Morgunblaðið - 01.09.2000, Qupperneq 34
34 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Karin Kneffel
Morgunblaðið/Ásdís
Ávextir, dýr
og kótilettur
KARIN Kneffel er einn þeirra mynd-
listarmanna sem eiga verk á sýning-
unni Gangurinn 20 ára. Hún er þekkt
myndlistakona í Evrópu og á sex
verk á sýningunni. Karin er stödd hér
á landi og náði Morgunblaðið tali af
henni þar sem hún var að hengja upp
myndir sínar í Hafnarhúsinu.
„Ég kynntist Helga Þorgils þegar
við sýndum saman fyrir nokkrum ár-
um í Þýskalandi," segir Karin. „Ég
var beðin um að vera gestakennari
við Listaháskóla íslands í vor og þá
hitti ég hann aftur. Þá dvaldi ég
héma í sex vikur og tók svo þátt í sýn-
ingunni í Ganginum sem hófst í maí.“
Að sögn Karinar þykir henni ísland
spennandi land og hafði langað að
koma hingað um nokkurt skeið. „Það
er ekkert mál íyrir mig að sýna í litl-
um galleríum. Gangurinn er áhuga-
verður staður og gaman að sýna þar.“
Karin málar yfírleitt olíumálverk
en vinnur stundum með vatnsliti.
„Myndir mínar eru oftast mjög raun-
sæislegar eins og sést,“ segir Karin
og brosir en málverk hennar á
sýningunni gætu virst vera ljósmynd-
ir. „Ég mála mikið ávexti, grænmeti
og alls konar mat. Fyrir nokkrum ár-
um málaði ég talsvert af stórum eld-
um. Svo færði ég mig yfír í að mála
litlar myndir af dýrum. Ég er úr stór-
borgen ekki úr sveitinni eins og kann
að virðast. Það er ef til vill þess vegna
sem ég sæki í að mála þessa hluti, til
þess að kynnast þeim betur. Með því
að mála kemst ég nærri viðfangsefn-
inu og kynnist því vel.“
í upphafi ferils síns málaði Karin á
nokkuð annan hátt en hún gerir nú.
Myndirnar voru ekki eins nákvæmar
og þær eru nú. „Ég byrjaði að mála í
byrjun níunda áratugarins. A þeim
tíma var svokölluð villt málun, wild-
enmalerie, algeng í Þýskalandi. Með
tímanum fór ég að þróa nákvæmari
list sem að sama skapi tekur lengri
tíma. Það er ferlegt að hvert málverk
tekur mig lengri tíma frá ári til árs,“
segir Karin og hlær. „Yfirleitt er þró-
unin hjá listmálurum öfug, að þeir
verða meira og meira abstrakt í list-
sköpun sinni. Ætli þetta endi ekki
með ósköpum og það taki mig heilt ár
að mála eitt málverk. En ég sé þessa
þróun vera að gerast í kringum mig
og nemendur mínir hafa haft þessa
sömu áráttu og vilja til að mála mjög
nákvæmt."
Leitað í grasrótinni
Gangurinn hefur fyrir
löngu skipað sér sess
sem eitt af helstu galler-
íum Reykjavíkur.
----7------------------
I ár fagnar hann
20 ára afmæli og af
því tilefni var haldin
sýning, sem opnuð
var í maí. Hún verður
nú flutt um set, niður
í Listasafn Reykjavíkur,
Hafnarhúsi, og verður
opnuð þar í dag, stærri
í sniðum.
Morgunblaðið/Ásdís
Helgi Þorgils Friðjónsson, forstöðumaður Gangsins, á sýningunni
í Hafnarhúsinu.
GANGURINN varð tvítugur í maí
síðastliðnum og var af því tilefni
rætt við Helga Þorgils Friðjónsson
myndlistarmann um starfsemi og
sögu gallerísins í Morgunblaðinu
hinn 14. maí. Afmælissýningin var
opnuð þá, en hefur nú verið flutt í
Listasafn Reykjavíkur.
„Margir af myndlistarmönnun-
um sem eiga verk á sýningunni
eru vel þekktir í Evrópu," segir
Helgi Þorgils, en á sýningunni á
Ganginum voru verk eftir 42 er-
lenda listamenn. „Þetta er fólk
sem ég hef kynnst í útlöndum, en
ég ferðast mikið í tengslum við
sýningarhald mitt. Mörgum hef ég
sýnt með á samsýningum eða
kynnst á annan hátt. Ég hef svo
leitað til þeirra og beðið þau að
sýna í Ganginum. Flestir hafa ver-
ið mög opnir fyrir því að sýna þar,
jafnvel þó að um sé að ræða mjög
þekkta listamenn."
Afmælissýningin er að hluta
sýning úr safni Helga Þorgils, sem
er orðið nokkuð stórt, og að hluta
verk sem hafa verið send inn eða
gerð sérstaklega í tilefni sýningar-
Morgunblaðið/Einar Falur
Ein af myndum Karinar Kneffel
á sýningunni.
innar. „Rýmið í Ganginum er ekki
svo stórt. Sjálfur er hann tveir
veggir, en þegar um svona viða-
miklar sýningar er að ræða, leggj-
um við stofuna og stundum alla
íbúðina undir. Núna varð ég samt
að velja úr verkunum, þar sem að-
eins rúmuðust um fjörutíu verk á
veggjum íbúðarinnar. Niðri í
Hafnarhúsi eru hinsvegar tveir
stórir salir, þar sem ég kem öllu
fyrir. Verkin sem eru til sýnis þar
eru yfir hundrað."
Myndlistin sem sýnd er, er af
ýmsum toga. Um er að ræða allt
frá vídeóverkum upp í olíumál-
verk. „I starfsemi Gangsins hef ég
yfirleitt leitast við að sýna eitthvað
sem er þvert á það sem er verið að
sýna almennt eða þar í jaðrinum.
Nú er þetta einskonar yfirlitssýn-
ing á ferli Gangsins, og þá koma
myndlistarmenn úr öllum áttum að
sýningunni og hún gæti virst
glundroðakennd. Samt finnst mér
hún mjög samstæð.“
Einn af listamönnunum sem
kom til landsins í tilefni sýningar-
innar er Karin Kneffel, sem er
þekkt fyrir olíumálverk sín. Marg-
ir þeirra listamanna sem Helgi
Þorgils hefur fengið til að sýna í
Ganginum, hafa ekki verið þekktir
á þeim tíma, en orðið það með tím-
anum. „Ég vil yfirleitt frekar sýna
yngri og óþekktari listamenn.
Gangurinn er ekki vettvangur fyr-
ir þekkta listamenn sem hafa þeg-
ar skapað sér sess. Frekar hef ég
viljað leita í grasrótinni, bæði hjá
íslenskum og erlendum listamönn-
um. Oft hefur tekist mjög vel upp
og þeir listamenn orðið nokkuð
þekkt nöfn í listheiminum."
Fréttir af samræð-
um almennings
Morgunblaðið/Amaldur
Þóroddur Bjarnason myndlistarmaður á heiðurinn af netsíðunni
dicussion.is.
Samstarfsverkefnið
eafé9.net verður formlega
opnað í dag í Listasafni
Reykjavíkur og hefst þar
með átta vjkna dagskrá
sem ýmsir listamenn
menningarborga Evrópu
koma á einn eða annan
hátt að. Þóroddur Bjarna-
son myndlistarmaður
sagði Ingu Maríu Leifs-
dóttur frá sínum þætti í
verkefninu.
CAFE9.NET er netkaffihús átta
menningarborga Evrópu árið 2000 og
mun starfa sameiginlega gegnum
Netið. Borginar sem taka þátt i verk-
efninu eru Reykjavík, Bergen, Hels-
inki, Avignon, Boiogna, Prag, Kraká
og Brussel. Staðsetning kaffihússins í
Reykjavík er í Listasafni Reykjavík-
ur við Tryggvagötu og er hægt að
taka þátt í ýmsum uppákomum þar
en einnig er hægt að fylgjast með því
sem er að gerast hverju sinni á Net-
inu. Slóðin er að sjálfsögðu café9.net.
Kaffihúsið virkar þannig, að komið
er upp kaffihúsi í hverri borg sem
búið er tækni til samskipta gegnum
Netið við hina staðina. A staðnum eru
einnig tölvur til nota fyrir hinn al-
menna vegafaranda sem getur tekið
þátt í verkefninu á staðnum. Auk
þess er skipulögð dagskrá með ýms-
um uppákomum myndlistarmanna,
tónlistarmanna, skálda og leikara.
Verður slík dagskrá send út á stóru
breiðtjaldi á hverju kaffihúsi fyrir sig.
discussion.is
Þóroddur Bjarnason myndlistar-
maður er einn þeirra íslensku lista-
manna sem koma að café9.net. „Upp-
haflega vann ég verkefnið fyrir
norrænu menningametin en þau
auglýstu eftir hugmyndum frá mynd-
listarmönnum að netverkefnum síð-
asta vetur,“ segir Þóroddur. „Stjóm-
endur cafe9.net fengu áhuga á
verkefninu í kjölfarið og sáu að það
hentaði vel inn í hugmyndafræði
þess. Við sáum strax að það yrði
beggja hagur ef verkefnið yrði með.“
Verkefni Þórodds er vefsíða sem
nefnist discussion.is. Henni er ætlað
að vera eins konar fréttablað almenn-
ings þar sem fólk getur sagt frá um-
ræðum sínum við annað fólk og lesið
frásagnir annarra. Þóroddur lýsir
hugmyndinni nánar. „Þetta snýst um
það að fá innsýn í hvað fólk er að ræða
um, hugsa og fást við út um allan
heim. Þú ferð inn á síðuna, gefur
nokkrar grunnupplýsingar, til dæmis
um staðsetingu umræðunnar og
hverjir taka þátt í henni og hefst svo
handa við skýrsluskrif. Ég ætla ekki
að stýra því hvemig fólk skrifar
skýrslur sínar en kýs að fólk skrifi á
hlutlægum nóum í nokkurs konar
frétta-frásagnarstíl. Svo er hægt að
lesa allar skýrslur sem sendar em inn
í gagnagrunninn, bæði með því að
leita eftir efnisatriðum eða velja ein-
stök svæði í heiminum. Þá má fá allar
umræður frá þeim svæðum og lesa
þær.“
Á netsíðunni em örvandi efni,
svokallaðir vakar, sem ætlaðir em til
þess að kveikja umræður. „Fólk get-
ur fengið hugmynd að samræðum
með þessum vökum. Þeir koma úr öll-
um áttum og það er bara eitthvað
sem mér eða aðstoðarmanni mínum
dettur í hug. Kannski nokkur orð um
trúmál, fagurfræði, lífið almennt,
íþróttir eða þá að ég birti fallegar og
ljótar myndir og svo framvegis.“
Fréttasíða almennings
Hugmyndin að vefsíðunni á rætur í
myndlistarsýningu sem Þóroddur
hélt í Nýlistasafninu fyrir tveimur ár-
um, Þing fljótandi umræðu. „Þar
fjallaði ég um það hvemig umræðan
flýtur um þjóðfélagið frá einum hópi
manna til annars. Sú sýning hafði
ekkert með Netið að gera en hug-
myndin hentar því fullkomlega."
Netsíðan er ekki gagnvirk heldur
er henni meira ætlað að vera eins
konar fréttavefur. „Margir halda ef-
laust að um sé að ræða spjallsíðu en
svo er alls ekki. í raun er þetta það
sem kemur á eftir því. Fólk getur
skrifað frásagnir af því sem það hefur
rætt á spjallsíðum." Þóroddur telur
að netsíður sem þessar eigi miklum
vinsældum að fagna hjá almenningi.
„Síður fréttablaðanna, mbl.is og
visir.is, eru mjög vinsælar og nokkuð
sem maður er alltaf að skoða. Ég h't á
þessa síðu sem slíka, fólk fer inn á
hana og athugar hvað er nýtt að
frétta frá almenningi.“
í tengslum við cafe9.net verður
Þóroddur með gjöming nokkrum
sinnum á tímabilinu sem kaffihúsið er
opið. í honum felst að fólk komi á
kaffihúsið, sé merkt eftir áhugasviði
eða sérgrein og að það ræði svo sam-
an. Svo er hægt að segja frá samræð-
unum á discussion.is. „Þar sem fólk
er merkt á þennan hátt er auðveldara
að sjá hver sérþekking fólks er. Allir
hafa sérþekldngu á einhverjum svið-
um og öll sérþekking er áhugaverð.
Bílar, barnauppeldi, sýklavamir,
knattspyma eða líf í alheimi gætu
verið dæmi um málefni sem verða
rædd. Þessi gjörningur verður í
gangi nokkrum sinnum á tímabilinu
en verður fyrst á sunnudaginn kl. 16,
samtímis í Reykjavík og í öðrum
menningarborgum. Ég hvet sem
flesta til að koma enda byggir þetta
algjörlega á að fólk mæti á staðinn.
Þetta verður svona eins og skemmti-
legt ættarmót eða fermingarveisla."
Fyrst um sinn verðm’ netsíðan ein-
ungis bundin við menningarborgim-
ar en síðar mun hún ná til alls heims-
ins. „Svo lengi sem fólk tekur þátt í
þessu verður þetta að mínum dómi
mjög spennandi síða. En það byggir
að sjálfsögðu allt á þátttöku almenn-
ings.“