Morgunblaðið - 05.10.2000, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Landlæknir óánægður með að MS-sjúklingar hafi ekki fengið aukinn
skammt af lyfí sem tefur framgang sjúkdðmsins
Selur sleikir
sólina
Ötækt að veita ekki
bestu lyfjameðferðina
ÁKVEÐINN hópur MS-sjúklinga,
sem þjást af heila- og mænusiggi,
hátt í 100 manns, hefur ásamt lækn-
um sínum barist fyrir því um nokk-
urt skeið að fá heilbrigðisyfirvöld til
að auka skammt af lyfinu interferon
beta-la. Að mati Sigurðar Guð-
mundssonar landlæknis hefur málið
tafist um of en vonandi sé lausn í
sjónmáli þannig að hægt sé að fara
að gefa aukinn lyfjaskammt. Einn
MS-sjúklingur hefur sent kvörtun
til umboðsmanns Alþingis vegna
málsins.
Rannsóknir hafa sýnt að lyfið
virki ekki rétt í flestum tilvikum,
nema með auknum skammti frá því
þegar það var fyrst gefið. Frá því að
takmai-kanir voru fyrst settar hér á
landi fyrir fjórum árum hefur
skammturinn verið ákveðinn 22
millígrömm einu sinni í viku, en
samkvæmt rannsóknum sem komu
fyrst fram 1998 ætti hann að vera
þrisvar og upp í sex sinnum í viku til
að ná fullum árangri. Lyfið er talið
hægja á einkennum MS-sjúkdóms-
ins, en ekki lækna hann frekar en
önnur MS-lyf. Skammturinn, sem
hefur verið gefinn, seinkar einkenn-
um um 25-30%, þ.e. um þrjú ár á 10
ára tímabili, en þrefaldur skammtur
er sagður gefa 65-70% árangur.
Þess má geta að tvö fyrirtæki fram-
leiða interferon beta-la lyf. Til
þessa hefur hérlendis verið notað
íyfið rebif frá fyrirtækinu Scrono,
en einnig er til lyfið avonex frá
Biogen. Þá er eitt lyf framleitt af
gerðinni interferon beta-lb og nefn-
ist betaserone, sem fyrirtækið
Schering framleiðir.
Nýtt útboð á Iyfinu
Sigurður Guðmundsson land-
læknir sagði í samtali við Morgun-
blaðið að það væri miður hvernig
málið hefði dregist á langinn. Þetta
væri búið að taka allt of langan tíma.
„Það er ótækt að við sem samfé-
lag séum að veita lyfjameðferð gegn
jafnalvarlegum sjúkdómi og MS
sem ekki er sú besta sem hægt er að
bjóða þessum sjúklingum, sér í lagi
lyfjameðferð sem ljóslega hefur
Á slysadeild
eftir árekstur
HARÐUR árekstur varð á
mótum Miklubrautar og Háa-
leitisbrautar í Reykjavík um kl.
hálfníu í gærkvöldi. Ökumenn
beggja bifreiða voni fluttir á
slysadeild eftir áreksturinn.
Meiddist annar þeirra á hendi
og fæti en hinn á bijóstkassa.
Báðir bílarnir voru dregnir af
vettvangi með kranabíl.
minni áhrif og verri en sú sem hægt
er að bjóða upp á,“ sagði Sigurður.
Hann sagði að starfshópur hefði
verið skipaður til að útbúa læknis-
fræðilegar leiðbeiningar, sem
byggjast á þeim upplýsingum sem
vitað er um varðandi áhrif lyfsins á
sjúkdóminn. Einnig hefði MS-félag-
ið fylgst með þessari vinnu.
Gert er ráð fyrir að Landspítalinn
- háskólasjúkrahús sjái um þessa
lyfjagjöf úr sínu apóteki. Að sögn
landlæknis er verið að ganga frá
nýju útboði á lyfinu af hálfu Land-
spítalans, en fyri-a tilboð þótti of
hátt og var því hafnað.
„Þessi aukna lyfjameðferð gerir
gagn í völdum tilvikum sjúkdóms-
ins. Hún læknar ekki sjúkdóminn,
því miður, en hún dregur úr tíðni á
köstum hjá sjúklingum. Meðferðin
gagnast síður því fólki þar sem sjúk-
dómsgangur er hægversnandi,"
sagði Sigurður.
Nýjar rannsóknir
í læknatímaritinu New England
Journal of Medicine er nýlega
greint frá niðurstöðum rannsóknar
á virkni lyfsins avonex, sem Biogen
framleiðir eins og kom fram hér á
undan. Rannsóknirnar sýndu að lyf-
ið tefur framrás sjúkdómsins, sé
það gefið eftir fyrsta kast eða
snemma í sjúkdómsferlinu, og geti
jafnvel komið í veg fyrir sjúkdóm-
inn.
Kvartað til umboðsmanns
MS-sjúklingar hafa beðið eftir því
að lyfjaskammtur þessa lyfs verði
aukinn. Vitað er um óánægju með
leiðbeiningar starfshópsins og
þannig hefur einn MS-sjúklingur,
Sigurlaugur Elíasson á Sauðár-
króki, sent kvörtun til umboðs-
manns Alþingis vegna „meintrar
óeðlilegrar takmörkunar" í reglum
eða reglugerðum er varða notkun á
lyfinu hjá tilteknum hópi MS-
sjúklinga. Vitnar Sigurlaugur ann-
ars vegar til takmarkana, sem komu
til 1998, og hins vegar til þeirra tak-
markana sem hafa komið fram í
reglum núverandi starfshóps.
Hann vill að umboðsmaður kanni
umræddar takmarkanir og hvort
þær standist lög. Komi í ljós að þær
stangist á við lög eða aðrar reglur
þá hlutist umboðsmaður Alþingis til
um að réttur og hagur sjúklinga sé
virtur í þessu máli, svo vitnað sé til
kvörtunarinnar til embættisins. í
bréfi Sigurlaugs til umboðsmanns
segir meðal annars:
„Það er því miður bitur staðreynd
fyrir þessar 70 til 100 hræður í hópi
MS-sjúklinga, og aðstandendur
þeirra, að umræddar takmarkanir
hafa verið settar á einungis vegna
sparnaðar en ekki með hag sjúk-
linganna í huga.“
á árbakka
UNGUR kampselur sást á bökkum
Elliðaáa í Reykjavík í gær, þar sem
hann lá makindalega og sleikti sól-
ina. Kampselir eru ekki algeng sjón
hér við land, en þeir halda sig
venjulega mun norðar. Þessi ferða-
langur er því líklega kominn nokk-
uð langt að og er hvíldinni áreiðan-
lega feginn.
iviorgunDiaoio/Arni öæoei g
Samkeppnisstofn-
un um olíufélögin
Engin inn-
grip í fyrri
athugunum
SAMKEPPNISSTOFNUN mun á
næstu dögum afla gagna hjá olíu-
félögunum vegna síðustu verð-
hækkana þeirra á olíu og bensíni.
Eins og kom fram í Morgunblað-
inu í gær hefur viðskiptaráðherra
farið þess á leit við Samkeppnis-
stofnun að hún skoði verðmyndun
hjá olíufélögunum og forsendur
þessara hækkana.
Guðmundur Sigurðsson, for-
stöðumaður samkeppnissviðs hjá
Samkeppnisstofnun, sagði við
Morgunblaðið að stofnunin hefði
áður framkvæmt svipaða athugun.
í þeim tilvikum hefði ekki þótt
ástæða til inngripa af hálfu sam-
keppnisyfirvalda. Sjálfsagt væri að
skoða þetta að nýju, líkt og við-
skiptaráðherra hefði óskað eftir,
og athuga hvort forsendur hefðu
breyst.
Andlát
SIGURÐUR
EINARSSON
SIGURÐUR Einars-
son, forstjóri Isfélags
Vestmannaeyja, lést á
heimili sínu í Vest-
mannaeyjum í gær, 49
ára að aldri. Banamein
hans var krabbamein.
Sigurður fæddist í
Reykjavik 1. nóvem-
ber 1950, sonur hjón-
anna Einars Sigurðs-
sonar, útgerðarmanns
í Vestmannaeyjum, og
Svövu Ágústsdóttur.
Hann lauk stúdents-
prófi frá MR 1970 og
embættisprófi í lög-
fræði frá Háskóla Islands 1974.
Hann aflaði sér réttinda til að
flytja mál fyrir héraðsdómi en hóf
strax að námi loknu störf sem
framkvæmdastjóri Hraðfrysti-
stöðvar Vestmannaeyja og veitti
henni forstöðu til loka árs 1991.
Frá áramótum 1992 til dauða-
dags var Sigurður forstjóri ísfé-
lags Vestmannaeyja, eins stærsta
sjávarútvegsfyrirtæk-
is landsins.
Sigurður var stjóm-
arformaður Trygg-
ingamiðstöðvarinnar
til dauðadags og sat
lengi í stjóm Sölu-
sambands íslenskra
fiskframleiðenda og
Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna og í
stjórn Skeljungs og
fleiri hlutafélaga.
Hann var bæjar-
fulltrúi í Vestmanna-
eyjum til dauðadags
og oddviti lista Sjálf-
stæðisflokksins í Vestmannaeyj-
um.
Sigurður var í forsvari fyrir sjáv-
arútvegsnefnd Sj álfstæðisflokksins
og starfaði mikið innan samtaka
sjávarútvegsins.
Eftirlifandi eiginkona Sigurðar
Einarssonar er Guðbjörg Matt-
híasdóttir. Þau eignuðust fjóra syni
sem era 11-23 ára.
öð í dag
J23ÍMIk
■■■11114 Sk>.ij
mmm
íslenska karlalandsliðið í knatt-
spyrnu komið til Prag /C1
Haukar og IBV fóru með sigur af
hólmi í kvennahandboltanum /C3
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is