Morgunblaðið - 01.11.2000, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2000 53
stofnana. Hvað er svona flókið við
að berja saman lög sem kveða á um
að þegar banki eða lánastofnun
samþykkir greiðslufrest án sam-
ráðs við ábyrgðarmann sé sú hin
sama stofnun bara sjálf ábyrg fyrir
þeim viðbótarkostnaði sem þannig
skapast?
Eg er 75% öryrki eftir tvö bílslys
en ég bað ekki um að verða öryrki,
ég vil ekki vera öryrki og það tók
mig tveggja ára erfitt sálarstríð að
kyngja þessari staðreynd að geta
ekki lengur unnið utan heimilis. Og
það vill gjarnan gleymast að það að
stríða við erfíð veikindi eða erfíðar
afleiðingar eftir slys - eða hafa
fæðst öryrki - er endalaus barning-
ur við að reyna að leiða hjá sér allt
sem hamlar manni að lífa lífínu til
fulls á sama hátt og áður var og til
jafns við aðra. Öryrkjar hafa sömu
þörf og aðrir fyrir að eiga notalegt
heimili, kaupa sér föt og aðrar
nauðsynjar, borða góðan mat, kom-
ast í bíó, leikhús og utanlandsferðir
eins og aðrir og svo má lengi telja.
Og svo eru verkir, aflleysi, úthalds-
leysi, spítalalegur og óteljandi önn-
ur óþægindi sem örorku fylgja - að
ógleymdu því allra versta: Að vera
ekki fjárhagslega sjálfbjarga.
Hvað stendur eiginlega í vegi
fyrir að reiknuð sé út meðalfram-
færsla og lífeyrir miðaður við þær
tölur? Er það kannski vegna þess
að þá kæmi berlega í ljós að ör-
yrkjum og ellilífeyrisþegum er ætl-
að að lifa á tekjum sem eru vel fyr-
ir neðan framfærslumörk. Og
hvernig geta þingmenn ákveðið að
öryrkjar og ellilífeyrisþegar hafi úr
nógu að spila fyrst raunverulegur
framfærslukostnaður virðist hvergi
liggja ljós fyrir? Finnst þeim
kannski að öryrkjum og öldruðum
sé bara engin vorkunn að spara við
sig alla hluti til hins ýtrasta?
Ætli þingmenn að nota svona
lágkúrulega afsökun, óreglu og
peningabruðl, til að halda þessum
hópum í lægstu fátæktarmörkum
og vel þar fyrir neðan verða þeir að
minnsta kosti að sanna að áfengis-
vandamál og önnur óreiða sé hlut-
fallslega meiri hjá öryrkjum og
öldruðum en þjóðinni allri.
Þeim þingmönnum - og -konum
- sem hafa reynt að benda á hversu
smánarlega lágar þessar bætur eru
sendi ég hlýjar hugsanir og þakkir.
Höfundur er 75% öryrki eftir tvö
bílslys.
Nýbúar
íbúar hvers lands eru
eins og sinfónía, segir
Andri Ottesen, ef ein-
ungis er um að ræða
eina tegund hljóðfæris
verður hljómurinn
þröngur og einhæfur.
heims státa sig af því að um 10% af
íbúum landsins séu fædd utan þess.
Sem dæmi um verðmæti þessa
vinnuafls er að innflytjendur til
Bandaríkjanna eru yfír tvöfalt lík-
legri til að hafa meistara- og dokt-
orsgráðu en innfæddir.
Því miður byggist viðhorf
margra íslendinga á stolti en ekki
viðskiptalegri skynsemi. Enda er
stoltið alltaf varnarstaða og undir
slíkum aðstæðum er erfítt að aðlag-
ast og þróast sem þjóð að síbreyti-
legu umhvei-fi. Þó að enn hafí ekki
verið mikið um hatursglæpi gegn
útlendingum virðist andstaða gegn
nýbúum rista nokkuð djúpt.
Skemmst er þar að minnast yfir-
lýsingar ungliðahreyfingu stjórn-
málaflokks sem bar fyrirsögnina
„ísland fyrir íslendinga". Annað
dæmi er að það þykir ekkert til-
tökumál að segja niðurlægjandi
brandara um annað þjóðarbrot eða
kynþátt, en slíkt er flokkað undir
hatursræðu í mörgum löndum og
er bannað með lögum sums staðar.
Einnig gerði ríkisfjölmiðill sér að
fréttaefni hatursheimasíðu nokk-
urra unglingsstráka á móti fyrir-
Sykur - óæskilegur
og/eða hættulegur?
SVO virðist sem ný-
afstaðið málþing
N áttúrulækningafé-
lags Islands, þar sem
varpað var fram
þeirrí spurningu
hvort sykur væri
hættulaus orkugjafi
eða skaðvaldur, hafi
þjónað tilgangi sínum,
þ.e. að vekja almenn-
ing til umhugsunar
um mataræði sitt.
Misvísandi ráðlegg-
ingar og fullyrðingar
frá hinum ýmsu sér-
fræðingum um það
hvað telst hollt og
óhollt valda hinum al-
menna borgara verulegum vand-
ræðum. Það gefur auga leið að það
er ákaflega slæmt þegar uppi er
ágreiningur um grundvallaratriði
varðandi hollustu matvæla.
Sprenglærðir sérfræðingar,
bæði hér heima og erlendis, tala
um að sykur sé ekkert annað en
fíkniefni og bera fyrir sig ýmsar
rannsóknir til að styðja mál sitt. í
blaðagrein í Mbl. 7. október sl.
segir forstöðumaður Manneldis-
ráðs m.a. að ekki verði um það
deilt að bæði ávaxtasafar og sykr-
aðir mjólkurdrykkir séu bráðhollir
án þess að tilgreina magn í því
sambandi. Þá segir vinsæll nær-
ingarfræðingur í Mbl. 25. október
sl. að sykur sé ekki fíkniefni held-
ur einfaldlega bragðgóður orku-
gjafi. Að vísu kemur jafnframt
fram í grein næringarfræðingsins
að hann og allir kollegar hans séu
sammála um að óhófleg sykur-
neysla sé óæskileg en bætir síðan
við að þeir séu einnig sammála um
að óhófsneysla á hverju sem er sé
hættuleg! Hvernig í ósköpunum á
að skilja þessar fullyrðingar öðru-
vísi en svo, að óhófsneysla á sykri
sé aldrei hættuleg heldur aðeins
óæskileg meðan óhófsneysla á öllu
öðru sé hættuleg? Hvernig í
ósköpunum eiga foreldrar og al-
menningur yfírleitt að
draga sjálfstæðar
ályktanir varðandi
hollustu og óhollustu
þegar „sérfræðinga-
samfélagið" er allt út
og suður, gefur mis-
vísandi upplýsingar
og notar fræðiheiti í
málflutningi sínum
sem venjulegt fólk
skilur ekkert í?
Það hlýtur að vera
sjálfsögð krafa al-
mennings að ríkis-
valdið sjái til þess að
Gunnlaugur magn viðbætts sykurs
K. Jónsson sé alltaf tilgreint á
umbúðum matvæla og
einnig að tryggt sé að innihalds-
lýsingar séu sannleikanum sam-
kvæmar. Að þessu tilskildu hefur
almenningur a.m.k. eitthvert val
og getur valið og hafnað þó misvís-
andi upplýsingar frá „sérfræðinga-
samfélaginu“ fljúgi eins og gallað-
ar rakettur í allar áttir.
Jónas Kristjánsson læknir (f.
1870 d. 1960) og helsti brautryðj-
andi náttúrulækningastefnunnar
hér á landi átti oft í deilum við
kollega sína varðandi þær megin-
áherslur sem hann hélt á lofti í
„heilsutrúboði" sínu eins og and-
stæðingar hans kölluðu jafnan
málflutning hans.
Jónas stóð fyrir stofnun fyrsta
tóbaksvarnarfélags á íslandi og
barðist hatrammlega gegn tóbaki,
Fæða
Misvísandi ráðleggingar
og fullyrðingar valda, að
mati Gunniaugs K.
Jónssonar, hinum
almenna borgara veru-
legum vandræðum.
m.a. á þeim tíma sem tímarit
Læknafélags Islands auglýsti tób-
ak. Hann barðist gegn innflutn-
ingshöftum á grænmeti og ávexti
og hvatti almenning til að borða
meira af grænmeti enda taldi hann
að heilbrigðir lífshættir stuðluðu
að betra heilsufari, nokkuð sem
kollegar hans gerðu almennt lítið
úr. I dag fínnst okkur einkennilegt
að tekist hafi verið á um þessa
hluti á sínum tíma en þannig var
það nú samt. Þá varaði Jónas mjög
við notkun viðbætts sykurs, taldi
hann mikinn skaðvald, nokkuð sem
vísindamenn framtíðarinnar ættu
eftir að sýna fram á þegar þeir
hættu að einblína á afleiðingar og
færu að huga að fyrirbyggjandi
aðgerðum. Jónas hélt því m.a.
fram að stóraukin sykurneysla
landsmanna ætti eftir að haldast í
hendur við mikla aukningu ýmissa
sjúkdóma eins og sykursýki,
kransæðasjúkdóma og offitu.
Margir telja að ekki sé langt í það
að sýnt verði fram á, án nokkurs
vafa, að Jónas Kristjánsson læknir
hafði rétt fyrir sér í þessum efnum
eins og svo mörgu öðru sem hann
hélt fram og barðist fyrir á sínum
tíma.
Höfundur er stjómarformaður Nátt-
úrulækningafélags íslands.
OSTUR ER GÓÐUR
FYRIR TENNURNAR
Ostur er kalkríkur og kalkið styrkir tennur og bein.
fi.uk þess er gott að enda hverja máltíð með osti
því hann skapar ákjðsanlegt sýrustig ( munninum
og ver tennumar þannig fyrir skemmdum.
OSTURINN Á ALLTAF VIÐ
ÍSLENSKIR
OSTAK. •
„íilNASI, y&t
<®
www.ostur.
tækjum sem ráða til sín útlendinga.
í kjölfarið var tekið viðtal við
stjórnanda bakarísins Myllunnar
sem sagði að fyrirtækið væri að
breyta vinnuháttum til að aðlaga
sig erlendu vinnuaíli. Það að ís-
lenskt fyrirtæki væri að aðlaga sig
erlendu vinnuafli, en ekki einungis
öfugt, hefur farið fyrir brjóstið á
mörgum þjóðernissinnum. Þó er
þetta alls ekki einsdæmi. Þar má
nefna að tveir háskólar bjóða nú
sitt hvora námsgráðuna þar sem
einungis er kennt á ensku og hefur
líka verið unnið við að alþjóðavæða
starfsumhverfi. Þetta er gert í því
skyni að laða erlenda kennara og
nemendur að skólunum og gera ís-
lendinga samkeppnisfærari í heimi
án landamæra. Tölvufyrirtæki hafa
líka tekið ensku sem aðaltungumál
innan veggja fyrirtækjanna og haf-
ið þjálfun í menningarsamskiptum.
Það ætti að líta á þessi fyrirtæki
sem fyrirmyndir fyrir það sem
koma þarf. Enda eru útlendingarn-
ir ekki bara gestir heldur líka
kennarar. Svo má deila um hvor sé
atvinnubetlarinn íslensk fyrirtæki
eða erlent vinnuafl, sér í lagi með
hliðsjón af neikvæðum kynslóða-
reikningum, viðhaldi byggða og
eigna á landsbyggðinni, og áfram-
haldandi hagvexti og hagsæld ís-
lensku þjóðarinnar.
íbúar hvers lands eru eins og
sinfónía, ef einungis er um að ræða
eina tegund hljóðfæris verður
hljómurinn þröngur og einhæfur,
en ef margvísleg hljóðfæri spila í
einu er hægt að ná mun fyllri og
ríkari hljóm, en slíkt krefst sam-
hæfingar allra í hljómsveitinni.
Höfundur skrifor nú doktorsritgerð-
um viðskiptaumhverfi fyrirtækja.
„Afi missti sjónina vegna gláku. Pabbi greindist með gláku en fékk lyf
og gat haldið henni niðri alla sína ævi. Gláka er ættlæg og ég greindist nýverið með hana sjálfur.
Ef þessi lyf væru ekki til yrði ég sennilega blindur."
Lyf skipta sköpum!
Samtök verslunarinnar, sími: 588 8910
Fræðsluhópur lyfjafyrirtækja
Austurbakki hf. • Delta hf. • Farmasía ehf. • Glaxo Wellcome ehf. • Gróco ehf. • ísfarm ehf • Lyfjaverslun fslands
Medico ehf. • NM Pharma ehf. • Omega Farma ehf. • Pharmaco hf. • Thorarensen Lyf ehf.
hf.