Morgunblaðið - 16.07.2000, Page 50

Morgunblaðið - 16.07.2000, Page 50
50 SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM forvltni á að heyra hvernig fór. Með jökulröndina í baksýn Þórunn og Kristján skemmtu sér konunglega í Kúlusúkk, HEITUM sumardegi er fátt eins yndislega svalandi og að steypa sér af háum stökk- palli ofan í dimmbláa, ískalda sund- laug og finna hvernig líkaminn end- urnærist þegar vatnsflöturinn er klofinn sterkum sundtökunum. I stefnumótaþættinum Djúpu lauginni er ungt, einhleypt fólk leitt saman til að spyrja hvað annað markvissra spuminga í því augna- miði að finna ferðafélaga í óvissuferð þar sem ævintýrin bíða við hvert fót- mál. Þórunn Stefánsdóttir stökk í dýpsta enda sundlaugarinnar í síð- ustu viku þegar hún ákvað eftir nokkurra mínútna umhugsunarfrest að taka þátt í leiknum og fela sig óvissunni á vald. Eftir miklar vanga- veltur og spumingaflóð þótti Krist- ján Óli Sigurðsson svara best hinna þriggja ungu pilta sem langaði á stefnumót við íongulegt fljóð og fékk að launum ferðalag í fylgd stúlkunn- ar. Undrundarsvipurinn á þeim Þór- unni og Kristjáni leyndist samt eng- um viðstöddumþegar þeim var til- kynnt að ferðinni væri heitið til Grænlands og það strax morguninn eftir. Það ber að hafa í huga að skötu- hjúin höfðu aldrei hist fyrir þáttinn og því var rafmögnuð spenna í loft- inu á flugvellinum þegar beðið var eftir brottfarartilkynningu í Græn- landsflugið. Þegar rödd flugfreyj- unnar heyrðist blíðum rómi í kall- kerfinu segja: „Góðir farþegar, vinsamlegast festið sætisólarnar, áætlaður flugtími til Kúlusúkk er 1 klst. og 45 mín.,“ fór nettur skjálfti um parið, nú varð ekki aftur snúið. Skemmtileg og einstæð reynsla „Ég viðurkenni það alveg að það var mjög skrýtin tilfinning að ferð- ast með svona algjörlega ókunnugu fólki,“ sagði Þórann eftir ferðina „en allir voru svo indælir að þetta varð ekkert mál og bara alveg rosalega skemmtileg upplifun. Við fómm í jeppaferð í frábæm veðri og nutum útsýnisins yfir hafísinn. Um kvöldið fóram við svo á ball í félagsheimilinu og spjölluðum við þessa fimm inn- fæddu sem þar vora að skemmta sér,“ segir Þórann og skellihlær. Þetta var fyrsta heimsókn Þór- unnar og Rristjáns til Grænlands og því var margt sem kom þeim spánskt fyrir sjónir. „Það var mikið af ísjökum og allt á kafi í snjó um hásumar og fólkið er eitthvað það furðulegasta sem ég hef séð á ævi minni,“ segir Kristján og er enn hálfhissa á öilum ósköpunum, hvað þá matnum: „Við borðuðum sel, held ég, og grænlenskan harðfisk og ein- hverja undarlega karríkássu sem hefði alveg eins getað verið gerð úr sleðahundum." Þegar þau era spurð hvort róman- tíkin hafi blómstrað í ferðinni hlæja þau við og svarið er samhljóða, nei. Þau bera hvort öðra samt góða söguna og segja ferðina hafa verið skemmtilegt ævintýri sem seint gleymist. „Það er enginn að leita sér að maka í þessum þáttum, þetta er bara grín og það er alltaf gaman að kynn- ast skemmtilegu fólki sem hefur húmor fyrir sjálfu sér og fara í gott ferðalag, og þar með er tilganginum með svona þætti náð,“ segir Þórann ánægð með þetta óvænta sumarfrí. Rey kj avík-Kúlu- súkk-Rey kj avík Stundum er fólki varpað inn í framandi aðstæður með ókunnugu fólki og sjónvarps- myndavél sem fylgist með hverju fótmáli þess. Það var einmitt þetta sem — - 7 Þórunn Stefánsdóttir og Kristján Oli Sigurðsson gerðu um síðustu helgi. Jóhönnu K. Jóhannesdóttur lék Stefnumötaþátturinn Djupa laugin fór í óvissuferó til Grænlands V © V.\rA- brww.N- 09 ^uicjjnt^ttoo 30% svfsl. © NJcojtuir 20% í^fsL o CKnt © O Lwtwun + ys LoteteMwi 20% ávfsl. 20% ávfsl. 20% ávfst. SNYRTIL NUÐDSTOFA Hönnu Kristínar Didriksen Upplýsingar í sfma 561 8677 ® skjAr einn mbl.is TBPP BD LUKKULÁKI ER MÆTTUR ZETA MYNDASÖGUBLAÐ www.nordiccomic.com Ifíðvarandi æska? eilsuhúsið Skólavörðustig, Kringlunni og Smáratorgi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.