Morgunblaðið - 16.07.2000, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 16.07.2000, Qupperneq 22
22 SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐÍÐ -I í blíðu á belg - eftir nokkurra sólarhringa baming kom sól og biíða og við svifum áfram á stóra belgseglinu. Ævintýri á Atlantshafi ÞAÐ er skemmtileg tilfinning sem maður upp- lifir þegar maður kemur í fyrsta skipti til Pa- impol. Litla þjóðemishjartað slær örar þegar maður gengur eftir Rue des Islandais eða sest inn á Restaurant L’Islandais og prófar ein- hvern af frábæru fiskiréttunum. Allt í bænum snýst um siglingar, höfnin er full af skútum stórum sem smáum og stöðug vinna í gangi í kringum þær. Búðir sem selja siglingadót og græjur eru margar og stanslaus freisting fyrir fólk með siglingadellu. Paimpol Cites des Islandeses - borg Islendinganna Allt er þetta minning um liðna tíma. Paimpol byggðist upp í kringum þorskveiðar við Island. Á blómaskeiði veiðanna á 19. öld fóru allt upp í 290 skútur frá norðurströnd Frakklands til þorskveiða á Islandsmiðum. Um borð voru nærri 5.000 sjómenn sem veiddu á handfæri og söltuðu fiskinn um borð. Alls munu hafa farist um 400 skútur við ísland með um 4.000 sjó- mönnum. Þessar veiðar stóðu yfir frá sautj- ándu öld og fram að upphafi seinni heims- styijaldar. Sagt er að allir íbúar bæjarins eigi ættir að rekja til gömlu íslandssjómannanna, en nú er ekki lengur gert út á þorsk í Paimpol heldur siglingarmenn og túrista. Siglingarkeppnin Skippers d’Islande frá Pa- impol til Reykjavíkur og aftur til Paimpol er haldin til að heiðra minningu þessara sjó- manna; Pécheurs d’Islande. Áhöfn skútunnar Bestu sigldi hraðbyrl frá Reykjavík til Paimpol 1 seinni hluta siglingakeppninnar Skippers d’lslande og þarf að leita allt aftur til ársins 1985 til að fínna sambærilegan árangur í siglingum. Ingvar A. Þórisson lýsir ævintýri á Atlantshafí þar sem hann ásamt öðrum skipverjum Bestu komst í hann krappan, en upplifði einnig ósvikna gleði þegar komið var í mark ✓ í Paimpol, borg Islendinganna. Hugmyndin að því að taka þátt í þessari sigl- ingakeppni kviknaði hjá Baldvini Björgvins- syni skipstjóra og íslandsmeistara á skútunni Besta, og uppistaðan í áhöfninni eru Islands- meistarar í siglingum. Hópur af besta siglingaliði landsins tók sig saman í vetur um að taka þátt í verkefninu. Undirbúningur hófst þegar í stað með líkams- rækt, leit að hentugri skútu og fjármagni. Skútan sem keppt var á er 60 fet eða 20 metrar, 5 metrar á breidd með 26 metra hátt mastur og vegur 13 tonn. Seglaflöturinn er 500 fermetrar. Um borð er svefnpláss fyrir 16 manns. Þetta er glæsilegt fley er hlaut nafnið Besta. Til fslands Sigríður Snævarr, sendiherra í París, ræsti keppendur frá Paimpol hinn 18. júní, 13 skútur lögðu af stað í keppnina með um 100 manns inn- anborðs. Það gekk á ýmsu á heimleiðinni frá Frakklandi, lagt var af stað í góðu veðri, það var heitt og góður byr. Áhöfn Besta setti stolt upp stórt belgsegl sem er 370 fermetrar að flat- armáli. Keppinautamir á Gravlinga, sem hafa atvinnu sína af siglingum sögðu: „Islendingam- ir settu upp belginn og hurfu!?“ Næstu daga kárnaði heldur gamanið, við lentum í mótvindi og þurftum að kmssa. Eig- andi skútunnar fékk heiftarlegt nýrnakast, sást sjaldan á dekki og þá ávallt mjög kvalinn. Skút- an hallaði mikið, lamdi stefninu harkalega í öld- umar og nötraði stafnanna á milli. Það er þreytandi að vera í svona barningi til lengdar, marblettir fóru að koma fram og sjóveiki gerði vart við sig. Alls vom þetta fimm sólarhringar hjá okkur. Við þessar aðstæður verður allt erf- itt; að koma sér fram úr kojunni, klæða sig og nærast. Það þarf töluverða útsjónarsemi til að sinna kalli náttúrannar og eiginlega verður allt að gerast með annarri hendinni þar sem hin fer í að halda sér. Alls vomm við 11 um borð og gengum vaktir 3 saman, en Baldvin skipstjóri og Áskell sigl- ingarfræðingur skiptust á að rýna í kortin. Hver vakt var 4 klukkutímar, síðan tók við bak- vakt og loks frívakt. En þegar mest gekk á vora allir á dekki. En eftir baí-ning í 5 sólarhringa gerði blíðu, það var helst til lygnt til skútusiglinga, hæg gola og spegilsléttur sjór. En við tókum þessu fagnandi, svifum áfram á belgseglinu okkar góða og sóluðum okkur á dekki. Þetta vai' kær- komið tækifæri til þurrka búnaðinn; gallar, föt, dýnur og svefnpokar vora hundblaut eftir alla vosbúðina og mannskapurinn úrvinda. Við fóram nokkuð aðra leið en hinar skúturn- ar, sóttum lengra í vestur til að sækja í lægðir á leið til íslands og sjálfan Golfstrauminn. Aætl- unin gekk nokkuð vel upp, á tímabili vora við langt á eftir hinum skútunum en mun vestar. Þegar við ventum og tókum strikið í norður í

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.