Morgunblaðið - 01.09.2000, Qupperneq 28
28 FÖSTUDAGUR T. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Slattelid, Hreinn og
Hytönen fengu
Carnegie-verðlaunin
MARI Slaattelid frá Noregi hlaut
Carnegie Art-verðlaunin 2000 að
upphæð 500.000 skr. Önnur verð-
laun, 300.000 skr., hlaut Hreinn
Friðfinnsson og þriðju verðlaun,
200.000 skr., féllu í skaut Petri
Birtan
í síma-
skránni
SÝNING á málverkum Huldu
Vilhjálmsdóttur verður opnuð
á laugardaginn kl. 15 í List-
húsi Ofeigs á Skólavörðustíg
5. Þetta er fjórða einkasýning
Huldu. Einnig hefur hún
komið fram víðsvegar með
gjömingalist sína og tekið
þátt í samsýningum.
Viðfangsefnið er „Birtan í
símaskránni". Sýningin sam-
anstendur af nokkrum meðal-
stórum olíumálverkum sem
taka á tilfinningum mannsins.
Við opnun verður m.a. leikið á
munnhörpu.
Sýningin stendur til 23.
september og er öllum opin.
Helgi Jóns-
son sýnir í
Galleríi ash
Lundi
MYNDLISTÁRSÝNING
Helga Jónssonar verður opnuð
á laugardaginn, kl. 16 í Galleríi
ash Lundi, Varmahlíð.
Á síðustu árum hefur hann
stundað nám í ýmsum greinum
myndlistar í Myndlistaskóla
Reykjavíkur.
Sýningin er opin alla daga
frá kl. 11-18 nema mánudaga
og þriðjudaga og stendur til 22.
september.
^mb l.is
/\LLTA/= G!TTH\SS\£} A/ÝT7
Hytönen frá Finnlandi. Styrk til
handa ungum myndlistarmanni á
sýningunni fékk John Korner frá
Danmörku.
„Það sem var sérstaklega spenn-
andi við dómnefndarvinnuna við
þriðja Carnegie Art Award var að
sjá hversu opið og teygjanlegt
málverkið er í sjálfu sér. Þeir sem
hlutu fyrstu og önnur verðlaun eru
ekki bara að vinna með málningu á
striga, heldur einnig með ljós-
myndir; samt efast maður ekki eitt
augnablik um að þau séu að vinna
út frá forsendum málaralistarinn-
ar. Mig langar einnig að bæta því
við að það var gaman að sjá hér
norskan og íslenskan listamann á
verðlaunapalli, þó svo þjóðerni
skipti hér sáralitlu máli,“ sagði
formaður dómnefndar, Lars
Nittve.
Listamenn
á sýningunni
Fyrir íslands hönd sýna þeir
Hreinn Friðfinnsson og Tumi
Magnússon. Aðrir þátttakendur
eru: Karin Mamma Andersson,
LISTASAFN REYKJAVÍKUR - HAFNAR-
HÚS KL. 16
cafe9.net - tölvusamskiptanet
í dag verður opnað fyrir samband
allra menningarborganna í verkefni
sem verið hefur í undirbúningi í tvö
ár. Hver menningarborg hefur opn-
að sérstakt tölvu-kaffihús þar sem
fram fer skapandi og öfiugt sam-
skiptanet á vefnum og fólki býðst
að taka þátt í mótun listrænna
verkefna. Aöstaða cafe9.net í
Reykjavík er í fjölnotasal Hafnar-
hússins en þar verður einnig kom-
ið upp stóru sýningartjaldi og fjar-
fundaþúnaði. Boðið er upp á það
ferskasta í hugvitsgerð ungra lista-
manna allra borganna; gestir geta
verið virkir þátttakendur hvort sem
er á tölvum kaffihússins eða utan
þess. Einstakir, stórir dagskrárliðir
munu eiga sér stað í Hafnarhúsinu
á þeim tveimur mánuðum sem
kaffihúsið er starfrækt; meðal
annars tónleikar með gus gus 9.
september.
Cecilia Edelfalk, Matts Leider-
stam, Jan Svenungsson, Karin
Wikström og Lars Olof Loeld frá
Svíþjóð. Frá Danmörku Merete
Barker, Martin Bigum, Erik A.
Frandsen, John Korner, Kehnet
Nielsen og Nina-Sten-Knudsen.
Frá Finnlandi: Petri Hytönen,
Teemu Máki og Sinikka Tuominen.
Frá Noregi: Bjarne Melgaard,
Hanne Nielsen, Leonard Rickhard
og Mari Slaattelid.
Opnun og verðlauna-
afhending í Helsinki
Verðlaun og styrkur Carnegie
Art Award 2000 verða afhent við
opnun sýningarinnar í Konsthallen
í Helsinki þann 12. október n.k.
Þær Riita Uosukainen, forseti
finnska þjóðþingsins, og Lars
Nittve frá Tate Modern í Lundún-
um afhenda verðlaunin.
Sýningin verður sett upp í
höfuðborgum Norðurlanda og í
Gautaborg. Á Islandi verður
henni komið fyrir í Listasafni
Kópavogs dagana 7. apríl - 6. maí
2001.
www.cafe9.net
LISTASAFN REYKJAVÍKUR - HAFNAR-
HÚS KL. 21
Óvæntir bólfélagar - Hispurslausi
kvartettinn Óvæntir bólfélagar
hreiðra um sig í Listasafni Reykja-
víkur - Hafnarhúsi í samstarfi við
cafe9.net. Kvartettinn leikur á ný
hljóðfæri smíðuð og hönnuð af
Berki Jónssyni myndlistarmanni.
Meistarakokkar úr Klúbbi mat-
reiöslumeistara töfra fram óvenju-
legar kræsingar í stíl við viðburð-
inn.
HVOLSVÖLLUR KL. 14.
Sögusetrið Ferðir um söguslóðir
Njálu. Kl. 19 hefst svo Söguveisla
þar sem fluttur verður leikþáttur-
inn „Engin hornkerling vil ég vera“
og söngdagskráin „Fögur er hlíðin “
auk þess sem þoðið er upp á þrí-
réttaða veislumáltíð í Söguskátan-
um, sem er stílfærð eftiriíking af
langhúsi frá miðöldum.
www.reykjavik2000.is - wap.-
olis.ls
ystn-2000
Föstudagur 1. september
Ekkert sérstak-
lega gaman að
bjástra við fortíðina
Hreinn Friðfinnsson myndlistarmaður, en hann hlaut í
gær önnur vcrðlaun Camcgie Art Award.
HREINN Friðfinnsson
sagði í samtali við
Morgunblaðið að það
væri óvenju annasamt
hjá honum um þessar
mundir, því hann er að
undirbúa yfirlits-
sýningu um feril sinn
sem opna á í Turku í
Finnlandi 6. október.
En fyrr á þessu ári voru
Hreini veitt finnsku Ars
Fennica-verðlaunin
sem fela m.a. í sér að auk peninga-
verðlauna er sett upp yfirlitssýning
með verkum iistamannsins og gefin
út vegleg bók.
„Það er því svolítið mikið að gera
núna, en ég er rétt nýlega búinn að
frétta að ég væri enn þeirra sem
fengu þessi Carnegie verðlaun,"
sagði Hreinn „enda er svona löguðu
yfirleitt haldið leyndu fram á síð-
ustu stundu. En ég er búinn að
senda verkin sem Carnegie-
stofnunin valdi frá mér og þau
verða á sýningu sem einnig hefst í
október í Finniandi. Opnunum þess-
ara tveggja sýninga lendir því eig-
inlega saman, yfirlitssýningin hefst
6. október en hin þann 12. - en hún
er auðvitað samsýning margra
listamanna. Þetta er því kannski
ekkert sérstaklega heppilegt fyrir
mig að þessu leyti, ég verð á tveim-
ur stöðum þarna á þessum tíma.
Carnegie-sýningin ferðast síðan
einhvem hring um Norðulöndin, ég
held meira að segja að hún eigi líka
að koma til Reykjavíkur.“
Hreinn sagði að sú starfsemi
Carnegie-stofnunarinnar sem lýtur
að Norðurlöndum hafi ekki verið
mjög lengi í gangi þó stofnunin sjálf
sé gömul og umsvifamikil, en höf-
uðstöðvar hennar eru í London.
Hann segist þó lítið þurfa að koma
að vinnunni við Carnegie-sýning-
una sjálfur.
Að sögn Hreins gegnir öðru máli
með yfírlitssýningu Ars Fennica, en
í henni felst feikimikil vinna. „Eg
hef þurft að endurgera gömul verk,
en verkin á sýningunni eru allt frá
árinu 1965, þó þetta sé auðvitað
bara úrtak. Annars hafa sýningar-
sljórinn og starfsmenn Ars Fennica
að mestu leyti séð um val verkanna
og skipulagninguna." Aðspurður
sagði Hreinn að honum fyndist ekk-
ert sérstaklega gaman að vera að
bjástra svona við fortíðina þótt það
sé ef til vill allt í lagi að framkvæma
svona yfirlitssýningu einu sinni.
„Reyndar er ég svo einnig að
fara með gallerísýningu til Parísar
núna um miðjan september, en það
hafði verið ákveðið fyrir Iöngu.
Bæði þessi verðlaun koma auðvitað
óvænt inn í það sem maður er að
gera.“
Hreinn sagðist hlakka til þess að
ljúka þeirri vinnu sem framundan
er á þessu ári, „en þegar þessi
hryðja er gengin yfir langar mig að
komast svolítið í burtu og gera ekki
neitt. Það er orðið mjög brýnt
núna,“ sagði Hreinn Friðfinnsson í
lok þessa stutta spjalls.
Hádegistónleikar í
Hallgr ímskirkj u
A SIÐUSTU hádegistónleikum
sumarsins í Hallgrímskirkju, sem
verða á morgun, laugardag, kl. 12,
mun Hörður Áskelsson leika
Fantasíu og fúgu í g-moll eftir J.S.
Bach og Kóral nr. 3 í a-moll eftir
César Franck. Þessi verk hæfa
Klais-orgelinu mjög vel. Fantasían
og fúgan eru í raun tvö sjálfstæð
verk, sem hafa fylgst að frá fyrstu
útgáfu þeirra, fantasían er byggð
kringum tvær andstæðar hugmynd-
ir og mjög frjáls, í stíl fyrirrennara
Bachs, og fúgan byggir á glaðlegu
hollensku þjóðlagi. Kórallinn er
einn þriggja sem voru síðustu verk
Francks, skrifaðir sama ár og hann
lést árið 1890. Verkið byggir á
frumsömdu sálmalagi og tónskáldið
vinnur með það á ýmsan hátt. Hörð-
ur Áskelsson er organisti Hall-
grímskirkju, hann stjórnar bæði
Mótettukór Hallgrímskirkju og
Schola cantorum auk þess sem hann
er listrænn stjórnandi tónleikarað-
arinnar Sumarkvöld við orgelið og
Kirkjulistahátíðar, sem haldin hefur
verið annað hvert ár síðan 1987.
Sunnudaginn 3. september leikur
hann á síðustu tónleikum Sumar-
kvölds við orgelið að þessu sinni.
Hádegistónleikarnir standa í
hálfa klukkustund og aðgangseyrir
er 500 kr.
o<?p
IÞRÓTTAOG
ÓLYMPÍU S AMBAND
ISLANDS
Kringlunni 5 • Pósthólf 3200 • 123 Reykjavík
© 569 2500
sjova.is