Morgunblaðið - 20.10.2000, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2000 53
-------------------------T
kona. Við hátíðleg tækifæri skartaði
hún íslenska búningnum sem hún
hafði sjálf saumað eins og svo margt
bæði fyrir sig og aðra. Hún naut
söngs og söngiðkunar og trúfastari
tónleikagest var vart að finna þegar
þau tækifæri gáfust. Hún söng í kór
frá unga aldri og til marks um áhuga
hennar og atorku söng hún í litlum
kór sem æfði kórverk bæði á latínu
og þýsku, þá komin um áttrætt. Bára
var einstaklega hugsunarsöm, fylgd-
ist með öllum þessum stóra hópi
frændfólksins og átti hlý orð og gam-
anyrði við stóra sem smáa. Síðasta
heimsókn mín til Báru var á sólbjört-
um júlídegi í sumar. Við ræddum um
gamla menningartíma og hún gaf
mér vasabók afa þar sem hann
skráði öll þau kórlög sem æfð voru
fyrstu starfsár hans í Mývatnssveit.
Við rifjuðum upp allar þær ungu fjöl-
skyldur sem hófu búskap í kjallaran-
um á Bjargi, sem líka hýsti verslun-
arstarfsemi ásamt fleiru. Hún sýndi
mér möppuna þar sem hún hafði
skráð sálma og fleira sem henni var
kært og hún var tilbúin til að takast á
við þá læknisaðgerð sem til stóð.
Við kvöddumst á tröppunum og
morgunfrúrnar loguðu í sólinni. Nú
hefur Bára gengið inn í fögnuð
Herra síns eins og hinir trúföstu
þjónar áður og þar munu blómin
skarta og gleðin ríkja. Að leiðarlok-
um þökkum við Stuðlabörnin ást-
fóstrið og biðjum aliri fjölskyldu
Báru blessunar Guðs.
Margrét Bóasdóttir.
Þegar ég var lítil þótti mér mörg
húsin í sveitinni líkjast eigendum
sínum.
Eða var það öfugt, að eigendurnir
líktust húsinu. Sérlega gott dæmi
um þetta fannst mér Bára á Bjargi
og húsið hennar. Nú, þegar ég er
ekki lengur lítil eða leik mér að því
að sjá líkindi milli húsa og persóna,
verður mér samt sem áður staldrað
við þessa líkingu. Bára, móðursystir
mín, var sem bjargið á margan hátt.
Traust og virðuleg. Tignarleg í fram-
komu.
Áreiðanleg og heilsteypt. Ég átti
hana að vinkonu mörg hin síðustu ár.
Milli okkar ríkti gagnkvæm virð-
ing og mikill kærleikur. Ég naut
þess þá og mun njóta þess áfram
hversu hún fræddi mig um liðna
tíma, sérstaklega um þann tíma þeg-
ar hún óx upp í Vogum. Frásögurnar
af afa og ömmu, störfum þeirra, gild-
um og vonum, þraut aldrei. Þessi
arfur var Báru brunnur bæði visku
og gildismats. í þann brunn sótti hún
aftur og aftur og miðlaði þeim sem
vildu taka á móti. Á þann hátt þurfti
Bára aldrei að vera í vafa um hvað
var hið góða og hvað hið rétta. Hún
hafði numið það í föðurgarði og gert
heilshugar að sínu. Til hennar var
því tilgangslaust að fara með slúður
eða þvaður. Síðasta minning mín og
samvera með þessari góðu konu var
um síðastliðna páska. Ég sat með
þeim mömmu og henni og fræddist
og naut, hlustaði á þær spjalla saman
á lágum nótum um afa og ömmu. í
þetta sinn ræddu þær og skoðuðu
bréf sem ömmu höfðu borist eftir
andlát afa. í þessum bréfum kom
fram djúp virðing og kærleikur til
ömmu sem snerti okkur allar.
Bára las og við mamma hlýddum á
og þurrkuðum tárin. Síðan töluðum
við saman hljóðlega lengi, lengi.
Þessi stund var heilög stund þar sem
ríkti eining og sátt við lífið, þroski,
bjargfesta og trú. í þakklæti geymi
ég þessa síðustu samverustund með
Báru í hjarta mínu og mun einungis
draga upp minningu hennar og
fægja á slíkum stundum þar sem
virðing og kærleiki og eining eru
höfð í hávegum.
Ég votta nánustu ástvinum Báru
mína dýpstu samúð.
Sólveig Anna Bóasdóttir.
Að hryggjast og gleðjast
hérumfáadaga.
Aðheilsastogkveðjast
það er lífsins saga.
(P.J.Árdal.)
Hverfum um stund aftur til sum-
arsins 1965, þegar þáverandi erind-
reki SVFÍ, Hannes Þ. Hafstein, kom
í Mývatnssveit, til að athuga mögu-
leika á stofnun kvennadeildar SVFI í
sveitinni. Með honum í för var Sig-
rún Pálsdóttir, formaður svd.
kvenna á Húsavík. Vegna kunnings-
skapar þeirra Sigrúnar og Báru
heimsóttu þau hana að Bjargi og
reifuðu málin. Bára var þá formaður
kvenfélagsins Hrings, sem var ann-
að tveggja kvenfélaga í Mývatns-
sveit. Eftir þessar samræður og
nokkum umhugsunartíma fékk Bára
þá snilldarhugmynd að breyta gamla
Hringsfélaginu í slysavarnadeild,
sem starfa skyldi samkvæmt lögum
SVFÍ. Gekk það eftir og hinn 9. októ-
ber 1966 var fyrsti fundur svd.
Hrings haldinn og í formannsstarfið
kom auðvitað engin til greina nema
Bára. Gegndi hún því starfi um
margra ára skeið af miklum áhuga
og dugnaði og var óþreytandi við að
benda á verkefni, bæði stór og smá,
og lá hún ekki á liði sínu, enda var
þessi deild óskabarn hennar frá upp-
hafi, sem hún helgaði krafta sína, þar
til heilsu hennar fór snögglega að
hraka í sumar. Naut hún í því sem
öðru er hún tók sér fyrir hendur
fulltingis og stuðnings Illuga bónda
ALMA
ELLERTSSON
+ Alma Ellertsson,
fædd Steihaug,
fæddist í Alvdal í
0sterdal í Noregi
hinn 21. ágúst 1919.
Hún lést á öldrunar-
deild Landspitalans
á Landakoti 6. októ-
ber síðastliðinn og
fór útför hennar
fram frá Kópavogs-
hkirkju 13. október.
Elsku Alma.
Það var sumarið eftir
landspróf sem ég kom
fyrst í heimsókn á
Húnabraut 1. Það var um verslunar-
mannahelgi er ég fékk að fljóta með
Rikka stóra bróður og nokkrum
skólabræðrum hans í Húnaver og
ekki kom annað til mála en ég gisti í
sama húsi og Rikki. Mér leið strax og
ávallt síðan eins og ég væri líka
tengdasonur á heimilinu, ekki vegna
Evu yngri systur Idu heldur vegna
þess hvernig sérstaklega þú og einn-
ig Sveinn tókuð á móti mér. Það gekk
stundum svolítið á hjá þér þegar
komið var í heimsókn meðan Sveinn
sat í rólegheitum og tottaði sína pípu.
En þetta var bara þinn háttur, þú
vildir láta fólk finna hversu annt þér
var um það og sama umhyggja barst
frá Sveini bara á annan hátt. Það
hlýtur að hafa verið undarlegt að
flytja frá Noregi til íslands og setj-
ast að á Blönduósi en þú áttir örugg-
lega auðvelt með að aðlagast breytt-
um aðstæðum. Samt varstu alltaf
mikill Norðmaður í þér.
Það hafði alla tíð ver-
ið svo kuldalegt að
koma til Blönduóss, í
rauninni bara hálfnuð
leið á leiðinni til eða frá
Akureyri. En eftir
þessa fyrstu heimsókn
á Húnabraut 1 hlýnaði
yfir staðnum því ekki
kom annað til greina en
að koma við án þess þó
að gert væri boð á und-
an sér og móttökurnar
ætíð jafn innilegar. Það
kólnaði aftur yfir
staðnum þegar Sveinn
dó og þú íluttir suður. En eftir það
hittumst við reyndar miklu oftar, í
kaffi, jólaveislum, femingarveislum
og stúdentsveislum heima hjá Rikka
og Idu og svo nú síðast í sumar í gift-
ingarveislu Sifjar og Sandros. Ég hef
trú á því að þú hafir þekkt mig í gift-
ingarveislunni þó svo að þú hafir ver-
ið búin að vera mikið veik um tíma.
Það var gaman að sjá hvað þú ljóm-
aðir af gleði og hvað þú hafðir mikið
úthald þrátt fyrir veikindin.
Að lokum vil ég þakka þér og
Sveini fyrir hin góðu kynni og hversu
vel og innilega þið og þú, eftir að
Sveinn dó, tókuð á móti mér og minni
fjölskyldu, hvort sem það var á
Blönduósi eða þegar við hittumst
annars staðar.
Við Adda sendum ídu og Rikka,
Evu, Braga og fjölskyldum þeirra
allra samúðarkveðjur.
Víðir.
+ Helgi Guðlaugs-
son fæddist í
Gerðakoti í Ölfusi 20.
mars 1906. Hann lést
í Sjúkrahúsi Reykja-
víkur 25. september
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Fossvogskapellu 2.
október.
Helgi Guðlaugsson,
vinur okkar og félagi sl.
30 ár, er fluttur til
framlífs af jörðinni og
til annarrar stjörnu,
samkvæmt hugmynda-
fræði hinnar íslensku heimspeki,
sem birtist í Nýal eftir dr. Helga
Pjeturss. Hin íslenska heimspeki gaf
Helga Guðlaugssyni tilefni til djúp-
viturs mats á tilverunni og hinum
mannlega þætti og hefur hann verið
fylgismaður dr. Helga sl. 50 ár.
Þegar við hjónin kynntust Nýal og
hugmyndafræði hans
varð Helgi okkar helsti
bakhjarl og sam-
starfsmaður. Helgi var
ekki hár maður vexti,
en rökfastur var hann
með afbrigðum og
stóðst honum þar eng-
inn snúning og stað-
fastur í því sem hann
tók að sér að gæta.
Hann var höfðingi heim
að sækja og af félögun-
um virtur sem óum-
deildur foringi hópsins
og hvers manns hug-
ljúfi var hann. Hann
var söngvinn mjög og kunni ógrynni
ættjarðarljóða og gamanvísur
smellnar.
Helgi sameinaði þrjá frábæra eig-
inleika, afburðavit, mannblendni og
skopskin, enda var hann hrókur alls
fagnaðar og átti til að bregða fyrir
sig hnittnum tilsvörum.
Mjög gestkvæmt var hjá honum
og varla leið sá dagur að hann fengi
ekki heimsókn frá stórum frænd- og
vinagarði og þeir dagar eru ekki
margir þar sem enginn kom, fram að
síðasta degi.
Ég hygg að ekki fari margir í fötin
hans hvað varðar fjölda heim-
sókna og ekki eru þeir margir dag-
arnir þar sem hin íslenska heimspeki
kom ekki til umræðna á einn eða
annan hátt.
Helgi ritaði margar greinar um
hina íslensku heimspeki, birti sumar,
las upp aðrar og sá til þess að lesið
væri upp úr Nýal í útvarpinu.
Hann gekk snemma til liðs við fé-
lag nýalsinna og var þar öflugur fé-
lagsmaður og á níunda áratugnum
gekkst hann fyrir stofnun Félags
áhugamanna um stjörnulíffræði í
Reykjavík. Ekki vildi hann gerast
foi-maður, það eru aðrir hæfari, sagði
sá hæfasti. Helgi var gerður að heið-
ursfélaga 1986.
Við hjónin söknum Helga, en ósk-
um honum velfarnaðar og kærleiks-
ríkrar framtíðar í framlífinu.
Lifðu heill vinur,
Sigríður Guðmundsdóttir
og Atli Hraunfjörð.
HELGI
GUÐLA UGSSON
síns, sem ætíð studdi hana með ráð-
um og dáð.
Það mun t.d. hafa verið að frum-
kvæði Báru að svd. Hringur stóð og
stendur ennþá fyrir veitingasölu á
Hlíðarrétt í fjáröflunarskyni. Mikil
þörf var á að afla tekna til styrktar
björgunarsveitinni Stefáni sem
stofnuð var fljótlega eftir tilkomu
kvennadeildarinnar. Ýmsar aðrar
leiðir voru farnar til fjáröflunar, s.s.
hlutaveltur, skemmtisamkomur, sala
Árbóka og merkja SVFÍ og síðast en
ekki síst sala jólaskreytinga og hurð-
arkransa sem deildarkonur unnu
sjálfar. Hefur sá þáttur reynst deild-
inni ein drýgsta tekjulindin gegnum
árin. Ekki lét Bára þar, frekar en
annars staðar, sitt eftir liggja og
mætti þá gjarnan með smákökur,
vöfflur og rjóma, eða sætsúpu til að
gæða konum á. Hafði hún oftast
myndavélina með og eru til margar
skemmtilegar myndir sem hún tók
við þessi tækifæri.
Bára hafði allt sitt líf gaman af að
vera vel tilhöfð og klæðast fallegum
fötum, svo ekki sé talað um þegar
hún klæddist íslenskum þjóðbúningi.
Hún var mikil myndarhúsmóðir, vel
verki farin og má segja að allt hafi
leikið í höndum hennar og nýttist
henni námið í Húsmæðraskólanum á
Laugum einkar vel.
Tónelsk var Bára í meira lagi,
söng í kirkjukór Reykjahlíðar-
kirkju um áratugaskeið, og bar hag'
kórs síns og kirkju mjög fyrir
brjósti.
Senn líður að jólum og gerð kerta-
skreytinga og hurðakransa stendur
fyrir dyrum eins og endranær. Mun-
um við slysavarnakonur þá sakna
Báru sárt og notalegheitanna sem
henni fylgdu ætíð við þessi tækifæri.
Að endingu viljum við þakka Báru
samstarfið í gegnum árin og allt
hennar óeigingjarna starf í þágu
deildarinnar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
GekkstþúmeðGuði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Bömum Bám, systkinum og að-
standendum öllum vottum við inni-
lega samúð.
Kveðja frá
Hringskonum.
-Þarseni
vinmngarnirfást
HAPPDRÆTTI
dae
Vinningaskrá
25. útdráttur 19. október 2000
íbúðavinningur
Kr. 2.000.000_Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
7 1508
Ferðavinningur
Kr. 100.000 Kr. 200,000 (tvöfaldur)
3029
3 7 2 7 7
52470
6 9 5 9 1
rerðavinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
9504 22355 26771 41495 65058 68225
10681 26267 27559 50596 67095 70301
Húsbúnaðatvinningur
Kr, 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
485 9841 18247 29620 40768 51364 63773 73052
546 9890 19533 31694 41051 51643 64304 74670
1498 10036 21 183 34885 43551 52079 65130 76274
1598 10759 21550 36027 44969 52692 65644 76868
2429 10840 22070 36194 45687 54158 65737 76954
2790 11786 22622 36598 45900 54782 66858 77927
3769 12395 24090 36769 46217 55026 67900 78202
4491 13642 24391 3 718 8 46901 56982 68752 78707
4497 13888 25125 37367 47463 57151 69377 79108
5561 14826 25437 38103 47565 60275 69593
8331 16015 26524 38682 48079 607 14 70702
8563 16022 26907 39185 48602 61019 72243
9490 18003 27867 40204 50306 63373 72743
Húsbúnaðarvinningur
Kr. 5.000 Kr. 10.000 (tvöfaldur)
173 10164 240 18 33421 45072 53962 63866 71514
178 10196 24164 33431 45248 54072 64230 72084
262 10347 24247 33680 46494 54133 64716 73086
472 10550 24414 33722 46548 54250 64990 73242
743 10693 24633 34111 46981 54833 65002 73474
1406 10703 24772 34524 47111 55281 65042 73698
1593 11012 25017 34757 47192 55737 65070 73902
1824 11014 25129 3561 1 47285 56293 65095 74306
2053 11434 25490 35630 47333 56588 65252 74428
2702 11852 25533 35704 47734 56637 65346 75095
2841 13005 26017 36643 48013 57109 65415 75695
3128 13011 26354 36814 48105 57146 65418 75782
3189 13385 26595 36970 48518 57266 65575 76037
3824 13596 27142 37068 49817 57296 65586 76052
4106 14412 27193 37479 50039 57814 65843 76262
4115 15065 27226 38897 50071 58013 65992 76691
4305 15589 27394 40423 50169 59120 66677 76847
4502 16213 27463 40637 50720 59258 66685 77182
4639 16738 28207 40816 50960 59495 67447 77462
4971 16951 28358 41383 51319 60009 67581 77539
5598 17314 2841 1 41690 51424 60112 67712 77973
6091 17683 28702 41849 51525 60412 67881 78179
6571 17988 29037 41998 51627 60655 68309 78237
6966 18616 29224 42886 51729 61455 68348 79109
7090 18708 30037 42992 51942 61951 68351 79120
7115 20034 30050 43469 52068 61985 68730 79870
7937 20727 30179 43743 52271 62120 69022
7966 21974 30547 43830 52408 62834 69492
8034 22452 30710 44110 52479 62960 69928
8036 2331 1 31632 44640 52546 63021 70011
8638 23657 32793 44876 52801 63417 70313
9858 23779 33404 44935 53077 63816 70761
Næstu útdrættir fara fram, 26. okt. & 2. nóv. 2000
Hcimasíða á Interneti: www.das.is