Morgunblaðið - 01.09.2000, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Forstjóri Flugfélags fslands fundar með bæjarráði Akureyrar
Aætlunarflug út frá
Akureyri í uppnámi
JÓN KARL ÓLAFSSON, forstjóri Flugfélags ís-
lands, fundaði í gær með bæjarráði Akureyrar og
Sigurði J. Sigurðssyni, forseta bæjarstjórnar. Fór
hann þar yfir stöðu flugmála á Akureyri og þann
möguleika að Flugfélag íslands hætti áætlunar-
flugi frá Akureyri eftir fyrirhugað útboð sjúkra-
flugs og áætlunarflugs. Bæjarráð hefur óskað eft-
ir fundi með samgönguráðherra og heilbrigðis-
ráðherra og verður sá fundur næstkomandi
mánudag.
Gera ráð fyrir því að fá ekki verkið
Jón Karl Ólafsson sagði að í fyrirhuguðu útboði
væri áætlunarflug frá Akureyri boðið út ásamt
sjúkraflugi. Vegna þess að ekki sé gerð krafa um
jafnþrýstibúnað og ákveðna stærð flugvéla, sé sá
möguleiki fyrir hendi að Flugfélag íslands fái ekki
verkið og starfsemi félagsins leggist af á Akureyri.
I þessum útboðsgögnum sem nú liggja fyrir varð-
andi útboð á sjúkraflugi og áætlunarflugi út frá
Akureyri, eru gerðar lágmarkskröfur til flugvéla
sem eru miklu afkastaminni og ódýrari en þær
sem við höfum upp á að bjóða. Við verðum að gera
ráð fyrir því að við fáum ekki það verk og þar af
leiðandi myndum við hætta flugi út frá Akureyri
til þeirra áfangastaða sem við fljúgum á í dag,
sagði Jón Karl.
Hann sagði að ef að niðurstaðan yrði sú að Flug-
félag íslands fengi ekki verkið þá yrði starfsemin
á Akureyri tekin til gagngerrar endurskoðunnar.
Við áttum því fund með okkar fólki á Akureyri í
gær og kynntum þeim stöðu mála. A morgunfundi
með bæjarráði Akureyrar gerði ég bæjaryfirvöld-
um þar grein fyrir því að þessi staða gæti komið
upp, sagði Jón Karl.
Ætlum að taka þátt
Að hans sögn er flug frá Akureyri stór þáttur í
starfsemi félagsins. Við erum með 9 fasta flug-
menn og alveg upp í 13 yfir sumartímann. Síðan
vinna sex í tæknideild félagsins. Við myndum
bjóða öllu þessu fólki starf í Reykjavík, en hvort
fólkið myndi flytja suður eða ekki, það er ómögu-
legt að segja, sagði Jón Karl.
Hann segir að nú þegar sé sjúkraflugið stór
þáttur í starfsemi félagsins. Nú þegar erum við
búnir að fara í 130 sjúkraflug á þessu ári. Ég vil
leggja áherslu á það að við ætlum að taka þátt í
þessu útboði, við munum ekkert hætta við, sagði
Jón Karl að lokum.
Ásgeir Magnússon, formaður bæjarráðs, sagði
að ráðið hefði óskað eftir fundi með Jóni Karli
Ólafssyni til að fara yfir stöðu flugmála á Akur-
eyri. Hann skýrði stöðu mála, hvað væri hugsan-
lega að gerast. Hann gerði okkur grein fyrir því að
ef að möguleikinn á því að gera út þessar minni
flugvélar væri ekki lengur fyrir hendi, þá sjá þeir
sér ekki færi á því að sinna því flugi héðan sem
þeir nú gera, sagði Ásgeir. í tengslum við drög að
útboði vegna sjúkraflugs, sem bæjarráð hefur
fjallað um, þá hefur ráðið óskað eftir fundi með
heilbrigðisráðherra og samgönguráðherra og
verður sá fundur á mánudaginn.
Utbjó minnis-
merki um
sveitabæi 1 eyði
í Skagafirði
ÓlafsQöröur. Morgnnblaðið
TÓMAS Einarsson, sem rekur sjálf-
stæða múrsmiðju í Ólafsfirði, hefur
lokið sínu stærsta verki hingað til
og afhenti hann það síðasta föstu-
dag. Þetta er minnisvarði um
sveitabæi sem hafa farið í eyði í
Skagafirði.
Steinninn verður settur upp í Ós-
landshlið en þessi minnisvarði er
langstærsta verkið sem Tómas hef-
ur unnið, eftir að hann fdr að taka
að sér verk af þessu tagi í vor.
Tómas er einn af örfáum sér-
menntuðum steinsmiðum á landinu,
en hann er búsettur í Ólafsfirði og
rekur þar fyrirtæki sitt.
Steinninn er höggvinn úr stuðla-
bergi og steyptur stallur undir.
Mikil áletrun er á steininum. Mikil
vinna er á bak við svona minnis-
varða, að sögn Tómasar. Minnis-
varðinn er um þrjú hundruð kíló að
þyngd.
Það er Átthagafélagið Geisli í
Skagafírði sem fékk Tómas til að
vinna verkið.
@ og Steina Vasulka
í Listasafninu
Flugmenn
skora á
stjórnvöld
VEGNA umræðu um útboð sjúkra-
flugs hafa ellefu flugmenn á Akureyri,
sem starfað hafa lengi við sjúkraflug,
ritað Ingibjörgu Pálmadóttur, heil-
brigðisráðherra, bréf og skorað á
stjómvöld að miða við að notuð verði
skrúfuþota með jafnþrýstibúnaði.
Segir að á vetuma sé algengt að
veður sé með þeim hætti að ísing og
ókyrrð hamli flugi í lægri flughæðum
yfir hluta landsins. I bréfinu segir:
„Skrúfuþota með jafnþrýstibúnaði
getur oft flogið yfir hið vonda veður
og er því mun ömggari og þægilegri
kostur. Þá minnum við á yfirlýsingu
þína þess efiiis að miðstöð sjúkraflugs
á Islandi verði á Akureyri."
---------------
Kirkjustarf
LAUFÁSPRESTAKALL: Guðsþjón-
usta í Svalbarðskirkju á sunnudag, 3.
september kl. 14. Komum í kirkju
þennan sunnudag og biðjum fyrir
gæfuríku skólastarfi. Héraðsfundur
Þingeyjarprófastdæmis verður hald-
inn í Kirkjumiðstöðinni við Vest-
mannsvatn á laugardag, 2. septem-
ber, sem hefst með guðsþjónustu í
Grenjaðarstaðakirkju kl. 11.
TVÆR ólíkar margmiðlunarsýn-
ingar verða opnaðar í Listasafninu
á Akureyri föstudaginn 1. sep. kl.
20. Tölvusýningin (ffi er unnin í
samvinnu ART.IS, OZ.COM og
Reykjavíkur, menningarborgar
Evrópu árið 2000. í Vestursal gef-
ur að líta nýlegt verk eftir Steinu
Vasulku, Hraun og mosi, ásamt yf-
irliti myndbandsvcrka hennar.
Listamennirnir sem vinna að gerð
(®-sýningarinnar eru: Ásmundur
Ásmundsson, Finnbogi Pétursson,
Gjörningaklúbburinn (Dóra ísleifs-
dóttir, Eirún Sigurðardóttir, Jóní
Jónsdóttir og Sigrún Hrólfsdóttir),
Haraldur Stefánsson, M.Y. Studio
(Katrín Pétursdóttir og Micheal
Young), Ómar Stefánsson og Þor-
valdur Þorsteinsson. Tæknistjórar
eru Tómas Gíslason og Torfi
Frans Ólafsson, en sýningarstjóri
er Hannes Sigurðsson. Þegar list
og hátækni er att saman verður til
ný veröld: „Atið“ eða (ffi. ART.IS
og OZ.COM hafa unnið saman að
tilraunaverkefni sem fengið hefur
nafnið (ffi, en það tákn er einskon-
ar samnefnari alls sem snertir
tölvuveruleika og netheima. í
Vestursal sýnir Steina Vasulka
myndbandsverkið Hraun og mosi,
sem hún vann fyrir Listahátfð í
Reykjavík. Þessi innsetning sam-
anstendur af þremur sjónarhorn-
um sem varpað er á jafnmarga
veggi salarins. Þá er til sýnis yfír-
lit myndbandsverka Steinu.
Veiðidagar fjölskyldunnar
VEIÐIFÉLAG Fnjóskár og
Stangaveiðifélagið Flúðir bjóða í
sameiningu öllum börnum og
barnabörnum, svo og öðrum nánum
ættingjum félagsmanna, til að veiða
í Fnjóská laugardaginn 2. septem-
ber og sunnudaginn 3. september.
Börn og unglingar eiga að mæta í
veiðihúsið Flúðasel kl 9 árdegis,
hvorn daginn sem þau vilja. Þátt-
takendur verða að hafa með sér
veiðibúnað. Veiðitíminn er á milli kl
10 og 15 og leiðbeina vanir stanga-
veiðimenn úr Flúðum. Boðið verður
upp á léttar veitingar í Flúðaseli
milli kl. 16 og 18 báða dagana.
wísíSÆ,
i O.'IK '
'(Ov' . '
,v , ..,3 v
•U.iOAliENOl
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Tómas Einarsson við minnismerkið sem hann gerði um sveitabæi.
Atvinnuþróunarfélag
Eyjafjarðar
Verkefnasjóður AFE
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar
auglýsir eftir umsóknum um styrki
úr Verkefnasjóði AFE.
Þeir sem eru í atvinnurekstri eða vilja hefja atvinnurekst-
ur á starfssvæði AFE hafa rétt til að sækja um.
Allar atvinnugreinar eru styrkhæfar en ríkt tillit er tekið
til framtíðarmöguleika verkefnisins og arðsemi til lengri
tíma litið.
Sérstaklega er óskað eftir raunhæfum umsóknum á sviði
ijar- og gagnavinnslu.
Umsóknareyðublöð, ásamt leiðbeiningablaði, fást á skrif-
stofu AFE, Strandgötu 29, og hjá bæjarritaranum í Ólafs-
firði og á Dalvík og sveitarstjóranum á Grenivík.
Hægt er að fá eyðublöðin á tölvutæku formi hjá sömu að-
ilum.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu AFE í síma
461 2740 eða netfangi benedikt@afeis.
Umsóknarifestur er til 20. september 2000.
Öllum umsóknum verður svarað íyrir 20. október 2000.
Fyrrverandi samlagsstjóri MSKEA um breytingar
Sorgleg aðgerð sem em-
kennist af flumbrugangi
ÞÓRARINN E. Sveinsson íyrrver-
andi mjólkursamlagsstjóri í Mjólk-
ursamlagi KEA í tæpa tvo áratugi
segir fyrirhugaðar skipulagsbreyt-
ingar sem gerðar verða í kjölfar
sameiningar mjólkursamlaganna
MSKEA og MSKÞ og félags mjólk-
urframleiðenda, Grana ehf., sorglega
aðgerð og til þess fallna að færa þá
þekkingu sem orðið hafi til í samlög-
unum langt aftur í tímann. Hann seg-
ir aðgerðirnar einkennast af flumbru-
gangi og ekkert réttlæti þær.
Ólga er nú meðal starfsfólks
MSKEA. Skipulagsbreytingamar
hafa í för með sér fækkun starfa hjá
hinu nýja íyrirtæki og var fjórum
mjólkurfræðingum sagt upp síðasta
ffistudag. í kjölfarið sögðu allir mjólk-
urfræðingar samlagsins upp störfum.
Þórarinn segir margt í framkvæmd
málsins athugavert, unnið sé gegn
fólkinu í stað þess að vinna með því.
„Ég fæ ómögulega séð að starfsemin
geti gengið upp samkvæmt þessu
nýja skipuriti, það virðist t.d. sem
einn maður eigi að taka að sér störf
sem allt að fimm menn unnu áður.
Þar er um að ræða viðkvæmt starf
sem ekki er hægt að ætlast til að einn
maður sinni,“ sagði Þórarinn. Hann
sagði einnig óskýrt hvernig standa
ætti að framleiðslunni inni í húsi. „Ég
sé því ekki betur en að þeirri þekk-
ingu og kunnáttu sem byggð hefur
verið upp á íjölda mörgum árum sé
ýtt til hliðar að ástæðulausu."
Kúvending í andstöðu
við starfsfólkið
Þórarinn sagði að afkoma samlag-
anna, bæði á Akureyri og Húsavík,
hafi verið með ágætum síðustu ár og á
báðum stöðum hafi verið hagrætt í
rekstri sem kostur er. Samlögin
hefðu á liðnum árum tekið á móti
svipuðu magni árlega en ávallt skilað
eigendum sínum góðum hagnaði. Það
megi þakka hagræðingu í rekstri.
„Það er ekkert sem kallar á þessar
aðgerðir nú, algjöra kúvendingu í
andstöðu við starfsfólkið og það sem
unnið hefur verið á liðnum árum. í
mínum huga er því um að ræða sorg-
legar áðgerðir sem ég fæ ekki betur
séð en verði að ganga til baka. Ella
mun mjólkuriðnað á Norðurlandi
setja mjög niður, stjómunar- og
þekkingarlega. Eina leiðin til að þoka
málum áleiðis er því að draga þessar
breytingar til baka,“ sagði Þórarinn.
„Það er leitt að sjá fyrirtæki sem er
fyrst í sinni grein til að fá útflutnings-
leyfi til Evrópu, með fyrstu fyrirtækj-
um í matvælaiðnaði til að fá ISO-vott-
un og hefur verið í forystu í þessum
geira undanfarin ár, sett mörg ár til
baka með þessum aðgerðum,“ sagði
Þórarinn.