Morgunblaðið - 16.07.2000, Side 31

Morgunblaðið - 16.07.2000, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2000 31 ÞAÐ hefur ekki verið um auðugan garð að gresja í gistihúsaflór- unni í Eyjafjallahrepp- unum vestri og eystri. Vissulega hafa ferðamenn átt gott skjól á Edduhótelunum og hjá bændum sem bjóða gistingu heima hjá sér. Hótel með öllum þeim að- búnaði og glæsileika sem margir gera nú kröfur um hefur hins veg- ar ekki verið til á þessum slóðum. Fyrr en núna. Hótel Skógar opn- aði í byrjun mánaðarins og er af- rakstur mikillar vinnu tveggja fjöl- skyldna, ættingja þein-a og vina og fjölda iðnaðarmanna, sem hafa lagt nótt við dag til að endurbæta og í raun gjörbylta gamla dýra- læknisbústaðnum og gera hann að hóteli sem fullnægir þörfum kröfu- harðari ferðamanna. Nægur markaður fyrir hótel Stærðin á hótelinu hentar reyndar ekki fyrir stærstu hópana, sem oft koma í langferðabílum og telja jafnvel nokkra tugi. Engu að síður eru eigendurnir fullvissir um að það sé nægur markaður fyrir þjónustu af þessu tagi í sveitinni. Pað er ekki síður falleg náttúran undir Eyjafjöllum og margvísleg afþreying á svæðinu en hlýlegt og skemmtilega skipulagt hótelið sem á að draga viðskiptavinina að. Það er altént mat Fríðu Jónsdóttur og frænku hennar, Guðbjargar Birnu Guðmundsdóttir, sem eru eigendur hótelsins ásamt eiginmönnum þeirra, Guðmundi Tómassyni flug- stjóra, Björns Eysteinssonar tæknimanns. Fríða, sem er leik- skólakennari að mennt, og Guð- björg, sem er þroskaþjálfi, eru báðar ættaðar úr sveitinni; Fríða frá Miðskála og Guðbjörg frá Núpi. Bæirnir tilheyra báðir Vest- ur-Eyjafjallahreppi en Hótel Skógar er í Austur-Eyjafjalla- hreppi og segir Fríða góðlátlega að hótelstarfsemin sé þannig yfir allan hrepparíg hafin. Úr 350 fermetrum í 400 fermetra á tveimur hæðum Dýralæknisbústaðurinn var byggður af ríkinu árið 1974 fyrir umdæmi dýralæknisins í Eyja- fjallahreppum. Húsið teiknaði Ein- ar Tryggvason arkitekt og var það haft afar veglegt og vandað fyrir þennan mikilvæga embættismann í sveitinni. Það var um 350 fermetr- ar á einni hæð en eftir breyting- arnar er það 400 fermetrar á tveimur hæðum. Starfsemi dýra- læknis lagðist niður í húsinu fyrir fáeinum misserum þegar dýra- læknisembætti voru sameinuð víða um land. Dýralæk breytt í g Dýralæknisbústaðurinn á Skógum í Austur-Eyjafjallahreppi hefur tekið stakkaskiptum og er nú orð- inn glæsihótel með gistingu fyrir 24 gesti. Fyrirframkvæmdunum stóðu tvær fjölskyldur úr Reykjavík sem eiga ættir að rekja til Eyja- fjallasveitar. „Okkur var sagt frá því að húsið væri til sölu í fyrrasumar. Ég hafði lengi haft áhuga á rekstri veitingahúss eða gallerís á sumrin hér undir Eyjafjöllum því ég vil eiginlega hvergi annars staðar vera,“ segir Fríða. Hún og Guð- mundur skoðuðu dýralæknishúsið og ákváðu strax að þarna skyldi rísa hótel. Þau fengu Guðbjörgu Birnu í lið með sér og Bidda og hófust handa við að fjármagna kaupin á húsinu og endurbæturnar fóru af stað strax síðastliðið haust. „Viljum dekra við gestina" Sveinn Ivarsson arkitekt var fenginn til að hanna breytingarnar á húsinu. Norðurhluta þaksins var lyft og þar urðu til fjögur stór her- bergi með skemmtilegu útsýni að fjöllunum og Skógarfossi. Á neðri hæðinni eru átta herbergi. Her- bergin eru öll tveggja manna nema eitt sem er eins manns. Sími er í öllum herbergjum ásamt sjón- Garðurinn er hellulagður og þar er boðið upp á veitingar. varpi og baði en þar með lýkur samanburðinum því þau eru hvert með sínu sniði þegar kemur að vali á innanstokksmunum og litasam- setningum. Parket er á gólfum og mikið hefur verið lagt upp úr vali á líni. Baðsloppar eru til afnota fyrir gesti og rúmin eru af bestu gerð. „Við leggjum mikið upp úr þvi að dekra við gesti okkar. Við vilj- um að þeim líði vel hjá okkur og geti hugsað sér að dveljast hjá okkur lengur vegna góðs aðbúnað- ar og viðmóts og heillandi náttúr- unnar allt í kring,“ segir Guðbjörg Birna. Hótelið verður að jafnaði opið frá miðjum maí fram til 1. október og segir Fríða að nýtingin á gisti- rýminu verði nálægt 70% fyrsta starfsárið. Hún segir að sér íinnist Eyja- Arinn er í veitingasalnum sem rúmar 30 manns i sæti. arhlaðborði og 6.000 kr. fyrir eins manns herbergi. Næsta haust gengur í gildi stjörnugjöf á hótel- um á Islandi sem ekki hefur tíðk- ast áður hérlendis. Áður en ráðist var í framkvæmdirnar létu hótel- byggjendurnir kanna hvernig gist- ingu væri þörf fyrir á þessu svæði. í ljós kom að mest þörf var fyrir vandaða hótelgistingu. Fram- kvæmdirnar miðuðust því allar við það að hótelið næði í það minnsta þremur stjörnum þegar það verð- ur metið til stjörnugjafar í haust. Fríða segir að miklir möguleikar hafi falist í húsinu og það hafi hentað vel til hótelrekstrar. Húsið er byggt í þremur álmum. I tveim- ur þeirra eru herbergin. I þriðju álmunni er veitingastaðurinn, sem áður var stofa dýralæknisins. Þar geta allt að 30 manns snætt við arineld eða fengið sér kaffi og meðlæti. Við húsið eru þrjú útivistar- svæði. Hellulagður garður er við veitingastaðinn og á sólríkum dög- um er hægt að borða þar eða drekka kaffi. Þar er hugmyndin að sett verði upp útitjald til að stækka veitingaaðstöðuna. Garður- inn er hannaður af Gunnari Birni Björgvinssyni garðyi'kjufræðingi. Norðanmegin við húsið er myndarlegur timburpallur þar sem er að finna heitan nuddpott og saunabað. Á veitingastaðnum er lögð rík áhersla á góða matseld úr íslensk- um hráefnum. Matseðillinn er ein- faldur en lofar góðu. Þar er að finna fiskisúpu, silung sem veiddur ' er í sveitinni með hundasúru- og spínatsósu, grillaðan humar og lambalundir marineraðar í blóð- bergi og með kóngasveppasósu. Einnig verður boðið upp á sjávar- réttarpasta, salöt og ýmsa eftir- rétti fyrir utan morgunverðarhlað- borðið. Kryddjurtagarður er við hótelið þar sem ræktaðar eru kryddjurtir til matseldarinnar. Fjölbreyttur vínseðill er á veit- ingastaðnum með vínum víðs veg- ar úr heiminum. Þótt hótelinu sé lokað yfir vetr- armánuðina verður það opið um helgar í haust eins og veitingastað- urinn. Hóteleigendurnir hafa þó ekki látið staðar numið hér því sótt hef- ur verið um leyfi til að byggja við húsið og innrétta þar önnur tólf herbergi. Fríða segir að Hótel Skógar sé komið til að vera sem •> vin undir fjöllunum. Tveir af eigendum Hótel Skóga, Guðbjörg Birna Guðmundsdóttir og Fríða Jónsdóttir. Ftísar eru á gólfum og hvert her- bergi með sínu sniði. fjallasveitin hafa verið vanrækt sem ferðamannastaður. Ferða- menn hafi ekki gefið nægilegan gaum að því sem í boði sé á svæð- inu sem sé fjölmargt. Þar megi nefna til dæmis bátaferðir á Mark- arfljóti, göngu um Fimmvörðuháls, akstur vélsleða um Sólheimajökul, hestaferðir víða um sveitina og leiðangra í fjöruna sem er nánast við bæjardyrnar. Þá er ótalin helsta náttúruperla svæðisins sem eru allir fossarnir, þar á meðal hinn tignarlegi Skógarfoss. Stefnt að þremur stjörnum Hugmyndin er sú að Hótel Skógar fullnægi kröfuharðari gest- um án þess þó að verðlagið endur- spegli það endilega. Gistinóttin kostar 10.000 krónur fyrir tveggja manna herbergi með morgunverð-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.