Morgunblaðið - 12.12.2000, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Aftur til sakleysisins
Morgimblaðið/Halldór B. Runólfsson
María með ljósa fléttu er eitt af málverkum Kristinar í Haligrímskirkju.
með uppbrettri tá eins og austur-
lenskir ðldungar.
Sannleikurinn í þessum myndum
virðist búa í togstreitunni milli elsku,
sakleysis og óendanlegs skilnings.
Augun og munnsvipurinn eru aðal-
atriðið, gamla trikkið sem kallar
fram ólíka svörun. Augun í per-
sónum Kristínar búa yfír dýpt og
mátulegri alvöru meðan niðurandlit-
ið ljómar af óblendinni sælu. Þannig
verður til sérstæð spenna milli íhygli
og festu tillitsins og augnablikseft-
ii-væntingar glaðbeittra varanna.
Andlitið segir því tvennt í einu,
reyndar eins og mjúk efnistökin sem
vega salt milli löngunar til að bregða
upp nálægð og áþreifanleik, og vilj-
anum til að færa alla frásögnina í
samræmdan búning fjarrænnar
kraftbirtingar líkt og um draumsýn
væri að ræða.
Þannig er Kristín Gunnlaugsdótt-
ir meistari tvíræðrar frásagnar.
Stundum virðast myndir hennar
sakleysið uppmálað, en í annan stað
lýsa þær þekkingu á lyklum leik-
hússins; blekkingunni sem nota má
til að forfæra saklausan áhorfand-
ann. Þannig verður stöðugt skamm-
hlaup milli áhorfandans og myndar-
innar sem á hann starir, ekki ósvipað
riðstraumsbrigðum sem viðhalda
óstöðugu en áköfu sambandi. Hvort
finna má áþreifanlega þær breyting-
ar sem Kristín greinir frá að átt hafi
sér stað í aðferðarfræði hennar og
fjallar um brotthvarf frá huga til
hjarta skal með öllu ósagt látið. Hitt
er víst að sýningin stendur fyllilega
fyrir sínu enda var vart við öðru að
búast.
Halldór Björn Runólfsson
OPIÐTIL
ÖUKVÖLD
Jólaskraut
á ótrúlega
lágu verði
Gepvijólatré 120 sm
MYJVDLIST
Haligrímskirkja
MÁLVERK & ÚTSAUMUR
KRISTÍN GUNNLAUGS-
DÓTTIR & INGIBJÖRG
ÁGÚSTSDÓTTIR
Til 18. febrúar. Opið alla daga frá
kl. 9 til 18.
NÚTÍMINN hefur veðsett ákveð-
in gildi fyrir það sem kallast framfar-
ir.
Um það snýst Faustsminnið hjá
Lessing og Goethe ef að líkum lætur.
Maðurinn selur sálu sína fyrir
hlutdeild í almættinu, eða meiri
þekkingu en hann getur aflað sér
með heiðarlegu móti. Þarna er nú-
tímamaðurinn ljóslifandi mættur,
þyrstur í fróðleik og meiri fróðleik,
sem söguheimspekingurinn Michel
Foucault lagði að jöfnu við valda-
græðgi því ef það þjónaði ekki þeim
illa tilgangi kæmi okkur ekki til hug-
ar að mennta okkur.
Kristín Gunnlaugsdóttir hefur
lengi verið að dufla við miðaldamál-
verkið með áþekku markmiði og lýsti
götu Pre-Rafaelítanna, nefnilega að
telja aftur fyrir daga Rafaels til þess
tíma þegar listin var ómenguð af
sjálfsást listamannsins en bar í stað-
inn vott um fullkomna sjálfsafneitun
hans gagnvart almættinu. Þótt
Kristín hafi valið Flórens til að
stunda framhaldsnám er það miklu
fremur sieníski skólinn sem hún vildi
kveðið hafa. Þaðan er rauði liturinn
hennar trúlega kominn, frá Duccio
eða einhverjum öðrum hálfbýsönsk-
um listamanni með ræturnar í helgi-
myndagerð hins orþódoxa menning-
arheims sem við þekkjum betur sem
íkon.
Hið miðaldalega sakleysi sem
löngum elti listamenn Siena-borgar
og sést svo seint sem á ofanverðri 15.
öld er ekki aðeins tilfinningaþrungið
heldur bjartsýnt eins og tjáning þess
sem enn trúir á samastað í efra.
Þannig er varla hægt að hugsa sér
saklausari, einlægari og fagnaðar-
ríkari endurfundi en þá sem Giov-
anni di Paolo lýsir í paradísarhluta
Dómsdagsmyndar sinnar í Þjóðlist-
arsafninu í Siena.
Eitthvað því líkt lýsir sér í bros-
andi sælusvip allra þeirra sem fundið
hafa sér bólfestu í risastórum tondi,
eða hringmyndum Kristínar.
Reyndar gengur hún merkilega
langt í tilfinningahyggjunni líkt og
hún vildi sannreyna landamæri þess
sem boðlegt er og ofsögum sagt. Það
merkilega gerist þó að eðlisávísunin
tekur af skarið og leiðir allt til lykta
með sannfærandi hætti. Það virðast
vera svipbrigði persóna sem gera
gæfumuninn og undarlega sérstætt
útlit þeirra. Hverjir skyldu til dæmis
vera þessir öldungar sem sumpart
minna á jólasveina og stundum á
vitringa? Stundum eru þeir í skóm
M
METRO
Skeifan 7 • Sfmi 525 0800
AIGNER
POUfl HOMME
\i3 'if F
Yfirburöir á nýrri öld
Heildsölubirgðir: ísflex s:588 4444
tí 8 t
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000 43