Morgunblaðið - 05.10.2000, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 05.10.2000, Blaðsíða 80
AMERK BEAUTY Komin út á sölumynd- bandi! MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍM16691100, SÍMBRÉF66S1181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.1S, AKUREW: KAUPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Morgunblaðið/Rax Heyrúllur á túnum á Suðurlandi Övenjumikil skjálftavirkni í Goðabungu í Mýrdalsjökli Mesta virkni sem mælst ÞÓTT komið sé fram í október má enn víða sjá heyrúllur á túnum á Suðurlandsundirlendi, en fannhvít- ar hlíðar Heklu minna á að veturinn er í nánd. Veðurstofan spáir suðlægum átt- um fram á sunnudag og að vætu- samt verði sunnan- og vestanlands. Eftir helgina kólnar hins vegar heldur í veðri með norðaustlægri átt og skúrum norðanlands. RÚV ekki með þýsku knatt- spyrnuna ÞÝSKA knattspyrnan verður ekki á dagskrá Sjónvarpsins fram að áramótum, en ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um hvað verður á næsta ári. Bjarni Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Sjónvarpsins, sagði að beinar útsendingar frá bæði Evrópumeistarakeppn- inni í knattspyrnu og nýaf- stöðnum Ólympíuleikum hefðu verið kostnaðarsamar og eitt- hvað hefði því orðið undan að láta. Hins vegar yrði tekið til skoðunar hvort beinar útsend- ingar frá þýsku knattspyrn- unni hæfust að nýju eftir ára- mót. hefur í meira en áratug SKJALFTAVIRKNI í Gcðabungu, í vestanverðum Mýrdalsjökli, var óvenjumikil í september og mældust þar nær tvö hundruð skjálftar, flestir á bilinu tveir til þrír á Richter. í sept- ember á síðasta ári mældust ekki nema um 30 skjálftar á þessu svæði og að sögn Ragnars Stefánssonar jarðskjálftafræðings er skjálfta- virknin nú sú mesta sem mælst hefur þama í meira en áratug. Ragnar segir að á haustin aukist skjálftavirkni jafnan í Goðabungu. „Við köllum þetta hausthrinur og byrjuðu þær óvenju snemma núna,“ segir Ragnar. „Þetta tengist því þeg- ar snjófargi léttir af jöklinum þegar líður á sumarið og fram eftir hausti. Þá breystist snjórinn í vatn og renn- ur af jöklinum." Ragnar segir að almennt dragi aft- ur úr skjálftavirkni þama snemma í desember, en þá hafí snjóað og farg á jöklinum aukist aftur. Hann segir einnig að þó að bráðnunin í jöklinum veki upp þessar hræringar sé hún ekki aðalorsök þeirra. „Við höfum ekki orðið vör við þetta annars staðar og aðalástæða fyrir þessu er ekki að farginu léttir af. Gmndvallarástæðan er sú að það er kvika þarna undir á frekar litlu dýpi og þegar þrýstingurinn breytist á fjallinu þá sprengir kvikan sig inn í bergið," segir Ragnar. Aðstæður myndu breytast áður en búast mætti við gosi Hann segist ekki þora að fullyrða um ástæðu þess að virknin er þetta meiri í ár en hún hefur verið undan- farin ár, en það gæti verið meðal annai-s vegna þess að í sumar hafí verið óvenjulega mikil bráðnun í jöklinum. Einnig gæti kvikuvirkni þarna undir verið meiri en hún hefur verið undanfarin tíu ár. Ragnar segist telja að aðstæður þarna myndu breytast vemlega áður en búast mætti við gosi. „Maður á síður von á gosi á þessum slóðum. Maður býst frekar við gosi á Kötlu- svæðinu og það er allt frekar rólegt þar. En þessi aukning núna gerir það að verkum að við þurfum að vera vel á verði,“ segir Ragnar. Kalkþörungavinnsla gæti skapað 20 störf RANNSÓKNIR hafa staðið yfir á hafsbotni Amarfjarðar í sumar á vegum Atvinnuþróunarfélags Vest- fjarða í því augnamiði að kanna hvort kalkþömngar á þessum slóðum séu hæfir til vinnslu. Bergmálsmæling- um er lokið og í vikunni lauk bomn- um til að kanna efnasamsetningu þömnganna. Beðið er eftir fyrstu nið- urstöðum en reynist efnasamsetning- in hagkvæm verður ráðist í frekari rannsóknir og undirbúning vinnslu á þörangunum með verksmiðju við Arnarfjörð í huga, svipaðri þeirri sem starfrækt hefur verið á Reykhólum. Samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið hefur aflað sér er talið að 18 til 20 milljónir tonna af kalkþör- ungum sé að fínna á botni Arnar- fjarðar. Úr því má vinna 15 til 20 þús- und tonn á ári. Miðað við þá stærð af verksmiðju gæti hún skapað 15 til 20 störf. Heimamönnum þykir þetta verkefni spennandi, enda atvinnulífíð einhæft við Arnarfjörð með fisk- vinnslu sem aðalatvinnugrein á Bfldudal. Aðstæður skoðaðar í Skotlandi Fulltrúar frá Atvinnuþróunarfé- laginu hafa skoðað sambærilega kalkþörangaverksmiðju sem starf- rækt er í Skotlandi og munu aðilar frá þeirri verksmiðju vera væntan- legir til landsins um helgina til að skoða aðstæður í Arnarfirði. Borgarbókasafnshúsið við Þingholtsstræti Hæsta til- boð 70 milljónir SEX tilboð bárust í húsið við Þing- holtsstræti sem áður hýsti Borgar- bókasafn Reykjavíkur, en tilboðs- frestur rann út í gær. Hæsta tilboðið hljóðar upp á 70 millj. kr. og næst- hæsta er á rúmar 60 millj. kr. Talið er að ákvörðun um hvaða tilboði verður tekið geti legið fyrir eftir fund borgarráðs næstkomandi þriðjudag. Islands Nú býðst korthöfum VISA heimagæsla á sérstöku tilboðsverði. Einungis er greitt fyrir 10 mánuði á ári. Bjóðum einnig þráðlausan búnað. © r FRIÐINDAKLUBBURINN slands Síml 533 2400 Stjórnsýslukæra vegna lagningar Hallsvegar Vilja veginn í stokk ÍBÚAR við Garðhús í Grafarvogi í Reykjavík hafa sent umhverfísráð- herra stjórnsýslukæm vegna úr- skurðar skipulagsstjóra um lagn- ingu Hallsvegar, tveggja akreina vegar sem mun tengja Fjallkonuveg og Víkurveg. Samkvæmt aðalskipu- lagi verður Hallsvegur fjögurra ak- reina stofnbraut í framtíðinni og telja íbúar ófært að aðeins hluti framkvæmdarinnar hafi verið settur í umhverfismat. Gunnar H. Sigurðsson, íbúi í Garðhúsum, sagði að síðastliðið vor hefðu framkvæmdaraðilar verksins kynnt frammat á umhverfísáhrifum vegna tveggja akreina vegar. Gunn- ar sagði að að mati íbúanna væri verið að leggja hraðbraut, sem kæmi til með að kljúfa Grafarvogshverfið í tvennt. Hann sagði að íbúarnir færu fram ú frekara mat og að þeir hefðu einnig óskað þess að vegurinn yrði settur í stokk vegna nálægðar við húsin í norðanverðum Garðhúsum. ■ Framkvæmdin/15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.