Morgunblaðið - 05.10.2000, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000 53 •
UMRÆÐAN
Malbik, umferð
og gróður
SIÐASTLIÐIÐ
sumar var einstaklega
hagstætt til útiverka,
svo sem malbikunar
og garðyrkju. Því
mátti ætla að Reyk-
víkingar og aðrir njót-
endur borgarinnar
gætu séð vandaða um-
hirðu gróðursins og
umfangsmiklar maL
bikunarviðgerðir. í
því efni gáfu
auknar fjárveiting-
ar til malbikunar sér-
stök fyriheit. Núna
þegar komið er fram á Kristinn
elleftu stundu malbik- Snæland
unartíma er gatna-
kerfi borgarinnar meira og minna
sundurgrafið eftir margs konar
vinnuflokka og skurðir þeirra
standa jafnvel vikum saman opnir
eða aðeins malar- eða moldarfyllt-
ir. Þar við bætist að fjöldi gatna er
enn afar illa farinn og holóttur svo
mjög að ógnvænlegt er að slíkar
götur mæti vetri, salti og nöglum
án mikilla og vandaðra viðgerða.
Óþarfi ætti að vera að tíunda ein-
hverjar götur enda fjöldi þeirra
slíkur að óteljandi er í stuttri
grein. Nefna skal ég þó nokkrar
slæmar sem samt eru ekkert verri
en fjöldi annarra gatna: Tryggva-
gata vestan, Mýrargata og rétt
norður Grandann en þar er m.a.
djúp hættuleg hola fyrir utan aðr-
ar skemmdir.Hafnarstrætið, norð-
ur Pósthússtrætið og þaðan austur
Tryggvagötu. Þetta svæði, mikið
umferðar- og ferðamannasvæði er
vægt sagt ömurlegt. Þá má nefna
Bústaðaveginn og enn Fellsmúlann
neðst við Grensásveg.
Hverfismiðstöðvar
Borgaryfirvöld hafa komið upp
mörgum góðum hverfismiðstöðv-
um. Starfsmenn þeirra vita hvern-
ig ástand gatna í hverfinu er. Ef
gatnamálastjóri óskaði eftir
skýrslum frá stöðvum þessum um
ástand gatna í hverfinu gætu þess-
ir ágætu starfsmenn tilgreint göt-
urnar nákvæmlega og m.a.s.
hversu margar holur þyrfti að laga
í hverri götu. Ekki er málið nú
flóknara en þetta. Spurningin er
þá þessi, hvert fór hið aukna mal-
bikunarfjármagn? og
svo hin, verða götur
borgarinnar sá leggja-
brjótur sem íbúarnir
þurfa að brjótast um í
vetur?
Umferðarálag
Mjög er rætt um
hið vaxandi umferð-
arálag hér í borginni
og til lausnar talað um
jarðgöng, lestarferðir
og gífurleg umferðar-
mannvirki. Ekki get
ég stillt mig um að
leiða saman í umræðu
í þessum efnum
fjarskiptatæknimenn
og skipulagshönnuði umferðar-
mannvirkja. Okkur er tjáð að bif-
reiðaumferð vaxi ofboðslega næstu
fimmtán ár eða svo. Til að mæta
þessari gífurlegu umferðaraukn-
ingu muni þurfa gífurleg ný um-
ferðarmannvirki.
Þegar fjarskiptatæknimenn
fjalla um sína tækni er á þeim að
skilja að flestar athafnir fólks muni
í mjög náinni framtíð fara fram um
ljósleiðara, breiðbönd eða annað í
þá veru. Nú þegar þarf hvorki að
fara að heiman til að ná sér í
áfengi né stunda bankaviðskipti og
fundi er hægt að stunda úr hjóna-
rúminu, nám úr borðstofunni, við-
skipti með fisk eða kvóta úr stof-
unni ogsvona mætti lengi telja.
Tæknin er þegar slík að fjöldinn
allur mun hverfa úr skólum, skrif-
stofum og fjölda annarra vinnu-
staða. Sú framtíðarsýn sem tækni-
mennirnir birta mér, ef þeir hafa
rétt fyrir sér, blæs út í buskann
öllum mínum áhyggjum um kom-
andi umferðarvandamál. Samt þarf
að gera við malbikið hér í borginni
fyrir veturinn. Ég legg því til að
fjarskiptatæknimenn og skipulags-
hönnuðir tali saman og leggi eftir
það fyrir oss almenning umferðar-
spár sínar svona næstu 25 ára.
Gróðurinn
Afar illa hefur gengið í sumar að
halda grasflötum og gróðurreitum
borgarinnar í góðu og snyrtilegu
ástandi. Ekki nefni ég eitt frekar
en annað en sleppi ekki að nefna
arfareitinn sem borgin kom upp
Kanebo kynning
Sérfræðingur Kanebo kynnir nýja hreinsilínu og kremlinu í Andorru,
Hafnarfirði, fimmtudag og föstudag frá kl. 13—18. Boðið er upp á húð-
greiningartölvu og faglega ráðgjöf. Látið ekki streitu dagsins í dag draga úr
fegurð morgundagsins. Endurheimtið innri fegurð og jafnvaegi húðarinnar
með hjálp hins besta úr náttúrunni og tækni og þekkingar Kanebo.
í II II II
XrMin Xsmtn
Gatnagerð
Hvert fór hið aukna
malbikunarfj ármagn
spyr Kristinn Snæland,
og verða göturnar
leggjabrjótur sem íbúar
þurfa að brjótast um í
vetur?
við aðreinina að Reykjanesbraut
frá Miklubraut, rétt við gömlu
Fákshúsin. Skýringin kann að vera
sú að borgin okkar vill ekki greiða
fólki til starfa við gróðurinn sam-
keppnisfær laun. Líklegt er að það
muni borgin okkar ekki gera held-
ur á komandi sumri. Þess vegna er
það firra sem verið er að gera
þessa dagana en það er að fjölga
blómareitum meðfram Miklubraut.
Til lítils er að fjölga þessum fögru
reitum ef fólk fæst ekki til þess að
halda þeim snyrtilegum. Þrátt fyr-
ir afar slælega frammistöðu við
slátt sl. sumar er þó mun minna
verk að slá grasflötinn en planta
blómum og hirða um blómabeðin.
Auðvitað mætti reyna að borga
fólki til gróðurstarfa eða malbikun-
arviðgerða mannsæmandi laun. Til
þess þarf vissulega pólitískan vilja.
Höfundur er leigubúsljóri.
METEORITES
HSIýr ilrrreir
og förðunarlína
GUERLALN
LAW.s
Michel Colas
Fimmtudag 5.10.
Snyrtivöruverslunin Glæsibæ
Föstudag 6.10.
Clara Kringlunni.
verður með förðun á eftirtöldum stöðum:
Einnig verður förðunarfræðingur
frá Guerlain með
kynningu í Clöru Kringlunni
í dag fimmtudag 5.10
og laugardag 7.10
Aðrir útsöiustaöir: Tímapantanir
Snyrtistöfan Guerlain Óðinsgötu, Hygea Laugavegi, Oculus Austurstræti, Stella Bankastræti,
Andorra Hafnarfirði, Keflavíkur Apótek, Hjá Maríu, Amaro Akureyri, Farðinn Vestmannaeyjum.
Grunnnám í
Höfuðbeina- og
spjaldhryggsjöfnun
hefst 14. okt. 2000
Leiðbeinandi
Thomas Attlee DO.MRO.RCST
COLLEGE OF CRANIO-SACRAL THERAPY
Sfmi 699 8064/564 1803
www.simnet.is/cranio
352
Iðnbúð 1,210 Garðabæ
sími 565 8060