Morgunblaðið - 30.03.2000, Side 69

Morgunblaðið - 30.03.2000, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ ÍDAG BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson MENN voru mistækir í út- spilunum í Cap Gemini-boðs- mótinu um helgina. I þættin- um í gær sáum við heldur máttlausa útkomu gegn sex tíglum ftalans Versace, en hér er það Búlgarinn Nanev sem ber fullmikla virðingu fyrir slemmutækni Meck- stroths og Rodweils. Austur gefur; AV á hættu. Norður ♦ 10873 ¥ 5 ♦ 96 + KDG753 Vestur Austur * 965 * 42 ¥ DG104 ¥K876 * KD843 ♦ 1072 * 8 + A642 Suður ♦ ÁKDG ¥ Á932 ♦ ÁG5 ♦ 109 Nanev Rodwell Mihov Meckstr- oth Pass Pass Pass 2 grönd Pass 3 lauf* Pass 3 tíglar Pass 3 lyörtu Pass 3 spaðar Pass 4 lauf Pass 4 tíglar Pass 4 spaðar Pass 6 spaðar Pass Pass Pass Meckstroth og Rodwell spila vel útfært laufkerfi, svo það kemur á óvart að sjá þá opna á eðlilegri tveggja granda sögn. Sú opnun er að margra mati einn helsti veikleiki eðlilegra kerfa og virðist óþörf þegar hægt er að byrja á sterku laufl. En hvað sem því líður, þá er framvindan á hreinu: Fyrst er Stayman-afbrigði, þar sem svarið á þremur tíglum sýnir fjórlit í öðrum hálitun- um. Rodwell kveðst eiga spaða með þremur hjörtum og sýnir svo lauf til hliðar í næstu sögn. Það dugir Meekstroth tii að keyra í slemmu. Vestur á margi-a kosta völ í útspilinu. Hann heldur á hjónunum í tígli og er með fallega röð í hjarta. Tromp gæti verið rétt ef makker þvælist fyrir í iaufínu, og svo er það einspilið, en ekki óm- erkari maður en Benito Gar- ozzo heldur því fram að allt- af eigi að koma út með einspil. Þetta spil er vatn á myllu meistarans, því lauf er eina útkoman sem banar slemmunni. En Nanev trúði ekki á þann möguleika að makker ætti ás, því hann átti sjálfur svo mikii spil, og kom út með hjartadrottn- ingu. Þekkir maðurinn ekki „Meckwell", eða hvað?! SKÁK llmsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. Hollenski stórmeistarinn Jan Timman hefur marga fjöruna sopið og í meðfylgj- andi stöðu tókst honum með svörtu að snúa á þýska stór- meistarann og doktorinn Robert Hubner á móti í Bugojono í þáverandi Júg- óslavíu árið 1978. 20...De4! 21. h3 Hvítur var varnarlaus því að ekki dugði 21.Dxg5 þar sem eftir 21...Bh3 22.f3 De2 er hann óverjandi mát. Enn síður dugði 21.f3 því að eftir 21...De3+ 22.Kxg2 Dxf3+ 23.Kgl Rh3 er hann mát. 21...Rf3+! og hvítur gafst upp þar sem eftir 22. Kxg2 Rxd4+ missir hann drottningu sína. Arnaö heilla Q /A.VRA afmæli. Á morg- OU un, föstudaginn 31. mars, verður áttræður Kristján Stefánsson, fyrrv. yfirverkstjóri, Einholti 6c, Akureyri. Eiginkona hans er Valgerður Jónasdóttir. n /\ ÁRA afmæli. í dag, I U fímmtudaginn 30. mars, verður sjötugur Sverrir Andrésson, Bakkatjörn 3, Selfossi. Sverrir og eiginkona hans, Lillian K. Andrésson, taka á móti gestum laugardag- inn 1. apríl kl. 20 í félags- heimilinu Þingborg austan við Selfoss. Rúta fer frá Hótel Selfossi kl. 19.45. Meó morgunkaffinu COSPER 'Áú Ég var að kaupa af- mælisgjöfína þína, elskan. Vesalings fískurinn. Líf hans er eitt langt bað. LJOÐABROT LANDSLAG Heyrið vella á heiðum hveri, heyrið álftir syngja í veri, Islands er það lag. Heyrið fljót á flúðum duna, foss í klettaskorum bruna. íslands er það lag. Eða fugl í eyjum kvaka, undir klöpp og skútar taka. íslands er það lag. Heyrið brim á björgum svarra, bylja þjóta svipi snarra. Islands er það lag. Og í sjálfs þín brjósti blundar blunda raddir náttúrunnar, Islands eigið lag. Innst í þínum eigin barmi eins í glepi og eins í harmi ymur íslands lag. Grímur Thomsen. STJÖRJYUSP4 eftir Frances Drake HRUTUR Afmælisbam dagsins: Þú ert léttlyndur og starfs- fus en hættir til að vera með ofmörgjárn í eldinum í einu. Hrútur (21.mars-19. apríl) Ollum okkar gjörðum fylgir mikil ábyrgð svo þú skalt gæta þess vel, hvað þú gerir öðrum og einnig.hvað þú læt- ur út úr þér um annað fólk. Naut (20. apríl - 20. maí) í^t Þú þarft að vera í farar- broddi fyrir breytingum á vinnustað þínum. Axlaðu þá ábyrgð því þú ert vel til þess fallinn og láttu svo eðlisávís- unina ráða. Tvíburar _ (21. maí - 20. júní) nA Það ríður á að þú sjáir til þess að ekkert fari úrskeiðis svo þú skalt hafa vakandi auga á því sem er að gerast hjá þér bæði í einkalífi og starfi. .Jjg Krabbi (21. júní - 22. júlí) Sumum finnst þú gera of mikið úr hlutunum en þú hef- ur það þér til afsökunar að þessi atriði geta skipt sköp- um í lífi þínu svo haltu þínu striki. Ljón (23. júlf - 22. ágúst) m Þótt það sé erfitt skaltu brjóta odd af oflæti þínu og biðjast afsökunar þar sem það á við. Þá ertu maður að meiri og getur haldið ótrauð- ur áfram. Méyja (23. ágúst - 22. sept.) (fiSk Það er oft gaman að kynnast nýju fólki sérstaklega þegar það getur kynnt manni nýjar hugmyndir og framandi lönd. Vertu samt á verði. 'yrrv (23. sept. - 22. október)^ 4* Það gengur mikið á í kring- um þig. Forðastu að dragast inn í deilur annarra. Haltu þér til hlés og láttu storminn ganga yfir. Sporðdreki (23. okt.-21.nóv.) Vertu óhræddur við að leggja hugmyndir þínar und- ir dóm annarra og að hrinda þeim í framkvæmd ef að að- stæður þykja vera til þess. Bogmaður m ^ (22. nóv. - 21. des.) lliO Fjármálin þurfa aðgæslu við svo þú ættir að halda út- gjöldunum niðri eins og frek- ast er kostur. Síðar kemur betri tíð með blóm í haga. Steingeit (22. des. -19. janúar) Það getur verið skemmtilegt að krydda hversdagsleikann með smávægilegum upp- átækjum. Sú tilbreytingbara gleður sálina. Vatnsberi (20. jan. -18. febr.) «5\í Þér finnst ekkert ganga til að ná settu marki en sýndu örlitla þolinmæði og leyfðu hlutunum að þróast með sín- um hraða og þá kemur allt að sjálfu sér. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þér finnst þú vera að drukkna f verkefnum en mál- ið er að þú þarft bara að for- gangsraða hlutunum og leysa svo eitt mál í einu. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni\' ' FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000 69 . v Mikið úrval af fallegurt peysum og bolum 100% bómull. Stærðir S—XL POLARN O. PYRET Kringlunni — s. 5681822 Nýkomin sundföt fyrir litlar stelpur og stráka Úrvalið er hjá okkur ■olfiAjX*. oiXfJJtA' S ( M I 553 3 3 6 6 ~ G L Æ S I B Æ Opið á iaugardögum frá 11.00 til 16.00 -rf- KONFEKTMÓT ll PÁSKA- iGGJAMÓ' MATARLITIR Póstsendum PIPAR OG SALT Klapparstíg 44 ♦ Sími 562 3614 |

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.