Morgunblaðið - 01.11.2000, Side 4

Morgunblaðið - 01.11.2000, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Delta gerir stórsamning við indverskt fyrirtæki Sala á hugviti metin á 400 milliónir króna LYFJAFYRIRTÆKIÐ Delta í Hafnarfírði gerði í gærmorgun samning til fimm ára við indverska fyrirtækið Dr. Ready sem er þriðja stærsta lyfjafyrirtæki landsins. í samningnum felst að fyrirtækin ætla að þróa saman þrjú samheitalyf. Sú vinna fer fram á Indlandi en þegar þar að kemur verður öll fí-amleiðsla í verksmiðju Delta í Hafnarfirði. Ein- ungis salan á hugviti í þessu sam- bandi er metin á um 400 milljónir króna. Það var W. Róbert Wessman, framkvæmdastjóri Delta, sem skrif- aði undir samninginn fyrir hönd íyr- iitækisins í Delhí á Indlandi í morg- un og Halldór Asgrímsson utan- ríkisráðheiTa, sem er í fylgdarliði Ólafs Ragnars Grímssonar forseta í opinberri heimsókn hans til Ind- lands, var viðstaddur og vottaði samninginn. Róbert sagðist í samtali við Morg- unblaðið meta samninginn - „bara söluna á lyfjahugvitinu næstu árin,“ eins og hann orðaði það - á um 400 milljónir króna. „Starfsmenn Dr. Ready eru um 3.500 og fyrirtækið er með starfs- stöðvar bæði í Ameríku og Evrópu. Það sem Delta leggur fram er þekk- ing okkar á lyfjaþróun og samstarfið felur það í sér að megnið af vinnunni er unnið hér á Indlandi en undir verkstjóm Delta. Við framleiðum lyf- in svo á íslandi og munum nota okkar nafn í Evrópu, okkar sterku stöðu þar, til að selja lyfin,“ sagði Róbert. Að sögn Sigurðar Óla Ólafssonar, verkefnisstjóra hjá Delta, felur samningurinn í sér þróun þessara þriggja lyfja og möguleika á þróun tveggja í viðbót sem einnig verða ætl- uð til markaðssetningar, einkanlega í Evrópu. Þetta er annar þróunarsamningur- inn sem Delta gerir en fyrirtækið hefur áður samið við kanadískt fyrir- tæki á svipuðum nótum. „Við erum að auka það magn af lyfjum sem við erum með í þróun. Við viljum helst þróa tíu lyf á ári en erum nú að þróa fjögur til fimm,“ sagði Sigurður. Róbert sagði að vöxtur félagsins réðist meira og minna af fjölda þró- unarverkefna. „Umsvif fyriríækisins hafa nánast þrefaldast á tveimur ár- um og það ræðst mikið af fjölda verk- efna hverju sinni. Það að fjölga verk- efnunum er því liður í því að styrkja framtíð okkar. í dag eru um 65% af tekjum okkar vegna útflutnings og hann verður enn stærra hlutfall af sölu okkar í framtíðinni. Vöxturinn er fyrst og fremst erlendis, við höfum góðan aðgang að evrópska markaðn- um, nafn okkar er sterkt þar þannig að við eigum tiltölulega auðvelt með að selja ný lyf sem við þróum og setj- um á markað þar,“ sagði Róbert við Morgunblaðið. Eldur í verkstæði í Hafnarfirði TALSVERÐUR eldur kom upp á verkstæði í Trönuhrauni í Hafnar- firði í gær. Kallað var á slökkvilið kl. 14.38 og fóru fjórir slökkvibíl- ar á staðinn frá Hafnarfirði og Reykjavík. Eigandi verkstæðisins hafði verið við logsuðuvinnu og virðist sem neisti hafi hlaupið í eldsmat í einu horni hússins. Þorvaldur Geirsson, stöðvar- stjóri í Hafnarfirði, sagði að mik- ill reykur og eldur hefði verið í einu horni hússins þegar að var komið. Húsið er um 200 fermetr- ar stálgrindarhús. Eigandi verk- stæðisins hafði reynt að slökkva eldinn með handslökkvitæki án árangurs. Þorvaldur segir að hús- ið sé töluvert skemmt. Tveir til þrír menn voru inni í húsinu þeg- ar eldurinn kom upp og sakaði þá ekki. I húsinu var lyftari og alls kyns tæki en Þorvaldur telur að litlar skemmdir hafi orðið á tækj- um. Borgarráð fjallar um kostnað vegna byggingarframkvæmda Óskað eftir skýr- ingum frá borgar- endurskoðun FRAM kemur í bókun borgarráðs- fulltrúa Reykjaríkurlistans, sem lögð var fram á fundi borgarráðs í gær, að hvorki byggingadeild borgarverk- fræðings né sérstök bygginganefnd um Hafnarhúsið og Safnahúsið hafi verið kunnugt um að kostnaður við byggingarframkvæmdir vegna hús- anna hafi farið fram úr áætlun fyrr en komið var fram á mitt þetta ár. Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu hefur kostnaður við byggingarfram- kvæmdir vegna menningarmála hjá Reykjavíkurborg farið samtals 286 milljónum króna fram úr áætlun á þessu ári. Þar af eru um 100 milljónir vegna Listasafns Reykjavíkur í Hafn- arhúsinu, 167 milljónir vegna bfla- geymslu og tengibyggingar ríð Kringluna og 20 milljónir vegna Safnahússins við Tryggvagötu. I bókun borgarráðsfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins, sem lögð var fram á fundinum í gær, er þrí m.a. haldið fram að viðbrögð borgarstjóra við „framúrkeyrslu á byggingarfram- kvæmdum menningarmála," sýni svo ekki verði um villst að eftirliti borgar- stjóra með framkvæmdum og fjár- málum sé verulega áfátt. í fytmefndri bókun fulltrúa R-list- ans er rifjað upp að sérstök bygg- inganefnd hafi verið skipuð hinn 28. janúar 1997 til að hafa umsjón með forsögn, hönnun og byggingarfram- kvæmdum við Hafharhúsið og Safna- húsið. R-listinn hefði tilnefnt tvo full- trúa í nefndina en D-listi sjálf- stæðismanna hefði tilnefnt einn. „Báðum aðilum var þrí gert kleift að fylgjast grannt með framkvæmdum allt frá fyrstu tíð. í október sam- þykkti borgarráð jafnframt að fela byggingadeild borgarverkfræðings í samrínnu við bygginganefnd... að ríð- hafa stranga kostnaðargát ríð fram- kvæmdina. Svo virðist sem það hafi gengið nokkuð vel eftir þar til á loka- spretti framkvæmda á þessu ári. Fram hefur komið að hvorki bygg- ingadeild né bygginganefnd var Ijóst hvert stefndi fyrr en komið var fram á mitt þetta ár og þ.a.l. var hvorki borg- arstjóra né borgarráði gerð grein fyr- ir þrí fyrr en við 6 mánaða uppgjör í júh' sl.“ í bókun R-hstans kemur einn- ig fram að borgarstjóri hafi þegar óskað eftir þrí við borgarendurskoð- un að farið verði yfir alla þætti máls- ins til að varpa ljósi á hvað valdi þeim umframkostnaði „sem borgaryfirvöld standa nú andspænis." 'GÆÐAKFRFt ISO 9001 ISO 9001 er alþjóðlegur staðall um gæðakerfi sem tryggir þér fyrsta flokks vöru. Kynntu þér sérstöðu okkar á www.bmvalla.is Söltideild í Fomalundi Breiðhöfða 3 • Sími 585 5050 www.bmvalla.is Samvinnuferðir-Landsýn fækka sætum um nokkur þúsund Starfsmönnum fækkar um 25 STJÓRN Samrínnuferða-Landsýnar samþykkti á fundi sínum á mánudag hagræðingaraðgerðir í rekstri ferða- skrifstofunnar sem hafa það m.a. í för með sér að um 20 starfsmönnum verður sagt upp nú um mánaðamótin. Að auki hafa nokkrir starfsmenn hætt að eigin frumkvæði og að sögn Guð- jóns Auðunssonar, verðandi fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins, mun starfsmönnum fækka um 25 manns, í allt. Fyrirtækið hefur átt við rekstr- arörðugleika að stríða og gera áætl- anir ársins ráð fyrir tapi. Fyrstu sex mánuðina tapaði ferðaskrifstofan tæpum 100 milljónum króna. Alls hafa um 120 manns starfað hjá Samrínnuferðum-Landsýn, SL, fyrir utan starfsmenn erlendis. Um há- annatíma yfir sumarið hafa starfs- menn SL verið um 200. Konur eru um 80% fastráðinna starfsmanna SL og að sögn Guðjóns er hlutfall þeirra sem hætta srípað eftir kynjum. Guð- jón segir fækkun starfsmanna ganga jafnt yfir allar deildfr og þrí muni stjómendum fækka sem almennum starfsmönnum. í tilkynningu sem send var Verð- bréfaþingi í gær segir að meg- inástæða þessara aðgerða sé sú að ákveðið hafi verið að draga saman sætaframboð á árinu 2001 frá árinu í ár. Einnig bjóði nýtt húsnæði við Borgartún upp á vinnuhagræðingu og aukna framleiðni í framtíðinni. Guðjón segir í samtali við Morgun- blaðið að fækkunin nemi nokkur þús- und sætum frá þrí sem verið hefur. Áætlanir fyrir þetta ár gerðu ráð fyrir 55 þúsund farþegum í hópferðum á vegum SL. „Sætin deilast jafnt yfir þá áfanga- staði sem ríð höfum farið á. Við erum að nýta vélar frá Atlanta sem eru minni og hagkvæmari en við notuðum í fyrra, sem gefur okkur möguleika á hagræðingu. Það er mat okkar að sætaframboðið í heild hafi verið of mikið á árinu, markaðurinn hefur ekki verið fyrir hendi,“ segir Guðjón, sem tekur formlega við starfi fram- kvæmdastjóra af Helga Jóhannssyni hinn 1. desember næstkomandi. Verkalýðsfélög ráðandl í tilkynningunni frá SL segir jafn- framt að fyrirtækið ætli sér áfram að vera í fararbroddi ferðaþjónustufyrir- tækja á íslandi. ,Árið 2001 verður boðið upp á nýja og spennandi áfangastaði á vegum Samvinnuferða- Landsýnar hf„ auk ferða á hefð- bundna staði. Þá mun félagið starf- rækja Flugfrelsi, en þeirri viðbót við íslenskan ferðamai-kað var vel tekið af Islendingum sl. sumar,“ segir í til- kynningunni. Samvinnuferðir-Landsýn urðu til við samruna Samvinnuferða, ferða- skrifstofu í eigu SÍS, og Landsýnar, sem var í eigu ASÍ, fyrir 22 árum. Starfsmenn vora þá 12 talsins. Síðan hafa orðið miklar breytingar á eignar- haldi og er ferðaskrifstofan nú í eigu nokkurra stærstu verkalýðsfélaga og -samtaka í landinu, auk fyrirtækja og einstaklinga. í stjórn SL sitja Axel Gíslason, forstjóri VÍS, sem er for- maður, Grétar Þorsteinsson, forseti ASI, varaformaður stjómar, Bene- dikt Valsson, framkvæmdastjóri Far- manna- og fiskimannasambandsins, Geir Magnússon, forstjóri Olíufélags- ins, Haukur Halldórsson, Bænda- samtökunum, Gylfi Ambjömsson, framkvæmdastjóri Eignarhaldsfé- lagsins Alþýðubankans, EFA, og Ög- mundur Jónasson, formaður BSRB, og alþingismaður. Ögmundur segir við Morgunblaðið að ferðaskrifstofan hafi ekki átt ann- arra kosta völ en að draga saman seglin. Það hafi í för með sér minna mannahald. Ögmundur segist vilja leggja ííka áherslu á að starfsmenn njóti starfsaldurs. Þegar fækka eigi hjá fyrirtækinu sé reynt að gera það eins og kostur er með þrí að ráða ekki í störf þeirra sem hætta. Reynt sé til hins ýtrasta að komast hjá uppsögn- um. Fyrir liggi að til einhverra upp- sagna komi og telur Ögmundur að sýna þurfi sem mesta tillitssemi í garð starfsfólks.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.