Morgunblaðið - 10.06.2000, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000 25
Tölvu-
þrjótar
gerðir
iðjulausir?
Washington. The Daily Telegraph.
FYRRUM ofursti í leyniþjónustu
Sovétríkjanna (KGB), sem búsettur
er í Bandaríkjunum, hefur lagt inn
umsókn um einkarétt á nýju kerfi
er gert getur tölvuþrjóta iðjulausa
og er talið að uppfinningin muni
geta orðið bjargvættur bandarísks
tölvuiðnaðar.
Frá því honum var smyglað frá
Sovétríkjunum sálugu með aðstoð
leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA)
hefur Victor Sheymov starfað fyrir
bandarískar öryggismálastofnanir í
þeim tilgangi að brjótast inn í tölvu-
kerfi KGB sem hann hafði sjálfur
hannað.
Eftir að hann lenti í útistöðum við
yfirmenn sína innan CIA stofnaði
Sheymov eigið tölvufyrirtæki og
hóf rannsóknir á að bæta reikniriti
(algrími) við kerfisforritun tölva
sem að hans mati mun stuðla að því
að ekki verði hægt að brjóta sér leið
inn í tölvur og afrita upplýsingar.
Tölvuþrjótar hafa á undanförnum
skapað mikil vandræði fyrir banda-
rísk fyrirtæki og ríkisstofnanir og á
síðustu misserum hefur komist upp
um fjölda tilfella innan bandaríska
utanríkisráðuneytisins og CIA þar
sem óprúttnir tölvuþrjótar hafa af-
ritað mikilvæg skjöl úr tölvum er
taldar voru öruggar.
Fyrrum samstarfsmenn Sheym-
ovs hjá Þjóðaröryggismálastofnun
Bandaríkjanna (NSA) hafa reynt að
brjótast inn í tölvur búnar reikniriti
Sheymovs en enn hefur engum tek-
ist að komast alla leið.
Talið er að Victor Sheymov sé á
góðri leið með að verða næstur í
langri röð milljónamæringa sem
hagnast hafa gífurlega í tölvuiðnað-
inum á undanförnum árum.
--------------
Átök í
Kongó
Kisangani í Kongó. AP.
HERSVEITIR frá Rúanda og Úg-
anda skiptust í gær á skotum og
vörpuðu sprengikúlum hvorar á aðra
í hafnarborginni Kisangani á bökk-
um Kongófljóts. Ekki var Ijóst hvort
hernaðarlegt markmið var með
vopnaviðskiptunum.
Atökin urðu þrátt fyrir friðarsam-
komulag sem gert var fyrir milli-
göngu Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í
ágúst sl., og hefur kúlnahríð staðið í
borginni í fimm daga. Alþjóða rauði
krossinn telur að um eitt hundrað
óbreyttir borgarar hafi fallið og aðrir
700 særst.
Flestir íbúar borgarinnar, sem
eru um 200 þúsund, hafa orðið að
leita skjóls íyrir kúlna- og sprengju-
regninu í kjöllurum og niðurgröfnum
bráðabirgðaskýlum. Hvorki vatn né
rafmagn er að hafa og matur er af
skornum skammti.
Danilo Paiva, yfirmaður eftirlits-
sveitar SÞ í borginni, sagði að ekki
væri hægt að fjarlægja lík af götum
eða úr húsum. Hluti borgarinnar
væri í rúst. Læknar kæmust ekki
heimanað frá sér.
„[Hermennirnir] eru að reyna að
hræða íbúana... og vilja hindra ferð-
ir eftirlitsmanna SÞ og hjálparstofn-
ana,“ sagði annar eftirlitsmaður,
Khan Khalid. „Það er ekkert aug-
ljóst markmið með bardögunum.
Hvorugum aðila hefur orðið nokkuð
ágengt.“
Herir Rúanda og Úganda voru
upphaflega bandamenn í stríði gegn
forseta Kongó, Laurent Kabila, og
voru á leið frá Kisangani sl. mánu-
dag er átök brutust út milli þeirra
um yftrráð í borginni. Eftirlitsmenn
SÞ sögðu báða aðila skjóta stans-
laust og af handahófi.
Opinberir starfsmenn í Þýzkalandi boða til allsherjarverkfalls
Frankfurt, Bcrlín. AP, AFP.
Nær til 3,1 millj
ónar launþega
MIKILL meirihluti félaga í stétt-
arfélögum opinberra starfsmanna
í Þýzkalandi hefur samþykkt í at-
kvæðagreiðslu að hefja allsherj-
arverkfall næstkomandi þriðju-
dag. í stéttarfélögunum er um 3,1
milljón launþega er starfa við
samgöngur, skrifstofustörf,
kennslu, hjúkrun og annað á veg-
um ríkisins, sambandslandanna
og bæjar- og sveitarfélaga.
Samningaviðræðum verður
fram haldið og lausnar leitað í
deilunni. Formaður stéttarfélags
starfsfólks í opinberri þjónustu,
Herbert Mai, sagði að fulltrúar
hins opinbera hefðu boðið til
samningafundar um hvítasunnu-
helgina og myndu stéttarfélögin
íhuga hvort slíkar viðræður væru
líklegar til að skila árangri.
Mai sagði að krafizt væri launa-
hækkana til handa félagsmönnum
opinberra stéttarfélaga í sam-
ræmi við það sem tíðkaðizt í öðr-
um geirum á vinnumarkaðnum,
og ennfremur aukinna möguleika
á hækkun launa í austurhluta
Þýzkalands til jafns við það sem
gerist í vesturhlutanum.
Fjármálaráðherra Saxlands,
Georg Mildbrat, fer fyrir samn-
inganefnd sambandslandanna.
Hann hefir sagt að ekki séu til
peningar til þess að verða við
kröfum stéttarfélaganna. Aftur á
móti hefir innanríkisráðherra
Þýzkalands, Otto Sehily, er hefir
síðasta orðið í þessum efnum, ver-
ið öilu sáttfúsari.
Laun opinberra starfsmanna í
austurhluta landsins eru nú 86,5%
þess sem opinberir starfsmenn í
vesturhlutanum hafa, og þar að
auki er vinnuvikan lengri fyrir
austan. Samkvæmt síðasta tilboði
hins opinbera hefðu laun starfs-
manna eystra hækkað í sem nem-
ur 90% af launum þeirra fyrir
vestan árið 2002. Var þessu til-
boði hafnað af samninganefnd
stéttarfélaganna.
/\lbatros
GOLFVE RSLUN
Opið golfmót
verður haldið á Keilisvellinum
í Hafnarfirði mánudaginn 12. júní 2000
Keppnisfyrirkomulag: 18 holu höggleikur
Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir
1. 2. og 3. sœti með og án forgjafar
Hola í höggi
Opel Astra fyrir holu í höggi á 10. braut
Aukaverðlaun:
Nœst holu á öllum par 3 brautum
Happdrætti
Dregið verður úr
skorkortum í mótslok
Cteuetand
G O L_ F
Ræst út frá kl. 08:00 - Skráning í síma 555 3360 - Mótsgjald kr. 2.500,-