Morgunblaðið - 12.12.2000, Qupperneq 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Ný barnadeild við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Fjöldi gjafa barst
NÝ bamadeild var tekin í notkun
við Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri, en hún er í nýbyggingu sunnan
við elstu byggingu sjúkrahússins.
Alls er deildin um 800 fermetrar að
stærð og því í mun rúmbetra hús-
næði en áður þegar starfsemin fór
fram í 320 fermetra húsnæði. Þar
átti deildina að vera til bráðabirgða,
en Magnús Stefánsson yíirlæknir
greindi frá því við opnunina að í
þessu bráðabirgðahúsnæði hefði
deildin starfað í 24 ár, 5 mánuði og
lOdaga!
Fjöldi gjafa barst deildinni í til-
efni af formlegri opnun, m.a. gaf
Kvenfélagið Hlíf fullkomið gjör-
gæslutæki, Hafnarsamlag Norður-
lands gaf leikjatölvur, en sá háttur
hefur þar verður hafður á að styrkja
góð málefni í stað þess að senda
jólakort, þá gáfú Kiwanismenn á
Norður- og Austurlandi rafknúinn
skoðunarbekk, en auk þess bárust
fleiri gjafir, m.a. frá Landspítala -
Morgunblaðið/Kristján
Magnús Stefánsson, yfirlæknir barnadeildar FSA, tekur við gjöf frá
Ingibjörgu Pálmadóttur heilbrigðisráðherra.
háskólasjúkrahúsi og Minningar- brigðisráðherra barnadeildinni
sjóði Kvenfélagsins Hlífar. Þá af- styttu eftir Nínu Sæmundson, en
henti Ingibjörg Pálmadóttir heil- hún heitir Ung móðir.
Níj sending
Kringlunni,
sími 553 3300
Glæsilegur
jóla- og
samhvæmisfalnaður
Sýning'in Jdl
í Deiglunni
Gestir leggi
til bréf og
skraut
JÓL er yfirskrift sýningar sem
myndlistarmaðurinn Aðalsteinn
Þórsson opnar í Deiglunni 15. des-
ember næstkomandi.
Sýningin verður með nokkuð
óvenjulegu sniði, en listamaðurinn
mun vinna við gerð innsetningar í
sýningarrýminu meðan á sýningu
stendur með aðstoða gestanna.
Þema sýningarinnar eru Jólin
og fer listamaðurinn fram á það
við lesendur að þeir setjist niður
og skrifi nokkrar línur um ,jólin
eins og þau ættu að vera“. Að-
alsteinn heldur því fram að eitt-
hvað hafi farið úrskeiðið í jólahald-
inu þegar bernskunni sleppti og
fullorðinsárin tóku við. Bréfin sem
berast munu verða hluti af sýning-
unni.
Einnig biður Aðalsteinn fólk að
senda sér jólaseríur eða skraut
sem ekki er lengur notað, en gæti
komið sér vel við uppsetningu
þessarar sýningar. Tekið verður á
móti slíku skrauti í Deiglunni með-
an á sýningu stendur. Bréf má
senda á skrifstofu Gilfélagsins,
Kaupvangsstræti 23 á Akureyri,
og merkja þau Jólasýning eða í
tölvupósti á netfangið: t adal-
steinn@hotmail.com
tovanni
RAYMOND WEIL
www.raymond-weil.com
GENEYE
Kaffi Tröð í Pennanum-Bókval
Sýning á
myndum úr
Búkollu
ÆVINTÝRI og listaverk er heiti á
sýningu sem nú stendur yfir í Kaffi
Tröð í Pennanum-Bókval á Ak-
ureyri. Um er að ræða vatns-
litamyndir sem Kristinn G. Jó-
hannsson hefur málað og birtast í
nýrri útgáfu að hinu gamalkunna
ævintýri um Búkollu sem Bókaút,-
gáfan Hólar hefur nýlega gefið út.
„Ég reyndi að hafa myndirnar
með eins raunsæislegum blæ og
hægt er,“ sagði Kristinn, en bætti
við að það væri alltaf spurning
hvort búa ætti til myndir við jafn
lífseig ævintýri og Búkolla er, flest-
ir ættu ljóslifandi myndir af þessu
ævintýri í huga sér.
Kristinn málaði myndirnar síð-
astliðið sumar að beiðni Jóns
Hjaltasonar, útgefanda hjá Hólum,
og sagði að um hefði verið að ræða
Morgunblaðið/Kristján
Jón Hjaltason útgefandi og Krist-
inn G. Jóhannsson, til hægri, sem
málaði myndirnar í Búkollu.
afar skemmtilegt verkefni.
Jón Hjaltason útgefandi kvaðst
ánægður með útkomuna og því
hefði verið ákveðið efna til sýninga
á myndunum. „Kristinn er afar
flinkur listamaður og það kemur
glögglega í ljós á myndunum í þess-
ari bók,“ sagði Jón.
Líknar- og hjálparsjóður
Landssambands lögreglumanna
Geir Jón Þórisson í stjóm líknar- og hjálparsjóðs Landssambands lög-
reglumanna afhendir Eyþóri Ævari Jónssyni og Grétu Björk Eyþórs-
dóttur, foreldrum Eyþórs Daða, 6 mánaða gamals drengs sem fæddist
með mikinn hjartagalla, peningagjöf úr sjóðnum.
Foreldrar Eyþórs
Daða fá peningagjöf
FORELDRAR Eyþórs Daða Ey-
þórssonar, Gréta Björk Eyþórsdótt-
ir og Eyþór Ævar Jónsson, fengu af-
henta peningagjöf frá líknar- og
hjálparsjóði Landssambands lög-
reglumanna. Eyþór Daði fæddist
síðastliðið sumar, á þjóðhátíðardag-
inn, og var hann með mikinn hjarta-
galla. Fyrsta mánuð ævi sinnar
dvaldi hann á sjúkrahúsi í Reykjavík
og þá hefur hann gengist undir erf-
iða aðgerð á sjúkrahúsi í Boston í
Bandaríkjunum. Eftir áramót fer
hann í hjartaþræðingu suður og þá
til Bandaríkjanna aftur í aðra að-
gerð.
Foreldrar hans, Gréta og Eyþór,
hafa lítið sem ekkert getað unnið frá
því drengurinn fæddist, en þau eiga
tvö önnur börn, fjögurra og sex ára,
þannig að fjárhagur fjölskyldunnar
er ekki góður. Sóknarprestar í Ak-
ureyrarkirkju hrundu af stað söfnun
fyrir fjölskylduna fyrr í haust.
Aðventu-
kvöld í Sval-
barðskirkju
AÐVENTUKVÖLD verður í Sval-
barðskirkju á Svalbarðsströnd
næstkomandi fimmtudagskvöld, 14.
desember kl. 20.30. Samveran er
ætluð ungum sem eldri og einkenn-
ist af hljóðfæraleik, söng og helgi-
leikjum.
Kór kirkjunnar syngur undir
stjóm Hjartar Steinbergssonar,
börn úr Valsárskóla sýna helgileik
um fæðingu Jesú og kennarar sjá
um uppsetningu á þessum helgileik
en kirkjukórinn aðstoðar með söng.
Anna Júlíana Þórólfsdóttir syngur
trúarlög og leikur undir á gítar.
Nemendur úr Tónlistarskóla Eyja-
fjarðar leika á hljóðfæra og ferm-
ingarbörn sýna ljósahelgileik.