Morgunblaðið - 10.06.2000, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
þeirra stefnu. Mér finnst eins og sum-
ir haldi að það sé hægt að bjóða fólki á
landsbyggðinni uppá allt, minni fjöl-
breytni. Sem dæmi má nefna að þeg-
ar verið er að selja fatnað koma ein-
hverjir trukkar fullir af aflóga dóti og
svo er þetta sett upp í félagsheimili og
settur upp einhver markaður til að
losna við þetta á uppsprengdu verði,
eitthvað sem selst ekki í bænum.“
Bjöig: „Grunnhugmyndin er
kannski að þjappa íbúum hér betur
saman og gera okkur meðvitaðri um
sérstöðu okkar. Að rífa sig svolítið
UPP og sameinast um ágæti þess að
vera Austfirðingur."
Blaðamanni þótti það frekar
„óvenjulegt" að þær tvær manneskj-
ur sem eru í fararbroddi þessa ágæta
hóps sem stuðlar m.a. að því að
þjappa Austfirðingum betur saman
eru bæði „aðkomumenn" og koma frá
höfuðborginni, hún kennari en hann
myndlistarmaður.
Unglingarnir æðislegir
Hvað dró ykkur hingað austur?
Björg: „Hærra kaup og húsnæðis-
fríðindi. Það var nú eiginlega ekkert
annað. Mér hefur líkað mjög vel. Upp
til hópa kann ég vel við Austfirðinga.
Mér finnst unglingamir hérna æðis-
legir og það er mjög gaman að kenna
þeim.“
Steingrímur: „Ég ætlaði aldrei að
vera úti á landi en örlögin drógu mig
hingað. Og allt í einu er ég hér. Ég hef
unnið við mína myndlist samhliða
auglýsingagerð og kennslu. Ég bara
setti upp mína aðstöðu hér ásamt
Austfirðingum og við höfum verið að
þjóna alhliða auglýsingagerð. S.s.
auglýsingaumbroti, skiltagerð,
stimplagerð og almennum auglýsing-
um og grafískri hönnun og seinna
munum við taka að okkur verkefni
fyrir Netið. Einnig er ég að hanna
sýningu fyrir minjasafnið. Ég er sko
algjörlega opinn íyrir því að fólk sem
er í svipaðri vinnu hér á Austurlandi
starfi meira saman í framtíðinni, svo
samnýta megi vinnukrafta og at-
vinnutæki."
En eitthvað að lokum ?
Björg og Steingrímur: „Blaðið er
fyrst og fremst hugsað til að Austfirð-
ingar fari að koma útúr skápnum."
MYNPBÖNP
Peningakast
Endurnýjun
(Regeneration)
STRÍÐSMYNl)
★★★%
Leiksljóri: Gillies Mackinnon.
Handrit: Allan Scott. Aðalhlutverk:
Jonathan Pryce, James Wilby,
Johnny Lee Miller, Stuart Bince,
John Neville, Dougray Scott. (92
mfn) England. Myndform, 1997.
Bönnuð innan 12 ára.
1917 er breska skáldið Sigfried
Sassoon á vesturvígstöðvunum í
Frakklandi. Hann er löngu búinn að
missa alla trú á
stríðinu og þeirri
vitfirringu sem það
hefur í for með sér.
Kaldhæðni örlag-
anna er að hann er
sjálfur settur á
sjúkrahús fyrir
geðveika þegar
bréf sem hann
skrifar berst í
hendur yfirvalda. Eftii- að „Saving
Private Ryan“ kom út hefur hverri
einustu stríðsmynd sem til er verið
borið saman við hana. Þessari mynd
verður án efa líkt við Ryan en þær
gætu varla verið ólíkari. í fýrsta lagi
gerist hún í fyrri heimsstyrjöldinni og
í öðru lagi var Ryan raunsæ á blóðs-
úthellingar stríðsins á meðan þessi
dregur fram tilfinningaþrunga sinn
með ljóðrænni framsetningu og litlu
sem engu blóði. Ljóð eru stór þáttur í
myndinni og hefur kvikmyndagerð-
armönnunum tekist stórkostlega að
koma þeim fyrir á áhrifamikinn hátt.
Öll hlutvertón eru vel mönnuð og
tæknilega er myndin prýðilega unnin.
Það sem eiginlega er verst er að
myndin var gerð árið 1997 og að gim-
steinn eins og þessi komi ekki fyrr
fyrir sjónir áhorfenda er til skammar.
Ottó Geir Borg
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000 61
EríHarí óskast.
Má hafa með sér kjöt-
Eigum til úrval af vöndubum kanadískum
t FIESTA gasgrillum. Matrei&slumenn heimilisins
I og sumarbústa&arins eru velkomnir í heimsókn
< á næstu ESSO-stö&.
Olíufélagiö hf
www.esso.ls
Verðum í göngugötimni
í Mjódd út júní
Léttir og færanlegir
nuddpottar fyrir kalt vatn
Pottamir frá Soíitub hafa farið sigurfor um Bandaríkin og Kanada
undanfarin ár fyrir sína frábæru hönnun á léttum og einföldum
nuddpottum. Heitir pottar hafa reynst mörgum bakveikum vel en
fyrst og fremst hafa þeir jákvæð áhrif á heilsuna a.Lmennt.
Softub pottana er hægt að nota jafnt innandyra sem utan og í
hvernig veðráttu sem er, t.d. við sumarbústaðinn, í garðinum eða
inni í stofu.
Á þeim stöðum, þar sem ekki er aðgangitr að heitufraíni, sér
hitunarbúnaður pottsins um að hi'
Auðvelt er að flytja pottana á milli stí
hentað mörgum að vera með pottinn -
á heimilinu yfir veturinn. æ
vegna getur það
rhúsið á sumrin en
Hin fullkomna og einfalda hönnun Softub pottanna tryggír mjög
hagstætt verð og gerir pottana auðveldaf ngtkun.
Vatn er látið renna úr garðslöngu í potfinn óg rafmagnssnúrunm
stungið l samband við 220 volta straum. svo einfalt er það.
C '33BLJ
Softub pottamir vega einungis um það bil 30 kg tómir svo ein-
staklega auðvelt er að færa þá úr stað. Brúnir pottsins eru samt
það sterkar að þærbera auðveldlega uppi tullvaxinn mann.
Softub pottunum er hægt að rúIlaTgegnum öíl stöðluð hurðaop
t.d. utan úr garði og inn í stofu.
Sýning um helgina
laugardag og sunnudag
frá kl. 10-18
JÓN BERQ$SON EHF.
Sími: 867 3284 - 588 8881 Fax: 588 8944