Morgunblaðið - 01.11.2000, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2000 57
Jr~-
BRIDS
FYRIR réttum 75 árum lagðist
skemmtiferðaskipið Finnland að í
höfninni í Havana á Kúbu eftir 9
daga siglingu frá Kaliforníu um
Panama-skurðinn. Þetta hafði verið
hugguleg ferð og allir um borð áttu
ánægjulega daga. Það er þó ekki
ástæða þess að siglingarinnar er
enn minnst, heldur sú að auðkýfing-
urinn Harald S. Vanderbilt, sem
var meðal farþega, prófaði þar í
fyrsta skipti nýja útfærslu á spilinu
brids.
Fram að þessu hafði svonefnt
auction brids notið talsverðra vin-
sælda en í einföldustu mynd voru
reglur þess spils þær að spilarar
sögðu lit og grand eins og nú er
gert, en væri stoppað í 2 spöðum og
teknir 12 slagir fékkst slemmubón-
us%
Ýmsir höfðu velt fyrir sér reglum
um að verðlauna nákvæmar sagnir,
og ákveðin skref í þá átt voru stigin
í spilinu plafond sem mikið var spil-
að í Frakklandi í byrjun 20. aldar.
Vanderbilt fékk hins vegar þá nýju
hugmynd að gefa aukastig fyrir að
segja og vinna slemmur og geim,
hann stakk upp á að teknar væru
upp mismunandi hættur eftir því
hvort geim eða slemma hefði unnist
og auka þannig stigagildi sektar-
slaga og verðlauna fyiir að setja og
vinna réttu samningana.
Vanderbilt sagði sjálfur svo frá
að hann hefði vikurnar á undan búið
til þessar nýju reglur og stigatöflu
og prófað að spila nýju útfærsluna
um borð í Finnlandi við þrjá
auction-bridsspilara. Hann sagði að
þeir hefðu velt fyrir sér hvað ætti
að kalla nýjungar eins og þá að gildi
sektarstiga hækkaði eftir að geim
hefði unnist. Þeir fundu ekki annað
svar en að kalla þetta „geim unnið“
þar til kona um borð stakk upp á að
tala um „á hættu“ og „utan hættu“.
Einn úr spilahópnum, Francis
75 ár liðin frá
skemmtisiglingu
Vanderbilts
Bacon III, sagði hins vegar söguna
á nokkuð annan hátt. Hann sagði að
konan umrædda hefði að kvöldi 31.
október 1925 komið þar sem fjór-
menningamir sátu og spiluðu plaf-
ond. Konan kom með ýmsar tillög-
ur að breytingum á spilinu og sagði
þær byggðar á spili sem hún hefði
spilað í Kína. Afskiptasemi konunn-
ar hafí farið í taugarnar á Vand-
erbilt en daginn eftir hafí hann sest
og búið til nýja stigatöflu fyrir brids
sem notuð var nánast óbreytt
næstu hálfu öld. Um kvöldið settust
félagamir að spilum á ný, fóru eftir
nýju stigatöflunni og því er fæðing-
ardagur Contract brids talinn vera
1. nóvember.
Vanderbilt sagði að þeir félag-
arnir hefðu skemmt sér svo vel yfir
spilinu að þegar hann kom til New
York gaf hann nokkram vinum sín-
um vélrituð eintök af nýju reglun-
um og stigakerfinu. Og á nokkrum
mánuðum hafði þessi nýja útfærsla
farið eins og eldur í sinu meðal
bridsspilara og 3-4 áram síðar hafði
auction-brids liðið undir lok, allir
spiluðu nýja spilið.
Vanderbilt kom raunar fram með
fleiri nýjungar í brids sem reynst
hafa lífseigar. Hann bjó til dæmis
til fyrsta sagnkerfið þar sem opnun
á 1 laufí er sterkasta opnunin. Hann
skrifaði nokkrar bækur um þetta
kerfi í kringum 1930 en þær og
kerfið féllu í gleymsku
næstu áratugina. Það
var ekki fyrr en Bláa
sveitin ítalska fór síðla
á sjötta áratugnum að
spila sagnkerfi sem
byggðust á sterku
laufi að áhugi vaknaði
að nýju á Vanderbilt-
kerfinu og höfundur-
inn skrifaði nýja bók
um kerfið árið 1964.
Segja má að þetta
kerfi sé grundvöllur
Precision-kerfisins
sem margir þekkja;
helsti munurinn er að
Vanderbilt vildi opna á
4-liti í hálit, en Precis-
ion byggir á 5-lita opnunum.
Bridge eða biritch
Uppruni bridsspilsins er ekki
með öllu ljós. Skyldleikinn við vist
er óumdeildur og spilið náði tölu-
verðum vinsældum á síðari hluta
19. aldar. Talið að upprunann mætti
rekja til Tyrklands eða Rússlands
og var nafn spilsins lengi talið dreg-
ið af rússneskri vist sem nefndist
biritch. Nú er hins vegar talið lík-
legast að bæði uppruna spilsins og
nafn þess megi rekja til Istanbúl í
Tyrklandi. í tyrkneskum heimild-
um frá 1854 kemur fram að breskir
hermenn, sem börðust í Krím-stríð-
Ely Culbertson
Noj-ður
* AK5
v G964
♦ 1095
+ D84
Vestur
A G9873
v D87
♦ 7643
♦ G
Austur
A 2
v 103
♦ ÁKD82
+ 76532
inu, hafi búið til nýtt
spil meðan þeir
dvöldu í borginni.
Þetta spil hafi fengið
nafnið bridge, eða
brú, eftir Galata-
brúnni sem lá á milli
borgarhluta Istanbúl.
Yfir þessa brú fóru
hermennirnir á
hverjum degi til að
fara á kaffihús og
spila brids.
Hvað sem rétt er
um það náði brids
miklum vinsældum
um allan heim þegar
líða fór á 20. öldina.
Rússneska innflytj-
andanum Ely Culbertson er m.a.
þakkað hve spilið breiddist hratt út
en hann byggði um tíma töluvert
fjármálaveldi á sagnkerfi sem hann
þróaði og vakti athygli á því og
sjálfum sér með ýmsum hætti.
Hann skoraði m.a. á höfund annars
sagnkerfis, Harald Sims, í einvígi
sem vakti mikla athygli í fjölmið-
lum. Aðrir spilarar sem náðu
heimsfrægð á uppvaxtarárum
bridsins voru m.a. Howard Schenk-
en, Charles Goren og Waldemar
von Zedtwitz. Saga þessara manna
verður ekki rakin nánar hér en látið
nægja að birta eitt spil þar sem
nokkrir þeirra komu við sögu:
Suður
A D1064
v ÁK52
♦ G
A ÁK109
Þetta spil mun hafa komið fyrir
árið 1932 í bandarískri lands-
keppni sem kennd var við Harald
S. Vanderbilt en hann gaf verð-
launin. Þessi keppni er raunar enn
við lýði. Þeir Vanderbilt og Von
Zedtwitz sátu NS en AV sátu
Shenken og maður að nafni Brace
AV. Sagnirnar sýna vel hvernig
spil þróuðust upp í einskonar sagn-
einvígi þegar bestu spilarar þessa
tíma mættust:
Vestur Norður Austur ltíguli Suður dobl
2grönd dobl 3spaðar dobl
pass pass 4 tíglar 4 hjörtu
pass pass 5 tíglar 5 hjörtu//
Blekkisagnir voru landlægar á
þessum tíma og því þóttu sagnir
eins og 2 grönd og 3 spaðar ekkert
tiltökumál, en báðir spilararnir í
AV vonuðust til að fá að spila tíg-
ulsamning að lokum. En Vanderbilt
og Von Zedtwitz létu ekki slá sig út
af laginu. Dobl Vanderbilts á 2
grönd var ekki til úttektar en Von
Zedtwitz treysti á að norður ætti
hjartastuðning fyrst hann passaði 4
hjörtu og fór sjálfur upp á 5.
sagnstig. 5 hjörtu unnust síðan auð-
veldlega.
Guðm. Sv. Hermannsson
*
/INNLENT
Leigj endasamtökin
vilja evrópska
húsnæðisstefnu
EFTIRFARANDI ályktun var sam-
þykkt á aðalfundi Leigjendasamtak-
anna sem haldinn vai- í MÍR-salnum í
Reykjavík 28. október sl:
,Aðalfundur Leigjendasamtak-
anna haldinn í Reykjavík 28. október
2000 lýsir yfh- neyðarástandi á leigu-
mai-kaði hér og alvarlegum skorti á
félagslegum úrræðum í húsnæðis-
málum.
Fátækt fólk og illa statt í lífsbarátt-
unni ræður ekki við núverandi verð-
lag á húsnæði. Hvergi í veröldinni
hefur reynst mögulegt að leysa hús-
næðismál fólks með eðlilegum hætti á
viðskiptagrundvelli einum saman.
Fundurinn vekur athygli á því að
skuldir íslenskra heimila voru 560
milljarðar kr. hinn 1. júlí sl. og hækka
nú um 7 milljarða kr. á mánuði. Lítið
má út af bera til þess að af hljótist al-
varleg vandamál.
Fundurinn hafnai- þeirri spila-
mennsku með fjöregg þjóðaiinnar
sem hér er stundað af stjórnvöldum
og krefst þess að mótuð verði félags-
leg stefna í húsnæðismálum, að húsa-
leigubætur verði skattlausar eins og
hjá öðram þjóðum og hafin skipuleg
uppbygging leigumarkaðar með
traustum leigumiðlunum svo Reykja-
vík verði ekki áfram eina borgin í
heiminum þar sem ekki er hægt að
taka íbúð á leigu með öruggum og
eðlilegum hætti.
Fundurinn krefst þess að hér verði
komið á evrópskri húsnæðisstefnu í
stað hinnar íslensku sveitamennsku
og lagalegur réttur leigjenda aukinn í
samræmi við það. Þá krefjast Leigj-
endasamtökin þess að útburður á
fólki vegna fátæktar verði bannaður
með lögum.
Leigjendasamtökin era sem fyrr
tilbúin til samstarfs við stjórnvöld og
aðra um þessi mál.“
Eftirfarandi voru kjörnir í stjórn:
Jón Kjartansson og Þórir Karl Jónas-
son vora endurkjömir formaður og
varaformaður og aðrir í stjóm eru:
Bjarni Jakobsson, Bh-na Stein-
grímsdóttir, Ástríður Helga Helga-
dóttir, Sigrún Reynisdóttir, Metúsa-
lem Þórisson, Olína Pétursdóttir,
Þóra Jónsdóttir, Sigvarður Ari Ara-
son, Þórhallur Þórhallsson, Júlíus
Valdimarsson og Tryggvi Garðars-
son.
IOg svo fór ég
að hugsa •. •
Og núna versla
ég bara
vítamín,
heilsunnar vegna
Apótekin
ÓB er Ifka
í Borgarnesi
Baröarstaðir
í Staöahverfi
Snorrabraut
Knarrarvogur
Bæjariind
í Kópavogi
Arnarsmári
í Kópavogi
Viö Fjarðarkaup
í Hafnarfiröi ,
Holtanesti
í Hafnarfiröi
Auðveit!
Hreinn sparnaður!
Starfsmaður okkar verður við bensínsjálfsalann
á ÓB stöðlnni við Bæjarlind í Kópavogi og leiðbeinir
þér frá kl. 10-20 alla daga. Lærðu að spara og þú
færð ókeypis bílþvott í Glans bflaþvottastöðinni að launum.
Þetta er því hreinn sparnaður fyrir þig!
9 stöðvar - opnar allan sólarhringinn! «dýrtbensin j.