Morgunblaðið - 30.03.2000, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000 37
LISTIR
Það kostar klof
að ríða röftum
KVIKMYJVDIR
Háskólabíó
Ddttir nágrannans
(The Girl Next Door) ★
Leikstjóri og handritshöfundur
Christine Fugat. Kvikmyndataka
Kate Amend. Tónlist Michelle
Wernick, John Loken. Heimildar-
mynd um klámstjömuna Stacy
Valentine. 82 mín. Bandarísk.
Blackwatch International 1999.
KLÁMIÐNAÐURINN er
skyndilega orðinn áberandi og
blómstrandi viðskiptagrein á ísa-
köldu Fróni. Sú staðreynd hefur
blasað við í ágætri þáttaröð frá Sig-
ursteini Mássyni á Stöð 2 að undan-
förnu. Hvort sem fólki líkar betur
eða verr virðist þessi þrifnaður
vera kominn til að vera, líkt og flest
annað sem einhverjir geta auðgast
á. Teygir meira að segja anga sína
inn á ólíklegasta vettvang í þjóðfé-
laginu, fyrirhafnarlítið, að því er
virðist. Það er því kannski ekki
seinna vænna að æðsta menntast-
ofnun þjóðarinnar tryggi sér sneið
af þessari hnallþórutertu losta og
lystisemda, hún kann alltént ýmis-
legt fyrir sér í fjárhættuspilabrans-
anum. Þessi klámiðnaðarbylting á
sér sem sagt sínar broslegu hliðar -
ennþá.
Aðalpersónan í þessari óvenju-
legu, bandarísku heimildarmynd er
ung og munaðsfögur stúlka, Stacy
Baker, sem hefur tekið upp hið
hljómfagra listamannsheiti Stacy
Valentine. Fröken Valentine er
klámmyndaleikkona, einhverjir
verða að leika í þeim tíu þúsund
klámmyndum sem framleiddar eru
vestanhafs í tugmilljónir þurfa-
linga, það liggur í augum uppi. Þeg-
ar ungfrúin komst að því að hún var
liðónýt í körfubolta, ruðningi og
bóknámi virtist ekkert eðlilegra en
að skella sér á bakið og hefur Val-
entine verið riðin við klámmyndirn-
ar síðan ef svo má að orði komast.
Ungfrú Valentine lýsir í upphafi
þeim ástæðum, sem liggja þeirri
ákvarðanatöku til grundvallar; það
sé fyrst og fremst náttúruleg helj-
argredda og skyldi engan undra.
Hún lýsir þessu fjálglega, í smáatr-
iðum sem ég reikna ekki með að
lesendur hafi sérstakan áhuga á að
lesa í Morgunblaðinu. Sem þarf, ef
vel á að vera, að senda kvikmynda-
gagnrýnendur sína í endurhæfingu
- ef Dóttir nágrannans er upphafið
á því sem koma skal. Ég læt nægja
að taka mér í munn orð listamanns-
ins okkar góða sem komst svo
skemmtilega að orði um hæfi-
leikakamanneskjur í portkonustétt
niðri á Italíu, að hún er „góð til
munns og handa“.
Sjálfsagt er Dóttir nágrannans
ekki boðleg sjóuðum klámhundum,
engar nærmyndir af hreðjaskaki,
munngælum eða öðru slíku sem sá
markhópur sækist eftir. Myndavél-
in eltir hins vegar frökenina á rönd-
um í hennar innihaldslausa lífi,
dinglumdanglast átakalítið í 80
mínútur án teljandi hápunkta.
Helst að hún ýti við manni þegar
verið er að dæla sílikoni í barm og
varir dömunnar sem er með ógeðs-
legri sjón sem hefur sést í kvik-
mynd í áratugi. Að öðru leyti siglir
hún átakalítið á ljósbláum, sléttum
sjó meðalmennskunnar undir tón-
list af sama sauðahúsi og maður er í
myndarlok jafnnær um fröken Va-
lentine og klámleikonur þessa
heims, almennt.
Sæbjörn Valdimarsson
Hart bopp og þétt
TÖNLIST
Kaffileikhúsið
DJASS
Kvintett Stefáns S. Stefánssonar.
Birkir Freyr Matthiasson trompet
og flygilhorn, Stefán S. Stefánsson
tenórsaxófón, Kjartan Valdimars-
son pianó, Þórður Högnason bassa
og Birgir Baldursson bassa.
STEFÁN S. Stefánsson hefur
ekki leikið mikið undanfarið ef frá
er talinn blástur hans með Stór-
sveit Reykjavíkur. Fyrir tæpu ári
lék hann með kvintetti sínum á
Múlanum þarsem fönk og samba
réð ríkjum og skömmu seinna
stjórnaði hann Stórsveitinni í Saln-
um í Kópavogi, þar sem verk hans
voru á dagskrá, en Stefán hlaut
listamannalaun árlangt til að vinna
að þeim verkum. Það er athyglis-
vert að hann er eini íslenski djass-
listamaðurinn sem hlotið hefur
árslaun þartil Sigurður Flosason
fékk þau á dögunum. Fengjust
þessir drengir við tónlist æðri
áheyrenda væru þeir og fleiri
djassleikarar löngu búnir að fá
laun til lengri tíma. Það er merki-
legt hvernig þeir tónlistarmenn
sem ekki fást við hið kórrétta form
eru sniðgengnir í öllum styrkveit-
ingum - þetta gerist ekki í myndl-
ist og í mun minna mæli í bók-
menntum.
Hörkuboppið réð ríkjum í Kaffi-
leikhúsinu á sunnudagskvöldið og
fyrir hlé var Horace Silver höfuð-
tónskáldið, en settinu lauk á lagi
Freddie Hubbards: Gibraltar.
Hann átti líka fyrsta lagið eftir
hlé: Up jumped spring. Spila-
mennskan hjá piltunum var ekki
spennandi í þessu lagi þegar
bassasóló Þórðar Högnasonar er
undanskilin. Það var einsog hann
og Birgir Baldursson lifðu sjálf-
stæðu lífi utan lags og hljómsveit-
ar og sóló Þórðar var listaverk.
Aftur á móti náði kvintettinn sér á
strik í Pent up house eftir Sonny
Rollins, sem er búið að vera á dag-
skrá hjá íslenskum djassleikurum
meira og minna síðan Rollins
hljóðritaði það fyrst árið 1956.
Stefán S. Stefánsson hefur sam-
ið margan skemmtilegan djassóp-
us og einn var frumfluttur á
sunnudagskvöld: Red rondo nefnd-
ist hann af blúsættinni og sagði
höfundur að rondónafnið vísaði til
hins fræga Brubeckópusar Blue
rondo a la turk, en verkin væru þó
það fjarskyld að ekki væri ástæða
til málshöfðunar. Þetta er hinn
mesti fingurbrjótur, en þeir félag-
ar þræluðust í gegnum það og sóló
höfundarins var sérlega skemmti-
legur. Með klassískum djassblús-
blæ í upphafi en nær andblæ hinna
frjálsu tenórtryllara í lokin. Sóló
Kjartans Valdimarssonar var líka
fínn - frjálslegur í upphafi en æ
blúsaðri og sveifluríkari er á leið
uns sauð á keipum. Verst í hvernig
ástandi flygill Jóns Leifs í Kaffi-
leikhúsinu er. Það þyrfti alvöru
píanóstillari að taka hann í gegn.
Eini söngdans kvöldsins var
Speak low eftir Kurt Weil. Hinn
ungi Vestmannaeyingur, Birkir
Freyr Matthíasson, blés laglínuna
í flygilhorn með miklum ágætum
og sóló hans var fallega uppbyggð-
ur. Ég hef aldrei heyrt Birki blása
betur en þetta kvöld, enda var
hann í félagsskap þroskaðra lista-
manna af bestu sort. Tónleikum
Stefáns og félaga lauk á Manteca
Dizzy Gillespie og eitt er víst að
bæði tónleikagestir og spilarar
nutu kvöldsins. Er þá ekki til mik-
ils unnið?
Stórkostleg útsala á
vönduðum kvenfatnaði
Kjólar, peysur, buxur, flíspeysur,
jakkar, úlpur oq margt fleira
Allt á 1.000 krónur
Opið frá kl.17.00—22.00 í kvöld . Allra síðasti dagur.
Erum á Fosshálsi 1 (Dublin-húsið)
DAEWOO NUBIRA II
\
Verð: 1.490.000
Bfll á mynd
Við auglýsum ekki verð frá
Fullkominn!
Daewoo Nubira er fullur af staðalbúnaði sem tryggir að þú og fjölskylda þín
njótið bílsins til fulls. Öryggi, kraftur, tækni, mikið rými og frábært verð eru
helstu einkenni bílsins. Þannig er Nubira hönnuð utan um þarfir
fjölskyldunnar allrar. Þess vegna leyfum við okkur að fullyrða að Nubira sé
fullkominn fjölskyldubílL. Komdu og reynsluaktu og leyfðu Nubiru að koma
þér ánægjulega á óvart.
www.benni.is
Vagnhöfða 23 • 112 Reykjavik • Sími 587-0-587 • Opið laugardaga 10-16
Krínglunni • Opið laugardaga 10-18 og sunnudaga 13-17
Umboðsmenn: Akureyri: BHasalan Ós. Egilsstaðir: BHasalan Fell.
-hannaður utan um þig
Vernharður Linnet