Morgunblaðið - 10.06.2000, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
VIKU
IM
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000 33
Listrænir draumar
Draumstafir Kristjáns Frímanns
Næringarfrædi
Barist til þrautar -
Leiðrétting
ALMENNT er list skilgreind frá
fagurfræðilegu sjónarmiði í eitthvað
sem höfðar sterkt til sjónar og til-
finninga, burt séð frá innihaldi.
Kubburinn blái í Hannover er list,
mjólkin hans Kjarvals og grjót-
hleðslur Richards Long. Fagur-
fræði forms og lita.
"Éger gull og gersemi,
gimsteinn elskuríkur.
Eg er djásn og dýrmæti,
drottni sjálfum líkur."
(Sðlvi Helgason)
Draumurinn er listrænn í sjálfum
sér, hann raðar upp formum og lit-
um í ákveðnar heildir sem falla að
listastefnum vökunn-
ar. Stefna súrrealism-
ans (hjáraunsæisstefn-
an) sem varð til í
byrjun tuttugustu ald-
ar er hvað líkust
draumaheiminum
enda mótaðist hún út
frá skynrænum upplif-
unum og draumum
þeirra Andre Breton,
Paul Eluard, Salvador
Dali, Man Ray og fleiri
liðtækra listamanna
og hugsuða sem mót-
uðu stefnuna. Súrreal-
isminn fangar í mynd
þann skrýtna „veru-
leika“ sem verður til í
draumi þar sem form-
in togast til og raða sér
á áður ókunnan hátt,
litirnir verða meðvit-
aðii’ líkt og þeir lifi eig-
in lífi og tíminn gerist
afstæður. í myndum
sínum nær Dali fram
sláandi áhrifum feg-
urðar og furðu svo
menn dragast ósjálfrátt að verkum
hans, án þess endilega að skilja
hvað í þeim felst eða hvað það er
sem dregur mann að verkinu, líkt
og myndinni „Fyrirboði borgara-
styrjaldar“. En þegar í drauminn
kemur snýst dæmið við, þar verða
furðurnar og skringilegheitin sjálf-
sögð og svo eðlileg að menn verða í
mesta lagi hissa þegar látnir menn
mæta ljóslifandi í afmæli til manns
eða þegar útlimir manns breytast
og tánum fjölgar allt í einu úr tíu í
sextán. Það er sama hvernig draum-
urinn teygir mann og togar tilver-
una til, ekkert er einkennilegt, frík-
að eða út í Hróa, allt er ósköp
eðlilegt í augum þess sem „horfir“ á
bagras. Sumir eiga til að rugla
þessum tegundum saman og það
er ekkert á lambagrasi að græða í
þessu tilliti. Lambagrasið er bleik-
ara og vex á þéttum þúfum sem
lyfta sér yfir annan gróður. Flestir
sem koma að mat þekkja kryddið
timían. Blóðberg er ekkert annað
en villt timían. Það er bragðmest á
miðju sumri.“
Ingvar tinir þar næst til ýmsar
tegundir sem mörgum dytti ekki
drauminn. En þegar svo vaknað er
af værum blundi hrista menn haus-
inn yfir vitleysunni sem þá dreymdi
og gleyma draumnum fljótt því
þetta var jú alveg óskiljanlegt bull!
Draumur „Huldu“
Eg var uppábúin í finum fötum
vegna einhvers sem ég vissi ekki
hvað var. Er síðan í dyrunum að
taka á móti gestum sem eru allir
eingöngu úr móðurætt. Tek sér-
staklega eftir því að einn gesturinn
heldur á stórum pakka og var ég
hissa á því. Fyrsti maðurinn sem ég
tek á móti kyssir mig á kinnina og
er ég mjög hissa á því hver hann
var, hann hét Leó (er látinn, var
maður ömmu minnar). Ég fylgi nú
tveim mönnum inn í stofu og sé þá
hver hinn maðurinn var, hann var
frændi minn og hét Gísli (er látinn).
I draumnum er ég undrandi að sjá
þá því þeir eru báðir látnir. Ég er að
velta því fyrir mér hvað allir ætt-
ingjarnir séu að gera hjá mér, þegar
ég heyri Gísla eða Leó segja (veit
ekki hvorn): „Við missum aldrei af
afmæli Huldu.“ Ég verð undrandi
því ég átti ekki afmæli og er nýlega
orðin þrítug. Þá fór ég að hugsa um
að ég væri ekki búin að baka neitt
og fannst það ekki líkt mér að vera
ekki búin að baka fyrir afmælið
mitt. Bað systur mínar að hugsa um
til hugar að leggja sér til munns.
Til dæmis túnfífil. Ljósustu ný-
sprottnu blöðin segir kokkurinn
hins vegar frábær í salöt og sósur
og jafnvel enn betri í slíkt séu
blöðin af haugarfa, að ekki sé
minnst á hundasúrur. „Það þarf
bara að skola þetta vel áður en það
er borðað. Þá eru fræin af valmúa
mjög góð í sósur og blöð, stöngull
og rót af hvönn má nota í eitt og
annað.“
gestina á meðan ég skryppi út í búð
að kaupa vöflumix, djöflatertu og
rjóma. Þar endaði draumurinn.
Ráðning
Ein af mörgum órannsökuðum
leiðum draumsins er sú er liggur
gegnum myrk tjöld tímans úr þessu
lífi í ríki dauðans þar sem framliðnir
dvelja að sögn sérfróðra. Vegurinn
til framhaldslífsins virðist draumin-
um opin leið og vel fær ef marka má
alla þá drauma sem birst hafa um
heimsóknir yfir móðuna miklu.
Draumur þinn er á þessum nótum
en virðist um leið tímamótadraumur
(30 ár) þar sem þú ert að kveðja
fyrri tíð og stíga
inn í nýtt skeið. Af
draumnum að ráða
virðast Leó og
Gísli fylgisveinar
þínir í lífinu og
munu þeir hafa
birst áður í draum-
um þínum við önn-
ur tímamót („Við
missum aldrei af
afmæli Huldu“).
Pakkinn og veislan
vísar til framtíðar
og það að þú ert
hissa á öllu til-
standinu og ekki
búin að baka,
bendir til að þú
sért óörugg á þess-
um tímamótum og
ekki klár á í hvom
fótinn skuli stíga
fram á við. Það eru
svo nöfn þeirra fé-
laga Leó og Gísla
sem skipta sköpum
um drauminn en
Leó merkir að þú
skulir auka sjálfstæði þitt og Gísli
er nafn sátta. Vöflumixið, djöflatert-
an og rjóminn gefa svo nöfnunum
aukið gildi og merkingu.
•Þeir Iesendur sem vilja fá
drauma sína birta og ráðna
sendi þá með fullu nafni, fæð-
ingardegi og ári ásamt heimil-
isfangi og dulnefni til
birtingar til:
Draumstafir
Morgunblaðið
Kringlunni 1
103 Reykjavík
eða á heimasíðu
Draumalandsins
http://www.dreamland.is
Ingvar segir að margir hafi
kassa í görðum sínum þar sem
þeir rækti viðkvæmar kryddplönt-
ur, en þá er plast strekkt yfir til
að hlífa við náttúruöflunum. Mynt-
an, sem hefur fundist villt á Isl-
andi, er t.d. gjarnan ræktuð við
þessar aðstæður. Sama má segja
um majoram, sem minnir á blóð-
berg að því leyti að það er ti-
míankeimur af henni. Blöðunum af
majoram þarf að ná áður en jurtin
blómstrar, segir kokkurinn. Einnig
má nefna oreganó.
Ingvar heldur áfram og nefnir
graslaukinn sem vex og vex og er í
mörgum görðum. „Hann getur
vaxið um heilan sentimetra á
tveimur dögum við góðar aðstæð-
ur. Það sama má segja um stein-
selju.
Loks nefnir Ingvar tegundir
sem varla verða ræktaðar nema í
pottum innandyra. Þeirra helstar
eru tvær vel þekktar kryddgerðir,
salvía og rósmarín, hægvaxta og
viðkvæmar fyrir veðri og vindum.
„Það má segja um þessi fræði,
að þau eru auðveld ef maður kann
þau og það er gjarnan þannig að
menn kunna oft lítið þegar þeir
byrja. En þetta er heillandi heim-
ur að komast inn í og vel þess
virði. Mataráhugi íslendinga hefur
aukist gífurlega síðustu árin og
kryddfræðin hafa blómstrað með,“
segir Ingvar Sigurðsson á lokum.
VIÐ vinnslu greinarinnar „Barist
til þrautar“ eftir þau Ólaf Gunnar
Sæmundsson næringarfræðing,
Ágústu Johnson framkvæmda-
stjóra og Matthías Halldórsson að-
stoðarlandlækni, sem var birt í
Morgunblaðinu laugardaginn 3.
júní, víxluðust textar sem fylgdu
hinum svokölluðu viðmiðunardög-
um. Viðmiðunardagarnir eru því
birtir hér aftur með réttum skýr-
ingartexta.
Einnig leiðréttist hér með síð-
asta málsgrein textans, en þar átti
að standa. „ það er von okkar að
með átaki Landlæknisembættisins,
til að vekja athygli á offituvandan-
um, hafi fyrsta skrefið verið stigið
í þá átt að heilbrigðisstarfsfólk og
stjórnvöld taki höndum saman og
samræmi baráttuaðferðir sínar.“
Hlutaðeigendur eru beðnir vel-
virðingar á þessum mistökum.
Viðmiðunardagur nr. 1
Máltíð Fæðutegund Magn
Morgunverður Cheerios, hreint 3 dl = 1 diskur
Undanrenna 2,5 dl = 1 glas
Banani 150 g = 1 stór
Hádegisverður Skyr, hreint 200 g = 1 diskur
Sykur, strá- 12 g = 1 msk.
Undanrenna 2,5 dl = 1 glas
Heilhveitibrauð 30 g = 1 sneið
Klípa 71/2 g = 1/2 msk.
Miðdegisverður Flatkaka 45 g = V2 kaka
Klípa 8 g - V2. msk.
Hangiálegg, magurt 20 g = 3 sneiðar
Epli 200 g = 1 stórt
Kvöldverður Ýsa, soðin 150 g
Kartöflur, soðnar 180 g = 3 eggstórar
Grænmeti, ýmislegt 100 g +
Klípa 15 g = 1 msk.
Kvöldhressing Vínber 200 g = 45 stk.
Hér má berja augum dag sem telst mjög heppilegur til megrunar. En fjöldi hitaein- inga nemur á bilinu 1400-1500. Sem dæmi má nefna að algeng orkuþörf kvenna er á bilinu 1600-2400 hitaeiningar á dag og karla 2300-3100. Þegar haft er í huga að hálft kíló af fituvef jafngildir um 4000 hitaeiningum ætti einstaklingur með brennslugetu upp á 2000 hitaeiningar að léttast um 'A kíló af fitu á viku með þvl að fylgja eftir degi
sem þessum.
Athugið: Kjarni næringarfræðinnar er fjölbreytni og hófsemi og hér er aðeins um að ræða sýnishorn á því hvernig góður „megrunardagur" gæti litið út.
Viðmiðunardagur nr. 2
Máltfð Fæðutegund Magn
Morgunverður: Epli 200 g = 1 stórt
Hádegisverður: Heilhveitibrauð 60 g = 2 sneiðar
Smjör 15 g = 1 msk.
Ostur 26% 30 g = 4 ostskera- sneiðar
Nýmjólk 2,5 dl = 1 glas
Miðdegisverður: Nóakropp 100 g = V2 stór poki
Kók 5 dl = 1 stór dós
Kvöldverður: Bjúga 200 g = 1 stk.
Kartöflur, soðnar 180 g = 3 eggstórar
Smjör 15 g = 1 msk.
Nýmjólk 2,5 dl = 1 glas
Kvöldhressing: Rjómaís 4 dl = 2 skálar
Þessi dagur lætur reyndar ekki mjög mikið ylir sér en þrátt fyrir það þykir hann af- skaplega slæmur ef miðað er við manneldismarkmið. Sem dæmi má nefna að hita- einingafjöldinn er um 2700 en til hliðsjónar má geta þess að meðalþörf kvenna er um 2000 og karla um 2700. Jafnframt má geta þess að hlutfall fitu nemur um 50% en samkvæmt manneldismarkmiðum ætti hlutfall fitu að nema á bilinu 25-35%.
Kannast þú við
einhver eftirfarandi
einkenna ?
» Svitakóf
m Nætursvita
■ Einbeitingarskort
■ Leiða
■ Þróttleysi
■ Þurrk í leggöngum
Ef þú kannast við einn eða fleiri
ofangreindra kvilla þá getur
Menopace öfluga vítamín- og
steinefnablandan e.tv. hjálpað þér
Faest í 30 og 90 daga skömmtum
á besta aldri ?
Mirtkl vliimlf «* 4»
*««*•*'---
VtTI
O
VITABIOTICS
- þar sem náttúran og visindin vinna saman
Fæst aðeins í lyfjaverslunum
Mynd/Kristján Kristjánsson
Fangi listagyðjunnar.
Morgunblaðið/Ásdís
Ingvar nælir sér í graslauk úti í garðinum heima.