Morgunblaðið - 16.07.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
161. TBL. 88. ÁRG.
SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Fegrunaraðgerð
ekkert feimnismál
MORGUNBLAÐIÐ 16. JÚLÍ 2000
5 690900 090000
Tillögur Bandaríkj amanna í Camp David valda uppnámi
Skýstrókur verður
átta manns að bana
AÐ MINNSTA kosti átta manns
létu lífið og 79 meiddust á úti-
vistarsvæði í Alberta í Kanada að-
faranótt laugardags er skýstrókur
reið yfir, öllum að óvörum og olli
miklum usla.
Ed Noble, lögreglmaður f Al-
berta, var einn þeirra fyrstu sem
mættu á svæðið eftir hamfarirnar
og lýsti aðkomunni sem hrikalegri.
„Það var allt í rúst. Ég sá lík og
sært fólk hvarvetna." David Hill-
man, forstöðumaður Green Acres-
útivistarsvæðisins í Red Deer-sýsiu,
sagði í gærmorgun að átta manns
hefðu farist í hamförunum og að
enn væri verið að leita að fólki á
svæðinu við Furuvatn.
Olli skýstrókurinn geysimiklu
tjóni á svæðinu, reif tré upp með
rótum, sundraði hjólhýsum og
þeytti til bílum eins og leikfanga-
kubbum. Talið er að um 400 hjól-
hýsi séu gereyðilögð.
Missti lífeyri
sökum eigin
andláts
ALÞINGIGÖTUNNAR
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
Arafat hótaði að
yfirgefa fundinn
Lundúnum. Morgunblaðið.
LÍFEYRISGREIÐSLA til þín hefur
verið stöðvuð frá 17. apríl 2000 sök-
um breytinga á aðstæðum þínum,
breytinga sem stafa af andláti
þínu.“ Þetta bréf náði William
Reynolds aldrei að lesa því hann
hafði látist áður, kominn á áttræð-
isaldur. Konan, sem flutti í íbúð
Reynolds f Lundúnum, las hins veg-
ar bréfið. „Það er skelfilegt að
senda svona bréf,“ sagði hún og
kvartaði við bæjaryfírvöld.
Það er einkafyrirtæki, sem sér
um að senda út lífeyri fyrir Lam-
beth-bæjarfélagið í Lundúnum.
Engin skýring hefur fengist á
hvernig nokkrum manni datt i hug
að skrifa bréfið og fyrirtækið hefur
ekki gefið neinar skýringar á bréf-
inu sem óhætt er að flokka sem
heldur ömurleg mistök.
Forsetaframbjóðandi „færður til“
ADRIAN Gray, starfsmaður kosn-
ingaskrifstofu Georges W. Bush,
ríkisstjóra Texas og forsetafram-
bjóðanda repúblikana í Banda-
ríkjunum, fiytur málverk af Bush á
flugvellinum í Austin í Texas. Mál-
verkið var gjöf dyggs stuðnings-
manns Bush í New York en þar var
frambjóðandinn á ferð í vikunni.
Thurmont, Jerúsalem. Reuters, AFP.
YASSER Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, hótaði því að yfirgefa samn-
ingaviðræður Palestínumanna og
ísraela í Camp David í Bandaríkjun-
um eftir að Bandaríkjastjóm kom
fram með tillögur sem miðuðust að
því að leysa úr deilumálum beggja
aðila en hætti við eftir milligöngu
Bills Clintons Bandaríkjaforseta. Er
þetta haft eftir ónafngreindum aðila
úr ísraelsku sendinefndinni í Camp
David. Heimildarmaður Reuters
sagði í gær að Arafat hefði reiðst til-
lögum Dennis Ross, sérlegs sendi-
manns Bandaríkjanna í Miðaustur-
löndum, svo mjög að hann hefði
skipað samninganefnd sinni að taka
saman allt sitt hafurtask og yfirgefa
fundarstað.
Á fóstudag komu Bandaríkjamenn
fram með tdllögur til lausnar helstu
deilumálum og er það í fyrsta skipti
frá því viðræðumar hófust að Banda-
ríkin bera fram sínar tillögur en talið
er að Palestínumönnum hafi þótt til-
lögur Bandaríkjanna afar hallar und-
ir sjónarmið Israela. „Palestinumenn
hótuðu að yfirgefa fundarstað eftir að
þeim hafði verið látið í té skjal frá
Dennis Ross þar sem fram komu
málefni landamæra, Jerúsalemborg-
ar og flóttamanna, og bára því við að í
því kæmi fram afstaða Israels-
manna,“ sagði heimildarmaður AFP í
Gaza á föstudag. „Clinton forseti
hlutaðist þá sjálfur til um mál og dró
skjalið til baka þegar hann sneri aft-
ur til fundarstaðar á fimmtudag og
þá hófust samningaviðræður aftur.“
Samninganefndir
í smærri hópa
Joe Lockhart, talsmaður Clintons,
vildi ekki tjá sig um málið á frétta-
mannafundi í Camp David en eins og
kunnugt er ríkir fréttabann á fundar-
stað. Sagðist hann ekki hafa orðið var
við „neinar töskur“ og vísaði þar í
téða brottfór Palestínumanna.
Lockhart sagði þó að á föstudag
hefðu viðræðumar breyst að formi
til, á þann veg að nú hefðu samninga-
nefndimar skipt sér upp í smærri
hópa sem beindu sjónum sínum að til-
teknum deilumálum, s.s. landamær-
um sjálfstæðs ríkis Palestínu, skipt-
ingu Jerúsalemborgar, örlögum 3,7
milljóna palestínskra flóttamanna og
búsetu ísraelskra landnema á Vest-
urbakkanum og Gaza-svæðinu.
Talsmaður Ehuds Baraks, forsæt-
isráðherra ísraels, sagði í gær að lík-
in- væm á því að samningaviðræðum-
ar, sem hófust sl. mánudag, myndu
standa í tvær vikur. „Við vitum ekki
nákvæmlega hversu lengi viðræðum-
ar munu standa þar eð engin loka-
dagsetning var ákveðin en ég býst við
að tímabilið sem um ræðir verði tvær
vikur,“ sagði Gadi Baltiansky í sam-
tali við ísraelska útvarpið í gær.
Veðráttan í Evrópu
vekur furðu manna
Snjóflóða-
viðvörun og
bráðnandi
malbik
Vín, Ankara. The Daily Telegraph.
FURÐUVEÐUR setti svip
sinn á Evrópu í vikunni en í álf-
unni mátti líta kýr sem óðu
snjóskafla í Alpahéruðum á
meðan vörabílstjóram í Tyrk-
landi var meinað að aka um vegi
þar sem ógnarhitar gerðu það
að verkum að malbik bráðnaði.
Hafa svissneskir veðurfræð-
ingar varað ferðamenn við
snjóflóðahættu í fjalllendinu
umhverfis St Gotthard fjalla-
skarðið og er þetta í fyrsta sinn
sem slík viðvöran er gefin út að
sumarlagi.
Loka þurfti San Bemadino-
fjallveginum drykklanga stund
á föstudag á meðan snjóraðn-
ingstæki raddu leiðina. Þá hef-
ur frost verið viðvarandi í
Waldviertel í Austurríki og
telja bændur á svæðinu að í það
minnsta fimmtungur kartöflu-
uppskerannar sé ónýtur.
Á sama tíma hefur hitabylgja
sunnar í álfunni valdið u.þ.b.
1.000 skógareldum í Grikklandi
þar sem hitinn hefur sjaldan
farið undir 40°C. Þá bönnuðu
tyrknesk vegamálayfirvöld um-
ferð á nokkram stærstu akveg-
um landsins eftir að ökumenn
urðu varir við að bílar sukku í
sjóðandi heitt malbikið.
Hófleg verðbólga
ekki áhyggjuefni