Morgunblaðið - 12.12.2000, Síða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Siv Friðleifsdóttir ánægð með takmörk-
un og bann við losun þrávirkra efna
Efnin mesta
ógnunin við um-
hverfí hafsins
FULLTRÚAR 122 þjóða náðu sam-
komulagi um samning um takmörk-
un og bann við losun á þrávirkum
og lífrænum efnum á ráðstefnu í Jó-
hannesarborg í Suður-Afríku um
helgina. Siv Friðleifsdóttir um-
hverfisráðherra fagnar niðurstöðu
fundarins og segir að hún sé mjög
ánægjuleg fyrir íslendinga og í
raun umheiminn allan enda sé um
að ræða sérlega mikilvægt skref
sem snýr að umhverfismálum og
heilsu mannfólks og dýralífs.
Þessi þrávirku lífrænu efni koma
að verulegu leyti frá suðurhluta
jarðar en talsvert er notað af þeim í
þróunarríkjunum. Um er að ræða
átta tegundir af skordýraeitri, tvö
iðnaðarefni og tvö efni sem mynd-
ast við brennslu, en annað þeirra er
díoxín. Efnin fara upp í lofthjúpinn
með uppgufun og þeim rignir svo
niður en þannig færast þau stöðugt
norðar og safnast upp á norðlægum
slóðum. Þau eru fítuleysanleg og
hafa t.d. fundist í ísbjörnum, selum,
hvölum og fólki.
Siv segir að þar sem efnin séu
mjög skaðleg sé mjög brýnt að tak-
marka notkun þeirra en ríkari þjóð-
ir þurfí að leggja til fjárframlög til
þróunarríkjanna svo þau geti skipt
yfir í vistvænni efni. „Þessi efni,
sem þarna náðist samkomulag um,
eru mesta ógnunin við umhverfi
hafsins og fyrir okkur sem erum
svo háð sjávarútvegi og erum á
norðlægum slóðum þar sem efnin
safnast upp er það einstaklega
ánægjulegt að það skuli hafa tekist
að ná samkomulagi á alþjóða vett-
vangi um að takmarka og banna
þessi efni.“
Siv segir að íslendingar hafí átt
frumkvæði að því að taka málið á
dagskrá á Ríó-ráðstefnunni 1992.
1995 hafi síðan verið haldin alþjóð-
leg ráðstefna hér á landi og hafi hún
verið byrjunin á samningaferlinu
sem lauk í Jóhannesarborg með
samningnum um helgina, en Davíð
Egilsson hjá Hollustuvernd ríkisins
var fulltrúi Islands á ráðstefnunni.
í vor hefst undirritunarferli og
síðan verður farið í að fullgilda
samninginn en hann tekur gildi
þegar ákveðinn fjöldi ríkjanna hef-
ur fullgilt samninginn. Þetta ferli
getur tekið nokkur ár, jafnvel fjög-
ur til fimm ár, að sögn Kanada-
mannsins Johns Buccinis, sem var
ráðstefnustjóri í Jóhannesarborg.
Vitni í réttarhöldunum yfír Estrada
Filippseyjaforseta
Námsmenn í Manila kröfðust þess í gær að Estrada segði af sér sem for-
seti og þeir beina líka spjótum sínum að syni hans, Jinggoy, borg-
arstjóra í San Juan. Er hann sakaður um spillingu. Á spjaldi með mynd
af þeim feðgum segir að sjaldan falli eplið langt frá eikinni.
Kom með mútuféð
í forsetahöllina
Manila. Reuters, AFP.
VITNI í réttarhöldunum yfir Joseph
Estrada, forseta Filippseyja, sagði í
gær, að það hefði einu sinni komið
með poka fullan af peningum í for-
setahöllina og afhent hann ritara for-
setans. Estrada neitaði í gær harð-
lega fréttum frá Þýskalandi um að
hann hefði stungið í eigin vasa
hundruðum milljóna ísl. kr., sem
greiddar hefðu verið í lausnargjald
fyrir gísla, sem íslamskir uppreisn-
armenn höfðu í haldi.
Emma Lim, sem bar vitni fyrir
öldungadeildinni, er starfsmaður
Luis Singson héraðsstjóra en hann
varð fyrstur til þess í október sl. að
saka Estrada um að hafa þegið mikið
fé frá ólöglegum spilavítum á Fil-
ippseyjum. Kvaðst Lim hafa komið í
forsetahöllina með fullan peninga-
poka, um 8,7 millj. ísl. kr., og gert
það að fyrirskipan húsbónda síns,
Singson héraðsstjóra. Sagði hún, að
það hefði verið hluti af sínu starfi hjá
Singson að safna saman mútufé fyrir
Estrada.
Helsti lögfræðingur forsetans,
Estelito Mendoza, gerði harða hríð
að Lim en hún hvikaði hvergi frá
framburði sínum. Þegar hann spurði
hana hvort hún hefði ekki gert sér
grein fyrir því, að það væri ólöglegt
að taka við mútufé frá ólöglegum
veðmálafyrirtækjum, svaraði hún:
„Jú og ég var dauðhrædd. En hvað
átti ég að gera? Þetta var allt á veg-
um forsetans.“ Hlógu þá margir
þingmenn.
Lausnargjald til forsetans?
Þýska tímaritið Der Spiegel held-
ur því fram, að Estrada forseti og
Roberto Aventajado, samningamað-
ur hans, hafi stungið í eigin vasa
hundruðum milljóna króna af lausn-
arfé, sem greitt var fyrir vestræna
gísla í höndum íslamskra uppreisn-
armanna á Filippseyjum. Segir tíma-
ritið, að þýska leyniþjónustan hafi
komist að þessu með því að hlera
samtöl milli Aventajado og mann-
ræningjanna. Af rúmlega 1.700 millj-
ónum ísl. kr. hafi Estrada hirt 40%
og Aventajado 10%.
Estrada og Aventajado neita
þessu harðlega og hafa hótað mál-
sókn á hendur Der Spiegel. Hefur
skrifstofustjóri Estrada, Ronaldo
Zamora, sent tvo lögreglumenn til
Þýskalands til þess að kynna sér
upptökumar og segir hann, að á
þeim sé ekkert, sem gefi þetta í skyn.
Landsbankinn styrkir
átta menningarverkefni
geisladiskum Brandenborgarkons- I
erta Bachs sem sveitin flutti í tilefni j
af 25 ára starfsmæli sínu.
Papeyjarferðir fengu 200.000 kr.
styrk til viðhalds á Papeyjarkirkju.
Skáksamband Islands fékk
200.000 kr. styrk vegna Landsmóts-
ins í skólaskák sem haldið verður í
maí nk.
Héraðskjalasafn Austfirðinga
fékk 150.000 kr. styrk til að gefa út
Sókna- og sýslulýsingar úr Múla-
sýslum."
Nerðijarðarkirkja fékk 100.000 j
kr. styrk i orgelsjóð kirkjunnar
MENNINGARSJÓÐUR Lands-
banka íslands hf. hefur veitt styrki
til átta verkefna.
Þeir sem hlutu styrk að þessu
sinni eru:
Gamla Apótekið á Isafirði fékk
350.000 kr. styrk til reksturs menn-
ingarhúss fyrir fólk á aldrinum 16-
20 ára. Ahugafólk um vímuefnafor-
vamir og bætta unglingamenningu
hefur unnið að því undanfarið að
koma upp aðstöðu fyrir fólk á þess-
um aldri þar sem það getur komið
saman og sinnt áhugamálum sínum
án áfengis- og vímuefna.
Lionsdeild Reykhólahrepps fékk
270.000 kr. styrk til kaupa á tækjum
fyrir vistheimilið Barmahlíð í Reyk-
hólahreppi. Heimilið gerir öldmðum
heimamönnum það mögulegt að
dvelja í heimabyggð.
Collegium Musicum fékk 250.000
kr. styrk til að rannsaka kveðskap,
nótur og lagboða sem finnast í hand-
ritasöfnum Jóns Sigurðssonar, for-
seta. Útsetja á og frumflytja úrval
þess sem finnst í þeim söfnum og
kynna niðurstöður rannsóknanna.
Kammersveit Reykjavíkur fékk
200.000 kr. styrk til að gefa út á
Nýjar bækur
• ÚT er komin bókin Ellefu í efra -
minningar úr Þjóðleikhúsi eftir
Svein Einarsson. Bókin fjallar um
það ellefu ára tímabil er Sveinn var
Þjóðleikhússtjóri,
árin 1972-1983.
í fréttatilkynn-
ingu segir: „Leik-
listarlíf á Islandi
er skoðað á gagn-
rýninn hátt og
metið í sam-
anburði við það
sem hefur verið
að gerast í ná-
grannalöndunum.
í bókinni er fjallað um þá listamenn
sem störfuðu við Þjóðleikhúsið á
þessum árum, rakin saga og tilurð
margra leikverka, auk annarra at-
vika sem ofarlega urðu á baugi í
þjóðfélaginu.
Auk þess að hafa verið leik-
hússtjóri, fyrst hjá Leikfélagi
Reykjavíkur og síðar hjá Þjóðleik-
húsinu, hefur Sveinn Einarsson leik-
stýrt fjölda leiksýninga og ópera
bæði hérlendis og erlendis. Einnig
hefur hann stjómað leikritum í sjón-
varpi og útvarpi. Sveinn hefur að
auki skrifað mörg leikrit og sent frá
sér margar bækur, bæði fræðibækur
og skáldsögur."
Útgefandi er Ormstunga. Bókin
er337 bls. og unnin íprentsmiðjunni
Steinholti og bókbandsstofunni Flat-
ey. Leiðbeinandi verð: 4.590 krónur.
-----------------
y<ffí-2000
12. desember
Sveinn
Einarsson
HÁSKÓLABfÓ
Hvítlr hvalir - kvikmyndir Friðriks
Þórs í 25 ár
17:00 Bíódagar-90 mín., 1994.
19:00 Á köldum klaka-87 mín.,
1995.
21:00 On Top/ Skytturnar - 80 mín.,
1987.
23:00 Kúrekar norðursins - 82 mín.,
1984.
Sigurður Hall-
marsson sýnir
í Safnahúsinu
Húsavfli. Morgunblaðið.
SIGURÐUR Hallmarsson opnaði
myndlistasýningu í Safnahúsinu á
Húsavík nýlega, þar sýnir hann
þrjátíu og fimm vatnslitamyndir
málaðar á þessu ári. Vel var mætt
á opnun sýningarinnar, gestir voru
ánægðir með það sem fyrir augum
bar en þarna má m.a sjá lands-
lagsmyndir viða af á landinu.
Sigurður var í ársbyrjun til-
nefndur bæjarlistamaður Húsavík-
ur árið 2000, þetta er í fyrsta sinn
sem staðið er að slíkri tilnefningu
á vegum Húsavíkurbæjar. Sigurð-
ur er vel að þessum titli kominn,
hann er sannkallaður fjöllistamað-
ur því auk þess að vera listmálari
þá er hann leikstjóri, leikari,
harmonikkuleikari og örugglega
eitthvað meira.
Bæjarlistamaðurinn Sigurður
hefur ekki setið auðum höndum
undanfarið, stutt er síðan Leik-
félag Húsavíkur frumsýndi óper-
ettuna Frk. Nitouche í leikstjórn
Sigurðar.
Bæjarlistamaður Húsavíkur árið 2000
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Sigurður Hallmarsson við mynd sína af Dóra pósti.