Morgunblaðið - 30.03.2000, Page 40
40 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUD AGUR 30. MARS 2000 41
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
TÖLVUR OG
HEILSUGÆZLA
SAMSKIPTI með tölvupósti hafa rutt sér hratt og ör-
ugglega til rúms og flestir hafa tekið möguleikum
þessarar nýju tækni fagnandi. Fyrir þá, sem hafa aðgang
að nettengdum tölvum, er þessi samskiptamáti einfaldur,
skjótur og skilvirkur. Þrátt fyrir þessa þægilegu boð-
skiptaaðferð, sem orðin er mjög útbreidd, hefur lítið borið
á því enn sem komið er, að læknar og heilsugæzlustöðvar
hafi tileinkað sér þessa nýjung í samskiptum við sjúklinga,
þótt hún sé í raun mjög vinnusparandi fyrir alla. Flestir
kannast við það af eigin raun, hversu erfitt og tímafrekt
það getur reynst að ná sambandi við lækni, ekki sízt á
heilsugæzlustöðvum, þótt erindið sé einungis það að panta
tíma hjá lækni eða fá lyfseðil endurnýjaðan. Þessi sam-
skiptamáti er dýr og hvimleiður fyrir sjúklinga og ekki sízt
foreldra, sem þurfa að hafa mikil samskipti við heilsu-
gæzlustöðvarnar. Ennfremur hefur þessi samskiptamáti
vafalaust óþarflega truflandi áhrif á störf lækna og ann-
arra starfsmanna.
í Morgunblaðinu í gær var fjallað um tölvusamskiptin
við lækna og forstöðumenn heilsugæzlustöðva. Þeir taka
almennt vel í það, að tímapantanir hjá læknum og beiðni
um endurnýjun lyfseðla fari um Netið. Matthías Halldórs-
son aðstoðarlandlæknir segir að embættið leggist ekki
gegn þessari boðskiptaleið vegna tímapantana hjá lækn-
um eða vegna beiðni um endurnýjun lyfseðla. Guðmundur
Einarsson, forstöðumaður Heilsugæzlunnar í Reykjavík,
en undir hana heyra tíu heilsugæzlustöðvar á höfuðborg-
arsvæðinu, segir að þessar hugmyndir séu ágætar. En
stöðvarnar séu þó almennt ekki undir það búnar ennþá að
hrinda þessum samskiptamáta í framkvæmd. Hins vegar
sé nú unnið að því, að koma honum í þennan farveg og
áhugi sé fyrir því innan heilsugæzlunnar.
Jóhann Einvarðsson, forstöðumaður Heilbrigðisstofn-
unar Suðurnesja, segir, að þar hafi verið rætt um málið og
ljóst sé, að samskipti um tölvur sé framtíðin, enda verði
vinnusparnaður bæði fyrir heilsugæzluna og ekki síður
viðskiptavinina. Þá segir Pétur Pétursson, yfirlæknir á
Heilsugæzlustöðinni á Akureyri: „Við höfum fyrir löngu
gert okkur grein fyrir möguleikum tölvutækninnar og sér-
staklega hvað varðar miðlun upplýsinga."
Ljóst er að hér ber allt að sama brunni og það er fagnað-
arefni, að heilsugæzlan og læknar almennt muni færa
samskiptin við fólk í nútímalegt horf öllum til hagsbóta og
hægðarauka.
ALÞJÓÐLEG BJÖRGUN-
ARSVEIT STOFNUÐ
SEXTAN manna alþjóðleg björgunarsveit var stofnuð hér
á landi fyrir helgina með samningi Slysavarnafélagsins
Landsbjargar og utanríkisráðuneytis og dómsmálaráðuneyt-
is. Hlutverk sveitarinnar verður að veita aðstoð á erlendum
hamfarasvæðum við leit og björgun og verður hún byggð
þannig upp og þjálfuð, að hún geti annast stjórnun á hamfara-
svæði, tæknilega leit með sérhæfðum útbúnaði, vinnu í rúst-
um með nauðsynlegum verkfærum, veitt sjúkrahjálp og
tæknilega ráðgjöf og annast birgðahald og uppbyggingu búða
og fjarskipta. Almannavarnir ríkisins aðstoða við framkvæmd
samningsins og eru í viðbragðsstöðu allan sólarhringinn allt
árið. Brugðist verður við beiðnum um aðstoð frá Sameinuðu
þjóðunum og yfírvöldum í vettvangslandi. Kostnaður við
rekstur björgunarsveitarinnar er óljós ennþá, en framlag rík-
isins til hennar er 3,5 milljónir á ári. Kostnað umfram það ber
Slysavarnafélagið Landsbjörg. Búizt er við einu útkalli á ári
hverju.
Segja má, að kveikjan að stofnun alþjóðasveitarinnar hafí
verið fór hóps íslenzkra björgunarmanna til Tyrklands í fyrra
vegna jarðskjálftanna þar. Þá kom m.a. í ljós, að íslending-
arnir höfðu yfír að ráða tæknibúnaði, sem fáar björgunar-
sveitir hafa, þ.e. myndavélum og hljóðtækjum fyrir leit í rúst-
um. Sérþekking og reynsla íslenzkra björgunarmanna getur
því nýzt hvar sem er.
Það er einkar ánægjulegt, að íslenzkir björgunarmenn
muni í framtíðinni leggja fram sinn skerf til aðstoðar á hamf-
arasvæðum. íslendingar þekkja af eigin raun, hversu mikil-
vægt það er, að hjálp berist skjótt og örugglega og ekki síður
að skynja vinarhug á slíkum stundum. Okkur ber að leggja
öðrum lið, sem þurfa að þola hörmungar náttúruhamfara.
Þess vegna er stofnun alþjóðlegu bjögunarsveitarinnar rétt
og tímabært skref.
*
/ Skrtíu- .
klaustur a
Valþjófs- t
/ 5l.aaur° , J.
íFljótsdal
Aðafbót a
írennsHsgöng-^^
Hattur
Crjótárvelta
Sauða-
fell ,
Hafurs-
fell
Crat«'r,)s ........
. hnúkar \ Nálhus-
V Xhnúkar
Crjótat
hnnkur
Surðar-
svæðl
Snæ
|1883*
Sauða-
hnúkur
SnjBftlIs.
háls
t>jófa-
hnúkar
hefði orðlð)
) Æ~"'\ (
Háalda
Xekiuér-
YQtft
Getdinga-
Hátungui
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segir nýjar áætlanir um 360 þús. tonna álver og virkjun við Kárahnúka
Eignarhald Norsk Hydro
að álveri gæti orðið 40%
Fjárfestar í álveri við Reyðarfjörð
kanna nú hagkvæmni þess að reisa 240
þúsund tonna álver í fyrsta áfanga og
stækka það síðan um 120 þús. tonn,
Þetta myndi hafa í för með sér, að sögn
Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðarráðherra,
að ráðist yrði fyrst í Kárahnúkavirkjun en
síðar í Fljótsdalsvirkjun. Þá yrði óþarft að
sökkva Eyjabökkum undir vatn. Hún segist
telja, í samtali við Ómar Friðriksson og
Jóhannes Tómasson, að Norsk Hydro yrði
reiðubúið að eignast allt að 40% í álverinu
yrði þessi kostur að veruleika.
FJÁRFESTAR í fyrirhuguðu
álveri við Reyðarfjörð,
Hæfi og Hydro Alumin-
ium, hafa komist að þeirri
niðurstöðu að hagkvæmt geti reynst
að breyta áætlunum um byggingu
álversins þannig að strax í fyrsta
áfanga verði hafist handa við að
reisa 240 þúsund tonna álver og það
yrði síðan stækkað um
120 þúsund tonn eða í
alls 360 þúsund tonn.
Minna miðlunarlón
neðan við Eyja-
bakkafoss
Þessar breyttu áætl-
anir hefðu í för með sér
að endurskoða þyrfti
áætlanir um orkuöflun
og að breyta þyrfti
virkjanaröðinni, að sögn
Valgerðar Sverrisdótt-
ur, iðnaðar- og viðskipt-
aráðherra. Þannig yrði
ráðist í Kárahnúka-
virkjun í fyrsta áfanga
en síðar í Fljótsdalsvir-
kjun og virkjanirnar
yrðu samtengdar með aðrennslis-
göngum. Það myndi þýða að í stað
hugmynda sem uppi hafa verið um
miðlunarlón á Eyjabökkum kæmi
minna miðlunarlón neðan við Eyja-
bakkafoss og Eyjabökkum yrði
þannig hlíft.
Verði þessar breyttu áætlanir að
veruleika verða allar framkvæmdir
við virkjanir og álverið settar í lög-
formlegt mat á umhverfisáhrifum,
að sögn ráðheri'a.
Valgerður sagðist gera ráð fyrir
að niðurstaða hagkvæmniathugunar
á þessum kostum ætti að geta legið
fyrir innan fjögurra til fimm vikna.
240 þúsund tonna álver
í 1. áfanga og 120 þúsund
í 2. áfanga
Skv. Hallormsstaðayfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar, Hydro Alumin-
ium og Landsvirkjunar frá 29. júní
á síðasta ári hafa áætlanir á undan-
förnum mánuðum miðast við að
afkastageta álversins yrði í fyrsta
áfanga 120 þúsund tonn með mögu-
leika á stækkun þess í 240 þús. tonn
í öðrum áfanga og loks í 480 þúsund
tonn í þriðja áfanga og samhliða
þessu hafa virkjanaáætlanir miðast
við að reist yrði 210 MW virkjun í
Fljótsdal með miðlunarlóni á Eyja-
bökkum en síðan yrði virkjað við
Kárahnúka vegna síðari áfanganna.
Valgerður Sverrisdóttir segir að
fjárfestarnir í fyrirhuguðu álveri
hafi orðið sammála um að kanna
þann kost til hlítar á næstu vikum
að breyta fyrri áætlunum og ráðast
Valgerður
Sverrisdóttir
í fyrsta áfanga í byggingu álvers
með 240 þúsund tonna afkastagetu,
eða tvöfalt stærra álver en gert hef-
ur verið ráð fyrir fram að þessu og
stækka það síðan um 120 þúsund
tonn.
„Ástæða þess að þeir fara fram á
þetta er sú að þeir telja að hag-
kvæmni og arðsemi verksmiðjunnar
yrði mun meiri ef reist
yrði stærra álver í
fyrsta áfanga og það sé
í alla staði ákjósanlegri
fj árfestingarkostur,“
segir Valgerður.
„Það hafa ekki verið
teknar ákvarðanir á
þessari stundu um að
breyta þeirri áætlun
sem fylgt hefur verið
fram að þessu en
stjórnvöld hafa fallist á
það að þessi kostur
verði skoðaður til hlít-
ar,“ segir hún.
Valgerður segir ljóst
að ef áætlunum verður
breytt á þennan veg
breytist allar fyrri
tíma- og vinnuáætlanir vegna verk-
efnisins. Þær hafi raunar breyst eft-
ir að umhverfisráðherra ógilti allt
ferli umhverfismatsins vegna ál-
versins.
Valgerður segir að gera megi ráð
fyrir að ef þessi kostur verði að
veruleika verði í fyrsta lagi hægt að
bjóða út framkvæmdir við Kára-
hnúkavirkjun í ársbyrjun 2002. Hún
segir einnig mikilvægt að þá þegar
liggi fyrir ákvarðanir um stækkun
álversins upp í 360 þúsund tonn því
það hefði áhrif á verkáætlanir
Landsvirkjunar.
„Verði þetta niðurstaðan þarf að
byrja á því að fara í Kárahnúka-
virkjun. Ef farið verður í upphafi í
byggingu 240 þúsund tonna álvers
og það yrði svo tiltölulega fljótlega
stækkað upp í 360 þúsund tonn, þá
býður sá kostur upp á að virkjanirn-
ar verði samtengdar með aðrennsl-
isgöngum og þá verði ekki lengur
þörf fyrir uppistöðulón á Eyjabökk-
um. Þess í stað verði gert mun
minna lón fyrir neðan Eyjabakka-
foss og vatninu verði veitt í göng
sem lægju frá Hálslóni að stöðvar-
húsinu," segir Valgerður.
Fyrri rannsóknir ekki
unnar fyrir gýg
Hún tekur þó fram að þessar hug-
myndir byggist á því að samkomu-
lag náist um að byggja 360 þúsund
tonna álver í tveimur áföngum. Hún
leggur einnig áherslu á að fyrri
hugmyndir um byggingu Fljótsdals-
virkjunar hafi ekki enn sem komið
a Skáli
Stífla — — Göng
== Veituskurður
| Friðland f
Náttúruminjar |
100 m hæðariínur
er verið útilokaðar, því ekki hafi
verið séð fyrir endann á þeim samn-
ingaviðræðum sem nú standa yfir.
Að sögn ráðherra hafa miklar
rannsóknir þegar farið fram vegna
hugmynda um Kárahnúkavirkjun í
Jökulsá á Dal.
„Verði af þessum kosti eru þær
rannsóknir sem framkvæmdar hafa
verið í Fljótsdal ekki unnar fyrir
gýg því þær nýtast áfram að veru-
legu leyti, að frátöldu Eyjabakka-
svæðinu."
Hugmyndir um virkjun Jökulsár
á Dal byggjast á gerð miðlunarlóns
sunnan Kárahnúka, Hálslóni og
veitu vatns eftir jarðgöngum um 40
km. leið að stöðvarhúsi neðanjarðar
í Fljótsdal niður undir Lagarfljót.
Dimmugljúfrum yrði hins vegar
hlíft því þau eru neðan við fyrirhug-
aða Kárahnúkastíflu og rætt hefur
verið um gerð jarðvegsstíflu, sem
fellur betur að landslaginu, að sögn
Valgerðar.
Hefur orkugeta Kárahnúkavirkj-
unar verið áætluð 3.500 GWh/a og
er talið að sú virkjun gæti verið
komin í gagnið um 2007, þegar ál-
verið hæfi rekstur.
Kostur að fá yfirlýsingar
um að verkefnið verði
að veruieika
Valgerður sagði þessar hugmynd-
ir um að breyta áætlunum um bygg-
ingu álvers og virkjana fela í sér
bafeði kosti og galla. Okostirnir væru
fyrst og fremst seinkun fram-
kvæmda frá því sem áður hefur ver-
ið gert ráð fyrir, sem hlyti að valda
Austfírðingum miklum vonbrigðum.
„Hins vegar finnst mér kosturinn
við þetta vera sá að við gætum inn-
an örfárra vikna fengið niðurnegld-
ar yfirlýsingar frá fjárfestum um að
þetta verkefni verði að veruleika og
það skiptir Austfirðinga auðvitað
mestu að af þessu verkefni verði,“
sagði hún.
Aðspurð sagðist Valgerður fagna
því ef komist yrði hjá því að sökkva
Eyjabökkum. „Auðvitað var það
aldrei markmiðið að sökkva Eyja-
bökkum. Ég hef alltaf verið þeirrar
skoðunar að það sé fórn að setja
Eyjabakka undir vatn en miðað við
þau áform, sem við höfðum, var ekki
um annað að ræða.“
Aðspurð segist Valgerður telja að
bæði Norsk Hydro og íslensku fjár-
festarnir hafi mikinn áhuga á þess-
um breyttu áætlunum sem nú eru til
skoðunar.
„Ég tel að ef þetta verður að
veruleika verði Norsk Hydro reiðu-
búið að eiga stærri hlut í álverinu
en áður hefur verið talað um, jafn-
vel allt að 40%,“ sagði hún.
Framkvæmdir gætu orðið
7-8% af landsframleiðslu
Valgerður sagði ennfremur að
framkvæmdir af þessu tagi við
Kárahnúkavirkjun og tengdar fram-
kvæmdir yrðu gríðarlega miklar að
umfangi. Gera mætti ráð fyrir að
umfang þeirra yrði þó svipað um-
fangi framkvæmdanna þegar álver
ÍSAL var byggt á árunum 1967-
1970 eða á bilinu 7-8% af landsfram-
leiðslu þegar þær eru í hámarki.
Ekki liggja fyrir nákvæmar tölur
um þetta efni vegna byggingar 360
þúsund tonna álvers í tveimur
áföngum auk tengdra framkvæmda
en áætlað hefur verið að fjárfesting-
in, sem hlutfall af heildarfjárfest-
ingu, gæti farið upp í 30-35% í lok
framkvæmdatímans þegar dýrasta
hluta búnaðarins verður komið fyr-
ir.
Valgerður var að lokum spurð
hvort hún teldi að meiri sátt myndi
ríkja um virkjana- og álversfram-
kvæmdir á Austurlandi náist sam-
komulag um að breyta áætlunum á
þennan veg. „Það er í sjálfu sér
aldrei hægt að ætlast til að það ná-
ist samstaða um svona stórt mál.
Sjálf er ég mjög viðkvæm fyrir
skemmdum á landinu. Það hefur
verið gert allt of mikið af því van-
hugsað og að ástæðulausu en í
þessu tilfelli er um það að ræða að
við nýtum okkar auðlindir, vatn-
sorkuna, og þá verður að viður-
kenna að það verður ekki gert öðru-
vísi en að það sjáist á landinu. Hins
vegar hafa orðið gífurlegar framfar-
ir á síðustu árum hvað það varðar
að staðið sé þannig að verki að unn-
ar verði eins litlar skemmdir á land-
inu og mögulegt er.“
Forstjóri Landsvirkjunar
um stærri fyrsta áfanga álvers
Nauðsynlegt
að breyta
virkjanaröð
STARFSMENN Landsvirkjun-
ar munu næstu daga kanna
hvernig breyta má röð virkj-
anaframkvæmda norðan Vatnajökuls
og ráðast hugsanlega í gerð Kára-
hnúkavirkjunar áður en farið yrði í
Fljótsdalsvirkjun vegna óskar for-
ráðamanna Reyðaráls að reisa stærra
álver en upphaflega var
áætlað í fyrsta áfanga.
Verður stjórn fyrirtæk-
isins síðan gerð grein
fyrir stöðu málsins.
„Það liggur fyrir að
þessi áhugi fjárfestanna
að byrja með stærra ál-
ver og stefna að 360
þúsund tonna álveri þar
sem fyrri áfanginn
verður 240 þúsund tonn
og sá síðari 120 þúsund
þýðir að við þurfum að
virkja í annarri röð en
við ætluðum okkur,“
segir Friðrik Sophus-
son, forstjóri Landsvir- Friðrik
kjunar, í samtali við Sophusson
Morgunblaðið og á þar
við að fyrst verði að virkja við Kára-
hnúka og síðan Fljótsdalsvirkjun.
„Þetta þýðir að við þurfum að fara
með Kárahnúkavirkjun í mat á um-
hverfisáhrifum samkvæmt gildandi
lögum og það tekur að sjálfsögðu
nokkurn tima.“
Vel í stakk búin til
að hefja matsferlið
Friðrik segir Landsvirkjun vel í
stakk búna til að hefja matsferlið
fljótlega en engu að síður þurfi að
efna til frekari rannsókna. Ekki sé
við því að búast að því ljúki fyrr en í
árslok 2001 eða í ársbyrjun 2002.
Matið ætti þá að að geta legið fyrir og
verði það jákvætt væri hægt að hefja
framkvæmdir á síðari hluta ársins
2002 sem aftur þýddi að hægt yrði að
afhenda orku seint á árinu 2007 eða í
byrjun ársins 2008.
„Það skiptir lika verulegu máli að
taka sem allra fyrst ákvörðun um síð-
ari áfanga álversins, stækkun í 120
þúsund tonn, því þá yrði hægt að
hanna virkjanirnar með þeim hætti
að ekki þurfi að setja lón á Eyjabakka
heldur myndi smærra lón neðan
Eyjabakkafoss duga. Til að þetta sé
hægt þarf að setja í upphafi stefnuna
á 360 þúsund tonn þótt skipta megi
framkvæmdum í áðurnefnda áfanga."
Afl Kárahnúkavirkjunar er áætlað
500 MW og er það talið nægilegt fyrir
240 þúsund tonna álver. Komi til
stækkunar í kjölfarið um 120 þúsund
tonn þarf að bæta við afli frá Fljóts-
dalsvirkjun, sem þá yrði
rennslisvirkjun án lóns
við Eyjabakka og yrði afl
beggja virkjana þá um
680 MW og orkuvinnslan
alls um 5 þúsund gíga-
wattstundir.
Forstjórinn segir að
fjárfesting vegna beggja
virkjana eftir samhæf-
ingu þeirra á þennan
hátt sé nálægt 90 millj-
örðum króna og hann er
spurður hvernig Lands-
virkjun myndi útvega
aukið fjármagn miðað
við það er áður var áætl-
að vegna Fljótsdalsvirkj-
unar einnar. „Við þurf-
um auðvitað að setja
niður fyrir okkur hvernig best verður
staðið að því, ræða við eigendur fyrir-
tækisins og þá aðila sem hugsanlega
gætu lánað og þá sem kanna lánshæfi
fyrirtækisins. Við þurfum að hafa
sem fyrst svör við þessum spurning-
um, þvi að sameiginleg tímaáætlun
þarf helst að liggja fyrir í maímánuði.
Lokaákvörðun yrði hins vegar aldrei
tekin fyrr en árið 2002, þegar allar
kostnaðaráætlanir liggja fyrir og
þegar vitað verður hvort leyfi fást
vegna mats á umhverfisáhrifum.“
Gífurleg fjárfesting
Verður stofnað sérstakt fyrirtæki
um Kárahnúkavirkjun?
„Það er eitt af því sem þarf að
skoða en á þessari stundu er ekki
hægt að svara neinu um það. Við höf-
um rannsakað þennan virkjunarkost
undanfarin ár og þekkjum hann en
því verður að svara á síðari stigum
hvort við gerum þetta einir eða með
öðrum fjárfestum. Kárahnúkavirkjun
er gríðarleg fjárfesting og Lands-
virkjun fer ekki af stað með fram-
kvæmdir án þess að hafa afskaplega
góðar tryggingar frá þeim sem ætla
að kaupa orkuna."
Vilja strax reisa 240
þúsund tonna álver
Fjarfestar í
fyrirhuguðu ál-
veri í Reyðar-
firði, Reyðarál hf., sem
eru Hæfi og Norsk
Hydro, hafa komist að
þeirri niðurstöðu að
hagkvæmt geti verið að
reisa strax í fyrsta
áfanga 240 þúsund
tonna álver og það síð-
an stækkað um 120
þúsund tonn í samræmi
við endurmat á orkuöfl-
un. Áður hafði verið
ráðgert að reisa 120
þúsund tonna álver í Geir A
fyrsta áfanga. Gunnlaugsson
Fjárfestarnir hafa
beint því til annarra aðila Noral
verkefnisins, sem eru Landsvirkjun
og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið,
að frumhagkvæmnisathugun verði
gerð á þessum kosti næstu vikurn-
ar. Útvega þarf meiri
raforku til þessa
stækkaða fyrsta áfanga
og því nauðsynlegt að
breyta röðinni í virkj-
anaframkvæmdum.
„Það er ljóst að 240
þúsund tonna álver er
hagkvæmara en 120
þúsund tonna álver
sem fyrsti áfangi og við
teljum að það sé full
ástæða til að skoða
þann kost nánar. Þann-
ig yrði verkefnið
áhugaverðari kostur
fyrir fjárfesta," segir
Geir A. Gunnlaugsson,
stjórnarformaður
Reyðaráls í samtali við Morgunblað-
ið.
„Framleiðslukostnaður á hverja
einingu verður minni eftir því sem
verksmiðjan er stærri," sagði Geir
og benti á að svipaður fjöldi stjórn-
enda myndi starfa við 240 þúsund
tonna álver og 120 þúsund tonna
verksmiðju, ýmis aðstaða sem
byggja yrði upp, svo sem verkstæði,
hafnarmannvirki og annað myndi
nýtast betur í stærra álveri.
Ekki langt milli áfanganna
Geir sagði að áhugi væri á því að
ekki liði of langur tími fram að
stækkun um 120 þúsund því þótt
240 þúsund tonna eining væri hag-
kvæm væri stærra álver fýsilegra.
Hann sagði fjárfestingu 240 þúsund
tonna álvers vera 750 til 800 milljón-
ir dollara sem þýðir um 50 milljarða
íslenskra króna.
Norsk Hydro hefur lýst áhuga á
því að eiga meira en 25% hlut. „Það
hefur komið fram að þeir eru tilbún-
ir að eiga stærri hlut í svo stóru ál-
veri og þá er verið að tala um kring-
um 40% hlut,“ sagði Geir og nefndi
Forráðamenn Reyðaráls hf. hafa óskað eftir að reisa í fyrsta áfanga 240 þúsund tonna álver í Reyðarfirði.
að leitað yrði til annarra fjárfesta,
einkum íslenskra en hugsanlega
fleiri erlendra eftir öðrum hluta
kostnaðarins.
„Það liggur fyrir að fara þarf með
verksmiðjuna og Kárahnúkavirkjun
í lögformlegt umhverfismat sem
tekur töluverðan tíma en ef þessi
leið verður farin erum við að tala
um að taka ákvörðun um hvort
verksmiðjan verður byggð eða ekki
fyrri hluta árs 2002. En á næstu
vikum þarf að liggja fyrir hvort
unnt verður að ráðast í þennan
stóra áfanga strax, hvort menn eru
tilbúnir að fara þessa leið með
breytta virkjanaröð."
Geir kvaðst reikna með að tíminn
fram til fyrri hluta árs 2002 yrði
notaður til að ganga frá nauðsynleg-
um samningum við stjórnvöld auk
þess sem unnið væri að umhverfis-
mati á verksmiðju og virkjun.
Sem minnst röskun
á náttúrunni
Geir var í lokin spurður hvort
þessi kostur varðandi virkjanir væri
fýsilegri með tilliti til umhverfis-
mála.
„Við höfum fyrst og fremst verið
að hugsa um umhverfismál er varða
verksmiðjuna. Það er Landsvirkjuiy-
ar og stjórnvalda að huga að um'-
hverfismálum varðandi virkjanirn-
ar. Það hefur alltaf legið fyrir að
menn ætluðu að reisa verksmiðju af
nýjustu gerð og með þeim besta
búnaði sem fáanlegur er til að frá
henni yrði sem minnst röskun á
náttúrunni og það eru engar breyt-
ingar á þeirri stefnu."