Morgunblaðið - 30.03.2000, Qupperneq 80
(vJaíT
MBJST ■■•HAX'EiiU
Hefðarkettihnií^
Fáanleg á sölumyntíbandí
3H^t0tntUaM^
ELGO'
21
Traustar
íslenskar
múrvörur
Síðan 1972
Leitið tilbaða! ■ I steinprýði
MORGUNBLAÐW, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3M0,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000
VERÐ ILAUSASOLU 150 KR. MEÐ VSK.
Nýjar áætlanir um álver og breytta virkjanaröð hlífa Eyjabökkum
Allar virkjana- og álvers-
framkvæmdir fari í mat
HÆGT verður að hlífa Eyjabökk-
um með því að Fljótsdalsvirkjun
verði rennslisvirkjun sem tengd
yrði Kárahnúkavirkjun eins og
hugmyndir eru uppi um ef farið
verður að þeim óskum forráða-
manna Reyðaráls að reisa í fyrsta
áfanga 240 þúsund tonna álver í
Reyðarfirði í stað 120 þúsund
tonna álvers. Pað myndi kalla á
breytta virkjanaröð en ráðast þarf
í byggingu Kárahnúkavirkjunar til
Við útvega orku fyrir 240 þúsund
oonna álver.
Fjárfestar í Reyðaráli hf., sem
áforma að reisa álver í Reyðarfirði,
hafa komist að þeirri niðurstöðu að
hagkvæmt geti reynst að breyta
áætlunum um verkefnið. „Þannig
verði hafist handa við að reisa 240
þúsund tonna álver í fyrsta áfanga
en það yrði síðan stækkað um 120
þúsund tonn í samræmi við endur-
mat á áætlunum um orkuöflun,"
segir í yfirlýsingu frá Reyðaráli.
Fjárfestarnir hafa beint því til ann-
arra aðila Noral-verkefnisins,
Landsvirkjunar og iðnaðar- og við-
skiptaráðuneytisins, að frumhag-
kvæmnisathugun verði gerð á
þessum kosti næstu vikurnar.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, segir að
ákvarðanir hafi ekki verið teknar
um að breyta áætlun um virkjana-
röð en stjórnvöld hafi fallist á að
skoða þann kost til hlítar. „Verði
þetta niðurstaðan þarf að byrja á
því að fara í Kárahnúkavirkjun,“
segir ráðherra og gerir ráð fyrir að
hægt verði að bjóða út þær fram-
kvæmdir í fyrsta lagi í ársbyrjun
2002. Hún segir einnig mikilvægt
að þá þegar liggi fyrir ákvarðanir
um stækkun álversins upp í 360
þúsund tonn því það hafi áhrif á
verkáætlanir Landsvirkjunar.
Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir að kannað
verði næstu daga hvernig breyta
megi röð virkjanaframkvæmda
vegna þessara nýju hugmynda.
„Þetta þýðir að við þurfum að fara
með Kárahnúkavirkjun í mat á um-
hverfisáhrifum samkvæmt gildandi
lögum og það tekur að sjálfsögðu
nokkurn tíma,“ segir forstjórinn.
Hann segir Landsvirkjun vel í
stakk búna til að hefja matsferlið
fljótlega en efna þurfi samt til frek-
ari rannsókna. Hugsanlega yrði
hægt að hefja framkvæmdir á síð-
ari hluta ársins 2002, verði leyfi
veitt, sem þýddi að orkuafhending
gæti hafist seint á árinu 2007 eða í
byrjun árs 2008. Hann sagði Kára-
hnúkavirkjun gríðarlega fjárfest-
ingu, kringum 90 milljarða, að
meðtalinni Fljótsdalsvirkjun ef ál-
ver yrði stækkað í 360 þúsund
tonn, og Landsvirkjun myndi ekki
fara af stað með framkvæmdir án
þess að hafa góðar tryggingar frá
orkukaupanda.
Geir A. Gunnlaugsson, stjórnar-
formaður Reyðaráls hf., segir að
240 þúsund tonna álver mun hag-
kvæmari kost en 120 þúsund tonna
álver og því áhugaverðari fyrir
fjárfesta. Hann segir Hydro Alum-
inium hafa lýst áhuga á að eiga
meira en fjórðungshlut í álverinu.
„Það hefur komið fram að þeir eru
tilbúnir að eiga stærri hlut í svo
stóru álveri og þá er verið að tala
um 40% hlut,“ segir Geir.
■ Eignarhald/40
Bensínhækk-
" un um mán-
aðamótin
BENSÍN hækkar í verði nú um
mánaðamótin. Um síðustu mánaða-
mót hækkaði verð á bensínlítra um
2,40 kr., en líklegt er talið að
hækkunin verði jafnvel meiri nú.
Einar Benediktsson, forstjóri 01-
ís, sagði í gær að hækkunin nú
væri tilkomin vegna hækkunar á
heimsmarkaði um mánaðamótin
janúar/febrúar.
♦ ♦ ♦
* Húsasmiðjan
á Verðbréfa-
þing
EIGENDUR Húsasmiðjunnar hf.
ætla að sækja um skráningu hluta-
bréfa íyrirtækisins á Verðbréfaþing
íslands og er stefnt að slo-áningunni í
maí næstkomandi. íslandsbanki
F&M hefur umsjón með undirbún-
ingi að skráningu fyrirtækisins.
Húsasmiðjan hefur lengst af verið
fjölskyldufyrirtæki og ætla stærstu
eigendumir að selja hluta af bréfum
sínum í almennu útboði sem fram fer í
tengslum við skráningu íyrirtækisins
VÞÍ. Einnig mun íslandsbanki, sem
á 20% hlut í fyrirtækinu, selja mestan
hluta eignar sinnar í útboðinu.
■ Eðlileg þróun/6B
Kólnar aft-
ur í veðri
ÞÓ hlýnað hafi siðustu daga er
nauðsynlegt að sjá til þess að snjó-
bræðslukerfi sinni örugglega hlut-
verki sínu þegar næsta áhlaup ger-
ir, þó það verði vonandi ekki fyrr
en næsta vetur. Spáð er kólnandi
veðri næstu daga.
Morgunblaðið/Golli
Kominn
undir
læknis-
hendur í
Resolute
Resolute. Morgunblaðið.
INGÞÓR Bjarnason kom til þorps-
ins Resolute í gær og komst þar
undir læknishendur vegna kalsár-
anna sem hann hlaut úti á ísnum
og urðu þess valdandi að hann
ákvað að hætta ferðinni áleiðis að
Norðurpólnum. í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöld bar Ing-
þór sig vel og sagðist vera orðinn
sáttur við ferðalokin.
„Ég hefði farið enn verr hefði
ég haldið áfram, ég var farinn að
eiga í miklum erfiðleikum með að
vinna nauðsynleg verk í tjaldinu
og fann fyrir miklum sársauka.
Þegar ástandið var sem verst síð-
asta daginn líktist það mjög sáru
naglakuli og það var ekki fyrr en
ég tók verkjastillandi lyf að mér
fór að skána.“
Ingþór fór beina leið í skoðun á
heilsugæslustöðinni í Resolute og
fékk að vita þar að kalið hefði get-
að orðið verra. „Mér er sagt að
það taki jafnvel tvo mánuði að sjá
hvernig kalsárunum reiðir af.
Hjúkrunarfræðingarnir hér telja
að ég muni jafna mig með tíman-
um, en það er aðallega fremsti
hluti löngutangar hægri handar
sem þeir hafa smávegis áhyggjur
af. Hugsanlegt er að ég missi hold
framan af fingrinum en ég er þó
bjartsýnn á að það gerist ekki.“
Ingþór getur beitt höndunum
við flesta hluti en þarf að gæta
þess vandlega að kalblöðrurnar
springi ekki vegna sýkingarhættu.
„Ég verð að láta blöðrurnar
hjaðna með timanum, en fingurnir
eiga eftir að verða mjög litríkir
eins og á þeim væru ljótir mar-
blettir en það eru eðlileg viðbrögð.
Á tveimur fingrum eru ennfremur
mjög blásvört svæði.“
Ingþór mun dvelja næstu 3-5
daga i Resolute til að huga að
aukabirgðum fyrir Harald ef hann
ákveður að halda áfram förinni
um helgina.
■ Haraldur kominn/12
Forsætisráðherra á ársfundi Seðlabankans
Lífeyrissparnaður geti
numið 20% af launum
Landsbanki íslands
www.landabanki.is
net _
g r e i ö s I a j
8)BPHy|SPI|jgBgMIW
ÍSLANDSBANKI
www.lsbank.is
í FRUMVARPI sem verið er að
leggja lokahönd á í fjármálaráðu-
neytinu er m.a. kveðið á um að frá-
dráttarbær heildariðgjöld atvinnu-
rekenda og launþega til lífeyris-
spamaðar geti samtals numið allt að
20% af launum, með ákveðnu há-
marki þó í krónum talið. Þetta kom
fram í ræðu Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra á ársfundi Seðlabank-
ans í gær.
Verði frumvarpið að lögum, mun
það hvetja fólk til að auka sparnað
sinn verulega, að sögn forsætisráð-
herra og til viðbótar mun ríkið auka
mótframlag sitt til hins frjálsa við-
bótarlífeyrissparnaðar, sem í dag
nemur 0,2% af launum, í 0,4%.
Forsætisráðherra gerði einnig
grein fyrir öðru frumvarpi sem lagt
verður fram á næstunni. Þar verða
settar reglur um skattalega meðferð
kaupréttarsamninga á hlutabréfum
hjá starfsmönnum fyrirtækja. Eink-
um verður stuðst við bandarískar fyr-
irmyndir varðandi skattlagningu á
slíkum kjörum. Davíð sagði að kaup-
réttur sem hluti launakjara hefði
þann augljósa kost, að gera smám
saman æ fleiri launamenn að eigna-
fólki og þess yrði gætt að slíkur rétt-
ur næði til allra starfsmanna í hverju
fyrirtæki en ekki fárra útvalinna.
Skuldir heimilanna 147% af
ráðstöfunartelgum þeirra
í máli Birgis ísleifs Gunnarssonar
seðlabankastjóra kom m.a. fram, að
horfur í efnahagsmálum væru góðar
en að brýna nauðsyn bæri til að
treysta stjóm á þeim þáttum sem
áhyggjum yllu. Verðbólgan og við-
skiptahallinn yllu því að þörf væri
mikils aðhalds í peningamálum og
opinberum fjármálum.
I ræðu sinni kom seðla-
bankastjóri inn á skuldir heimil-
anna, en bráðabirgðauppgjör sýnir
fram á aukningu um 71 milljarð
króna á liðnu ári, sem er 147% af
áætluðum ráðstöfunartekjum heim-
ilanna það ár.
Fyrir áratug námu skuldir heim-
ilanna 72% af ráðstöfunartekjum og
fimmtungi fyrir tveimur áratugum.
■ Verðbólgan/11