Morgunblaðið - 12.12.2000, Page 20
0 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
* / •: Va
Morgunblaðið/Jim Smart
Þúsundir Reykvíkinga voru á Austurvelli þar sem efnt var til skemmtunar um leið o g kveikt var á perunum 456 á Óslóartrénu.
Fj öldi
skoðaði
j ólatré
og -sveina
Höfuðborgarsvæðið
JÓLASVEINAR hafa í
mörgu að snúast þessa dag-
ana enda mannfólkið nú byrj-
að að tendra ljós á jólatrjám
á höfuðborgarsvæðinu.
Troða þessir náungar gjam-
an upp við slík tækifæri og er
ekki óalgengt að sjálfir for-
eldrarnir, Grýla og Leppa-
lúði, séu þar að auki með í
fór. Þegar ljós voru kveikt á
jólatrjám í Hafnarfirði,
Garðabæ, Kópavogi og á
Austurvelli í Reykjavík um
síðustu helgi, létu jólasvein-
arnir sig enda ekki vanta og
kunnu frá ýmsu að segja.
Hafnfirðingar, Garðbæ-
ingar og Kópavogsbúar not-
uðu laugardaginn til þess að
kveikja á ljósum trjáa sinna,
en Reykvíkingar hins vegar
sunnudaginn.
Tvö jólatré
í Hafnarfírði
í Hafnarfirði var kveikt á
Ijósum tveggja jólatijáa í
bænum. Var annað þeirra
gjöf frá ibúum Cuxhaven í
Þýskalandi en hitt
frá íbúum Fred-
riksberg í Dan- Æ
mörku. Tréð frá Cuxhaven er
við Flensborgarhöfn og þar
hófst athöfnin með jólatónum
Lúðrasveitar Hafnaríjarðar.
Því næst flutti Helmut
Heyne, yfirborgarstjóri
Cuxhaven, kveðju og tendr-
aði svo ljós trésins. Að lokn-
um kórsöng og ávarpi fiuttu
leikskólabörn frá Garðavöll-
um nokkur lög. Athöfninni
lauk með því að jólasveinn
heilsaði upp á fólkið.
Tréð frá Fredriksberg er
að þessu sinni við Hafn-
arfjarðarkirkju, en hefur
jafnan staðið á Thorsplani.
Athöfnin þar hófst sömuleið-
is með tónum Lúðrasveitar
Hafnarfjarðar. Þá flutti
Michael Dal kveðju bæjar
síns í Danmörku og tendraði
ijósin. Eftir ávarp, hugvekju
og kórsöng lauk athöfninni
með heimsókn nokkurra jóla-
karla, mörgum til óbland-
innar ánægju.
Síðan hófst jólaskrall í
verslunarmiðstöðinni Firði
kl. 15, með tilheyrandi
uppákomum, og allan daginn
voru líka syngjandi jól í
Hafnarborg, þar sem fram
komu 22 kórar og söng-
hópar, alls um 800
> manns.
Garðabær og
Kópavogur
í Garðabæ voru
Ijós tendruð á jólatrénu á
Garðatorgi kl. 15.45. Jólatréð
er gjöf frá vinabæ Garða-
bæjar í Noregi, Asker, og var
það norski sendiherrann á Is-
landi, Kjell Halvorsen, sem
afhenti það formlega. Laufey
Jóhannsdóttir, forseti bæj-
arstjómar, veitti trénu við-
töku. Blásarasveit Tónlistar-
skóla Garðabæjar lék jólalög,
kór Hofsstaðaskóla söng og
jólasveinar komu í heimsókn.
Jólatré Kópavogsbúa
stendur framan við
Hamraborg, og er það tré
Morgunblaðið/Jim Smart
Hafnfirðingar héldu mikla jólahátíð á laugardag. Kveikt var á jólatré við Hafnarfjarðarkirkju og öðru við Flensborgarhöfn.
Þangað komu jólasveinar og fleira fólk og skemmtu sér hið besta.
Morgunblaðið/Sverrir
Jólatré Kópavogsbúa stendur við Hamraborg og þar fundu
bömin sér ýmislegt til dægrastyttingar.
gjöf vinabæjar Kópavogs í
Svíþjóð, Norrköping. Athöfn-
in hófst kl. 14.40 með jólatón-
um Skólahljómsveitar Kópa-
vogs. Síðan flutti Hermann
Aftrolle, sendiherra Svíþjóð-
ar, ávarp og afhenti tréð með
formlegum hætti. Forseti
bæjarstjórnar, Ármann Kr.
Ólafsson, veitti því viðtöku.
Þá söng Kór Kársnesskóla
jólalög og að síðustu komu
jólasveinar um langan veg og
glöddu ung hjörtu.
Reykjavík
Á Austurvelli vom ljós
tendmð á jólatrénu sunnu-
dag. Jólatréð er gjöf Óslóar-
búa til Reykvíkinga og hafa
þeir sýnt vinarþel með þess-
um hætti í 49 ár. í ár eru 456
pemr á trénu, sem er 11,9
metra hátt. Kjell Halvorsen,
sendiherra, afhcnti tréð, en
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarsljóri þáði fyrir hönd
Reykvíkinga. Að þessu sinni
var athöfnin haldin sameig-
inlega af Reykjavík - menn-
ingarborg og Reykjavík-
urborg. Var athöfnin því en
áður hefur verið og mætti
fjölmenni til að fylgjast með
tendrun ljósa og skemmti-
atriðum.
Jólatréð á Garðatorgi er gjöf frá Asker í Noregi.