Morgunblaðið - 16.07.2000, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2000 21
þú ferð í veiðiferð. Svo þegar þú kem-
ur til Islands ertu með stöngina með
þér, þótt ferðataskan hafi óvart farið
til Afríku.“
Svona stangasett er hægt að fá í
ýmsum öðrum lengdum og línu-
þyngdum, t.d. sjö og níu feta stöng í
setti. Töskumar utan um stangirnar
eru sérstaklega smíðaðar fyrir Clan
Fishing Rods.
Sígildur korkur
Harry Jamieson segir að gler-
trefjastangimar hafi útrýmt bambus-
stöngunum á fáum ámm og svipað
hafi gerst þegar koltrefjastangirnar
raddu glertrefjastöngunum af mark-
aði. Eitt hefur þó h'tið breyst og það
er efnið í handfangi stanganna. „Það
er merkilegt að hugsa um þróunina.
Þarna hefur þú bambusstangir smíð-
aðar með hefðbundnum aðferðum og
með handfangi úr korki,“ segir Harry
og handleikur stöng. „Korkurinn er
stórkostlegt efni. Hann er vatnsheld-
ur og auðvelt að móta hann með
sandpappír. Menn hafa reynt að nota
alls konar gerviefni en það hefúr ekk-
ert komið í staðinn fyrir korkinn. Og
hér stöndum við árið 2000 með há-
tæknilega grafítstöng með kork-
skaftí!"
Tryggir viðskiptavinir
Harry Jamieson skráir alfa við-
skiptavini sína í sérstaka bók, hvernig
stöng þeir fengu og hvenær. Nöfnin
era víða að, frá Evrópu, Bandaríkjun-
um og Japan, svo nokkur lönd séu
nefnd. „Oft sé ég sama nafnið á pönt-
un tveimur eða þremur áram eftir
fyrstu afhendingu," segir Harry.
Stundum kemur viðskiptavinur með
vin sinn og spyr hvort hægt sé að
smíða fyrir hann stöng. Nýlega sendi
Harry þrjár bambusstangir til jap-
ansks taugaskurðlæknis sem ætlaði
að eiga eina sjálfur og gefa góðum
vinum sínum hinar. Hver stöng kost-
aði um 100 þúsund íslenskar krónur.
Sjálfur þyfdr Harry afburða flugu-
veiðimaður og er eftirsóttur kennari í
svokölluðu Spey-kasti, sem hann hef-
ur útfært á sinn hátt. En hvaða flugur
skyldu vera í uppáhaldi hjá honum?
„Flestir veiðimenn era með full box
af flugum og eiga erfitt með að
ákveða hvaða flugu skuli velja. Svo
enda þeir með því að nota ekki nema
tvær eða þijár sígildar flugur.
Því er eins farið með mig. Eg nota
yfírleitt silungsveiðiflugur sem era
með mikilli gyllingu eða
appelsínugulum lit. Annars má ég
varla vera að því að veiða. Ég er ekki
búinn að fá nema einn og hálfan lax í
ár og var tvo daga að því. Náði einum
og sá hálfi slapp.“
Þegar Harry er að veiðum segist
hann sífelit vera að hugsa um hvemig
megi betrumbæta veiðistöngina.
„Líklega þarf ég að skipta um áhuga-
mál, fara til íslands að skjóta
hreindýr - eða kindur," segir hann og
hlær.
Miklar veiðitekjur
Auk stangasmíðinnar er Harry
Jamieson í stjóm veiðifélags, Abern-
ethy Angling Association, sem annast
hluta árinnar Spey, frá Broomhill til
Aviemore. Ain er um 150 km löng og
ræður Abemethy-veiðifélagið yfir um
14 km kafla þar sem eru sextán veið-
istaðir. A þessu svæði veiðast 150-180
laxar á ári og mikið af sjóbirtingi.
„Hvert jiorp við ána lítur eftír hluta
árinnar. I gamla daga verðlaunuðu
landeigendur vinnufólk sitt á ýmsan
hátt, sumir fengu kind, aðrir fisk eða
veiðiréttindi. Þessi veiðiréttindi yfir-
færðust svo á veiðifélög sem nú ann-
ast hluta árinnar. Sumir landeigend-
ur héldu veiðiréttinum, ekki síst þeir
sem bjuggu í sveitunum og áttu bestu
svæðin. Nú era þar dýrastu veiðistað-
ir árinnar. Sumir þessara landeig-
enda leyfa einungis fluguveiði og aðr-
ir vilja að veiddum fiski sé sleppt.
Við höfum áhyggjur af því að ef
einungis verður leyfð fluguveiði í
Spey, líkt og í sumum ám, þá lendum
við í vanda. Þá værum við að reka í
burtu 700-800 veiðimenn á ári, aðeins
á okkar veiðisvæði. Margir þeirra
nota beitu eða spúna. Þetta fólk kaup-
ir hér gistingu, mat, veiðivörur og
ýmsa þjónustu og er því mikilvæg
tekjulind. Ef fluguveiði yrði áskilin
myndu þúsundir veiðimanna hætta
veiðum eða flytja sig annað.“ Harry
segir að fleiri fiskar veiðist á maðk og
spún í ánni Spey en á flugu.
Gæsla við ána
Að sögn Harrys hefur ekki dregið
úr laxagengd í Spey á borð við það
sem gerst hefúr í ánum á vestur-
strönd Skotlands. „Það dró hér hægt
úr veiði fyrir um áratug, en síðan hef-
ur veiðin jafnað sig. Nú virðist sem
henni sé nokkuð misskipt. Einn hlutí
árinnar gefur vel eina vikuna og á
sama tíma er engin veiði á næsta
kafla. Næstu vikuna getur þessu ver-
ið þveröfugt farið. Fiskurinn dreifist
ekki jafnt, það er eins og hann gangi í
torfum upp ána.“
Á svæði Abemethy-veiðifélagsins
er áin vöktuð nótt og dag. Vaktmenn-
imir kanna veiðileyfi, skoða afla og
ganga úr skugga um að ekki sé stund-
aður veiðiþjófnaður.
Harry telur það af hinu góða að
menn verji fé og fyrirhöfn til að
rannsaka laxinn og vemda hann.
Hann þekkir til starfs Norður-Atl-
antshafs-laxasjóðsins og er með skjal
frá sjóðnum uppi á vegg í búðinni.
Hann telur að einnig þurfi að gefa
urriðastofninum í ánni gaum. Eldra
fólk segi sögur af því þegar vænn urr-
iði veiddist í lækjum og litlum ám en
það sé liðin tíð. Silungurinn sé einnig
mikilvægur því þúsundir silungsveiði-
manna fáist ekki við neinar aðrar
veiðar.
Almennt segist Harry vera hlynnt-
ur fiskivemd, því ef fiskveiðar leggist
af verði lítil þörf fyrir veiðistangir!
svan)
Viðlegubúnaður
á tilboði
Panasonic
GD90
Dualband GSM
Klukka/vekjari
Titrari
20 hringitónar
Innbyggt módem
200 klst rafhlaða
NEC DB4000
Dualband GSM
Klukka/vekjari
Titrari
14 hringitónar
300 klst rafhlaða
Snúra í eyra
Með frelsispakka
og SOO kr. inneign
Með frelsispakka
og 500 kr. inneign Svar hf.
StMINN
Bæjarlind 14-16
200 Kópavogur
S.510-6000
Ráðhústorgi 5
600 Akureyri
S. 460-5950
VICHYi
LABORATOIRES
SUMARTILBOÐ'
Vönduö snyrtitaska, með
30 mi ferðapakkningu
af 3in1 hreinsimjólk
og 50 ml úðabrúsa af
VICHY vatninu, fylgir
kaupum á andlitskremi
frá VICHY.*
Söluhæstu húövörur Evrópu sem eingöngu
eru seldar í apótekum.
VICHY. HEILSULIND HUÐARINNAR
mbl.is
aðeins 1.200 kr.
[ Moggabúðinni getur þú keypt boli, töskur, klukkur o.fl. á einstöku verði beint af Netinu
með öruggum hætti. Þú skoðar vörurnar og pantar á mbl.is og færð þær sendar heim
til þín eða á vinnustað.
EINFALT OG ÞÆGILEGT!
Þú getur líka komia við hjá okkur f MorgunblaSshúsinu, Kringlunni 1, og keypt vörurnar þar.
MOGGABÚÐIN Á
Allir bolir