Morgunblaðið - 16.07.2000, Side 25

Morgunblaðið - 16.07.2000, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2000 25 j ' '(V. - -jl Breskur leik- hópur sem ferðast milli flugsýninga á sumrín. Á efri mynd- inni eru leik- arar í þýsk- um herhúning- um í mak- indum fyrír framan Stork- njósnaflug- vél. Á neðrí myndinni skarta konur og kariar búningum yfir Sussex nákvæmlega sviðsett efir Ijósmynd. er nánast eins og hann var árið 1940 þegar hann gegndi þýðingarmiklu hlutverki í orrustunni um Bretland. Nú er þar stærsta flugminjasafn Evrópu með um 130 sögufrægar flugvélar sem skiptast þannig niður að þrjár eru frá tímum fyrri heimsstyrjaldarinnar, 10 sprengjuvélar, 28 orrustuvélar og 26 aðrar vélar úr síðari heimsstyrjöldinni, 47 flugvélar eru frá tímabil- inu eftir síðari heimsstyrjöldina og loks eru þarna 14 farþegaflugvélar, t.d. þriðja eintakið sem smíðað var af Concord þotunni hljóðfráu. Margar flugvélanna eru flughæfar og á sunnu- dögum yfir sumarmánuðina er alltaf boðið upp á litlar flugsýningar. Duxford er þó ekki ein- vörðungu flugminjasafn því þar státa menn af margvíslegum munum og minjum úr landhem- aði svo sem skriðdrekum og hvers kyns farar- tækjum, fallbyssum og skotvopnum af öllu tagi. Þá eru hermilíkön þar sem gestum gefst kostur á því að bregða sér í loftorrustu annaðhvort með nútímaherþotum eða Spitfire og Messer- smitt-vélum yfir klettunum við Dover á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar. Önnur stórafmælis- flugsýning í september Það er afskaplega skemmtilegt andrúmsloft á Duxford sem helgast af umgjörð síðari heims- styrjaldarinnai- og ekta breskri sveitastemmn- ingu. Þegar við þetta blandast svo frábær flugsýning með tilheyrandi hljóðum í bullu- hreyflum og sveitailmi verður þetta eins og tímavél sem færir mann aftur á vit stríðsár- anna. Islendingum gefst kostur á því að sjá aðra stórflugsýningu á Duxford í ár því fyrirhugað er að fara hópferð á sýninguna „Battle of Brita- in“ sem verður haldin dagana 9.-10. septem- ber nk. Tilefni hennar er einnig 60 ára aftnæli orrustunnar um Bretland og því verður eðliiega aftur miklu tjaldað til á Duxford á komandi hausti. Hermenn úr seinni heims- styijöldinni keyra um svæðið, þ.á m. Johnnie John- son sem var flugás Breta nr. 1 ogGunt- her Rall flugás Þjóðveija nr. 3 DeHavilland Rapid á leið í útsýnisflug rennir ftam- hjá virðulegrí röð af Sprtfire og Humcane.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.