Morgunblaðið - 05.10.2000, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.10.2000, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Davíð Oddsson forsætisráðherra um ráðstafanir stjórnvalda í kjölfar Suðurlandsskjálfta tekið og keypt vegna jarðskjálft- anna, til kaups með 50% afföllum og kaupverðið verði lánað vaxta- laust til allt að tveggja ára. „Það ætti ekki að íþyngja sveitarfélög- unum fjárhagslega," sagði hann. Bætti Davíð því við að miklar skemmdir hefðu orðið á veitukerfi Sólheima í Grímsnesi í jarðskjálft- unum. Viðlagatrygging bætti ekki þær skemmdir vegna þess að Sól- heimar eru ekki sveitarfélag, en ríkisstjórnin hefði ákveðið að veita Sólheimum 6 milljóna króna styrk vegna þessa. 200 milljóna króna framlög í fjáraukalögum fyrir árið 2000 Kom ennfremur fram í máli Dav- íðs að í fjáraukalögum á þessu ári yrði gert ráð fyrir 200 milljóna króna framlögum vegna aðgerða ríkisins á jarðskjálftasvæðunum. Kostnaðurinn gæti þó orðið enn hærri. „Ég tel fyrir mitt leyti að nauðsynlegt sé í framhaldi af þess- um málum að fara vel yfir og at- huga á nýjan leik skipulag viðlaga- tryggingar. Bæði til þess að flýta viðbrögðum trygginganna og jafn- framt til að reyna að tryggja það að menn fái þær bætur sem hægt er að gera ráð fyrir að þeir hafi vænst,“ sagði Davíð. Ummæli forsætisráðherra féllu í góðan jarðveg hjá þingmönnum sem tóku til máls í gær. Var það samdóma álit manna að allir sem komið hefðu að málum í kjölfar jarðskjálftanna hefðu staðið sig frábærlega, en að í ljós hefði komið að kerfið sem við væri stuðst væri óþarflega seinvirkt og ósveigjan- legt. Upplýsti Árni Johnsen, fyrsti þingmaður Suðurlands, að fjöldi tjóna í jarðskjálftunum væri kom- inn í 1.700 og þar af væri búið að gera upp 800. Tjónamati væri þó ekki alveg lokið en reiknað er með að því ljúki í lok nóvember. Morgunblaðið/Þorkell Ráðherrar ræða og hugsa málin á Alþingi. Frá vinstri: Sólveig Pétursdóttir, Ingibjörg Pálmadóttir og Páll Pétursson. Þarf að fara rækilega ofan í bóta- og matsreglur viðlagatryggingar DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði í utandagskrárumræðu á Al- þingi í gær, að vegna óánægju við mat á eignum þeirra sem urðu fyrir tjóni í jarðskjálftanum á Suður- landi í sumar væri nauðsynlegt að fara rækilega ofan í bæði bóta- og matsreglur viðlagatryggingar. Sú vinna væri reyndar þegar hafin. Hann sagði að heildarkostnaður ríkisins vegna þeirra íbúðarhúsa sem skemmdust eða eyðilögðust í jarðskjálftanum á Suðurlandi í sumar næmi nú um 275 milljónum króna, en færi líklega upp í 300 milljónir. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, hafði varpað fram nokkrum spurningum um ráðstaf- anir stjórnvalda í kjölfar Suður- landsskjálfta í sumar. Sagði hann ljóst að mörg verkefni biðu úr- lausnar. M.a. þyrfti að ljúka nú þegar mati á öllum tjónum og bóta- greiðslum til þess fólks sem orðið hefði fyrir tjóni. „Annað verkefni er svo að læra af reynslunni og leitast við að undirbúa samfélagið betur en verið hefur undir viðbrögð við nátt- úruhamförum. Þess vegna er mik- ilvægt að átta sig á hvort jarð- skjálftamir á Suðurlandi hafi leitt í ljós að gera þurfi breytingar á öryggisþáttum eða skipulagi al- mannavarna," sagði hann. Davíð Oddsson forsætisráðherra svaraði því til að reynt yrði að koma til móts við þá sem lent hafa í mestum erfiðleikum við að koma sér upp nýju húsnæði. „Hér er um afar viðkvæmt mál að ræða og vandmeðfarið, því jafnræðis þarf að gæta,“ sagði hann. Sagði Davíð að ríkið myndi væntanlega bjóða sveitarfélögunum þær húseignir, sem það hefur yfir- Rikisstjórnin sökuð um sinnuleysi í garð aldraðra og öryrkja Valgerður Sverrisdóttir Fjölmenni á þingpöllum við utandagskrárumræðu SNARPAR umræður urðu um kjör aldraðra og öryrkja í utandagskrár- umræðu sem fór fram á Alþingi í gær. Sakaði stjómarandstaðan ríkis- stjómina um sinnuleysi í garð þess- ara þjóðfélagshópa en Davíð Odds- son forsætisráðherra sakaði máls- hefjanda, Astu R. Jóhannesdóttur, Samfylkingu, um að stunda „talna- leikfimi" og sagði staðreyndina þá að kaupmáttur lífeyiistekna hefði mjög vaxið á undanfömum árum. Þingpallar vom þéttsetnir við ut- andagskrárumræðuna og mátti sjá þar nokkra af forystumönnum sam- taka eldri borgara. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir óskaði í ræðu sinni Athuga- semd úr forsetastóli við ummæli í ræðu GUÐJÓN Guðmundsson, ann- ar varaforseti Alþingis, gerði úr forsetastóli við upphaf þing- fundar í gær athugasemd við ummæli sem féllu í ræðu Sverr- is Hermannssonar, formanns Frjálslynda flokksins, í um- ræðu um stefnuræðu forsætis- ráðherra á þriðjudag. Sagði Guðjón að í ræðunni hefðu fallið brigslyrði um Halldór Ás- grímsson utanríkisráðherra og fjölskyldu hans sem óhjá- kvæmilegt væri að gera at- hugasemdir við. MSM ipm | : l|l i 4m$m ALÞINGI eftir svömm frá forsætisráðherra um það hvort og þá hvenær ríkisstjómin hygðist afnema telqutengingu bóta og einnig hvort sérstaklega yrði tekið á kjömm þeirra lífeyrisþega sem verst væm settir. Hún sagði mis- skiptingu hafa aukist í samfélaginu, ríkisstjómin héldi úti fátæktarstefnu sem í raun væri aðskilnaðarstefna. Ásta sagði ríkisstjórnina skammta „hungurlús“ á borð lífeyrisþega og sagði aldraða og öryrkja hlunnfarna og kallaði jafnframt kjör þessara hópa „niðurlægjandi“. Hún benti á að gmnnlífeyrir væri 48 þúsund á með- an lágmarkslaun væm 72 þúsund. „Kjör þessa fólks verður að bæta. Það er þjóðarskömm að fara svona með fatlaða og gamalt fólk í dag,“ sagði hún. Davíð Oddsson forsætisráðherra sakaði Ástu Ragnheiði um að stunda „talnaleikfimi". „Staðreyndin er sú að kaupmáttur lífeyristekna hefur vaxið mjög á undanförnum ámm,“ sagði hann og nefndi töluna 20% í því sambandi, þ.e. frá því að núvarandi ríkisstjóm komst til valda. Hann sagði jafnframt launataxta segja litla sögu um kaupmáttaraukningu og benti á að kaupmáttur almennra launa og bóta muni vaxa á þessu ári. Varðandi afnám tekjutengingar tekjutryggingar við tekjur maka svaraði forsætisráðherra því til að það væri svipaðar reglur í gildi á öll- um Norðurlöndunum og þær hefðu verið teknar upp fyrir mörgum ára- tugum. „Fritekjumarkið hefur þre- faldast í tíð núverandi ríkisstjórnar og það segir sína sögu,“ sagði hann. Kominn tími til framkvæmda Fjölmargir þingmenn tóku þátt í umræðunni í gær. M.a. sagði Ingi- björg Pálmadóttir heilbrigðisráð- herra að kjör öryrkja og eldri borg- ara ættu að vera á borði allra ríkisstjóma. Hún sagði hins vegar mikilvægt að ræða ekki um þennan hóp fólks eins og þar hefðu allir sömu kjörin. Ríkisstjómin hefði lagt áherslu á að beina kröftum sínum að kjörum þeirra sem verst væru settir. Ögmundur Jónasson, þingflokks- formaður Vinstri grænna, sagði það rétt að þessi mál ættu að vera á borði allra ríkisstjóma, en ekki aðeins á borðinu. „Við emm þreytt á orða- gjálfri. Nú viljum við framkvæmdir og við krefjumst framkvæmda,“ sagði hann. Staðreyndirnar lægju fyrir, ekki væri hægt að deila um það að aldraðir og öryrkjar hefðu verið borið lakan hlut frá borði í tíð núver- andi ríkisstjómar. Ef pólitískur vilji væri fyrir hendi væri hins vegar hægt að leiðrétta kjör þeirra. Guðjón A. Kristjánsson, þingmað- ur Frjálslynda flokksins, sagði það liggja fyrir að bil milli ríkra og fá- tækra ykist stöðugt. Verst væri þó að bág kjör t.d. öryrkja bitnuðu ekki að- eins á þeim sjálfum, heldur einnig bömum þeirra. Þeim væri ekki fært að taka þátt í þeim tómstundum sem börn annarra tækju þátt í. „Það er mælikvarði á siðferði þjóðar hvort hún sýnir þeim virðingu sem minna mega sín,“ sagði hann við umræðuna. Segir hugmyndir um sérstakt auka- þing vanhugsaðar VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðnað- ar- og viðskiptaráðherra, sagðist á Alþingi í gær ekki hlynnt hugmynd- um Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs um sérstakt sumarþing ár- ið 2001 um byggðamál. Kvaðst hún telja tillögu Vinstri grænna van- hugsaða en upplýsti síðan að hún hygðist leggja fyi-ir Alþingi í haust skýrslu um framkvæmd byggða- áætlunar. Ögmundur Jónasson mælti fyrir þingsályktunartillögu Vinstri grænna, en með henni er lagt til að haldið verði aukaþing um byggðamál næsta sumar þar sem fjallað yrði um framtíðarþróun byggðar í landinu og í framhaldi af því mótuð markviss byggðastefna til næstu tveggja ára- tuga. í tengslum við þingið yrði hald- in almenn byggðaráðstefna með að- ild sveitarstjórna, helstu stofnana sveitarfélaga og hins opinbera, fé- lagasamtaka og einstaklinga. Iðnaðarráðherra sagði að mörg orð mætti vissulega hafa um byggða- mál. Tók hún undir að færa mætti byggðamálin til betri vegar. Hún kvaðst hins vegar ekki telja að lausn- in á vandanum væri sú að halda sér- stakt sumarþing um þennan mála- flokk einvörðungu. Benti Valgerður á að byggðamálin væru ekki ein- angraður málaflokkur heldur tengd- ust þau nánast öllu sem fjallað væri um á Alþingi. Byggðamálin snertu þannig á atvinnumálum, samgöngu- málum og iðnaðarmálum svo fátt eitt væri nefnt. Valgerður minnti einnig á að Al- þingi hefði á sínum tíma samþykkt mjög metnaðarfulla tillögu um byggðamál sem gilti fyrir tímabilið 1999-2001. Ólíkt ráðherra byggða- mála tók Guðjón A. Kristjánsson, þingmaður Fijálslynda flokksins, vel í hugmyndir Vinstri grænna. Sagðist hann tilbúinn til að sitja sér- stakt aukaþing næsta sumar ef það gæti orðið til þess að tekið yrði markvisst á vandanum í byggðamál- um. Össur Skarphéðinsson, formað- ur Samíylkingarinnar, kvaðst hins vegar hikandi við að taka undir til- lögu Vinstri grænna. Ráðast þyrfti í umræður og aðgerðir strax til að bregðast við byggðavandanum. Gagnrýndi Össur ríkisstjómina fyrir frammistöðu hennar í þessum mála- flokki. Ai-nbjörg Sveinsdóttir, Sjálfstæð- isflokki, varði hins vegar ríkisstjórn- ina og fór yfir aðgerðir hennar und- anfarin misseri til að sporna við byggðaröskuninni. Sagði hún það skipta mestu máli að unnið væri stöðugt og af fullum þunga að þess- um málum. Fyrsta um- ræða um fjárlög í dag FUNDUR hefst í Alþingi í dag kl. 10.30 og verður þá tekið til við að ræða fjárlög fyrir árið 2001. Önnur mál verða ekki á dagskrá Alþingis í dag enda má gera ráð fyrir að fyrsta um- ræða um fjárlögin standi í allan dag og jafnvel fram á kvöld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.