Morgunblaðið - 10.06.2000, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000 31
Rannsóknir á nýju parkinsonslyfí
Minni hætta á
ósjálfráðum
hreyfíngum
NIÐURSTÖÐUR fimm ára rann-
sóknar á parkinsonsveiki, sem voru
birtar í The New England Journal
of Medicine 18. maí, benda til þess
að lyfið Requip dragi verulega úr
hættunni á að fram komi síauknar
ósjálfráðar hreyfingar, sem hafa
verið aukaverkanir stórra skammta
af parkinsonslyfjum er innihalda
efnið levódópa.
Rannsóknin leiddi í ljós að Re-
quip ber góðan árangur sem upp-
hafsmeðferð, eitt sér, eða síðar þeg-
ar bætt er við tiltölulega litlum
skömmtum af parkinsonslyfjum
sem innihalda levódópa.
268 sjúklingar með parkinsons-
veiki á byrjunarstigi tóku þátt í
rannsókninni í Evrópu, Israel og
Kanada og var þeim skipt í tvo
hópa af handahófí. Annar þeirra tók
inn Requip en hinn levódópa og ef
lyfin höfðu ekki tilætluð áhrif fengu
sjúklingar í báðum hópunum litla
skammta af levódópa til viðbótar.
Rannsóknin stóð í fimm ár og á
þeim tíma hafði Requip svipuð áhrif
og levódópa á einkenni parkinsons-
veiki. Sjúkdómnum var haldið í
skefjum í þriðjungi þeirra sem
fengu lyfið allan þennan tíma án
þess að fá levódópa. Þeir sem fengu
levódópa auk Requip þurftu miklu
minni skammta til að halda sjúk-
dómnum í skefjum (427 mg á dag
miðað við 753 mg á dag). Meðal-
dagsskammturinn af Requip meðal
þeiira sem luku tilrauninni var 16,5
mg.
Aðeins 5% þeirra sem tóku ein-
göngu inn Requip fengu ósjálfráðar
hreyfingar en 36% þeirra sem
fengu aðeins levódópa. Þessi munur
er mjög verulegur - líkurnar á
ósjálfráðum hreyfingum voru fimm-
tán sinnum minni meðal þeirra sem
fengu aðeins Requip en meðal
þeirra sem fengu levódópa.
Um 20% allra sjúklinganna sem
fengu Requip, með eða án levódópa,
fengu ósjálfráðar hreyfingar en
46% sjúklinganna í levódópahópn-
um. Þessi munur er einnig veruleg-
ur - líkumar á þessum aukaverkun-
Presslink
Maxine og Curtis Turner búa í Ohio-ríki í Bandaríkjunum. Hann er með parkinsonssjúkdóminn og hafa þau
hjón þurft að greiða 50 þúsund dali á ári, eða 3,8 milljónir króna, fyrir heilbrigðisþjónustu vegna sjúkdómsins.
um voru næstum fjórum sinnum
minni meðal þeirra sem fengu
Requip en í samanburðarhópnum.
Sjúklingarnir þoldu Requip vfir-
leitt vel. Aukaverkanir lyfsins voru
svipaðar þeim sem oft fylgja öðrum
parkinsonslyfjum, svo sem ógleði,
svefndrungi og svefnleysi. Ofskynj-
anir reyndust þó algengari meðal
þeirra sem fengu Requip en í lev-
ódópahópnum.
Parkinsonsveiki er talin stafa af
skorti á boðefninu dópamín á
ákveðnum stað í heila og Requip
hefur dópamínlík áhrif í heilanum.
Einn af hverjum fimm þúsundum
íslendinga greinist með sjúkdóminn
árlega og hann einkennist af stíf-
leika í vöðvum, skjálfta og minni
hreyfigetu.
• Tenglar
The New England Journal of
Medicine:www.nejm.org/content/
index.asp
Um Parkinsonsveikkwww.net-
doktor.is/Sjukdomar/Efni/Park-
insons.htm
Líkamsrækt
gegn krabba
Presslink
Gott er að fá sér kríu og endurnýja kraftana en hrotur geta vissulega truflað blundinn.
s
Utvarpstíðni-
meðferð við hrotum
New York. Reuters Health.
NÝSTÁRLEG aðgerð kann að
lofa góðu og mun jafnvel geta
komið í staðinn fyrir hefðbundna
meðferð á aldagömlu vandamáli,
það er að segja hrotum. Felst
aðgerðin í því, að nema burtu
vef með útvarpstíðnibylgjum.
Þetta hefur þegar reynst
áhrifarík leið til að mcðhöndla
aðra kvilla af völdum ofvaxtar í
vefjum, t.d. góðkynja stækkun í
blöðruhálskirtli. Sem hrotumeð-
ferð felur þetta í sér að hluti
gómsins er Qarlægður, og veldur
það dálítilli örvefjarmyndun sem
aftur gerir góminn stífari og
styttri og dregur þannig úr til-
hneigingu hans til að titra, en
slíkur titringur er algeng orsök
hrotna.
Dr. David R. Hillman og sam-
starfsfólk hans, við Sir Charles
Gairdner-sjúkrahúsið í Perth í
Ástralíu, fullyrðir að þessi að-
ferð hafí færri aukaverkanir en
venjulcgar aðgerðir. Þar að auki
reyni hún lítið á sjúklingana og
er gerð með staðdeyfingu og
segjast sjúklingar einungis verða
fyrir minniháttar óþægindum að
henni lokinni.
Sagði Hillmann að flestir
sjúklingar væru vinnufærir sama
dag og aðgerðin væri gerð. Smá-
vægileg aukaverkun, sem vart
hefur orðið í fimm prósent til-
fella, er lítið munnangur sem
getur stafað af því að bylgjuork-
an hefur ekki farið nógu djúpt
og náð að komast upp á yfir-
borðið. En sárin gróa á nokkrum
dögum.
Hillman tók fram, að þessi að-
ferð gagnist ekki öllum hrotu-
sjúklingum, þar eð vandinn er
ekki í öllum tilfellum fólginn í
því að gómurinn titrar, lieldur
því, að öndunarvegur aftarlega í
kokinu fellur saman. í slíkum til-
fellum dugar hefðbundin skurð-
aðgerð betur, að sögn Hillmans.
Indianapolis. Reuters Health.
ÞÓTT reglubundin líkamsrækt sé
oftast talin helsta vopnið gegn
hjartasjúkdómum benda nýjar
rannsóknir til þess að hún kunni
að vera mikilvægur þáttur í bar-
áttunni við krabbamein, að því er
vísindamenn í Dallas greina frá.
Niðurstöður tveggja umfangs-
mikilla rannsókna, er gerðar voru
við Coopers-stofnunina í Banda-
ríkjunum, benda til þess að styrk-
leiki æðakerfisins í körlum, burt-
séð frá líkamsþyngd, ráði úrslitum
um það hvort þeir deyja úr
krabbameini.
Þótt jafnan sé talið, að líkams-
massi hafi áhrif á hættuna á að
maður látist af völdum krabba,
benda þessar niðurstöður til þess
að hreysti kunni að vera mikilvæg-
ari, að því er vísindamennirnir
segja. Dr. Larry W. Gibbons og
dr. Carolyn E. Barlow greindu frá
niðurstöðum sínum á árlegri ráð-
stefnu íþróttalækna í Indianapolis
í Bandaríkjunum nýverið.
í annarri rannsókninni fylgdust
dr. Barlow og samstarfsfólk henn-
ar með rúmlega 22.700 mönnum á
aldrinum 20-85 ára í tíu ár. Menn
sem töldust „óhraustir“, sam-
kvæmt stigvélarprófi, voru 80%
líklegri til að deyja úr krabbameini
en menn sem voru hraustir. Þeir
sem voru óhraustir og feitir voru í
mestri hættu. Aftur á móti kom í
ljós, að þeir sem voru í góðri æf-
ingu en of feitir voru ekki í meiri
hættu á að deyja úr krabba.
í hinni rannsókninni, sem dr.
Gibbons stjórnaði, var sjónum sér-
staklega beint að lungnakrabba.
Fáar rannsóknir hafa verið gerðar
á tengslunum milli þess sjúkdóms
Presslink
Leikkonan úr Ally McBeal,
Calista Flockhart, hleypur
sér til heilsubótar.
og hreysti, en í Ijós kom, að þeir
þátttakendur í rannsókninni, sem
töldust óhraustastir, voru 2,5 sinn-
um líklegri en þeir, sem töldust
hraustastir, til að deyja úr krabba.
Þeir sem töldust í meðallagi
hraustir voru 1,5 sinnum líklegri
til að deyja úr krabba.
Slábu í gegn og erfibib verbur leikur einn • Útsölustabir um allt land
VETRARSOL
HAMRABORG 1-3- S 564 1864