Morgunblaðið - 10.06.2000, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 10.06.2000, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JIJNÍ 2000 5 7 BREF TIL BLAÐSINS Opið bréf til nokkurra foreldra fatlaðra barna FRÉTTIR Morgunblaðið/Jim Smart Arndís Þorvaldsdóttir, eigandi Hárlist.is, á hárgreiðslustofu sinni. Hægt að panta hársnyrtingu á Netinu Frá Páli Péturssyni: MIÐVIKUDAGINN 7. júní birtist í Mbl. opið bréf frá ykkur til utanrík- isráðherra, Halldórs Asgrímssonar. Ég hefði talið drengilegra að skrifa mér beint þar sem það var ég sem var hafður fyrir sökum. Ég átti ekkert frumkvæði að því að undirbúa sambýli fyrir fatlaða í Hrísey. Sú hugmynd kom frá heima- mönnum. Forstöðumaður Svæðis- skrifstofu Reykjaness fór til Hrís- eyjar og kannaði aðstæður og skilaði drögum að minnisblaði til „Lands- samtakanna Þroskahjálpar" og til mín persónulega. Ég hafði ekki fengið tækifæri til að fjalla um málið í ráðuneytinu hvað þá að taka af- stöðu til hugmyndarinnar þegar „Landssamtökin Þroskahjálp" sner- ust mjög öndverð gegn hugmyndinni og þarmeð er hún afskrifuð af minni hálfu. Svo háttar til því miður að 29 fatl- aðir einstaklingar eldri en 22 ára með miklar þjónustuþarfir bíða eftir búsetuúrræðum. Ég vil endilega leysa vanda þeirra sem skjótast, en sannarlega verður það að vera í fullri sátt við þá og aðstandendur þeirra. Ég mun ekki fara að standa fyrir neinum „hreppaflutningum" eða setja á fót „einangrunarstöð" eins og „Landssamtökin Þroskahjálp" hafa haldið fram. Þá eru rúmlega 100 ein- staklingar til viðbótar sem bíða eftir búsetu á sambýlum og sumir þeirra eru einnig í forgangshópi og 75 sem geetu búið sjálfstætt með liðveislu. í Sólheimum í Grímsnesi og í Skaftholti hefur verið rekin um langt árabil þjónusta fyrir fatlaða af höf- uðborgarsvæðinu og gefið góða raun og væri mikill skaði ef hún yrði flokkuð undir „hreppaflutninga“. Einnig er nýlega hafinn rekstur í Hornafirði á sambýli fyrir fatlaða af höfuðborgarsvæðinu. Dýrar byggingar í bréfi ykkar vitnið þið til þess að ég hafi kvartað yfir kostnaði við nýbyggingu sambýla. Nýlega var boðin út bygging sambýlis fyrir 6 einstaklinga í Hafnarfirði. Eitt til- boð barst uppá 88 milljónir. Þetta taldi ég óviðunandi ráðstöfun á al- mannafé. Tilboðinu var hafnað og verkið verður boðið út að nýju. I vetur var tekið í notkun nýbyggt sambýli fyrir 6 á Akranesi, það kost- aði 66 milljónir. Urræði í undirbúningi Ákvörðun hefur verið tekin um byggingar nokkurra sambýla. Þau eru við Jöklasel, Sólheima 21 b, Hólmasund og Barðastaði í Reykja- vík, Blikaás og Smárahvamm í Hafn- arfirði. Þá hefur verið keypt hús undir sambýli í Garðabæ og byggt í Grindavík í samstarfi við sveitarfé- lagið. í Reykjavík mun ný dagvistun hefja starfsemi á næstu dögum og leysa að mestu vanda dagvistunar- þjónustu í borginni. Arið 1995 voru íbúar á sambýlum 335. í dag eru þeir 414. Árið 1995 voru í sjálfstæðri búsetu með lið- veislu 226 en eru í dag 307. Málefni fatlaðra hafa haft algjör- an forgang í ráðuneyti mínu á und- anförnum árum og kostnaður við málaflokkinn hefur vaxið um 85% síðan 1995. Þetta er ekki sett fram með eftir- tölum, þetta er nauðsynleg þjónusta sem samfélaginu ber að veita. Nokkur orð í viðtali Morgunblaðs- ins við mig virðast hafa farið illa fyr- ir brjóstið á ykkur. Ég er ekki að halda því fram að Morgunblaðið hafi rangt eftir mér, en þó kemur ekki allt það fram í viðtalinu sem ég vildi sagt hafa og er sjálfsagt að biðjast velvirðingar á því. Framkvæmda- stjóri „Landssamtakanna Þroska- hjálpar“ sagði að fjölskyldubönd slitnpðu ef fatlaðir færu til Hríseyj- ar. Ég vildi síst af öllu verða til að slíta fjölskyldubönd og í því ljósi ber að skilja orð mín um að „það væri ágætt“ að þau væru sem traustust. Mér þykir sannarlega ekki ágætt að þurfandi séu á biðlistum og óska eft- ir samstarfi við bæði „Landssamtök- in Þroskahjálp" svo og aðra aðstand- endur fatlaðra um úrbætur svo fljótt sem aðstæður frekast leyfa. Með kveðju, HÁRSNYRTISTOFAN Hárlist.is við Skólavörðustíg var opnuð 3. júní sl. Á heimasíðu hárgreiðslustof- unnar er hægt að panta tíma, kynna sér vörur og þjónustu, finna fróð- leik um hár og fá upplýsingar um listamenn og verk þeirra sem prýða Lýst eftir vitnum LÖGREGLAN í Reykjavík auglýs- ir eftir vitnum að árekstri sem varð mánudaginn 5. júní sl. um kl.11:12 á gatnamótum Bústaðavegar og af- reinar frá Kringlumýrarbraut við eystri enda Bústaðabrúar, Umferð- arljós eru á gatnamótunum og gi'einir ökumenn á um stöðu um- ferðarljósanna er áreksturinn varð. I umrætt sinn var blágrænni Toyota Corolla KH-039 ekið austur Bústaðaveg og dökkblárri Chrysl- er Stratus BA-764 ekið afrein af Kringlumýarbraut í norður að Bústaðavegi. Engin vitni gáfu sig fram á staðnum en ef einhver hefur orðið vitni að árekstrinum er hann beðinn að hafa samband við lög- regluna í Reykjavík. Umferðaróhapp á gatnamót- um Garðastrætis og Oldugötu Lögreglan í Reykjavík auglýsir eftir vitnum að umferðaróhappi sem var föstudaginn 9. júní 2000 á gatnamótum Garðastrætis og Oldugötu. Þarna var um að ræða bifreiðarnar LT-673 sem er hvítur MMC Lancer og SG-751 sem er ljósgrár VW Golf. Ökumenn greinir á um tildrög árekstursins. Þeir sem hafa orðið vitni að árekstrinum eru vinsam- lega beðnir um að hafa samband við lögregluna í Reykjavík. stofuna hverju sinni. Hárgreiðslustofan er opin virka frá kl. 10-18 og laugardaga 10-15. Eigandi stofunnar er Amdís Þor- valdsdóttir. Vefslóð stofunnar er www.har- list.is Sumarbúðir Rauða krossins Fjölþjóðlegur hópur að Holti MÖRG landsfélög Rauða krossins og Rauða hálfinánans hafa sýnt sumar- búðunum Holt 2000 sem haldnar verða í Holti, Önundarfirði 5.-12. júlí áhuga. Nú hafa eflefu lönd staðfest þátttöku en þau eru: Frá Evrópu: Danmörk, Finnland, Þýskaland, Júgóslavía, Austurríki, Albanía og Úsbekistan. Frá Asíu: Japan. Frá Afríku: Gambía, Mósambík og Lesótó. Það verður margt skemmtilegt um að vera þessa viku. Tjaldbúðir verða myndaðar og stórt samkomutjald verður á staðnum auk góðrar aðstöðu í Holti. Farið verður m.a. í skoðunar- ferðir um Vestfirði og hönd lögð á plóginn við uppbyggingu á Flateyri. Unnin verður þemavinna í tengslum við átakið „Gegn ofbeldi" og umhverf- ið. Þátttakendur munu kynna Rauða krossinn með söng og leiklist á ísa- firði. Enn eru um þrjátíu laus pláss á sumarbúðimar fyrir sjálfboðaliða Rauða krossins hér heima. Hefðin fyrir því að ungmenni á íslandi vinni á sumrin er mjög sterk og margir eiga erfítt með að taka sér frí frá vinnu. Öllum deildum Rauða kross Islands, 51 talsins, hefur verið boðið að senda þátttakendur á sumarbúðimar. Að- standendur búðanna vonast eftir því að ungt fólk láti þetta tækifæri til að upplifa ólíka menningarheima ekki frá sér fara. Mótmæla fyrirhuguðum skólagjöldum á MB A-nám STJÓRNARFUNDUR Sambands ungra framsóknarmanna samþykkti eftirfarandi 8. júní sl.: „Stjórnar- fundur Sambands ungra framsókn- armanna haldinn í Reykjavík 8. júní 2000, lýsir sig mótfallinn þeirri ákvörðun Háskóla Islands að leggja á skólagjöld á fyrirhugað MBA-nám. Bannað er samkvæmt lögum að inn- heimta skólagjöld fyrir grann- og framhaldsnám við Háskóla íslands. Háskólinn hefur heimild til að inn- heimta skólagjöld af endurmenntun og hafa því háskólayfírvöld farið þá fjallabaksleið að skilgreina MBA- nám sem endurmenntun. Það er ein- kennileg skilgreining þar sem um mastersnám er að ræða. Það getur ekki talist eðlilegt að Háskóli íslands geti tekið ákvörðun um að leggja á skólagjöld án um- sagnar frá Alþingi. Því vilja ungir framsóknarmenn að Alþingi leggi fram aukafjármagn til þessa náms og tryggi þannig áframhaldandi jafnrétti til náms.“ Ný námskrá Hólaskóla samþykkt < NÝ námskrá Hólaskóla var sam- þykkt á fundi Búfræðslunefndar 29. maí sl. Nýja námskráin miðar að frekari eflingu námsins á þeim þremur námsbrautum sem í boði eru: Ferðamálabraut, fiskeldis- braut og hrossaræktarbraut. Ferðamálabraut Hólaskóla er nýjung á sviði menntunar fyrir ferðaþjónustu þar sem boðið er upp á sérhæft nám fyrir ferðaþjónustu í dreifbýli með áherslu á þróun og uppbyggingu afþreyingai' sem byggjast á náttúru, sögu og menn- ingu hvers svæðis. Námið er á há- skólastigi og metið til eininga við rekstrardeild Háskólans á Akur- eyri. Jafnframt fá nemendur ferða- málabrautar landvarðai’réttindi að námi loknu. Á fiskeldisbraut Hólaskóla er boðið upp á eins árs nám í fiskeldis- fræðum og útskrifast nemendur að því loknu sem fiskeldisfræðingar. Námið undirbýr nemendur undir almenna vinnu í fiskeldisstöðvum og að koma á fót og reka smærri stöcivar. Á hrossaræktarbraut er nú boðið upp á þriggja ára nám eða fimm annir. Nemendur geta lokið námi eftir fyrsta árið með prófheitið' hestafræðingur og leiðbeinandi. Að loknu öðru ári útskrifast nemendur sem tamningamenn og geta gengið í raðir Félags tamningamanna skv. sérstökum samningi félagsins við Hólaskóla. Þriðja árið er fimm mánaða nám og metið til eininga við Landbúnaðarháskólann á Hvann- eyri og útskrifast nemendur að því loknu sem þjálfarar og reiðkennar- ar. Þessi nýja námskrá kemur í kjölfar nýrra laga um búnaðarskól- ana þrjá (Hóla, Hvanneyri og Reyki) en þau gefa skólanum aukið svigrúm til þess að þróa og þroska nám sem fæst viðurkennt og metið inn í aðrar skólastofnanir. Hólaskóli er ekki stór skóli en hann býður upp á nám sem felur í sér ákveðna sérstöðu sem studd er með vaxandi rannsóknarstarfi á öllum brautum. Frekari uppbygging akademískrar starfsemi við Hólaskóla byggir á nánu samstarfi við háskólastofnanir hérlendis sem erlendis. Þetta sam- starf eykur gildi þess náms sem boðið er upp á og gefur nemendum skólans færi á fjölbreyttum valkost- um að námi loknu. Markmið Hólaskóla er að efla starfsemi sína á sviði byggðamála í; víðum skilningi, með þeim hætti að tengja í ríkara mæli núverandi nám og rannsóknir þessum mikilvæga málaflokki og stefna að því að þjálfa og mennta fólk til að verða frum- kvöðlar í nýsköpun og uppbyggingu atvinnu-og menningarstarfsemi á landsbyggðinni. Umsóknarfrestur rennur út 21. júní. Þeir sem vilja kynna sér starf- semi Hólaskóla er bent á heimasíðu skólans: www.holar.is eða leita sér upplýsinga á skrifstofu skólans. Kynning á starfsemi Byrgisins KYNNING á starfsemi Byrgisins í Rockville verður laugardaginn 10. júní og hefst dagskrá kl. 14 með tón- listardagskrá og lofgjörð. Guðmundur Jónsson talar síðan um upphaf og nútíð í Byrginu kl. 14.30 og að því loknu talar Ólafur Ólafsson læknir um árangui' og til- gang Byrgisins. Því næst flytur Hjálmar Árnason, þingmaður og vel- unnari Byrgisins, nokkur orð. Kl. 15.15 verða fyrirtæki heiðruð og við- urkenningar veittar og að því loknu j verður ný stjóm Byrgisins kynnt. Kl. 15.45 keppa íþróttafélag þing- manna og Byrgismenn í fótbolta og að því loknu verður grillveisla að hætti matsveinanna í Rockville. Dagskrárlok em um kl. 17. Allir era velkomnir og þess má geta að boðið er upp á leiktæki fyrir yngstu gestina. PÁLL PÉTURSSON, félagsmálaráðherra. Gæðastjórnun á rafmagnsöryggi virkar MORGUNBLAÐINU hefur bor- ist eftirfarandi frá Guðmundi Valssyni, deildarstjóra raforku- sviðs, fyrir hönd fagráðs raforku- sviðs Samorku: „I kjölfar viðhorfskönnunar þingmannanna Ögmundar Jónas- sonar og Gísla S. Einarssonar og opinberrar umfjöllunar vill Sam- orka, samtök raforku-, hita- og vatnsveitna koma eftirfarandi á framfæri: Samorka styður núverandi skipulag rafmagnsöryggismála. Stjórnendur rafveita eru vissir um að rafmagnsöryggismál rafveitna séu í betra lagi en áður. Rafveitur hafa komið sér upp innri öryggis- stjórnunarkerfum sem tryggja ör- yggi raforkuvirkja og auka öryggi starfsmanna veitanna. Reynslan af innri öryggisstjórnun rafveita og innra eftirliti vatnsveita er góð. Því leggur Samorka áherslu á að annað opinbert eftirlit með veitu- fyrirtækjum verði framkvæmt á sama hátt. Ábyrgðarskipting er skýi-ari og innbyggður hvati til að auka fagleg og skipuleg vinnu- brögð öllum til hagsbótar. Aðal- atriðin era leyst fyrst og kerfisleg uppbygging tryggir að öryggi batnar og vafamál séu leyst. Kerf- isbreytingin tekur tíma og starfs- menn þurfa að laga sig að breyt- ingunum. Því hafa verið haldin fjölmörg námskeið um öryggismál rafveita í kjölfar kerfisbreytingar- innar og samstarf við Löggilding- arstofu er hvetjandi og uppbyggi- legt. í fyrra rafmagnseftirlitskerfi voru vinnubrögð rafmagnseftirlits ómarkviss. Það er áskoran við að taka upp kerfisbundna gæðastjórnun á raf- magnsöryggi að fá ráðamenn og stjórnendur fyrirtækja til að treysta gæðastjórnuninní til að vinna sitt verk. Þetta hefur Sam- orku og samtökum rafverktaka gengið ágætlega með á heimavíg- stöðvum. í hálfnuðu verki er óheppilegt að þyi-lað sé upp í fjölmiðlum niðurstöðum úr óvand- aðri viðhorfskönnun. Við slíkt dugai’ ekkert nema viðurkenndar aðferðir, annað kostar óþarfa deil- Eftirlit með öryggi neysluveita er ekki lengur á hendi rafveita. Því hefur Samorka forðast að blanda sér í þau mál. í upphafi vora nokkrir forsvarsmenn raf- veita á móti kerfisbreytingu. Nú hafa úrtöluraddir í þeirra röðum hljóðnað og eftirlitsmenn rafveita horfið til annarra starfa jafnt inn- an rafveita sem utan. Rafverktak- ar og eigendur neysluveita bera ábyrgð á öryggi líkt og við önnur lagnakerfi. Ovissu um öryggi neysluveitu geta rafverktakar, sérfræðingar eða skoðunarstofur eytt. Markviss vinnubrögð Löggild- ingarstofu í almennri fræðslu- og upplýsingastarfssemi og átaks- verkefnum gegn þekktum áhættu- völdum eru til fyrirmyndar. Allt tal um aukið eftirlit er óverð- skulduð gagnrýni á vinnu fag- manna. Samorka hvetur til að haldið verði áfram á sömu braut og barnasjúkdómar kerfisins verði lagfærðir án frekari kerfisbreyt- inga í rafmagnsöryggismálum.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.