Morgunblaðið - 12.12.2000, Side 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Samtök íslenskra áhættufjárfesta háldu stofnfund sinn í gær
Ætlað að gæta hags-
muna áhættufjárfesta
Morgunblaðið/Ásdís
Javier Esharry, framkvæmdastjóri samtaka áhættufjárfesta í Evrópu, flutti erindi um áhættuflármögnun.
Yfír sex þúsund ein-
staklingar keyptu bréf í
deCODE á gráa mark-
aðnum hér á landi fyrir
frumútboð. Þetta kom
fram í máli Tanyu Zhar-
ov, frá Islenskri erfða-
greiningu, á ráðstefnu
um framtaksfjárfest-
ingar sem haldin var í
gær. T'anya segir að
Bank of New York, sem
tók yfír umsjón með
hluthafaskrá félagsins
vegna skráningarinnar
á Nasdaq, hafí aldrei
séð svo marga hluthafa í
félagi fyrir frumútboð.
SAMTÖK íslenskra áhættufjárfesta
voru stofnuð í gær. Gylfi Arnbjöms-
son, framkvæmdastjóri EFA, greindi
frá stofnun samtakanna á ráðstefnu
sem Eignarhaldsfélagið Aiþýðubank-
inn og Nýsköpunarsjóður atvinnu-
lífsins efndu til í gær af þessu tilefni
undir yfírskriftinni „Framtaksfjár-
festingar í Evrópu -Hver er staða ís-
lenskra fjárfesta?"
Gylfi sagði í inngangsorðum ráð-
stefnunnar að EFA og Nýsköpunar-
sjóðurinn hefðu haft frumkvæði að
stofnun Samtaka íslenskra fjárfesta
en markmið þeirra er að vera í for-
svari fyrir og gæta hagsmuna
áhættufjárfesta á íslandi.
Lífeyrissjóöir verji meiru
í framtaksfjárfestingar
Heiðursgestur stofnfundar Sam-
taka íslenskra áhættufjárfesta var
Javier Esharry, framkvæmdastjóri
EVCA, European Venture Capital
Association, sem eru samtök áhættu-
fjárfesta í Evrópu. í erindi sem hann
flutti á ráðstefnunni í gær sagði hann
meðal annars frá EVCA, framtaks-
fjárfestingum í Evrópu og mikilvægi
þeirra fyrir atvinnulífið. Hann sagði
að starfsemi EVCA miðist að því að
stuðla að auknum framtaksfjárfest-
ingum í Evrópu með ýmiss konar
upplýsingagjöf, útgáfu á upplýsinga-
efni, námskeiðum og ráðstefnum og
eftir fleiri leiðum.
Esharry sagði frá ýmsum tölfræði-
legum upplýsingum sem sýndu með-
al annars fram á að án framtaksfjár-
festa hefðu fjölmörg ný fyrirtæki
aldrei orðið að veruleika. Ávöxtun
þess fjármagns sem varið hafi verið
til framtaksfjárfesta hafi verið betri
en besta ávöxtun til rótgróinnar at-
vinnustarfsemi. Fjármagn til fram-
taksfjárfestinga í Evrópu kemur að
hans sögn meðal annars frá bönkum,
um 29%, lífeyrissjóðum, um 19%, og
tryggingafélögum, um 13%. í Banda-
ríkjunum væri þessu hins vegar
þannig háttað að um helmingur fram-
taksfjármagns þar komi frá lífeyris-
sjóðum. Hann sagði þetta gefa til
kynna að stjómvöld í Evrópu þyrftu
að beina lífeyrissjóðum í auknum
mæli inn á þá braut að þeir verji
meiru fjármagni í framtaksfjárfest-
ingar.
Hann greindi frá því að fjármagn
til framtaksfjárfestinga væri að með-
altali 0,31% af heildarþjóðarfram-
leiðslu í Evrópu. ísland væri rétt
undir meðaltalinu með 0,28%. Hlut-
fallið væri hins vegar hæst í Bret-
landi með 0,87%, í Svíþjóð með 0,58%
og í Hollandi með 0,48%, en þessi
lönd hefðu nokkra sérstöðu hvað
þetta varðar.
Esharry sagði að EVCA beiti sér
fyrir því að stjórnvöld í Evrópu stuðli
að sem hagstæðustu umhverfi fyrir
atvinnulífið og framtaksfjárfesta. í
því sambandi sé til að mynda mik-
ilvægt að fjármagn frá hinu opinbera
sé ekki í samkeppni við lramtaksfjár-
magn en ekki séu gerðar sömu kröfur
um ávöxtun fjármagns hins opinbera.
Það sé hins vegar engu að síður mik-
ilvægt ef því er beint eftir réttum
leiðum til að styðja við nýsköpun.
Stjómvöld þurfi einnig, að sögn
Esharry, að styðja við bakið á ný-
sköpun með því að gera stofnun fyr-
irtækja sem auðveldasta. Reglur
þurfi að vera skýrar og samræmdar
milli landa, og þannig úr garði gerðar
að frumkvöðlar séu reiðubúnir til að
leggja það á sig að taka þá áhættu
sem er því samfara að stofna fyrir-
tæki um arðsama hugmynd.
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbanka íslands hf., sagði á
ráðstefnunni frá þátttöku viðskipta-
banka í framtaksfjármögnun. Hann
sagði óijúfanlegt að fjalla samtímis
um nýsköpun og framtaksfjármögn-
un. Með nýsköpun væri átt við sér-
hverja nýjung við gerð eða aðferð við
framleiðslu og markaðssetningu á
vöru eða þjónustu sem skilar fyrir-
tæki eða fmmkvöðli arði á markaði.
Framtaksfjármögnun sé hins vegar
það tæki sem sé líklegast til að geta
stutt nýsköpun þegar þær hugmynd-
ir séu komnar á fjárfestingarstig.
Að sögn Halldórs eru alhliða bank-
ar í öllum þáttum fjármálaþjónustu.
Hefðbundin fjárfestingalán, sem
tryggð eru með veði, eða lán út á
efnahagsreikning séu algengust.
Hann sagði bankana hafa tekið þátt í
eiginfjáruppbyggingu og öflun eigin-
fjár fyrir viðskiptavini sína. Það sé
gert með aðstoð við hlutafjárútboð á
markaði en þar sem engin rekstrar-
reynsla sé, og ekki sé rúm fyrir hefð-
bundnar útboðsleiðir, komi fram-
taksfjármögnun til og sé hún
nauðsynleg á afmörkuðum sviðum
fjármálastarfseminnar. Halldór
sagði að óáþreifanlegar fjárfestingar
væru lykillinn að bættri samkeppn-
isstöðu íslands. Framtaksfjármögn-
un snúist um það eitt að fjármagna
einstök verkefni og virkja þar með
hugmyndir athafnamanna.
Halldór sagði að einungis væru um
24 mánuðir síðan sú umræða hafi haf-
ist innan Landsbankans að bankinn
ætti að koma að framtaksfjármögn-
un. Hann sagðist hafa sett Lands-
bankanum það markmið að vera með
innan við 2% af heildareignum í þess-
ari starfsemi og í upphafi ekki meira
en 1%. Heildareignir bankans séu um
200 milljarðar króna og því megi gera
ráð fyrir að um 2 milljarðar verði í
framtaksfjárfestingum bankans á
árinu, sem geti farið síðar upp í um 4
milljarða. Ef farið verði svo hátt muni
verða nauðsynlegt að það gerist með
áhættudreifðum hætti. Hann sagði
að þessi starfsemi bankans hafi verið
aðskilin í sérstöku félagi, Landsbank-
anum Framtaki, sem hafi verið stofn-
að fyrir 18 mánuðum.
Engar skattareglur sem hvetja
til framtaksfjárfestinga
Ámi Harðarson, lögfræðingur
Deloitte & Touche hf., fór yfir skatta-
legt umhverfi framtaksfjárfesta á ís-
landi. Hann sagði skattareglur öflugt
tæki til hvatningar til fjárfestinga í
einstöku atvinnugreinum. Slíkar
reglur væru fyrst og fremst pólitísk
ákvörðun og hluti af hagstjóm þeirra
sem fari með rfidsvaldið á hverjum
tíma. Engar gfidandi skattareglur
hér á landi taki til eða hvetji til fram-
taksfjárfestinga. Þó mætti segja að
reglur um kaupréttarsamninga og
skattlagningu þeirra frá því í maí síð-
astliðnum væm í þessum anda.
Ámi fór yfir ýmsar skattareglur
sem snúa að atvinnulífinu og gerði
meðal annars grein fyrir mismunandi
aðkomu fjárfesta eftir því hvort um
er að ræða samtök, fyrirtæki eða ein-
staklinga.
Einar K. Guðfinnsson, sem sæti á í
efnahags- og viðskiptanefnd Alþing-
is, sagði að menn yrðu að gera sér
grein fyrir því að ísland væri ekki
lengur eyland í skattalegu tilliti.
Hann sagði dijúgan tíma efnahags-
og viðskiptanefndar Alþingis hafa
farið í að skoða hvaða áhrif skatta-
lagabreytingar hefðu á fjármagns-
flæði til og frá landinu með það fyrir
augum að reyna að tryggja að þær
valdi ekki flótta fjármagns. Einar
sagðist telja að án hinnar alþjóðlegu
samkeppni sem við byggjum nú við
væri skattaumhverfið hér á landi fyr-
irtækjum mun þungbærara en raun-
iner.
Áhætta að vera ekki með
Eyþór Arnalds, forstjóri íslands-
síma hf., hélt fyrirlestur undir yfir-
skriftinni Það er áhætta að vera ekki
með. Hann sagði ísland hafa verið
veiðimannaþjóðfélag og að landið
hafi misst af iðnbyltingunni. Áhugi á
auðlindum sé mikill sem og nýting
þeirra, en minna sé unnið með þekk-
ingu. Þetta sé smám saman að breyt-
ast og hlutur sjávarútvegs í útflutn-
ingstekjum fari stöðugt minnkandi.
Eyþór nefndi Kísildal í Kalifomíu
og Finnland sem dæmi um landsvæði
eða lönd þar sem vel hefði tekist til
um að byggja upp þekkingar- og há-
tækniiðnað. Hann taldi forsendur
mikils vaxtar í Kísildal hafa verið hátt
menntunarstig vegna nálægðar við
góða háskóla, miklar rannsóknir
bæði háskólanna og fyrirtækja og að
á þessu svæði sé mikill fjöldi áhættu-
fjárfesta.
Eyþór sagði Finnland hafa verið í
svipaðri stöðu og ísland fyrir nokkr-
um árum, það hafi aðallega verið í
hráefnisiðnaði og verið með einhæfan
viðskiptamannahóp, aðallega Sovét-
rfldn í tilviki Finnlands. Fyrirtæki
Finnlands og íbúar þess hafi tekið
áhættu, breytt um stefnu og nú sé svo
komið að á marga mælikvarða sé
Nokia orðið öflugasta fyrirtæki Evr-
ópu.
Yfir 6.000 hluthafar í ÍE
fyrir frumútboð
Tanya Zharov, frá íslenskri erfða-
greiningu (IE), sagði frá reynslu de-
CODE af skráningu á markað í
Bandaríkjunum og Evrópu. Hún
benti á að frumútboð og skráning séu
algengar útgönguleiðir fyrir fram-
taksfjárfesta og svo hafi verið í þessu
tilviki, því þeir geti ef þeir vilji selt
hluti sína í félaginu um miðjan næsta
mánuð. Hið sama eigi við um þá ein-
staklinga sem keypt hafi bréf á gráa
markaðnum hér á landi fyrir útboð.
Þetta sé umtalsverður fjöldi, eða yfir
6.000 manns, og sagði hún að Bank of
New York, sem tók yfir umsjón með
hluthafaskrá félagsins vegna skrán-
ingarinnar, hafi aldrei séð svo marga
hluthafa í félagi fyrir frumútboð.
Tanya sagði skráningarferlið mjög
viðamikið og að meiri vinna hafi farið
í að undirbúa skráningu en ráð hafi
verið fyrir gert. Fjármálaeftirlitið í
Bandaríkjunum (SEC) sé til dæmis
mjög nákvæmt þegar það fari yfir út-
boðslýsingar og hún sagðist telja að
mun meiri kröfur séu gerðar þar í
landi að þessu leyti en hérlendis. Þá
sagði hún að vinnunni væri ekki lokið
þó skráning væri að baki, því fylgdi
áframhaldandi mikil vinna að vera
með skráð félag.
Hún sagði ekkert því til fyrirstöðu
að íslensk fyrirtæki færu þessa leið
og létu skrá sig á Nasdaq, og ef eitt-
hvað væri þá væri ferlið ef til vill ein-
faldara fýrir íslensk fyrirtæki en
bandarísk fyrirtæki eins og de-
CODE. Ástæðan sé meðal annars sú
að fyrir fyrirtæki hér á landi sé minni
tilkynningaskylda en fyrir bandarísk
fyrirtæki.
Gylfi Ambjömsson, framkvæmda-
stjóri EFA, ræddi um erlendar fram-
taksfjárfestingar félagsins og sagði
þær hafa verið jákvæðar þó innlausn
eftir verkefnin sé að vísu eftir og því
ekki hægt að segja endanlega til um
niðurstöðuna. Hann sagði frekari
sókn EFA erlendis í skoðun og að
reynt yrði að beina sjónum að þeim
fyrirtækjum þar sem reynsla og
þekking EFA gæti nýst sérstaklega.
Þú þarft á henni að halda
Lítilen risavaxin!
Margverðlaunaðar handtölvur, tilbúnar til
nokunar beint úr kassanum. (slenskt
lyklaborð, breiður og góður skjár. Frábær
samskipta- og úrvinnslutölva fyrir
nemendur, skrifstofufólk og alla sem eru á
ferðinni.
Þessir aðitar s olja
Psion handtölvun
ACO
Árvirkinn, Selfossi
Fríhöfnin
Gagnabanki Islands
Hátækni
Hugver
Kaliber, Krínglunni
Penninn - Skrífstofuvömr
Smith & Noríand
Tai
Tæknival
KLI
www.kllkk.ls
Sími: 57 57 404