Morgunblaðið - 01.09.2000, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2000 31
LISTIR
Bókavefur opn-
ar á Strikinu
BÓKAVEFUR hefur verið opnaður
á Strikinu og hefur Hrafn Jökuls-
son, rithöfundur og blaðamaður,
verið ráðinn ritstjóri vefsins. A bók-
menntavefnum verður að fínna
fréttir af bókaútgáfu, viðtöl við höf-
unda, umsagnir um bækur, greinar
um rithöfunda og skáld, auk fróð-
leiks af ýmsu tagi. Þá verður áhersla
lögð á að virkja gesti Striksins til
þátttöku, m.a. með því að senda inn
til birtingar eigin umsagnir um bæk-
ur. Jafnframt er vísað áfram á
áhugaverða vefí um bókmenntir,
jafnt innlenda sem erlenda.
I næstu viku verður síðan opnað-
ur vefur á Strikinu um fjölmiðla. Þar
verða birtar fréttir af hræringum í
fjölmiðlaheiminum og tíðindi sögð af
fjölmiðlafólki. Meðal nýmæla á þess-
um vef verður dálkurinn Hulduher-
inn, sem skipaður er fólki sem mun
skrifa undir dulnefni um helstu
fréttir og tíðindi líðandi stundar.
Liðsmenn Hulduhersins koma úr
ólíkum áttum, en eiga sameiginlegt
að hafa sjálfstæðar skoðanir og
kunna að orða þær tæpitungulaust.
Þá verður opnaður 12. september
leikhúsvefur á Strikinu. Auk þess
sem gestum verður vísað inn á vefi
leikhúsa og vefí um leiklist verður
fjallað um starfsemi íslenskra leik-
flokka, sagðar fréttir af nýjum sýn-
ingum, birt viðtöl við leikara og fólk
úr leikhúsheiminum. Strikið mun
fara nýjar leiðir við að fjalla um ein-
stakar sýningar. I stað hefðbundinn-
ar gagnrýni verður leitað til venju-
legra leikhúsgesta og þeir spurðir
álits. Þá mun leikhúsvefurinn hvetja
fólk tii að láta álit sitt í ljósi.
Hrafn Jökulsson er jafnframt rit-
stjóri fjölmiðla- og leikhúsvefjanna á
Strikinu.
Slóðin er www.strik.is/menning/
bokmenntir.
Kór Langholtskirkju í frum-
flutningi verks í Færeyjum
KÓR Langholtskirkju tekur þátt
að frumflytja nýtt verk í Færeyjum
24. og 25. mars ásamt Havnakórn-
um og Sinfóníuhljómsveit Færeyja.
Verkið heitir „Nyggjárovertura"
og er eftir Sunnleif Rasmussen við
texta Jörgen-Frantz Jacobsen, en
hann hefði orðið 100 ára í október
n.k. Með ferðinni til Færeyja hefur
kórinn náð því að heimsækja öll
Norðurlöndin á einu ári, en kórinn
fór í tónleikaferð til Danmerkur og
Noregs í júní s.l. og hefur þegið
boð um að koma fram á árlegri
kórahátíð í Esbo í Finnlandi 5.-10.
desember. í þeirri ferð mun kórinn
einnig halda tónleika í Stokkhólmi.
I dymbilviku,á föstudaginn
langa, verður Jóhannesarpassían
eftir Bach flutt, en hana flutti kór-
inn síðast 1995.
Graduale Nobili er nýstofnuð
eldri deild úr Gradualekórnum og
eru félagar þeir sem eru 17 ára og
eldri í Gradualekórum og þeir sem
vaxnir eru upp úr kórnum, allt að
25 ára. Kórinn hefur þegið boð um
að taka þátt í keppni evrópskra
æskukóra í Kalundborg í Dan-
mörku í apríl n.k., en aðeins 20
evrópskum kórum er boðin þátt-
taka.
Gradualekór Langholtskirkju
fer í tónleikaferð til Finnlands í
júní og verður hápunktur þeirrar
ferðar kóramót sem haldið er í
Tampere Talo, tónlistarhöllinni í
Tampere.
Fyrsta verkefni Kórs Langholts-
kirkju verður að æfa fyrir tónleika
28. október þar sem flutt verða
verk eftir kanadíska tónskáldið
Ruth Watson Henderson. Hún hef-
ur þegið boð kórsins um að koma
til Islands og mun leika sjálf undir.
Stærsta verk þeirra tónleika er
„Voices of Earth“, en það er tæp-
lega hálftíma verk byggt á „Sólar-
ljóðum" eftir heilagan Frans frá
Assisi. Verkið er samið fyrir þrjá
kóra, stóran blandaðan kór, kamm-
erkór og barnakór við undirleik
tveggja píanóa. Kammerkór og
Gradualekór Langholtskirkju taka
þátt í flutningi þess verks og flytja
einnig nokkur verk eftir tónskáld-
ið.
Föstudaginn 15. desember verða
árlegir „Jólasöngvar Kórs Lang-
holtskirkju", og verða þeir endur-
teknir laugardag og sunnudag.
Seinustu jól flutti Kór Lang-
holtskirkju alla Jólaóratoríuna eft-
ir Bach í sex messum frá jóladegi
til þrettánda. Þetta tókst afar vel
og ætlunin er að reyna að flytja
a.m.k. tvo hluta verksins á kom-
Kór og Kammersveit Langholtskirkju.
andi jólum ef tekst að fínna ijár-
magn.
Gradualekór Langholtskirkju
starfar í tengslum við Kórskólann
en er rekinn af foreldrafélagi.
Kórskóli Langholtskirkju verður
settur 12. september og er þetta
tíunda starfsár skólanns. Yngri
deildin, „Krúttakór“ var stofnuð
fyrir Ijórum árum fyrir fjögurra til
sjö ára börn. Krúttakórinn kemur
fram í messum í Langholtskirkju.
Kennarar eru Laufey Ólafsdóttir
og Bryndís Baldvinsdóttir tón-
menntakennarar.
Við kennslu eldri deilda, 8 ára og
eldri, er nemendum skipt í tvo til
þijá hópa eftir tónlistarþekkingu.
Kennarar við skólann eru Laufey
Ólafsdóttir og Bryndís Baldvins-
dóttir tónmenntakennarar og Ólöf
Kolbrún Harðardóttir mun sjá um
raddþjálfun og söngkennslu. Jón
Stefánsson, kantor við Langholts-
kirkju, kennir samsöng.
Kórskólakórinn starfar einnig í
tengslum við helgihald og kemur
fram í fjölskyldumessum og mun
sýna Lúsíuleik á aðventukvöldi og
helgileik á jólum.
Rýmum fyrir nýjum vörum
Ekta síðir pelsar aðeins 99 þús.|
Handunnin húsgögn 20% afsl.
Opið virka daga kl. 11—18 og lau. kl. 11—15 Fákafeni (Bláu húsin), s. 588 4545
Sigurstjama
Ullarjakkar, kdpur ofl. ofl. Komdu ogfáðu skólafötin d frdbæru verði
a útsölumarkaðinum okkar að Skúlagötu 63.