Morgunblaðið - 16.07.2000, Síða 24

Morgunblaðið - 16.07.2000, Síða 24
24 SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ -i \ : íf 1iWéá Æ i im -4:1 M VBL4 1 Þorsteinn E. Jónsson, eini islendingurínn sem var flugmaður í breska flughemum í síðarí heimsstyrjöld hittir hér gamla „kærustu" frá því í stríðinu - Spitfire. Endalok Messersmitt 109 flugvélar sem skotin var niðu Á sjöunda tug íslendinga fórgagngerttil Bretlands á margrómaöa flugsýn- ingu á Duxford-flugvelli, skammtfyrir utan Lond- on. Þeirra á meöal voru Gunnar Þorsteinsson, sem segir hérfrá, og Árni Sæberg Ijósmynd- ari. LÍFLEGAR listflugssyrpur, hríf- andi fylkingarflug og ögrandi bardagaatriði einkenndu flugsýninguna Flying Legends, sem haldin var dagana 8. og 9. júlí. íslendingamir fóru út á vegum Fyrsta flugs félagsins en alls komu um 35.000 manns til þess að njóta þessarar mildu flugveislu þar sem gamlir stríðsjálkar þeystu um loftin blá. Sjaldséðar og framandi flugvélar - fljúgandi goðsagnir - léku listir á himinhvolfmu yfir Duxford. í broddi fylkingar voru orrustuvélarnar, átta Spitfire, sjö Mustang P-51 og fjórar Hurricane P-40 en jafnmargar vélar af þeirri tegund hafa ekki flogið saman síðan árið 1965 er Richard Attenborough gerði hina fi-ægu kvikmynd „Battle of Britain" sem var einmitt að hluta til fest, á filmu í Duxford. í flokki sprengjuflugvéla gaf á að líta fallegar vélar eins og tvær B-17 fljúgandi virki og tvær B-25 Michell. Önnur B-17 vélin er hin þekkta „Sally B“ sem mikið hefur verið notuð í sjónvarpsþætti og kvikmyndir en frægðarsól hennar skein hæst í myndinni „Memphis Bell“ eftir David Putnam. Til flotaflugvéla heyrðu vélar á borð við Bearcat, Tigercat, Sea Fury, Skirider, Corsair, Wildcat, Hellcat og Avenger. Tvíþekjumar áttu sína fulltrúa sem vom Tigermoth, Swordfish, Jungmeister, Brisfit og SE5A. Úr sveitum Möndulveldanna komu Junkers 52, Messersmitt 108 og Fiat G59 og úr rúss- nesku víglínunni Kittyhawk, Kingcobra og YAK3. 2.500 flugvélum grandað í orrustunni um Bretland Flying Legends sýningin er haldin árlega en að þessu sinni var óvenju mikið um dýrðir í til- efni af þvi að nú em liðin sextíu ár síðan oirust- an um Bretland var háð. Slíkar stórflugsýning- ar með gömlum stríðsvélum í aðalhlutverki em almennt ekki haldnar nema á fimm eða tíu ára fresti. Stærsta flugminjasafn Evrópu er í Duxford Þennan grimmilega loftbardaga háðu flug- herir Bretlands og Þýskalands frá því í ágúst árið 1940 til september 1941, þó aðalbardaginn hafi einungis staðið yfir í um mánaðartíma fyrra árið. Bretar misstu um 800 flugvélar og Þjóð- verjar kringum 1.700 þannig að fyrir hverja eina flugvél sem Bretar misstu skutu þeir niður tvær óvinavélar. Hildarleiknum lauk með sigri breska flughersins og var þetta í fyrsta sinn sem Þjóðverjar urðu að leggja meiriháttar hernaðaráætlun á hilluna og ennfremur í fyrsta skipti sem sáust alvöru teikn um að Þjóðverjar myndu ekki sigra í síðari heimsstyijöldinni. Duxford er gamall herflugvöllur úti í sveit og

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.