Morgunblaðið - 01.11.2000, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2000 47
GARÐYRKJA
GEGN BEIN-
ÞYNNINGU
HAUSTIÐ í garðin-
um hefur sína töfra
og ekki getum við
kvartað undan veðr-
inu í ár. Ein ná-
grannakona mín í
Garðabænum taldi
yfir 20 tegundir
blómstrandi blóma
og runna í garðinum
sínum nú í 43. viku.
Ymsir eru þó
orðnir afhuga garð-
vinnunni og telja
hana til vorverka
nema að koma niður
haustlaukunum.
Þetta er þó ekki
raunin, til dæmis er
þetta einn besti tíminn til þess að
flytja fjölær blóm. Einnig hefur
haustið reynst mér besti tíminn
til þess að gróðursetja sígræn tré
og lauftré, þegar þau hafa fellt
laufin. Þetta hafa víst frændur
vorir Danir gert lengi með góðum
árangri.
Ekki spillir ánægjunni við
garðvinnuna frétt sem birtist í
ágústhefti tímarits bandarískra
skurðhjúkrunarfræðinga, AORN,
sem sannfærir okkur garðeigend-
ur um hollustu þessarar iðju.
Rannsakendur við Arkansas-há-
skóla í Bandaríkjunum hafa tengt
garðvinnu forvörnum gegn bein-
þynningu. Þessi frétt var birt í
apríl sl. Konur 50
ára og eldri, sem
vinna í garðinum að
minnsta kosti einu
sinni í viku, höfðu
betri beinþéttni en
konur sem skokk-
uðu, syntu, stunduðu
göngur eða þolfimi.
Aðrar rannsóknir
hafa sýnt að æfingar
þar sem reynir á
með lyftingum eru
gagnlegar fyrir kon-
ur til að viðhalda
beinþéttni. Þessi
rannsókn er samt sú
fyrsta sem ákvarðar
hvers konar þjálfun
er áhrifaríkust.
Þessi þekking getur hjálpað
konum til þess að velja þjálfunar-
aðferðir til að viðhalda styrkleika
beinanna á efri árum og auka lík-
ur á fækkun einstaklinga með
beinþynningu, sem þjáir nú 28
milljónir Bandaríkjamanna. Sam-
kvæmt niðurstöðum könnunar-
innar voru 57% þeirra 3.310
kvenna, sem tóku þátt í könnun-
inni, með beinþynningu. Rann-
sakað var hve oft konurnar
stunduðu líkamsrækt (garðvinnu,
göngur, hjóluðu, skokkuðu,
syntu, lyftu eða voru í þolfimi) og
borin saman beinþéttni. Hjólreið-
ar, þolfimi, dans og lyftingar voru
BLOM
VIKUNMR
448. þáttur
llmsjén Sigríöur
lljartar
Ein sem ekki er með beinþynningu. 79 ára sló hún
vikulega 8 ha. garð.
tengdar háum steinefnagildum,
garðvinna og lyftingar reyndust
viðhalda heilbrigðum beinmassa.
Til að auka enn jákvæðan ár-
angur garðvinnunnar er útiveran,
sem eykur D-vítamínforðann. D-
vítamín hjálpar líkamanum við
upptöku á kalki. Garðyi’kjan
reyndist einnig vera vinsælasta
líkamsþjálfunin og eykur það já-
kvæð áhrif hennar sem fyrir-
byggjandi meðferðar gegn bein-
þynningu.
Áfram með garðvinnuna! Mun-
ið bara að gera alltaf teygjuæf-
ingar þegar inn er komið til þess
að fyrirbyggja bakverk og
strengi.
A. Svala Jónsdóttir.
HeimUdir:
Got weeds? Yard Work Builds Strong
Bones (press release, Fayettville, Ark:
University of Arkansas, April 11, 2000)
1-3
http.//www.newswise.com/art-
icles/2000/4/GARDEN.UAR.html.
Námskeið
fyrir verðandi
tvíbura-
foreldra
LJÓSMÆÐRANEMARNIR Karit-
as Haraldsdóttir og Unnur B. Frið-
riksdóttir standa fyrir námskeiði
fyrir verðandi tvíburaforeldra dag-
ana 13., 16., 20. og 23. nóvember í
húsnæði Heilsuverndarstöðvarinnar
við Barónsstíg.
Gengið á milli
hafnarsvæða
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
stendur fyrir gönguferð í kvöld, mið-
vikudagskvöld, milli hafnarsvæða í
gömlu höfninni í Reykjavík.
Farið verður frá Hafnarhúsinu,
Miðbakkamegin, kl. 20 og gengið
með höfninni út í Örfirisey og út á
Eyjagarð. Þaðan til baka um Hólma-
slóð, Fiskislóð og Mýrargötu að
Hafnarhúsinu. Á leiðinni verður litið
inn hjá Olíustöðinni í Örfirisey. Ailir
eru velkomnir.
Erum flutt
í Bæjarlind 1, Kópavogi
(Blátt hús)
sími 544 8001
fax 544 8002
netfang vefur@centrum.is
Verslunin Vefur
af öllum ulpum
og kuldaskóm
||: Opiö alla virka daga frá kl. 8:00- 18:00
og laugardaga frá kl. 10:00-14:00. Bl J|| Hl il k i\ j| SlkH
- Næg bílastæði -
Grandagarði 2 ! Reykjavík | sími 580 8500 i fax 580 8501 I ellingsen@ellingsen.is