Morgunblaðið - 30.03.2000, Page 58
58 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MÚSÍKTILRAUNIR
Landsbyggð-
arkvöld
Músíktilrauna
Undankeppni Músíktilrauna lýkur í kvöld
er níu hljómsveitir bítast um sæti í úrslitun-
um á morgun. Árni Matthiasson rekur upp-
runa hljómsveitanna sem keppa í kvöld á
svonefndu landsbyggðarkvöldi tilraunanna.
UNDAKEPPNI hljómsveitar-
keppni Tónabæjar, Músíktilraun-
um, lýkur í kvöld þegar níu hljóm-
sveitir bítast um sæti í úrslitunum
annað kvöld. Líkt og jafnan er síð-
asta tilraunakvöldið helgað hljóm-
sveitum utan af landi og níu hljóm-
sveitir frá ýmsum stöðum á landinu
stíga á svið í kvöld. Akureyringar
verða fjölmennir, því tvær sveitir
þaðan taka þátt í Músíktilraunum,
en síðan eru hljómsveitir frá Eski-
firði/Reyðarfirði, Dalvík, Akranesi,
Echo
Frá Ólafsfírði eru þeir félagar í
Echo. Þeir heita Magnús Jón Magn-
ússon gítarleikari, Anton Logi
Sveinsson bassaleikari, Gísli
Hvanndal Jakobsson, gítarleikari
og söngvari, Haukur Pálsson
trommari og Tómas Konráð
Kolwski hljómborðsleikari. Meðal-
aldur þeirra er fimmtán ár og þeir
segjast spiia rólegt popp.
Kraum-
fenginn
Kraumfenginn er hljómsveit ofan
af Skaga skipuð Bjarka Þór Guð-
mundssyni trommara, Sigurbirni
Gíslasyni þúsundþjalasmiði, Stur-
laugi A. Gunnarssyni bassaleikara,
Gunnari Gunnarssyni saxófónleik-
ara, Þorsteini Gíslasyni gítarleik-
ara og Halli H. Jónssyni hljóm-
borðsleikara. Meðalaldurinn í
hljómsveitinni er um sextán ár og
spila þeir ýmislegt rokk.
Húsavík, Höfn, Keflavík, Sauðár-
króki, Laugarvatni, ísafirði og Ól-
afsfirði.
Hljómsveitirnar keppa um hljóð-
verstíma í Sýrlandi, Grjótnámunni
og Stöðinni en einnig er fjöldi ann-
arra verðlauna í boði. Tilraunirnar
eru sendar út á Netinu á www.coea-
cola.is. Ólafur Páll Gunnarsson
kynnir tilraunirnar.
I kvöld leika sigursveit síðasta
árs, Mínus, og Maus, sem sigraði
fyrir langa löngu, sem gestasveitir.
Frá Húsavík og Keflavík eru þeir
Achenis Marlock forritari og munn-
gælur, Svartgaður gjörningameist-
ari og Sephiroth Sarnaphrab gítar-
leikari. Meðalaldurinn er um
tuttugu og tvö ár og þeir spila
svartmálmstónlist.
Opium.
f hljómsveitinni Opium eru Sverrir Páll Snorrason trommari, Hjalti Jóns-
son, gítarleikari og söngvari, Davíð Þór Helgason bassaleikari og Hrafn-
kell Brimar Hallmundsson gítarleikari. Þeir félagar eru frá Akureyri og er
meðalaldur þeirra um nítján ár. Þeir segjast spila kraftmikið rokk.
Smarty Pants
Smarty Pants er hljómsveit frá Akureyri og hana skipa Sigurður Jóseps-
son trommari, Stefán Sigurðsson, gítarleikari og söngvari, Sölvi Antons-
son gítarleikari og Þormóður Aðalbjörnsson bassaleikari. Meðalaldurinn í
hljómsveitinni er um tuttugu og fjögur ár og þeir félagar aldursforsetar
músíktilrauna þetta árið. Þeir spila pönkrokk.
Decadent
Podunk (DP)
í hljómsveitinni Ðecadent Podunk
eru Magni Þór Harðarson söngv-
ari, Björn Ingi Vilhjálmsson gít-
arleikari og söngvari, Birkir
Skúlason gítarleikari, Vignir Örn
Ragnarsson bassaleikari og Örn
Ingi Ásgeirsson trommari.
Þeir eru frá Eskifírði og Reyð-
arfirði og er meðalaldurinn f
hljómsveitinni nítján ár. Þeir
spila Austfjarðametal.
Afró
Þungur metall er á matseðli hljóm-
sveitarinnar Afró frá Höfn í Homa-
firði. Hana skipa Jón Karl og Frið-
rik Jónssynir sem leika á gítar og
syngja, Rögnvaldur Ömar Reynis-
son sem leikur á bassa og Eymund-
ur Ingi Ragnarsson sem leikur á
trommur. Meðalaldur þeirra félaga
er um 21 ár.
Raddlaus
rödd
Raddlaus rödd er skipuð Árna Jó-
hannessyni, gítarleikara og
söngvara, Ólafi Þór Ólafssyni
trommara og Jóhanni L. Haf-
steins bassaleikara. Þeir koma frá
Laugarvatni, fsafirði og Reykja-
vík og meðalaldur í hljómsveitinni
er sautján ár. Þeir spila þungt
rokk.
Dissan
Bunny
Frá Sauðárkróki er hljómsveitin
Dissan Bunny sem er skipuð þeim
Áma R. Guðmundssyni gítarleikara,
Rögnvaldi Inga Ólafssyni söngvara,
Einari Þ. Tryggvasyni trommara og
Sveini I. Reynissyni bassaleikara.
Þeir spila þurigt rokk og meðalaldur
þeirra er um tuttugu ár.
t
Sl«MWI»WHlK'
t ft CQMFAQ HíTAIÖH*
tþjóna til aðt'yggi3 s«8e«nt>vl
i/íninn heturií för meft 4
þjftnustul Unum lntemet.6.
'í netþjón^ýhna og þaö er pngir
ji I helmi/um. Compaq selut tleir
24x1% COWIPftC