Morgunblaðið - 01.09.2000, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
FOSTUÐAGUR 1. SEPTEMBER 2000
FRETTIR
Utanríkisráðherrar Norðurlanda
funda í Danmörku
Halldór Asgrímsson
ræddi stækkun NATO
FUNDUR utanríkisráðherra Norð-
urlanda var haldinn 29. ágúst í Midd-
elfart í Danmörku. Halldór Ásgríms-
son utanríkisráðherra sat fundinn
fyrir hönd íslands. Daginn eftir sat
hann fund með utanríkisráðherrum
Eystrasaltsríkjanna þriggja, Eist-
lands, Lettlands og Litháens. Sér-
Dagskrá í
Hólagarði um
bætta umferð
NÝ DÖGUN, samtök um sorg og
sorgarviðbrögð, vill vekja athygli á
verkefninu Bætt umferð - Betra
líf, sem Junior Chamber á Islandi
stendur fyrir á þessu ári. Meðal
þess sem félagið stendur fyrir; í
samráði við Umferðarráð, VIS,
Ingvar Helgason og fleiri styrk-
taraðila, er dagskrá laugardaginn
2. september í Hólagarði, Breið-
holti, sem helguð er umferðinni á
íslandi og hvernig draga megi lær-
dóm af þeim hættum sem henni
fyigja.
Helgistund og
kertafleyting
Um kvöldið er helgistund í Selja-
kirkju undir stjórn sr. Valgeirs
Ástráðssonar og að henni lokinni
verður kertum fleytt á tjörninni við
kirkjuna. Athöfnin hefst kl. 21. Ný
dögun hvetur alla þá, sem láta sig
bætta umferðarmenningu varða, að
leggja leið sína í Seljakirkju og
taka þátt í bænastund og kerta-
fleytingu, í minningu þeirra sem
hafa látist eða slasast í umferðinni,
segir í fréttatilkynningu.
Hlaupahjól með
hjálparmótor
þarf að skrá
DÓMS- og kirkjumálaráðuneytið
hefur sent frá sér eftirfarandi frétta-
tOkynningu:
„Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
vill að gefnu tilefni taka fram að
hlaupahjól með hjálparmótor falla
undir skilgreiningu umferðarlaga á
„léttu bifhjóli".
Slík hjól þarf þ.a.l. að skrá og um
ökumann gilda sömu reglur og um
ökumenn léttra bifhjóla."
Hlaða vörður
á Sildarmanna-
götum
SJÁLFBOÐALIÐASAMTÖK um
náttúruvernd ætla að hlaða vörður á
Síldarmannagötum dagana 2.-3.
september.
Sfldarmannagötur eru gömul
þjóðleið milli Hvalfjarðar og Skorra-
dals um Botnsheiði. Unnið verður
með heimamönnum og gist á Fitjum
í Skorradal. Sjá nánar í sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins C bls. 2
og 3 27. ágúst sl.
Nýir sendar
settir upp
UNDANFARIN ár hafa móttöku-
skilyrði hjá íbúum Borgarhverfis,
Víkurhverfis og Staðarhverfis fyrir
sjónvarpsstöðvarnar Stöð 2, Sýn og
Bíórásina verið slæm. Nú hefur verið
ráðin bót á því og hefur íslenska út-
varpsfélagið sett upp nýja senda í
Víðinesi sem gera það að verkum að
móttökuskilyrðin verða eins og þau
gerast best, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Utsendingarásir frá Víðinesi eru:
Stöð 2:UHF 41, 631 MHz Sýn:UHF
59, 775 MHz Bíórás:UHF 64, 815
MHz
stakur fundur var síðan haldinn með
Javier Solana, háttsettum fulltrúa
Evrópusambandsins í öryggismál-
um.
Á fundinum voru Evrópumálefni
einkum rædd, stækkun ESB, vænt-
anleg formennska Svía í ESB, skip-
an öryggismála, svæðasamstarf,
samstarf við Rússland, norðlæga
víddin o.fl. Halldór Ásgrímsson flutti
framsögu um stækkun NATO á nor-
ræna ráðherrafundinum og einnig á
fundinum með ráðherrum Eystra-
saltslandanna. Þar kom fram að
Eystrasaltslöndin hafa náð miklum
árangri við að uppfýlla þær kröfur
sem gerðar eru til þeirra sem
hugsanlegra aðila að NÁTO í fram-
tíðinni., segir í fréttatilkynningu frá
utanríkisráðuneytinu.
Solana sagði um skipan öryggis-
mála í Evi’ópu að niðurstöður leið-
togafundar ESB í Feira hefðu leyst
ýmis vandamál varðandi m.a. ferli
ákvarðanatöku og samstarf við aðrar
alþjóðastofnanir, einnig gagnvart
þeim NATO löndum sem ekki eru
aðilar að ESB, segir í tilkynning-
unni. Starfið varðandi nýja skipan
öryggismála álfunnar væri að hefj-
ast.
Akveðið var að í framtíðinni
myndu fundir ráðherra Norðurlanda
og Eystrasaltslandanna þriggja
verða kallaðir fundir hinna „átta“ í
stað „fimm plús þrír“ eins og hingað
til hefur verið talað um.
Norrænu utanríkisráðherrarnir
gáfu út yfirlýsingu þar sem þeir for-
dæma mannréttindabrot herfor-
ingjastjórnar Burma gegn Aung San
Suu Kyi og lýsa yfir áhyggjum af ör-
yggi hennar og heilsufari.
DANS- HGLL ANDLEG IÞROTT FYRIR AIIA
flV
Þó verður fær um að dansa við 90% af öllum lögum sem
venjulegum dansleik eftir 6 tíma
leikin
Línudans____________________
Auðveldir og skemmtilegir. Bók fylgir
með lýsingu ó dönsunum
10 tíma nómskeið
Ásgeir, margfaldur
Gummi kerma.
Islandsmeistari, og
Samkvæmisdansar
aan
tunstui
Áratuga reynsla okkar og þekking tryggir þér bestu fóanlegu kennslu.
14 vikna námskeið fyrir fullorðna
14 vikna námskeið fyrir börn.
Dansleikur í lokin.
FreestvI
Gömlu dansarnir
10 tíma námskeið
og þó lærir ótrúlega mikið.
Keaanisdansar
Erla Haraldsdóttir kennir.
Salsa
Svanhildur Sigurðardóttir og Ingibjörg Róbertsdóttir
frábærir þjálfarar í keppnisdönsum.
14 vikna námskeið - Mæting lx, 2x eða 3x í viku
Dansinn sem fer sigurför
um heiminn.___________
10 tíma námskeið
Upprífjunartímar
Einn tími á sunnudögum
Einn dans tekinn fyrir í hvert skipti
Dans ársins
Brúðarvals
Kenndur í einkatíma.
La Luna
Innritun fer fram í síma 552 0345
kl. 15 og 22 daglega til 12. sept.
miin
I 1
Taktu sporið—Frír danstími
Hjón og einstaklingar ókeypis
1 kynningardanstími = ÓO mín.
Kennt verður: 1 spor í s-amerískum dansi.
1 spor í standard dansi.
Músík: Að kunna að dansa í takt við tónlist
Börn - Ókeypis kynninpartími
Panta þarf tíma í síma 552 0345.
Geymið auglýsinguna
Í
■I