Morgunblaðið - 12.12.2000, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000 37
LISTIR
TQ]\LIST
Glerárkirkja
JÓLATÓNLEIKAR SIN-
FÓNÍUHLJÓMS VEITAR
NORÐURLANDS
Sinfdníuhljómsveit Norðurlands.
Verk eftir: Corelli, Jórunni Viðar
og Robert Kabilow, ásamt útsetn-
ingum hljómsveitarstjórans, Guð-
mundar Óla Gunnarssonar á fjórum
alþekktum jóla- og aðventu-
söngvum fyrir hljómsveit og barna-
kór. Einsöngvari Ólafur Kjartan
Sigurðsson. Bai'nakór Glerárkirkju
og Stúlknakór Húsavíkur/ Skóla-
kórar Borgarhólsskóla, stúlkur úr
kór MA og söngdeild Tónlistarskól-
ans á Akureyri.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT
Norðurlands lék á tvennum tónleik-
um um helgina. Var það efnisskrá nr.
2 á áttunda starfsári hljómsveitarinn-
ar. Efnisskráin var bundin jólum og
aðventu, og heitið jólatónleikar í sam-
ræmi við það, en heitið aðventutón-
leikar hefði mér þótt hæfa betur.
Fyrri tónleikar hyómsveitarinnar
fóru fram í Glerárkirkju á laugar-
dagskvöld, en þeir seinni á Húsavík á
sal Borgarhólsskóla kl. 16 daginn eft-
ir, en það eru tónleikamir á Akureyri
sem þessi gagnrýni fjallar um.
A efnisskrá tónleikanna voru verk
eftir: Corelli, Jórunni Viðar og Ro-
bert Kabilow, ásamt útsetningum
hljómsveitarstjórans Guðmundar
Óla Gunnarssonar á fjórum alþekkt-
um jóla- og aðventusöngvum fyrir
hljómsveit og bamakór.
Hljómsveitin var skipuð sautján
strokhljóðfæraleikumm og níu blás-
umm, auk eins páku/slagverksleik-
ara og píanóleikara. Konsertmeistari
var Jaan Alavere, en einsöngvari í jó-
laævintýrinu Heimskautahraðlestin
eftir Bandaríkjamanninn Robert
Karilow var Ólafur Kjartan Sigurðs-
son, baritón.
Söngsveit
Hveragerðis
heldur jóla-
tónleika
JÓLATÓNLEIKAR Söngsveitar
Hveragerðis verða haldnir í Hvera-
gerðiskirkju í kvöld, þriðjudags-
kvöld, kl. 20.30.
Kórinn mun syngja jólalög undir
stjórn Mai'grétar Stefánsdóttur.
Einnig syngur bamakór Gmnnskóla
Hveragerðis og fram koma ungir
hljóðfæraleikarar úr Tónlistarskóla
Ái-nesinga. Einnig verður einsöngur
ogtvísöngur.
í Söngsveit Hveragerðis em nú
tæplega 50 félagar. Á þessu ári hefur
starf sveitai'innar verið öflugt og
hefur hún sungið víða, bæði ein og í
samstarfi við aðra kóra. Kórstjóri er
Margrét Stefánsdóttir.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur, 500
krónur fyrir ellilífeyrisþega og
ókeypis fyrir börn yngri en 12 ára.
---------------------
Nýjar plötur
• ÚT er komin geislaplatan Krists
konungs hátíð í Rristskirkju,
Landakoti. Uppistaða plötunnar er
verk eftir dr. Victor Urbancic:
„Messa til heiðurs Drottni vomm
Jesú Kristi konungi". Inn í verkið
em felldir hefðbundnir þættir hinn-
ar kaþólsku messu með gregorsöng.
Dr. Urbancic var kórstjóri og org-
elleikari við Kristskirkju í Landa-
koti frá 1938 til dauðadags 1958.
Þessi messa er ein þekktasta tón-
smíð hans, tileinkuð Kristskirkju og
ætluð til flutnings við hátíðarmessur
í kirkjunni.
Stjórnandi er Úlrik Ólason, og
leikur hann einnig á nýuppgert orgel
kirkjunnar kóral nr. 3 í a-moll eftir
César Frank.
Upptökustjórí var Halldór Vík-
ingsson. Að útgáíunni standa org-
elsjóður Krístskirkju ogFermata
hljóðritun, en Japis dreifir. Verð:
2J.99krónur.
Sinfómuhljómsveit Norð-
urlands færir jólin nær
Ljðsmynd/Bjami Eiríksson/Myndrún
Stjórnandinn, Guðmundur Óli Gunnarsson, ásamt kór og tónlistarfólki.
Alls tóku fimm skólakórar þátt í
flutningnum.
Fyrst lék strengjadeild hljómveit-
arinnar Jólakonsertinn eftú Corelli,
hinn rómaða ítalska fiðlusnilling frá
17. öldinni, sem er einn helsti faðir
nútíma fiðlutækni á þá nýju gerð fiðl-
unnar sem ráðandi varð upp frá því.
Flutningur þessa síunga verks fór vel
af stað, hrein spilamennska og hraða-
val gott. Leiðandi hlutur og einleikur
konsertmeistarans var ekki nógu af-
gerandi og ekki nógu litríkur. Þessi
galli hafði slævandi áhrif á flutning-
inn í heild. Einnig fannst mér skorta í
hraðari köflum á dillandi hljóðfall og
markaðri áherslur. í lokin hefði hinn
þrískipti hjarðljóðstaktur þurft að
vera meira dansandi. Sá jólafögnuður
sem verkið ber í sér varð minni en
efni stóðu til. En verkið hljómaði
tært og hreint utan smámisræmis
milli kontrabassa og sellóa í loka-
þætti. Fallegt en ekki nógu tilþrifa-
mikið að mínu mati. Næsti hluti tón-
leikanna nefnist jólalög með
bamakór og var samansettur af fjór-
um útsetningum Guðmundar Óla á
þekktum jóla- og aðventulögum
ásamt verki eftir Jórunni Viðar, Jól
fyrir kór og hljómsveit, við samnefnt
Ijóð Stefáns frá Hvítadal. Þessi lög
voru einnig flutt á jólatónleikum
hljómsveitarinnar fyrir ári. Nú var
hátt í hundrað manna bama- og ung-
lingakór mættur til liðs við hljóm-
sveitina. Þetta unga söngfólk kom úr
fjórum kórum sem voru: Bamakór
Glerárkirkju, sem Bjöm Þórarinsson
stjómai' og Stúlknakór Húsavíkur,
sem Hólmfríðui- Benediktsdóttir
stjómar.
Einnig tveir skólakórar Borgar-
hólsskóla á Húsavík, sem Line Wem-
er stjómar. Útsetningar Guðmundar
Óla á lögunum: Hátíð fer að höndum
ein, Á jólunum er gleði og gaman,
Skreytum hús, Þá nýfæddur Jesú og
Það á að gefa bömum brauð em bæði
skemmtilegar og kunnáttusamlega
gerðar. Þær hafa þann stóra kost að
fallegar raddir bama og unglinga
njóta sín til fullnustu og séreiginleik-
ar hljóðfæranna fá að lita útsetningar
með áhrifamiklum hætti.
Sterkum áhrifum náði útsetningin
á laginu Þá nýfæddur Jesú með fal-
legum fagott og sellósamleik í upp-
hafi og endi. Einnig var nýr búningur
hans á lagi Jórunnar Viðar á þulunni
Það á að gefa bömum brauð alveg
bráðskemmtilegur. Eflaust væri
gaman fyrir áheyrendur að fá að taka
undir í söng á þessum vinsælu lögum.
Krakkamir hafa fallegar og tærar
raddir og skiluðu sínu hlutverki með
prýði. Þó skorti stundum á að söng-
gleðin skilaði sér nægilega til áheyr-
enda. Svo hefði þurft að leggja meiri
áherslu á framsögn orða sem enda á
samhljóða eins og „manns“ eða „þér“
því oft voru samhljóðamir ekki
greinanlegir. Verk Jórunnar Viðar
var svo flutt síðast fyrir hlé. Jórunn
samdi verkið við samnefnt ljóð Stef-
áns frá Hvítadal. Mér finnst þetta
verk frekar dauft og auka á ofurang-
urværð ljóðsins, en flutningur tókst
vel, spuming hvort verkið hefði þurft
að ganga eilítið hraðar. Að loknu hléi
kom svo „Heimskautahraðlestin"
brunandi á leið sinni á Norðurpólinn.
Tónverkið með þessu heiti er samið
við jólasögu eftir Chris van Allsburg
og tónskáldið er Bandaríkjamaður-
inn Robert Kabilow. Sagan var flutt
af baritónsöngvara og stúlknakór, og
hljómsveitin undirstrikar atbui’ða-
rásina með litríkri og fjölbreyttri tón-
list. Ólafur Kjartan Sigurðsson, bari-
tón var einsöngvari og sögumaður.
Einnig sungu stúlkur úr Kór MA og
Söngdeildar Tónlistarskólans á Ak-
ureyri söguna, en Rósa Kristín Bald-
ursdóttir annaðist þjálfun og æfingu
þeirra. Haft er eftir höfundi sögunn-
ar eftúfarandi í efnisskrá: „Bækur
byrja sem myndir í höfði mér.“
Enda þótt íslensk þýðing Hjörleifs
Hjartarsonar sé vafalítið góð, þá
fannst mér að flutningur verksins í
heild ekki skila nægilega skýrum
myndum til mín. Þama hefði texti í
efnisskrá eða myndh' á tjaldi styrkt
heildaráhrif verksins. Robert Kap-
ilow semur mjög kunnáttusamlega
og er mikill „orkestermaður". Hann
fléttar inn í verkið tilvitnunum í ýmis
jólalög svo sem: Hin fyrstu jól, Jingle
Bell, Skreytið hús, og beitir býsna
spennandi breytingum í hljóðfalli og
hrynjandi. Helst finnst mér skorta á
að einsöngvarinn fái svo sem eitt heil-
stætt lag eða aríu til að spreyta sig á.
Ólafur Kjartan er tvímælalaust
einn af okkar bestu baritónsöngvur-
um, með þróttmikla, fallega og vel
þjálfaða rödd. Hann er líka mikill
sviðsmaður og sterkur túlkandi. Á
efstu tónum missti þó röddin örlítinn
hljóm og getur það hafa verið tilfall-
andi. Stúlknakórinn stóð sig með
mikilli prýði og var öryggið uppmál-
að.
Mikill fjöldi áheyrenda minnti enn
og aftur á að verðugs tónleikasals er
þörf á Akureyri, enda þegar komin
fram loforð þar um. Auk ríkis og Ak-
ureyrarbæjar styrktu aðrir aðilar
tónleikana og vil ég þar sérstaklega
nefna Húsavíkurkaupstað og Minn-
ingarsjóð um Jóhann Konráðson,
sem greiddi kostnað vegna einsöngv-
ara. Guðmundur Óli stjómaði þess-
um tónleikum af mikilli prýði og hlaut
hann ásamt öðrum flytjendum ákaft
lófaklapp í lokin.
Hátfð fer að höndum nær með slík-
um tónleikum.
Jón Hlöðver Áskelsson
ÚTSALA - ÚTSALA
40% afsláttur
Hefst í dag
Gerið góð kaup fyrir jólin
Dæmi um verð Áður Nú
Jakkapeysa 3.700 2.200
Mohairpeysa 4.700 2.800
Heklaður bolur 3.200 1.900
Sett toppur/tunika 4.500 2.700
Netbolur m/hettu 3.200 1.900
Slinkysett 5.900 3.500
Spencerkjóll 3.800 2.300
Sítt pils 2.900 1.700
Dömubuxur 4.700 2.800
Herrapeysa 3.900 2.300
Herraskyrta 3.300 1.900
Herrabuxur 4.900 2.900
Síðumúla 13, sími 568 2870, 108 Reykjavík.