Morgunblaðið - 30.03.2000, Page 54
'4 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Vashhugi
A L H L I Ð A
ViÐSKIPTAHUGBÚNAÐUR
1 Fjárhagsbókhald
i Sölukerfi
> Viðskiptamanna
kerfi
I Birgðakerfi
) Tilboðskerfi
I Verkefna- og
pantanakerfi
i Launakerfi
I Tollakerfi
Nýtt!
Treflar og veski í úrvali
Buxur 2.990-
Bolur 2.490-
Faxafeni 8 sími: 533 1555
Nýjar vörur
Þrjátíu ár
í EFTA
FYRIR rúmum þrjátíu árum var
aðildarumsókn íslands að Fríversl-
unarsamtökum Evrópu, EFTA, eitt
megindeiluefni íslenskra stjómmála.
ísland gerðist aðili að EFTA hinn 1.
mars 1970. Um þá ákvörðun hefur
ekki staðið styrr upp frá því. I slag-
togi við önnur EFTA ríki hóf ísland
þátttöku í Evrópska efnahagssvæð-
inu, EES, árið 1994. í aðdragandan-
um skiptist íslenska þjóðin í tvær
fylkingar, með og á móti aðild. í dag
er sátt um þátttöku íslands í EES. I
raun virðist það flestra skoðun að
með aðildinni að NATO, útfærslu
fiskvejðilögsögunnar í áföngum og
aðild íslands að EFTA og síðar EES
hafi verið stigin stærstu sporin í ís-
lenskum stjórnmálum á tuttugustu
öldinni.
Aðildin að EFTA og EES hefur
ekki einvörðungu tryggt íslenskum
sjávarafm-ðum að mestu tollfrjálsan
aðgang að mikilvægustu mörkuðum
meginlands Evrópu og rennt stoðum
undir samkeppnishæfni íslensks iðn-
aðar- og þjónustugreina. Með þátt-
töku íslands í EFTA sneri þjóðin af
braut sjálfsþurftarbúskapar og hafta
og hóf af einurð þátttöku í alþjóða-
samstarfi á sviði verslunar og við-
skipta, sem síðar hefur kynt undir
nútíma- og alþjóðavæðingu íslensks
atvinnulífs. ÓÚku er saman að jafna
því umhverfi sem íslensk fyrirtæki og
neytendur búa við í dag miðað við það
sem gerðist fyrir þrjátíu áram.
EFTA var stofnað árið 1960 af
Bretlandi, Danmörku, Noregi, Sví-
þjóð, Sviss, Austurríki og Portúgal.
Markmið samtakanna var að koma á
fríverslun í innbyrðis viðskiptum að-
ildarríkjanna með afnámi tolla og
annarra viðskiptahindrana, að efla
viðskiptatengsl við Efnahagsbanda-
lagið, sem stofnað var árið 1957 og að
vinna fríverslun í heiminum brautar-
gengi. Um þessar mundir voru ís-
lendingar að glíma við aðlögun at-
vinnulífsins að auknu frjálsræði og
samkeppni. Það mun hafa ráðið
nokkru um að Island gerðist ekki að-
ili að EFTA fyrr en tíu áram eftir
stofnun þess árið 1970.
Hagur íslands af EFTA-aðildinni
kom einnig í ljós árið 1972 þegar
EFTA-ríkin gerðu tvíhliða fríversl-
unarsamninga við Evrópubandalag-
ið. Samningarnir snerust að mestu
um fríverslun með iðnaðarvörar en
voru sniðnir að sérþörfum hverrar
þjóðar fyrir sig. Með tvíhliðasamn-
ingnum við EB og hinni frægu bókun
6 fengust tollalækkanir fyrir margar
Fríverslunarbandalag
Nú þegar þrjátíu ár eru
--------------7---------------
liðin síðan Island gekk í
EFTA, segir Kjartan
Jóhannsson, er auðvelt
að sjá hve mikill ávinn-
ingur hefur verið af að-
ildinni.
helstu fiskafurðir okkai' á Evrópu-
markað og á honum grandvölluðust
hin þýðingarmiklu viðskipti við
Evrópubandalagsríkin allar götur
þai’ til að samningurinn um Evrópska
efnahagssvæðið tók gildi árið Í994.
Bókun 6 gekk hins vegar ekki í gildi
fyrr en landhelgisdeilur við Breta og
Þjóðverja vora til lykta leiddar 1976.
EES-samningurinn bætti síðan enn
frekar markaðsaðgang sjávarafurða
þegar hann gekk í gildi.
Starf íslands í EFTA hefur fært
okkur sönnur á að smáríki geta haft
áhrif í alþjóðasamstarfi. Eitt
gleggsta dæmi þess er að fyrir fram-
kvæði og atbeina íslendinga varð full
fríverslun með sjávarafurðir stað-
reynd innan EFTA árið 1989. Sú
samþykkt hafði þýðingarmikil áhrif á
niðurstöðu EES-samninganna um
sjávarafurðir. Halldór Asgrímsson
utanríkisráðherra benti á í grein í
Morgunblaðinu sem skrifuð var af til-
efni 40 ára afmælis EFTA nýverið, að
samþykktin um fríverslun með fisk
innan EFTA hefði leitt til þess að
H EIGNAMIÐIXJNIN
lUplSllilihbSkbKniU.Mit Pftit* I. Hw ðui i*ii. ymHf tV/jn>trrn. likira’ir. ijnrnfii Titii—ítiiTI
Til leigu
Aðalstræti - gamla ísafoldarhúsið
Eignamiðlunin hefur verið beðin í:
um að annast leigu á þessu ij
glæsilega húsnæði. Grunnflötur p
hússins erum 135 fm. Húsið hef- |
ur allt verið uppgert í gamla stíln-
um. Annars vegar erum að ræða ;
1. hæðina auk kjallarans sem er
með góðri lofthæö og bakinn-
gangi. Þessir tveir hlutar gætu
hentað fyrir verslunarrekstur eða :
matsölustað. Hins vegar er um
að ræða tvær efri hæðir sem
leigjast í sitthvoru lagi. Þær henta
vel fyrir skrifstofur eða félaga-
starfsemi. Allar upplýsingar
veita Þorleifur og Sverrir.
„EFTA-ríkin lögðu
strax í upphafi EES-
viðræðnanna fram
kröíú um að reglur
EES-samningsins um
fríverslun ættu að gilda
um sjávarafurðir." Tel-
ur ráðherrann að sam-
staða EFTA-ríkjanna á
þeim vettvangi hafi
„tryggt þann góða að-
gang sem við höfum að
mörkuðum ESB fyrir
sjávarafurðir í dag.“
Avinningur íslands
af EES-samningnum
er víðtækur og fjöl-
þættur. Hann tekur til
þjónustuviðskipta, frjáls
flæðis fjármagns og vinnuafls og
samstarfs á sviði menntunar og vís-
inda, svo eitthvað sé nefnt, og hefur
fært íslenskum fyrirtækjum ótal ný
tækifæri tU að hasla sér völl á
evrópskri grandu á grandvelli
fijálsrar samkeppni á innri markaði
Evrópu. EES-samstarfið snýst um
að samræma viðskiptareglur innan
alls svæðisins, þeim reglum sem í
gildi era í ESB á hveijum tíma. ís-
lenskt viðskiptaumhverfi hefur því
þróast í takt við þróun innri markað-
ar Evrópu. EES-samstarfið hefur
greitt götu íslensks atvinnulífs og
fjármagnsmarkaðar til alþjóðavæð-
ingar. Þessu ber glöggt vitni hin öra
nýsköpun sem átt hefur sér stað í ís-
lensku atvinnulífi undanfarin ái’ og
getið hefiu' af sér fyrirtæki á sviði
tækni og hugbúnaðar með útibú og
samstarf víða um heim.
Samsetning EFTA hefur tekið
nokkram breytingum í fjöratíu ára
sögu samtakanna. Ný ríki gengu í
hópinn og önnur stigu skrefið yfir til
ESB. í dag starfar Island með þrem-
ur öðram EFTA-ríkjum: Noregi,
Liechtenstein og Sviss. Síðastnefnda
ríkið kaus að standa utan EES, en
saman starfa þessi fjögur ríki nú af
auknum krafti að einu meginmai'-
kmiði EFTA frá upphafi, nefnilega
að tryggja viðskiptahagsmuni aðild-
arríkjanna með því að gera fríversl-
unarsamninga við ríld
utan ESB. Helstu
keppinauta EFTA-fyr-
irtækja er að finna inn-
an ESB sem hefur aukið
fríverslunarsamskipti
sín við önnur ríki og
ríkjasambönd af fullum
þunga undanfarin ár.
EFTA hefur fylgt ESB
eftir með gerð fjölda frí-
verslunarsamninga við
ríki Mið- og Austur-
Evrópu og ýmsar
Miðjarðarhafsþjóðir.
Þannig hefur tekist að
skapa fyrirtækjum
EFTA-ríkjanna jafnan
samkeppnisgrundvöll
á við keppinauta frá ESB í viðkom-
andi ríkjum. En fríverslunarsamn-
ingarnir hafa einnig þjónað því hlut-
verki að örva uppbyggingu í löndum
Mið- og Austur Evrópu og að flýta
fyrir aðlögun þeirra að evrópsku við-
skiptaumhverfi.
EFTA-rOdn hafa í vaxandi mæli
beint sjónum sínum að ríkjum utan
Evrópu í takt við síminnkandi vægi
fjarlægðar í alþjóðaviðskiptum nú-
tímans. Þau smíða nú brú yfir til vest-
urálfu með gerð fríverslunarsamn-
ings við Kanada sem verið er að
leggja lokahönd á. Ennfremur hafa
verið undirbúnar viðræður við
Mexíkó, Chile og Mercosur-ríkin
(Brasilíu, Argentínu, Úrágvæ og
Paragvæ). Samningar af þessu tagi
opna íslenskum fyrirtækjum og
frumherjum nýjar viðskiptavíddir og
tækifæri til að ryðja sér til ráms í
fjarlægum heimshomum á grund-
velli greiðari markaðsaðgangs og
frjálsrar samkeppni.
Nú þegar þijátíu ár era liðin síðan
ísland gekk í EFTA er auðvelt að sjá
hve mikill ávinningur hefur verið af
aðildinni. Það er því ástæða til að
fagna skrefinu sem stigið var inn í
samfélag Evrópuþjóða hinn 1. mars
1970.
Höfundur er framkvæmdastjóri
EFTA.
Kjartan
Jóhannsson
Haltu kjafti
og vertu sæt
á
UM árum hefur konum
fjölgað í íslenskum
stjómmálum þó að
hlutfall þeirra sé enn
langt frá því sem eðli-
legt má teljast. Þrátt
fyrir þessa jákvæðu
þróun í samfélaginu
virðist ennþá vera
ótrálega stutt í for-
dóma gagnvart konum
í stjórnmálum. Fyrir
stuttu birtist viðtal í
Vikunni við Garðar
Sverrisson, formann
Öryrkj abandalagsins,
þar sem koma fram
ummæli sem ég á erfitt
með að sitja athugasemdarlaust
undir. Grípum niður í viðtalið: „Nei,
svona stjórnmálamenn fá ekki háa
einkunn hjá mér, og raunar finnst
mér þessi skortur á pólitískum
metnaði vera nokkuð einkennandi
fyrir meirihluta þeirra kvenna sem
tipla í kringum þá Halldór og Davíð.
Þeim virðist finnast svo óskaplega
gaman að vera með stóru strákunum
að það er eins og það komist ekkert
annað að en að laga hárið, varalita
sig og brosa. Og ég get ekki að því
gert, en þegar ég sé þær allar saman
komnar í fínu pelsun-
um sínum verður mér
sífellt hugsað til þess
hve hárbeittur hann
var titillinn á skáldsögu
Vitu Andersen, Haltu
kjafti og vertu sæt, þótt
skáldkonunni hefði
sennilega seint komið
til hugar að þessi titill
ætti eftii' að verða lýs-
andi fyrir samskipti
kynjanna á vettvangi
íslenskra stjómmála
nærri aldarfjórðungi
síðar.“ Ég held að þessi
orð Garðars geti ekki
misskilist, konurnar
eru heimskar Ijóskur
sem fátt annað kunna og geta en að
snyrta sig og aðstoðað kallana þegar
Fordómar
Þrátt fyrir jákvæða
þróun í samfélagínu tel-
ur Guðrún Johnsen að
ennþá sé ótrúlega stutt
í fordóma gagnvart
konum í stjórnmálum.
á þarf að halda. Þetta era niðrandi
ummæli í garð kvenna, sem láta sig
jafnréttismál varða, algjörlega óháð
því hvar í flokki þær standa. Þykir
mér miður að maður í hans stöðu
skuli láta hafa slík orð eftir sér og
vona ég að slíkir fordómar gagnvart
konum í stjórnmálum séu á undan-
haldi.
Höfundur er hagfræðingur.