Morgunblaðið - 12.12.2000, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 12.12.2000, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000 39 LISTIR Að laða fram trúarlega íhugun TðNLIST llatlgrímskirkja JÓLATÓNLEIKAR Mótettukór Hallgrímskirkju og Schola cantorum fluttu jólasöngva og mótettur eftir Part, Poulenc, Kverno, Rutter, Howells, Praet- orius og tvær raddsetningar eftir Jón Hlöðver Áskelsson. Stjórnandi var Hörður Áskelsson. Sunnudag- inn 10. desember. ÞEGAR líður að jólum og við upp- haf aðventunnar taka menn til hendi með ýmsum hætti og jólaundirbún- ingurinn er oftast tími mikilla um- svifa, jafnvel langt umfram það sem sjálf jólahátíðin er. Á sviði tónlistar er tónleikahald mjög viðamikið og um sl. helgi voru þrennir stórtónleikar, sem verða auk þess tví- og þríendurteknir í vikunni. Jólatónleikar Mótettukórs Hall- grímskirkju og Schola cantorum, undir stjóm Harðar Áskelssonar, voru haldnir sl. sunnudag í Hall- grímskirkju og hófust á gregoríönsku Magnificat og síðan var flutt við sama texta verk eftir Arvo Párt, undur- hljómfallegt en frekar viðburða- snautt verk. Þessi einfaldleiki í tón- ferli er stílbragð Párts og var ráðandi hinn sérkennilegi undirtónn kyrrðar í sjö „Magnificat“-víxlsöngvum, sem voru einstaklega vel fluttir. Þessi tón- hst býr yfir sterkri trúarstemmningu og á eftir flutti Schola cantorum fjór- ar smámótettur eftii- Poulenc, sér- lega fallega hljómandi og ómblíðar í tónskipan, sem voru afburða vel flutt- ar. Ave maris stella eftir Trond Kvemo var næst á efnisskránni. Verkið er lagrænt og í byrjun blítt en er reist upp í töluverðan styrk og tón- ræn átök um miðbikið og endar svo á fallegum „amen“-þætti, sem unninn er úr upphafsstefinu, og var þetta verk stórkostlegt í raddhljóman kórsins. íslenska sálmalagið Imm- anúel oss í nátt, í fallegri raddsetn- ingu eftir Jón Hlöðver Askelsson, var notað sem útgöngustef, við þrástefj- aðan spunasöng á orðinu Immanúel og hggjandi samhljóman, sem víðóm- aði um alla kirkjuna. Frammi í and- dyri kirkjunnar var sálmurinn sung- inn aftur en dó síðan út, eins og í óendanlegri fjarlægð væri. Segja má, að með hinum gamla sálmi, Immanúel oss í nátt, hafi hin- um katólska hluta tónleikanna lokið en við tók þá enduróman úr ensku biskupakirkjunni, með útsetningu eftir John Rutter á sálminum Quem pastores, sem kórai’nir víxlsungu glæsilega. Þar á eftir voru þrjár fal- legar jólamótettur eftir Herbert Howells, sem Schola cantorum flutti mjög vel, og í miðlaginu, Ein flekk- laus rós, var Om Amarson einsöngv- ari og söng sína strófu af þokka. Praetoríus var fulltrúi hinnai- lút- ersku kirkju, en eitt merkilegasta framlag hennar til þróunar tónhstar var „kórallinn" og í raddfærslu lút- ersku sálmanna var Praetoríus ein- stakur meistari, eins og heyra mátti í þeim fagra sálmi Hin fegursta rósin er fundin. Sálmurinn Oss bam er fætt í Betlehem er einstakur í sinni röð hvað snertir fegurð í raddfærslu og hljómskipan. Sá sálmur sem er einna frægastur er Það aldin út er sprungið og síðasti sálmurinn í út- færslu Praetoríusar var í dag er fæddur frelsarinn. Þessi hluti tón- leikanna var áhrifaríkastur, fyrir sér- lega fagran söng kóranna, sem era einstaklega vel mannaðir og þjálfaðir og var söngur þeirra einnig gæddur sterkri trúartilfinningu, sem Hörður Áskelsson er snillingur í að laða fram hjá sínu söngfólki, og náði hámarki með útgöngu kórsins, meðan sungin var útsetning eftir Jón Hlöðver Ás- kelsson á hinu foma viðlagi Hátíð fer að höndum ein, ásamt fjórum versum eftir Jóhannes úr Kötlum, svo að í kirkjunni ríkti sannkölluð andakt. Báðir kórarnir, Mótettukór Hall- grímskirkju og Schola cantoram, syngja frábærlega vel og það sem meira er, að Herði tekst að móta sönginn með þeim hætti, að tónhstin umbreytist í trúarlega íhugun, nokk- uð sem fáum er gefið að geta laðað fram hjá söngfólki sínu. Jón Ásgeirsson Nýjar bækur • UT er komin bókin Ferð um fs- land 1809 eftir William Jackson Hooker. I fréttatilkynningu segir m.a.: „Þetta er sennilega með merkari ferðabókum um Island, en hefur ekki verið gefin út á íslensku fyrr en nú. Hugsanlega vegna þess að nátt- úrafræðin er dálítið ítarleg í bókinni og þvi hefur þurft nokkra „ritstjórn" við útgáfuna. Þann hluta hefur Arn- grímur Thorlacius séð um og þýtt auk þess bókina. Það dregur ekki úr gildi frásagnarinnar fyrir hinn al- menna lesanda að meðal ferðafélaga Hookers til íslands var Jörundur hundadagakonungur. Hooker lýsir Jörandi þannig að miklu nær er að telja manninn snilling en fífl, eins og sagan hefur brennimerkt hann.“ Útgefandi er Fósturmold ehf. Leiðbeinandi verð: 3.980 krónur. mbl.is Hundrað ár frá dánar- dægri Verdis SÖNGKONAN Barbara Frittoli syngur hér hlutverk Leónóru í óp- erunni 11 Trovatore eftir Giuseppe Verdi, sem þessa dagana er flutt í Scala ópcruhúsinu í Mílanó. II Trovatore var að þessu sinni valið sem upphafsverk leikársins í Mflanó, en hundrað ár eru nú liðin frá því að tónskáldið Verdi lést. Veður og færð á Netinu vg> mbl.is _/\LLT/\/= etTTH\&\£) NÝTT Jólastemmning í Míru 20% afsláttur af öiium borðstofusettum og sófaborðum til jóla. 30% afsláttur af postulíni og glösum Bæjarlind 6, sími 554 6300 www.mira.is Nýjar bækur • ÚT er komin bókin Velferð og viðskipti. Bókin er sú fyrsta í fyr- irhugaðri ritröð Hagfræðistofnunar Háskóla Islands. I þessari fyrstu haustskýrslu Hagfræðistofnunar era settar fram nokkrar helstu kenningar hagfræð- innar um eðli og orsakir við- skiptahalla og þær skoðaðar í ljósi íslenskra aðstæðna. Færð era rök fyrir því að jöfnuður á viðskiptum við útlönd eigi ekki að vera jafn mikilvægt markmið stjórnvalda og efling hagvaxtar, lítið atvinnuleysi og stöðuglágverðbólga. Þessum þremur markmiðum hagstjórnar eigi að skipa í öndvegi, þótt einnig sé tekið tillit til viðskiptajafnaðar. Halli á viðskiptum við útlönd ger- ir þjóðum kleift að fjármagna arð- bæra fjárfestingu og neyslu með er- lendum lántökum og að bæta þannig lífskjör sín til langs tíma lit- ið. Hins vegar getur mikill við- skiptahalh stefnt stöðugleika fjár- málakerfisins í hættu. Við slíkar aðstæður, samfara frjálsum fjár- magnsflutningum og aðhaldssamri stjórn peningamála, eykst geng- isáhætta og útlánaáhætta fjár- málastofnana. Eftirlit stjómvalda með fjármálakerfinu verður af þess- um sökum að vera sérstaklega öfl- ugt, auk þess sem viðbrögð við versnandi eiginfjárstöðu fjármála- stofnana þurfa að vera vel ígrunduð. Útgefandi er Háskólaútgáfan. Verð: kr. 1.290 krónur. L^I^PaWann Cmde^ella BYOUNC, MESSAGE aiuaaicai 83 • Simi 362 3244 Seljum eingöngu smíðaðaf Hansínu og Jens Guðjónssyni Laugaveg 20b v/ Klapparstíg sími 551 8448
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.