Morgunblaðið - 16.07.2000, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2000 45
I DAG
BRIDS
UmNjón: Giiðniundiir 1‘áll
ArnarNon.
ÞAÐ er alltaf sama gamla
sagan: Þegar illa er meldað
þarf að spila vel. Norður
fékk mörg tækifæri til að
stýra spilinu í þrjú grönd, en
valdi að setja makker i
þyngra spil - fimm tígla.
Vestur gefur; AV á hættu.
Nordur
*ÁK
¥ AK
♦ 65432
+ D432
Vestur
* D1094
» D1097
♦ -
* ÁKG109
Suður
+ G86
¥ G854
♦ ÁKDG
+ 65
Austur
+ 7532
¥632
♦ 10987
+ 87
Vestur Norður Austur Suður
llauf Pass! Pass 1 tígull
Pass 21auf Pass 2hjörtu
Pass 5 tíglar Allirpass
Vestur Jekur fyrstu tvo
slagina á ÁK í laufi og spilar
gosanum í þriðja slag. Sagn-
hafi setur upp drottninguna,
austur trompar og suður yf-
irtrompar. Tromplegan
kemur í ljós í næsta slag og
nú er rétti tíminn til að
skipuleggja framhaldið.
Sagnhafi má þakka fyrir
að hafa stungið upp lauf-
drottningu, því ella hefði
hann gefið slag á tromp. En
nú er verkefnið fyrst og
fremst að gera gull úr gos-
unum í hálitunum. Það er
sjálfsagt að taka ÁK í báð-
um hálitum, fara svo heim á
tromp og stinga hjarta. Ekki
kemur drottningin, en það
er ástæðulaust að örvænta:
Norður * - V - ♦ 65 * 4
Vestur Austur
+ D + 7
¥ D ¥ -
♦ - ♦ 10
+ 10 Suður 4 G vG ♦ D * - + -
Suður á út í stöðunni og
tekur síðasta tromp austurs.
Og í leiðinni vill svo vel til að
vestur þvingast í þremur lit-
um. Hann þarf að hanga á
drottningunum í spaða og
hjarta og lauffjarkinn í borði
gerir tíu vestur ómissandi. í
svona stöðum er aðeins ein
vörn til: Að neita að spila
nokkru spili!
Arnað heilla
P A ÁRA afmæli. í dag,
Ovf sunnudaginn 16. júlí,
er sextugur Guðmundur
Marinósson, Hjallavegi 4,
ísafirði, skrifstofumaður
hjá Skattstofu Reykjaness.
Eiginkona hans er Þorgerð-
ur Einarsdóttir. Guðmund-
ur verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Ljósmyndastofan Mynd
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 24. júm' sl. í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði af sr. Jónu
Hrönn Bolladóttur Anna
Halla Halisdóttir og Jó-
liannes Eiðsson. Heimili
þeirra er í Bæjargili 51,
Garðabæ.
SKAK
UmNjón llelgi Ásn
Grétarsson
Sigurvegari svæðamóts-
ins í Jerevan, armenski stór-
meistarinn Smbat Lputian
(2.605) stýrði svörtu mönn-
unum í stöðunni gegn georg-
íska kollega sínum Georgi
Kacheishvili (2.554). 23. ...
Hel+! 24. Hdl Hvítur verð-
ur mátaður ef hann þiggur
hrókinn: 24. Rxel
Dxb2+ 25. Kdl
Rc3 24. ... Hxdl+
25. Kxdl Rxb2+
26. Rxb2 Dxb2 27.
Rg4 Þetta jafn-
gildir uppgjöf, en
engu að síður var
hvfta staðan erfið
eftir t.d. 27. Rf5+
Kg8 28. Dxf6
Dbl+ 29. Ke2
d3+! 30. Kxd3
Ddl+ 31. Ke4
gxf5+ 27.... Rxg4
28. fxg4 d3! 29.
cxd3 Dbl+ og
hvítur gafst upp
enda fátt til varnar eftir 30.
Ke2 He7+.
Staða efstu manna á
svæðamótinu í Jerevan varð
þessi: 1. S. Lputian, Arm.,
7,0 2. A Minasian, Arm., 6Vz,
3. K. Asrian, Arm., 6, 4. R.
Vaganjan, Arm., 6, 5. T.
Gelashvili, Georgíu, 6, 6.-8.
I. Nikolaidis, Grikkl., V.
Kotronias, Kýpur, og H.
Banikas, Grikkl., 5Vz o.s.frv.
Fjórir fyrstu þátttakendum-
ir unnu sér rétt á HM, sem
haldið verður í lok ársins.
Svartur á leik.
LJOÐABROT
LANDIÐ
Þegar ljósið kemur til mín
gegnum myrkur langra daga
og ég vakna og ég horfi
yfir land mitt er það kemur
og ég horfi á land mitt rísa
gegnum myrkur langra daga
sé það rísa landið hvíta
Og það rís með opinn faðminn
og ég heyri rödd þess segja
Eg sem hélt ég ættí að deyja
Og það rís í nýju ljósi
og ég heyri í nýju ljósi
rödd þess hvísla morgunbjarta
Nú slær aftur fjallsins hjarta.
Jón Óskar.
- - -T&aiJouJSki
ORÐABOKIN
í Mbl. mátti eitt sinn lesa
eftirfarandi málsgrein í
myndatexta: „Fuglunum
er troðið í selsbelgi, sem
hafa verið fláðir (Leturb.
hér.) þannig, að spiklagið
fylgir húðinni." Er það
beyging sagnarinnar að
flá, sem hér verður staldr-
að við Hún beygist upp-
haflega eftir svonefndri
sterkri beygingu (sb), 6.
hljóðskipti, á þessa leið:
flá - fló - flógum - flegið.
Önnur aigeng sögn í þess-
um flokki er so. að slá -
sló - slógum - slegið. So.
Flá
að flá er enn í gildi eftir
sb., a.m.k._ í ýmsum sam-
böndum. Ég hygg, að enn
sé almennt talað um, að
kindin hafi verið flegin, en
ekki fláð. Þó hef ég grun
um, að einhver mállýzku-
eða beygingarmunur _sé
eftir landshlutum. Ég
þekki t. d. mætavel af
austanverðu Suðurlandi
veiku beyginguna: flá -
fláði - fláð. í OM (1983) er
getið um báðar beyging-
armyndir. Þó held ég
menn noti oftast sb. í rit-
máli. Altaf er talað um,
að flík (með víðu eða
þröngu hálsmáli) sé mikið
eða iítið flegin.
Kjóllinn er fleginn, ef
hálsmálið er vítt. Engum
dytti hér í hug að tala um,
að flíkin væri fláð eða
kjóllinn fláður. Betur
hefði farið á því í ofan-
greindri máisgrein að tala
um, að selsbelgirnir hefðu
verið flegnir o. s. frv. Ekki
kæmi mér á óvart, að
fleiri en ég hafi hnotið um
þetta orðalag, Því vek ég
máls á þessum beygingar-
mun. - J.AJ.
STJ ÖRJVUSPA
eftir FranceN llrakc
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert skjótur til hjálpar
öðrum og leggur þig sér-
staklega fram, þegar þér
fmnst á einhvern hailað.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Ef þú gengur of hart fram
kann svo að fara að þú lendir í
aðstöðu, sem getur reynzt þér
ofviða. Haltu þig þvi innan
þeirra marka sem þú ræður
við.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Mundu að þótt allt gangi þér í
haginn eina stundina, er lánið
fallvalt og betra að vera við
öllu búinn. En sjálfsagt er að
njóta góðra sigra.
Tvíburar
(21. maí-20.júní) Art
Ekki bregðast illa við, þótt
samstarfsmenn þínir hafi uppi
efasemdir um verklag þitt.
Gefðu þeim tíma til þess að sjá
það sigra í framkvæmd.
Krabbi
(21. júní-22. júlí)
Þær aðstæður eru nú uppi
sem ýta á eftir því að þú takir
ákvörðun í persónulegu máli.
Láttu ekki villa þér sýn held-
ur taktu þann tíma sem þú
þarft.
Ljón
(23.júlí-22. ágúst)
Þótt útlitið sé ekki gott er
engin ástæða til að örvænta.
Þú hefúr séð hann svartan
fyrr og alltaf sigrazt á vand-
anum. Svo mun einnig verða
nú.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) tiDSL
Það þarf mikla ákveðni til
þess að standast þrýsting
annarra, þegar þeir telja mik-
ið vera í húfi. En öllu máli
skiptir að þú sért sjálfum þér
samkvæmur.
(23. sept. - 22. okt.) m
Mikið návígi getur verið
þreytandi til lengdar og sjálf-
sagt að leita sér einhvers stað-
ar skjóls til þess að geta hug-
leitt mál án afskipta annarra.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú þarft að beita öllum þínum
hæfileikum til þess að koma
málstað þínum á framfæri og
vinna aðra til fylgis við hann.
Ekki vera með leikaraskap.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.) tltJi
Nú getur þú ekki dregið það
lengur að fara í gegn um fjár-
málin og horfast í augu við
stöðuina. Hertu upp hugann;
hún er kannski ekki svo slæm.
Steingeit ^
(22. des. -19. j anúar) 4MP
Gefðu þér tima til þess að
njóta þess að sjá störf þín hafa
áhrif og setja hlutina af stað.
Það bæði gleður og hvetur til
frekari átaka.
Vatnsberi
(20. jan. -18. febr.) €£&
Vertu hughraustur þótt eitt-
hvað kunni að bjáta í móti. ÖIl
él birtir upp um síðir og þetta
er spurning um að halda haus
á meðan stormurinn geisar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú þarft ekki á neinum láta-
látum að halda til að vekja at-
hygli annarra. Vertu bara
eins og þú átt að þér og þá
muntu sjá hverjir eru vinir
þínir.
Stjömuspána á ad lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
JARÐVATNSBARfC
Stærðir 50-80 og 100 mm
Lengd rúllu 50 mtr
Tilvalið þar sem ræsa
þarf fram land. Vara
sem vinnur með þér,
auðveld í meðhöndlun.
VATNS VIRKINN ehf \J
Armúla 21,533 2020.
IX=3<
FORMICA
HARÐPLAST
LITIR 0G
MUNSTUR í
HUNDRAÐA
TALI
ARVIK
ÁRMÚLA 1 • SlMI 568 7222 • FAX 568 7295
Vantarþig tösku?
Hjú okkur er útsala
Töskur frá kr. 1.000-
Gríptu
tœkifœríð
Laugavegi 58
sími 5513311
INNRA JAFNVÆGI
MEÐ SJÁLFSDÁLEIÐSLL
Einkatímar/námskeið, sími 694 5494
Nvtt námskeið hefst 19. júlí
Með dáleiðslu getur þú sigrast á kvíða og
ójafhvægi og aukið getu þína og jákvæða
uppbyggingu á öllum sviðum.
Hringdu núna
Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur.
1965U/ 2000
c
GLERAUGNABÚDIN
HdmootKnHdlcr
D
35%
afmælisafsláttur
af gleraugum í júlí
Gleraugnabúðin,
Laugavegi 36, s: 5511945.
Brúðhjón
Allur borðbúnaður - Glæsileg gjafavara - Brúðhjönalistar
VFPST 1IAÍIM
VERSLUNIN
Langttvegi 52, s. 562 4244.