraðferðir - kvíðatemprandi leiðir - slökun
Stundafjöldi 4x2 klst. Skráning er hafin
ráð
fyrir nám og starf
Laufásvegur 17 • 101 Reykjavfk • sími: 561 2428 • fax: S61 3328
netfang: hollrad@hollrad.is • veffang: www.hollrad.is
Kjartan Örn Ólafsson og Bjarni Þorsteinsson.
við um Heilsubók fjölskyldunnar og
ýmsir spennandi möguleikar, eins og
bókin um 20. öldina sem Vaka -
Helgafell gaf út út fyrir síðustu jól,
væru fyrir hendi. Bjarni sagði hlut-
ina vera orðna meira þannig, að fyrst
værí hugmyndin að bókinni seld og
síðan væri hún framkvæmd og þann-
ig kæmust fleiri að verkinu.
„Við viljum hefja útrás,“ sagði
Kjartan Örn glaðbeittur. „Mörg er-
lendu forlögin eru svo mikil bákn, að
þar er sérhæfingin á hverju strái, en
hjá okkur eru margir sem þekkja allt
útgáfuferlið. Þess vegna held ég að
fyrirtæki eins og okkar eigi fullt er-
indi í forystu um fjölþjóðlegt útgáfu-
samstarf.
Við erum reyndar þegar byrjaðir.
Þegar vantaði kennsluefni, sem
tengdist þjóðsögum, tókum við að
okkur að búa til Þjóðsögur við sjó.
Við framleiddum sérstaka bók fyrir
hverja Norðurlandaþjóð og nú eru
þær komnar í kennslu. Þetta sannaði
það, að við eigum erindi á þennan
markað.“
Harðspjaldatrítlar og
heljarins mikil fræðiverk
Bókamessuna sóttu ekki bara út-
gefendur og umboðsmenn. A neðri
hæðinni rakst ég á bóksala, sem voru
að leita sér að sölubókum og svo gátu
menn gengið inn af götunni og kom-
ist fyrir 15 pund á fjölskrúðugan
bókamarkað. Þarna ægði hreint öllu
saman. Einn sá ég kaupa litlar harð-
spjaldabækur í kippum meðan annar
stóð og fletti margra binda fræði-
verki um tónlist. Þarna var Penguin,
þarna var Tate-listasafnið í London
með kynningu á listaverkabókum
sínum, þama var þýzka Steidl-for-
lagið, sem gefur út talsvert af ís-
lenzkum höfundum, þama vora
dönsk forlög saman um bás og norsk
í öðrum, þarna var Já, þarna var
Hvílík sæla að ráfa innan um allar
þessar bækur.
En bókamessa er ekki bara bækur
og fundir undir fjögur augu. Alls
konar dagskrár era í gangi og stöku
rithöfundur sést á ferli. Réttindamál
era rædd fram og aftur, því það er
ekki nóg bara að verzla með réttinn,
það þarf að vernda hann líka. Svo
era bækur lesnar inn á snældur og
nú taka menn tölvubók með sér í
ferðalagið og geta reyndar sótt sér
aðra bók, þegar ein er lesin. Stór og
mikil ritverk eru sett á tölvudiska og
talið að sum þeirra, eins og Britann-
ica, komi aldrei aftur út í bókar-
formi. Og svo er það Netið. Bækur
era keyptar og seldar á Netinu. Það
er verzlað með staka bókarhluta og
rithöfundar eru farnir að birta skáld-
verk sín á Netinu, eins og metsölu-
höfundurinn Stephen King er nýj-
asta dæmið um.
Hvað sem Netinu líður, þá nægir
það mér ekki. Ég þarf að hafa bókina
milli handanna, geta strokið kápuna,
þefað af pappírnum og fundið til
hverrar blaðsíðu. Það era einmitt
svona veizlur, eins og bókamessan í
London, sem færa okkur heim sann-
inn um það, að allar fréttir af andláti
bókarinnar era stórlega ýktar.
Anthony
Powell
látinn
London. AP, AFP.
BRESKI rithöfundurinn
Anthony Powell lést á þriðju-
dag, 94 ára að aldri. En
Powell var einna þekktastur
fyrir verk sitt „A dance to the
music of times,“ sem gefið var
út í tólf hlutum og tók hann
20 ár að skrifa.
Söguþráðurinn spannar ör-
ar þjóðfélagsbreytingar í
Englandi á árunum frá 1914
til áttunda áratugarins og
hefur oft verið líkt við „Leit-
ina að glötuðum tíma“ eftir
Marcel Prousts.
Powell skrifaði fjölda ann-
arra verka, en það var „A
dance to the music of time,“
sem tryggði honum sess með-
al breskra rithöfunda. Hann
gaf m.a. út dagbækur sínar
1995 og þykja þær fullar af
slúðri sem og meinyrtar, enda
eru þær uppfullar af
skemmtilegum, stuttum frá-
sögnum af þekktum einstakl-
ingum og var Powell þar m.a.
oft hvassyrtur í garð annarra
rithöfunda s.s. Virginíu
Woolf, Graham Green og
Salman Rushdie.
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 5704500, FAX 570-4505 OPIÐ VIRKA
DAGA FRÁ KL. 9-18. Netfang: http://habil.is/fmark/
Hrauntunga Kópavogi
Góð 121 fm neðri sérhæð með sérinngangi í tvíbýli. Stofa og 3 herb. Ný-
leg innrétting í eldhúsi. Þvottaherb. í íbúð. Áhv. húsbr. 6,4 millj. Verð
11,9 millj.
Klapparstígur
Nýkomin í sölu 85 fm 4ra herb. íbúð á tveimur hæðum í nýlegu fjölbýli
ásamt stæði í bílskýli. Parket á gólfum. Vestursvalir. Utsýni. Laus fljót-
lega. Ahv. húsbr. 6,4 millj.
Dalshraun - Hafnarfirði
Heil húseign auk byggingarréttar
1.715 fm heil húseign, sem er kjallari
og tvær hæðir. Um er að ræða iðn-
aðar- og skrifstofuhúsnæði. Bygging-
arréttur að 1.500 fm byggingu á lóð-
inni. Eignin er frábærlega vel stað-
sett við ein fjölförnustu gatnamót á
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Selst í
einu lagi. Nánari uppl. á skrifstofu.