Morgunblaðið - 12.12.2000, Page 52
)2 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ
Gægst
fyrir horn
Við höfum séð sjö þúsund myndir af
Skakka turninum íPísa ogþvíkemur
hann ekki á óvart þegar hann loksins
blasir við. Sama gildir um Herðubreið,
hún hangir alls staðar á veggjum.
/
Eg held að það hljóti
að hafa verið spenn-
andi. Einu sinni.
Líflð. í það minnsta
dramatískara. En
ekki lengur. Því miður. Við höfum
flatt það út með kefli. Eins og
smákökudeig. Engar stríðstertur
lengur. Bara smákökur sem hefa
sig ekki einu sinni almennilega.
Afsakið. Kannski er óþarfi að
hefja svona stuttan pistil á lík-
ingamáli, en ég bara varð. Það eru
allir svo vanir því að fá allt beint í
æð að mér þótti við hæfi - í pistli
sem fjallar einmitt um að fá allt
beint í æð - að villa dálítið um í
byrjun. Þessi pistill er um það
hvemig dulúð og óvissa hafa verið
brotin á bak aftur í nútímaþjóð-
félagiogal-
VIÐHORF
Eftir
Sigurbjörgu
Þrastardóttur
gleymi upp-
lýsinganna
tekið við (og
nú hef ég svipt
hulunni af efni
pistilsins því ég veit að lesendur
hafa litla biðlund). Allir þurfa að
fá að vita allt fyrirfram og ekkert
má bíða síns tíma. Hafa sinn tíma.
Koma þegar stundin kemur.
Með síaukinni tækni er þetta
hægt - að gægjast fyrir hom - og
þess njótum við nú út í ystu æsar.
Fjölmiðlamir eru eitt dæmi og
nokkuð áberandi. Þar gerist ekk-
ert nema frá því hafi verið sagt
áður; fréttirnar byrja á for-
smekknum, í fréttum verður þetta
helst... og svo eru flutt brot úr
fréttunum sem koma í héilu lagi
stuttu síðar. Aidrei í heilu lagi
strax. Framhaldsþséttir enda á
því að sýnd em atriði úr þætti
næstu viku. Bíómyndir í sjón-
varpi, kvikmyndahúsum og á
myndböndum eru helst ekki sýnd-
ar eða leigðar út nema tryggt sé
að áhorfendur viti allan söguþráð-
inn íyrirfram. I því skyni fylgir
prentuð söguflétta á umslaginu,
þráðurinn er rakinn af kynning-
arrödd og ef ekki vill betur til eru
dramatískustu atriði mynd-
arinnar sýnd í réttri röð.
Ekki er heldur nóg með að veð-
urspár séu nú gefnar út marga
daga fram í tímann, jafnvel vikur,
heldur em eldgos nú líka fyrirséð
eins og sannaðist á árinu. „Heklu-
gos mun hefjast í dag klukkan
sjö,“ sögðu fréttamennimir sem
höfðu það eftir vísindamönnunum
og allir hlupu út í glugga. Einu
sinni tóku fjöll að gjósa fyr-
irvaralaust, einmunablíða sem
varði lengi varð öllum til óvæntr-
ar gleði og jólasnjórinn féll þegar
minnst varði. Nú gerist ekki neitt
óvænt. Ekki einu sinni í nátt-
úmnni.
Sama gildir um barnsfæðingar.
Stærsta spurning foreldra eftir
fæðingu, á eftir spurningunni um
heilbrigði barnsins, hefur löngum
snúist um kyn barnsins. „Það er
drengur/stúika," sögðu ljósmæð-
umar og það augnablik varðveitt-
ist upp frá því í minningunni sem
einstök uppljómun. Nú geta til-
vonandi foreldrar vitað snemma
hvort kynið er á leiðinni og þannig
hverfur spennan sem snýr að
þessari hlið meðgöngunnar. Til
þess að skemma svo spennu ætt-
ingjanna um nafn á barninu nefna
foreldramir barnið strax svo eng-
inn nái að taka andköf af undrun
við sjálfa skírnarathöfnina.
Þá eru það símamir. Símhring-
ing sendi í eina tíð vægan titring
niður eftir hryggjarsúlum heima-
fólks í því húsi sem síminn stóð
(eða hékk, eftir því hvað við fömm
langt aftur). Er þetta hann sem
ég elska, er þetta hún sem ég dái,
er þetta maðurinn í happdrætt-
inu, era þetta ættingjarnir í út-
löndum...? Hver skyldi vera á lín-
unni? Nú svarar númerabirtirinn
spurningunni samstundis og þar
með skilar titringurinn sér aldrei
inn á línuna. Sá sem svarar hefur
tækifæri til þess að undirbúa tón-
tegund og upphafsorð) til sam-
ræmis við tengsl hans við þann
sem hringir. Ekkert mannlegt fát
eða fum, engar upphrópanir eða
gleðitíst. Allt marflatt. Ekkert
lyftiduft og enginn ijómi.
En ef eitthvað hefur virkilega
komið forfeðram okkar á óvart á
vegferð þeirra í veröldinni vom
það ekki eldgos, óveður eða kyn-
ferði nýbura, ásamt símhringj-
endum, þegar tilheyrandi tækni
kom til sögunnar. Það sem oftast
og flestum kom á óvart vora stað-
hættir í öðram löndum. Á nýjum
stöðum. Fólk var gjaman að
ferðast á einhverja staði sem það
hafði aldrei komið til og and-
artökin þegar nýr dalur opnaðist,
ókunnugt land reis úr hafi eða
fögur höll blasti við urðu ógleym-
anleg þar til yfir lauk. Nýir staðir
höfðu yfir sér dulmagn og fram-
andleika og drógu að sér víkinga,
landkönnuði eða innflytjendur
(eftir því hvað farið er langt aft-
ur), forvitna og sperinta. Þeir upp-
götvuðu og upplifðu í bókstaflegri
merkingu. Nú er hins vegar öldin
önnur. Nú kemur ekkert lengur á
óvart í ferðalögum innan lands og
utan því við höfum séð allt áður.
Við höfum séð sjö þúsund myndir
af Skakka tuminum í Písa og því
kemur hann okkur ekki á óvart
þegar hann loksins blasir við.
Sama gildir um Herðubreið, hún
hangir alls staðar á veggjum. Við
höfum líka horft á ótölulegan
fjölda náttúrahfsmynda frá Afr-
íku og við höfum fengið endalaus
póstkort frá Spáni. Og New York.
Og París. Ekkert er lengur glæ-
nýtt í augum okkar og ekkert
kemur verulega á óvart. Kannski
smá, en ekkert mikið.
Svona gengur þetta á öllum
sviðum og þannig er lífið mjatlað
niður í litla skammta, smáar kök-
ur. Ekkert má koma of mikið á
óvart, ekkert má vera leyndarmál
lengi. Upplýsingabyltingin færir
okkur allt strax, helst áður en það
gerist. Og gott og vel. Þá þurfum
við engar áhyggjur að hafa. Þann-
ig getum við alltaf undirbúið okk-
ur. Búist við hinu besta þegar það
á við. Hinu versta þegar slíkt er
auglýst. Það er gott að hða um í
þessu öryggisneti og vita alltaf
hvað leynist handan við hornið.
Verða aldrei hissa.
En samt er hætta fyrir hendi.
Hvað ef það gerist nú allt í einu
eitthvað sem enginn gat séð fyrir?
Hvað ef veröldinni tekst nú einu
sinni að koma okkur á óvart, með
smáum viðburði eða stórum?
Hvemig munum við bregðast við?
Munum við yftrhöfuð bregðast við
eða eram við kannski búin að
gleyma hvemig það er gert?
Börn/ Sigurður Ragnarsson fékk hugljómun um vef um börn og
stofnaði í kjölfarið Börn.is á Netinu. Gunnar Hersveinn hitti að-
standendur vefjarins og skoðaði síður um hvernig gott væri að ala
og annast börn, allt frá fæðingu til loka skólaskyldu.
Morgunblaðið/Ásdís
Betri heimur fyrir börn á Netinu. Sigurður, stofnandi Börn.is, og Steinunn, ritstjóri vefjarins.
Heimur barna og
foreldra á Netinu
# Hvernig á að búa börnum betri heim með vefsetri?
# Alhliða fræðsla um unga fólkið er markmið Börn.is
fc PIVfLAK • f-Hf.TTIh
SWi4u>lf. Þkuöj qttufíu
ftýn vtUvm&A *S Mtu.
(Hf t
ff*hkyt4*n
Vt
»9 .<á
V*«t hficwat
S»*iltun
U.12
hefvt 1». d«v<*mb#r
AÐ GERA gott fólk úr böm-
um er verkefni fullorð-
inna. Það er hlutverk sem
. margir taka höndum sam-
an um og skipta með sér verkum.
Kennarar sjá um að miðla þekkingu,
en menntun er mannbætandi. Hug-
sjónin að gera gott fólk úr bömum
birtist í ýmsu formi, m.a. á Netinu og
þar er nú að finna vef sem heitir
Börn.is (www.born.is).
„Það er samdóma álit margra vef-
sérfræðinga að vefurinn er afar van-
nýtt fyrirbæri. Eftir nánari skoðun á
því sem er í boði á vefnum er tengist
bömum kviknaði hugmyndin að
Börn.is," skrifar Sigurður Ragnars-
son, stofnandi þess vefjar. „Lykilat-
riðið í þessu sambandi er að nýta vef-
inn til að búa bömum betri heim.
Ekki bara bjóða upplýsingar og
lausnir á ýmsum vandamálum, sem
Börn.is gerir reyndar einnig, heldur
vekja foreldra og aðstandendur
barna til umhugsunar um að við get-
um hugsað betur um börnin okkar.
Börn.is stefnir því á að aðstoða og
hvetja foreldra til að vera virkir þátt-
takendur í því að búa til betri heim
fyrir böm.“
„Hugsjónin er að aðstoða og
hvetja foreldra til að búa bömum
betri heim,“ segir Sigurður. Böm.is
er gagnvirkt samskipta-, þjónustu-
og upplýsingasvæði. Umfjöllunar-
efnið er barnið frá getnaði til ung-
lingsára. „Við leggjum höfuðáherslu
á að svæðið verði lifandi og við mun-
um stöðugt vinna að því að bæta
þjónustuna, t.d. var að byrja hjá okk-
ur jólasaga sem foreldrar geta lesið
fyrir bömin en við birtum einn kafla
á dag sem er hæfilegt í kvöldlest-
urinn,“ segir Steinunn Ólafsdóttir,
leikkona og ritstjóri Böm.is, en hún
segir að námskeið og ráðstefnur
verði einnig haldnar á vegum Börn-
.is. Alhliða fræðsla um börn er mark-
miðið. Berglind Sigurðardóttir leik-
skólakennari starfar við efnisöflun
og almenna skipulagningu á Börn.is.
Haraldur Daði Ragnarsson er mark-
aðs- og sölustjóri og Hákon Róbert
Jónsson er þróunarstjóri.
Vefurinn hefur síðan á ýmsum
ráðgjöfum að skipa og nokkrir þeirra
veita notendum svör við innsendum
spumingum. Einnig era svokallaðir
þræðir á vefnum þar sem foreldrar
geta skipst á skoðunum, lagt fram
vandamál eða sagt frá reynslu og
fengið viðbrögð frá öðram, t.d. um
samskipti við kennara. Á vefnum era
einnig geymdar greinar eftir ýmsa
höfunda. Hér er brot úr texta eftir
Steinunni Harðardóttur um skóla-
börn í Belgíu:
„í Belgíu hefjast jólin hjá börn-
unum þann 6. desember en þá kemur
Heilagur Nikulás og gefur öllum
þægum bömum gjafir. Krakkarnir
era þá gjaman búnir að skrifa hon-
um bréf og setja fram óskir sínar um
gjafir. Kvöldið áður má gjarnan sjá
kaffibolla eða bjórglös á arinhillum
eða úti í glugga á belgískum heim-
ilum handa karlinum og gulrót sem
ætluð er asnanum hans. Þau fá yf-
irleitt leikföng í stærri kantinum eða
spil og gjarnan fleiri en eina gjöf.
Um jólin eru líka gefnar gjafir en
þær eru alls ekki eins veglegar og á
Nikulásardeginum. Þessi belgíski
jólasveinn er klæddur eins og kaþ-
ólskur biskup í purpurarauðum hökli
eða skikkju og með bagal í hendi og
mítur á höfði með alhvítt skegg og
hvíta hanska og gengur með gull-
hring með rúbínum. I skólum færir
hann börnunum mandarínur og sæl-
gæti. Heilum mánuði áður en hann
kemur era búðirnar orðnar fullar af
allskyns nammi og dóti.“
Börn.is var opnað 20. nóvember og
segjast Sigurður og Steinunn skynja
góð viðbrögð og að margir hafi skráð
sig á vefsvæðið. Nefna má að 11.360
tóku þátt í opnunarleik og síðan hafa
95.000 síður verið skoðaðar á honum.
Hugmyndin er einnig að Börn.is
verði með í ýmsum viðburðum sem
tengjast börnum og verði vefurinn til
dæmis einn af aðstandendum Jóla-
tónleika í Háskólabíói, annan í jólum.
Sigurður er MBA frá Golden
Gate-háskólanum í San Fransiseo í
Bandaríkjunum, og helgaði sig Net-
inu á síðasta ári þar. Hann hefur
starfað hér við vefhönnun, en segir
að upphafið að Börn.is hafi verið
löngun til að gera börnum eitthvert
gagn á Netinu, og að eftir að hafa
kannað vefi og lagt höfuðið í bleyti
hafi Börn.is orðið niðurstaðan.
Þama verða fréttir handa foreldr-
um, fræðsluefni, ráðgjöf og gagn-
virkni. „Hugmyndin er einfaldlega
að stuðla að betri heimi fyi-ir börn,“
segir hann.