Morgunblaðið - 10.06.2000, Page 6

Morgunblaðið - 10.06.2000, Page 6
6 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Amaldur Gunnar Bjarnason gengur frá hurð í stafverkið í skála Eiríks rauða í Haukadal. Sofið í Eiríksskála í fyrsta skipti SMÍÐI tilgátubæjar á Eiríksstöð- uni í Haukadal, fæðingarstað Leifs heppna, er að Ijúka. Bærinn verð- ur vígður með formlegum hætti á Leifshátiðinni í ágúst. Einn smið- urinn var ákveðinn í þvi að sofa í skálanum í nótt. Guðmundur Óli Kristinsson frá Dröngum og Gunnar Bjarnason voru ásamt þremur aðstoðarmönn- um að ljúka smíðavinnu þegar blaðamenn litu við á Eiríksstöðum í fyrradag. Bjuggust þeir við að ljúka smíðinni í dag. laugardag, og var Guðmundur Óli staðráðinn í því að sofa í skálanum síðastliðna nótt, fyrstur manna. Bygging skálans byggist á rann- sóknum fornleifafræðinga á rúst- um bæjar Eiríks rauða á Eiríks- stöðum. Bærinn er hlaðinn og annaðist Guðjón Kristinsson frá Dröngum það verk. Inni er líkt eftir fornu stafverki og gamalt verklag notað. Viðurinn er höggv- inn og skafinn, eins og gert var, og notuð til þess áhöld sem Gunn- ar Bjarnason hefur smíðað. Þrjú rúmstæði verða í skálanum og á að vera hægt að segja gestum hvar Leifur heppni fæddist. Einnig er verið að ganga frá umhverfinu og á því verki að Ijúka í mánuðinum. I tilefni af því að 1000 ár eru nú liðin frá því Leifur fann Vínland stendur Dalabyggð fyrir Leifshá- tið á Eiríksstöðum dagana 11. til 13. ágúst í sumar. Þá verður skáli Eiríks rauða vígður. Um 70% nýting í Islandsflugi Go Morgunblaðið.London SALA á flugferðum á vegum breska lággjaldaflugfélagsins Go til og frá ís- landi hefur gengið vel og er nýting á flugvélum nú þegar um 70% yfir sum- armánuðina, að því er Barbara Cass- ini, forstjóri félagsins, tjáði Morgun- blaðinu. Aætlunarflug Go til íslands hófst í lok maí og flogið verður íjórum sinnum í viku íram til 27. september. „Mun skemmri tíma hefúr tekið að selja sæti til Islands en á aðra áfanga- staði okkar þar sem í Bretlandi er mik- ill áhugi fyrir landinu, sér í lagi á meðal ungs fólks,“ segir Cassini. „Eftir- spumin kom okkur skemmtOega á óvart en er því miður ástæða fyrir því að á skömmum tíma seldust upp allra ódýrustu sætin í júní, júlí og ágúst. ís- lendingar hafa þó tekið ferðum okkar vel, þeir voru til dæmis í liðinni viku um 30 prósent farþega á þessari flug- leið.“ Helmingur sæta á lægsta gjaldi Cassini segir Go bjóða um helming flugsæta á lægsta fargjaldi tíl áfanga- staða sinna og þai' sé ísland engin undantekning. „Skjót viðbrögð hvetja okkui' til að halda áætlunarflugi áfram tíl íslands allt árið um kring en ákvörðun um hvort af því verður mun liggja fyrir á næstu vikurn." Frá því að Go hóf starfsemi fyrir tveimur árum hefur flugfélagið flutt um 2,5 milljónir farþega. Starfsmenn voru í upphafi tveir, en eru nú 650 tals- ins. Bækistöðvar flugfélagsins eru á Stansted flugvelli rétt utan við London og þaðan er flogið til 18 áfangastaða. ISO 9001 er alþjóðlegur staðall um gæðakerfi sem tryggir þér fyrsta flokks vöru. Kynntu þér sérstöðu okkar á www.bmvalla.is Söludeild í Fornalundi Breiðhöfða 3 • Sími 585 5050 www.bmvalla.is Wwk ■£ - í ll • H f ji 1 e GÆDAKERfl' VOTTAÐ a NfUÁOA IST ISO 9001 ' ~ A Ahugi á að tengja smávirkjanir landsneti RARIK Fyrsta heimaraf- stöðin tengd HEIMARAFSTÖÐIN á Þorvalds- eyri undir Eyjafjöllum hefur verið tengd við landskerfi RARIK í til- raunaskyni. Ólafur Eggertsson bóndi vonast til að tilraunin leiði til þess að fjöldi smávirkjana tengist netinu. A áttunda tug áhugamanna tók þátt í ráðstefnu sem Fræðslunet Suðurlands hélt á Kirkjubæjar- klaustri í gær og fyrradag um upp- byggingu og rekstur smávii'kjana. Að sögn Ólafs Eggertssonar, for- manns Landssamtaka raforku- bænda, voru þátttakendur af öllu landinu, jafnt bændur sem þegar hafa virkjað og menn sem hafa áhuga á því. í tengslum við nám- stefnuna var haldinn aðalfundur Landssamtakanna og túrbínusmiðir og -innflytjendur kynntu vörur sín- ar. Viðræður við stjórnvöld Ólafur segir að margir bændur eigi möguleika á að virkja og telur að vakning sé að verða á þessu sviði. Raforkubændur hafa verið í viðræðum við opinbera aðila og Raf- magnsveitur ríkisins um að fá heim- ild til að tengja þessar smávirkjanir inn á landskerfi RARIK enda segir Ólafur það það hefði mikla þýðingu fyrir eigendur virkjananna. Léggur hann þó áherslu á mikilvægi þess að menn undirbúi framkvæmdina vel, láti meta hagkvæmni og afli sér all- ra nauðsynlegra leyfa. Löng hefð er fyrir raforkufram- leiðslu á Þorvaldseyri, eða frá 1928 að fyrst var virkjað. Virkjunin stóð ónotuð um tíma en Ólafur lét gera hana upp í fyrra og segir að afl hennar verði 18 ldlówött þegar stöðin verði komin í full afköst. Hann hefur sjálfur not fyrir 10 kW og vill selja RARIK það rafmagn sem eftir er. Fékkst leyfi til að tengja stöðina inn á landskerfi RARIK í tilrauna- skyni og var það gert í fyrradag. Þurfti að kaupa ákveðinn búnað til að gera tenginguna örugga og er verið að reyna hann. Virkjunin verður til sýnis þá viku sem tilraun- in stendur. Vonast Ólafur til að tilraunin heppnist vel og leiði til þess að fjöldi lítílla virkjana fái leyfi til að fram- leiða inn á netið. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Þátttakendur í námsstefnu um heimarafstöðvar skoða stíflu virkjunarinnar á Seglbdðum í Landbroti. Afföll húsbréfa mælast nú 8,7% AFFÖLL á húsbréfum mælast nú 8,7% en ávöxtunarkrafa á 40 ára bréfum 5,42% og á 25 ára bréfum mælist hún 5;70%. Viðskipti á Verð- bréfaþingi Islands með húsbréf hafa nokkuð dregist saman undan- farnar tvær vikur en fóru vaxandi að nýju í þessari viku. Fasteignasal- ar sjá aftur á móti litla breytingu á fasteignamarkaðnum. Guðrún Arnadóttir, formaður félags fast- eignasala, segist þó telja að verð á fasteignum sé komið í hámark. Yfirverð var á húsbréfum síðasta haust en breyting varð á því nú í vetur og um miðjan maí var staðan orðin sú að afföll á húsbréfum fóru upp undir 20%, einkum á 40 ára bréfunum. Ásbjörn Þorleifsson, sérfræðingur á fjárstýringarsviði fbúðalánasjóðs, segir þróunina hins vegar hafa verið í rétta átt eftir að Lánasýsla ríkisins og íbúðalána- sjóður, í samstarfi við sín fagráðun- eyti, gripu til aðgerða til að auka jafnvægi og gagnsæi á markaðnum. Akvað Lánasýslan þá að setja Heildarviðskipti með húsbréf á viku hjá VÞÍ 2. maí til 9. júní , „„„ Markaðsverð 1 þús. kr. 1.200—------1----------- 1.000- 800 600 ------------------ 400 200 VIKA 18. 19. 20. 21. 22. 23. upp nýja viðskiptavakt og íbúða- lánasjóður setti upp viðskiptavakt með breyttu formi, auk þess sem íbúðalánasjóður ákvað að ráðstafa því sem hefur verið fyrirfram greitt af fasteignaverðbréfum á árinu 1999 og fyrstu fjórum mánuðum ársins 2000 til endurkaupa á húsbréfum. Engin merki um samdrátt á fa- steignamarkaði Sagði Ásbjörn að menn gerðu sér vonir um að afföllin eigi eftir að lækka enn frekar í kjölfar þessara aðgerða og að fólk fari að kaupa minna húsnæði og þá um leið að taka lægri lán. Með því móti myndi draga smátt og smátt úr misvæginu milli frambpðs og eftirspurnar. Guðrún Árnadóttir, formaður fé- lags fasteignasala, sagðist hins veg- ar ekki sjá nein merki þess að sam- dráttur væri að verða á fasteignamarkaði. Sagði hún ráð- stafanir til að styrkja húsbréfakerf- ið að einhverju leyti líklegar til að draga úr óvissu á húsbréfamarkaðnum en spurningin væri hins vegar sú hver áhrif það hefði ef verðbólga færi að aukast verulega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.