Morgunblaðið - 05.10.2000, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000 31
Reuters
Sýnir í
Belg-íu
GUÐNÝ Rósa Ingimarsdóttir
opnar einkasýningu laugardag-
inn 7. október í boði Fondation
de la Tapisserie, des Arts du
tissu et des Arts Muraux del la
Communauté francaise de Belg-
ique, Toumai í Belgíu. Sýningin
er haldin í tengslum við borgar-
listahátíð Art dans la velle, sem
fram fer í borginni árlega.
Fondation de la Tapisserie
starfrækir þrjár vinnustofur,
„workshop", í Toumai þar sem
valdir eru árlega níu mynd-
listarmenn.
Guðný Rósa hefur verið virk í
sýningarhaldi í Belgíu síðastlið-
in þrjú ár og hlotið viðurkenn-
ingar fyrir verk sín þar.
Sýningin er til 22. október.
Japönsk
tónlist við
egypskar
fornminjar
JAPANSKA tónskáldið Himekami
Yoshiaki Hoshi valdi árþúsunda-
skiptin til þess að halda í tón-
leikapílagrímsför. Þessir tónleikar
sem hór hafa verið festir á mynd
fóru fram á ekki ómerkari stað en
við hinn 4.500 ára gamla Sfinx í
Egyptalandi.
I kjölfar tónleikanna i Egypta-
landi sem fram fóru í lok september
mun Himekami Yoshiaki Hoshi síð-
an stjórna tónleikum í Jerúsalem
þar sem gyðingar, kristnir menn og
múslimar munu biðjast fyrir í sam-
einingu.
Nýjar bækur
• DÆGURLÖG fyrir pianó 1.
hefti heitir nýúkomin bók í
kennslubókaflokknum Píanó-leikur
eftir Björgvin Þ. Valdimarsson.
I bókinni eru
íslensk og erlend
dægurlög í ein-
földum út-
setningum sem
eru hugsaðar
fyrir byijendur í
píanóleik. Lögin
eru öll útsett
fyrir fjórar
hendur. Meðal
laga í bókinni eru: Fröken Reykja-
vík eftir Jón Múla Árnason, blítt
og létt eftir Oddgeir Kristjánsson,
Vor í Vaglaskógi eftir Jónas Jóns-
son og Kvöldsigling eftir Gísla
Helgason svo nokkur séu nefnd. I
bókinni eru alls 14 lög.
Bókaflokkurinn Píanó-leikur
inniheldur kennsluefni sem
Björgvin Þ. Valdimarsson hefur
útsett og samið fyrir píanó. Bóka-
flokkurinn er ætlaður byrjendum í
píanóleik og er eini bókaflokkur
sinnar tegundar sem gefinn hefur
verið út hér á landi, segir í frétta-
tilkynningu. Bækurnar í bóka-
flokknum sem áður eru útkomnar
eru níu talsins. Þær eru: Píanó-
leikur 1., 2. og 3. hefti (grunnbæk-
ur), Lagasafn 1. hefti (hliðarbók),
Dægurlög fyrir píanó 1. hefti
(hliðarbók) og Jólalög 1., 2. og 3.
hefti. Tíunda bókin í bókaflokkn-
um er væntanleg síðar í haust en
það er bókin Dægurlög fyrir píanó
2. hefti en í henni verða Þitt
fyrsta bros og Bláu augun þín eft-
ir Gunnar Þórðarson, 0, þú og
Braggablús eftir Magnús Kjart-
ansson og Þakklæti (To Be Great-
ful) eftir Magnús Kjartansson.
Útgefandi bókanna er Nótnaút-
gáfa BÞV.
Draumahúðin þín. Sjáðu, finndu, fáðu hana.
Estée Lauder kynn
irldealist
Skin Refinisher
Nú færir nýjasta tækni þér húðina sem þig langar í.
Finndu hana. Ótrúlega mjúk og slétt. Sjáðu hana.
Ótrúlega björt og jafnlit. Og þá eru líka öll smávandamál
húðarinnar - svitaholur, fínar línur, flögnun og roðablettir
- úr sögunni með þessari nýju náttúrulegu aðferð. Skin-
Refinishing Complex. ldealist. Húðumhirða í æðra veldi.
Btée Lauder útsölustaðir: Clara, Kringlunni, Sara, Bankastræti,
Lyfja, Lágmúla, Lyfja, Laugavegi, Lyfja, Hamraborg, Lyfja, Setbergi,
Hagkaup, Kringlunni, Hagkaup, Smáranum, Apótek Keflavíkur,
Hjá Maríu, Akureyri.
ÞEKKING SKILAR ÁRANGRI
Ert þú í sókn?
Símennt HR býður nú í fyrsta sinn stutt hnitmiðuð
námskeið fyrir stjórnendur og sérfræðinga í atvinnulífinu.
Nánari upplýsingar má fá á vef Símenntar HR www.ru.is/simennt.
Skráning fer fram í síma 510 6250 eða með tölvupósti: opinnamskeid@ru.is.
Haustnámskeið
Heiti námskeiðs Dagsetningar Fjöldl klst.
Að ná hámarks sveigjanleika 26.og27.okt 8 klst.
Effective Tools for Business Presentations & Marketing Research 3., 6. og 8. nóv 9 klst.
Að byggja upp keppnisanda í fyrirtækjum 7. og 9. nóv. 8 klst.
Afleiður og áhættustýring 13. og 15. nóv. 8 klst.
Markaðsstarf til árangurs 21. og 23. nóv 8 klst.
Sales Force Management 24., 27. og 29. nóv 10 klst.
Vornámskeið
Heltl námskeiðs Dagsetningar Fjöldi klst.
Leiðtoginn vs. Stjórnandinn 9. og 10. jan. 8 klst.
Upplýsingaleit f upplýsingalindum og leitarvélum á Netinu 16. og17.jan. 8 klst.
Að leiða breytingar 23. og 24. jan. 8 klst.
Millennium Business Global Trends 29. og31. jan. 8 klst.
Kerfisbundin nýsköpun 7. og 8. feb. 8 klst.
Að ná framúrskarandi þjónustustigi 14. og 15. feb. 8 klst.
Menning fyrirtækja 21. og 22. feb. 8 klst.
Globalization -The Export Process & Strategy 9., 12. og 14 mars 10 klst.
Hvernig hámarka stjórnendur verðmæti fyrirtækis síns? 20. og 22. mars 8 klst.
Starfsmannastjómun og vinnusálfræði 28. og 29. mars 8 klst.
Lelðbelnandl
Árelía Eydís Guðmundsdóttir, MsC, lektorvið viðskiptadeild HR
Vivienne Heng Ker-ni, MSc., lektor við viðskiptadeild HR
Bjarni Snæbjörn Jónsson, MBA, framkvæmdastjóri Corporate Lifecydes
Agnar Hansson, cand.scient.oecon., deildarforseti viðskiptadeildar HR
Þóranna Jónsdóttir, MBA, aðjúnkt við viðskiptadeild HR
Vivienne Heng Ker-ni, MSc., lektor við viðskiptadeild HR
Lelðbeinandi
Árelia Eydís Guðmundsdóttir, MsC, lektor við viðskiptadeild HR
Sólveig Þorsteinsdóttir, AMLS, bókasafns- og upplýsingafræðingur
Halla Tómasdóttir, MIM, framkvæmdastjóri Símenntar HR
Vivienne Heng Ker-ni, MSc., lektor við viðskiptadeild HR
Árella Eydis Guðmundsdóttir, MsC, lektor við viðskiptadeild HR
Þóranna Jónsdóttir, MBA, aðjúnkt við viðskiptadeild HR
Halla Tómasdóttir, MIM, framkvæmdastjóri Símenntar HR
Vivienne Heng Ker-ni, MSc., lektor við viðskiptadeild HR
Jóhann Viðar (varsson, MBA, lektor við viðskiptadeild HR
Ásta Bjarnadóttir.PhD vinnusálfræðingur, starfsmannastjóri Islenskrar
erfðagreiningar og lektor við viðskiptadeild HR
V
HÁSKÓLINN f REYKJAVÍK
REYKJAVIK UNIVERSITY
Slmennt • Executive Education
www.ru.is