Morgunblaðið - 10.06.2000, Síða 26
26 LAUGAKDAGUR 10. JÚNÍ 2000
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Skenuntilegt að fylgjast
með gróðrinum á vorin
Garðyrkjufélag Islands er félag áhuffafólks
um garðrækt og er starfsemi þess fjölbreytt
og blómleg. Hrönn Indriðadóttir ræddi við
formann félagsins og fékk hjón með mikinn
áhuga á garðrækt að segja frá nokkrum
vorplöntum.
Morgunblaðið/Ásdís
Hjónin Hulda G. Filippusdóttir
og Ámi Kjartansson.
HJÓNIN Hulda G. Filippusdóttir
og Arni Kjartansson búa í Hlað-
bæ 18, en garðurinn þeirra hefur
nokkrum sinnum verið valinn til
skoðunar af Garðyrkjufélagi fs-
lands.
„Þegar ég byrjaði að rækta
garðinn í kringum árið 1976
skráði ég okkur hjónin í Garð-
yrkjufélag íslands," segir Árni.
„Þar fær maður að vita allt sem
snýr að garðrækt."
Garður þeirra hjóna er um 900
fermetrar og þar er að finna mik-
inn fjölda plantna. Auk þess eiga
Hulda og Arni fjöldann allan af
ljósmyndum af um 600 tegundum
sem er að finna í garðinum. „Ég
hef mikla ánægju af því að sýna
fólki garðinn. Við hjónin söfnum
aðallega fjölæringum en minna af
runnum því það er svo lítið til af
blómstrandi runnum. Ymist er
plöntunum sáð, þær keyptar eða
fengnar gegnum skipti við kunn-
ingjana í Dalíuklúbbnum, en
hann er með skiptifund einu sinni
á ári,“ segir Árni.
Gott að grisja oft
í garðinum hjá Árna og Huldu
má einnig finna matjurtir eins og
jarðarber, gulrætur og brokkólí,
en að sögn Árna er mjög gott að
rækta matjurtirnar í íslenskri
veðráttu og hann spáir því að
jarðarberin verði fullþroskuð í
júní- júlí.
„Það þarf að grisja oft í garðin-
um og gott er að skipta plöntun-
um út á þriggja ára fresti. Ann-
ars er moldin lykilatriðið þegar
ræktun er annars vegar.
Plöntur koma og fara, það
deyja venjulega um 10 til 20
plöntur á ári í garðinum, annars
er ég alltaf að prófa eitthvað
nýtt.
Veðráttan undanfarið hefur
verið mjög slæm fyrir plöntum-
ar, ég man ekki eftir verri tíð.
Vegna veðurfarsins er gróðurinn
hálfum mánuði á eftir í ár,“ segir
Árni.
Blaðamaður bað Árna að velja
tvær vorplöntur í garðinum til að
segja sérstaklega frá og fyrir val-
Hér má sjá hluta af garðinum að Hlaðbæ 18.
inu urðu kúlulykill og urðalyng-
rós. „Kúlulykill er til í mismun-
andi litafbrigðum, rósrauður eða
rauðfjólublár og stöku sinnum
hvítur. Blómstönglarnir verða 10
til 30 sentimetra háir og blómgun
er venjulega í apríl til maí sunn-
anlands og getur hann því farið
Urðalyngrós
Kúlulykill
illa í kuldaköstum á vorin.“
Jöklasóleyin er uppáhalds-
planta Árna, hún er lágvaxin há-
fjallajurt sem erfitt er að rækta í
görðum. „Ég vil þó nefna aðra
tegund sem blómgast seinna og
er mjög áhugaverð. en það er
urðalyngrós. Hún þarf súran
jarðveg en að öðru leyti þarf lítið
að hafa fyrir henni. Tegundin er
15- 40 cm há, blómin dökkbleik
og blómgun í júlí að jafnaði."
Að sögn þeirra hjóna fer ekki
allur tími þeirra í að hugsa um
garðinn, þau eiga fleiri áhugamál
eins og sund, skíði og ferðalög.
„Bestu ráðin sem ég á handa
fólki þegar kemur að garðrækt er
að hafa fyrst og fremst áhuga og
gaman af þessu, því þá kemur
allt annað af sjálfu sér. Það er
ekkert eins skemmtilegt og að
fylgjast með gróðrinum á vorin.
Fylgjast með því hvað lifir og
hvað kemur vel upp,“ segir Árni.
Kristinn H.
Þorsteinsson
Heimsókn í Garð-
yrkjufélag íslands
Safn undir
berum
himni
VAXANDI áhugi er á garðrækt
meðal íslendinga, að mati Kristins
H. Þorvaldssonar formanns Garð-
yrkjufélags íslands. „Áhuginn
endurspeglast í starfsemi félags-
ins, sem er afar fjölbreytt. Félagið
rekur meðal annars fræbanka,
bókasafn, skipuleggur fræðslu-
ferðir, er með fræðslufundi og ár-
Iega garðaskoðun einn dag í júlí
og hefur aðsókn verið mjög góð
undanfarin ár. Á fimmtudögum
gefst siðan áhugasömum tækifæri
til að hringja í stjómarmenn fé-
lagsins og leita svara við spum-
ingum sem tengjast gróðri og
garðrækt.“
Mikil ræktun hefur átt sér stað
um land allt undanfarið, að mati
Kristins, og aukið skjól er að
myndast í byggðakjömum lands-
ins sem gefur áhugamönnum betri
tækifæri til að rækta fleiri teg-
undir.
Kvöld-
göngur í júlí
í samstarfi við Grasagarð
Reykjavíkur mun Garðyrkjufélag-
ið bjóða félagsmönnum í kvöld-
göngur í júlí og í samstarfi við
Skógræktarfélag íslands verður
einnig boðið til morgunstundar.
„Gengið verður um nærliggjandi
bæjarfélög og tré skoðuð. Við
byijuðum á þessu í fyrra og fóram
þá um miðbæ Reykjavíkur. Þetta
gafst mjög vel og mikill íjöldi kom
í göngumar."
Garðyrlyufélagið var stofnað
árið 1885 og er lykill að alþjóð-
legri fræðslu í garðrækt, en fé-
lagið vinnur að eflingu garðyrkju
í Iandinu, að sögn Kristins. Bóka-
safnið er að finna á skrifstofu fé-
lagsins, Frakkastíg 9, þar sem op-
ið er tvo daga í viku og aðstaða er
til að lesa.
* &
Ert þu a leiðinni i frí? Ef þu kaupir gjaldeyri
hjá íslandsbanka fyrir 30.000 krónur eða meira,
eignastu mjúkt og litríkt baðhandklæði!
Isiandsbanki er hluti af Islandsbanka-FBA
■