Morgunblaðið - 12.12.2000, Blaðsíða 55
I
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000 55 ;
MINNINGAR
+ Guðrún Guð-
mundsdóttir
fæddist í Reykjavík
18. september 1925.
Hún lést á gjör-
gæsludeild Land-
spítalans við Hring-
braut 3. desember
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Guðmundur Þor-
láksson bóndi, f.
1894, og Bjarnveig
Guðjónsdóttir hús-
móðir, f. 1896.
Systkini Guðrúnar
eru: Þorbjörg, f.
1920; Þorlákur, f. 1921; Málfríð-
ur, f. 1923 (látin); Valgerður, f.
1924 og Ástríður, f. 1930.
Guðrún giftist Ei-
ríki Tryggvasyni, f.
1925, d. 1996, 18.
september 1946.
Börn þeirra eru:
Tryggvi, f. 1947,
maki MiIIa Hulda
Kay; Guðmundur, f.
1949, maki Anna Sig-
urðardóttir og eiga
þau þrjú börn; Flosi,
f. 1953; Jón, f. 1955,
maki Sigurbjörg
Geirsdóttir og eiga
þau þrjú börn; Þór-
unn, f. 1958, maki
Þorgeir Gunnlaugs-
son og eiga þau þrjú börn; Guð-
jón, f. 1961, maki Harpa Jóns-
dóttir og eiga þau þrjú börn;
Helga, f. 1968, maki Jósef Páls-
son og eiga þau tvö börn. Fyrir
hjónaband átti Guðrún einn son,
Guðjón Bjarnason, f. 1944, og á
hann fimm börn. Barnabarna-
börnin eru fjögur.
Guðrún fluttist á unga aldri
með foreldrum sínum að Selja-
brekku í Mosfellssveit og ólst
þar upp til fullorðinsára. Guðrún
og Eiríkur hófu búskap á Há-
teigsvegi 25 í foreldrahúsum Ei-
ríks. Þau byggðu nýbýlið Selholt
í Mosfellssveit og fluttu þangað
um 1950. Árið 1962 fluttu þau
norður að Búrfelli í Miðfirði, V-
Ilún., og tóku við búi föðursystk-
ina Eiríks. Hún helgaði sig hús-
móðurstörfum og uppeldi barna
sinna og síðari ár ömmubarna.
Frá árinu 1994 bjuggu Guðrún
og Eiríkur í Furugrund 68 í
Kópavogi.
Utför Guðrúnar fer fram frá
Kópavogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
GUÐRÚN
GUÐMUNDSDÓTTIR
Elsku Rúna mín! Mig langar til
að kveðja þig með nokkrum orðum,
minningarnar um þig eru margar
og verða aldrei allar settar í orð.
Þú varst búin að vera á leiðinni til
okkar í heimsókn í allt sumar og
haust en varst svo búin að ákveða
að bíða með að koma þangað til í
vor þegar Eiríkur yrði fermdur og
þá ætlaðir þú að stoppa hjá okkur.
Þú varst búin að ferðast meira til
útlanda síðustu árin en þú hafðir
gert á allri ævinni, síðast á haust-
dögum fórst þú með Immu æsku-
vinkonu þinni til Gardavatnsins og
þú hafðir áætlanir um fleiri ferðir.
Þú ætlaðir að heimsækja Unu
Birnu þegar hún yrði flutt til
Búdapest og þú varst líka með
áætlanir um að heimsækja Ellu
vinkonu þína í Bandaríkjunum.
Ekkert okkar var viðbúið því að
næsta ferð sem þú færir yrði sú
sem okkur öllum er ætluð, þ.e.
ferðin yfir móðuna miklu.
Ég minnist þess eins og það
hefði gerst í gær þegar ég kom
fyrst með Gumma norður í Búrfell,
ég var með dálítinn fiðring í mag-
anum því ég hafði aldrei hitt ykk-
ur, tilvonandi tengdaforeldra mína,
en kvíði minn var ástæðulaus, þú
tókst mér opnum örmum og varst
búin að prjóna handa mér lopa-
peysu. Síðan hafa öll okkar kynni
verið á sama veg.
Þú hændir fólk að þér með glað-
lyndi þínu, þú hafðir skoðanir á
öllu og stóðst fast á þeim, fylgdist
ákaflega vel með þjóðmálunum og
Eiríkur stríddi þér þegar þið
Bobba voruð „að bjarga heimin-
um“ eins og hann kallaði það þegar
þið systurnar áttuð löng símtöl, en
það áttuð þið oft sérstaklega eftir
að þið Eiríkur fluttuð suður. En
það er áreiðanlegt að það hefði
verið gefið jafnar á jötuna í þjóð-
félaginu ef þú hefðir ráðið. Þú
hefðir gefið, eins og þú gerðir í
eldhúsinu þínu, það sem hverjum
þótti best og það hefði verið nóg
handa öllum. Þú varst einstaklega
myndarleg við matargerð og
bakstur og ekki undarlegt að eitt
barnabarna þinna spyrði þegar
andlát hafði verið í fjölskyldunni
og það hafði áttað sig á dauðleika
mannsins: „Arama, þegar þú verð-
ur gömul og dáin hver á þá að elda
handa mér grjónagraut?"
Sunnudagur á Búrfelli, tvísetið
við eldhúsborðið, læri í matinn og
ís á eftir eins og allir gátu í sig lát-
ið. Sumir borðuðu svo mikinn ís að
þeir urðu að skríða undir sæng til
að hlýja sér. Pönnukökur með
kaffinu, beint af pönnunni rjúkandi
heitar, þú settist aldrei til borðs
fyrr en allir hinir höfðu fengið.
Fyrir þér voru allir afkomendurnir
sérstakir á sinn hátt og þú mundir
hvað var uppáhalds matur hvers
og eins og passaðir að búa hann til
þegar þeir voru í heimsókn. Það
voru ekki síst barnabörnin þín sem
nutu þessa. Þú hafðir líka alltaf
tíma til að spila við þau og tala við
þau, þeirra áhugamál voru þín
áhugamál. Það voru alltaf sumar-
börn á Búrfelli, flest barnabörnin
voru þar skemmri eða lengri tíma-
bil þó engir jafn mörg sumur og
Óskar og Bjössi. Oft voru þar líka
börn annarra skyldmenna. Þótt
það væri mikil aukavinna fyrir þig
að hafa öll þessi börn í kringum
þig virtist það þér svo áreynslu-
laust. Þér þótti gaman að hafa þau
í kringum þig og þegar þú lagðir
þig eftir hádegismatinn vildir þú
að krakkarnir fengju að leika sér,
þú gætir vel sofið þó eitthvað
heyrðist í blessuðum börnunum,
bara ef það væri ekki grátur.
Það hljómar kannski undarlega,
en mest og best finnst mér ég hafa
kynnst þér eftir að við fluttum til
Danmerkur fyrir fjórum árum. Við
hittum þig náttúrulega ekki jafn
oft og fyrr en við vorum lengur
saman í hvert skipti. Þú varst búin
að koma til okkar fjórum sinnum,
þrjú sumur og svo varstu hjá okk-
ur síðustu jól og áramót. Þetta
voru dýrðardagar bæði fyrir þig og
okkur. Sumardagana sast þú úti í
sólinni, við grínuðumst með það að
þú yrðir að passa að þú brynnir
ekki við. Þú spilaðir við Eirík og
spjallaðir við hann og þið voruð
búin að semja um það að næst þeg-
ar þú kæmir myndi hann kenna
þér dönsku og þú myndir kenna
honum að vaska upp, fannst ekki
veita af því. Þú naust samvista við
Rúnu og litlu krakkana hennar og
þið nöfnurnar voruð mjög góðar
vinkonur. Það er okkur dýrmætt
hvað þér þótti gott að vera hjá
okkur og við kveðjum þig með
miklum söknuði.
Anna.
„Lífið byggist ekki á því að fá
góð spil á hendina, heldur að spila
vel úr þeim sem þú ert með á
hendi.“ (Josh Billings.)
Elsku amma!
Ég sit hér og reyni að hugsa um
allt sem þú gerðir fyrir mig. Ég
var nú í miklu uppáhaldi hjá ykkur
afa. Man fyrst eftir ferðum með
ykkur í sveitina sem smágutti og
naut þar lífsins. Eftir að þið afi
fluttuð suður og bjugguð hér í
göngufjarlægð, naut ég enn betur
nálægðar ykkar. Kom t.d. alltaf í
mat til ykkar í hádeginu úr
skólanum. Eftir að þú varðst orðin
ein nýttum við hádegin til hins ýtr-
asta, borðað og síðan var spila-
stokkurinn tekinn fram og spilað
þar til bjallan hringdi. Ymsu
smálegu laumaðir þú til að mér
þegar við átti og alltaf fylgdist þú
glöð með námi og leik hjá mér.
Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir
mig.
Pétur Þorgeirsson.
Okkur systurnar langar að
minnast Rúnu á Búrfelli eins og
við kölluðum hana alltaf.
Það voru alltaf miklar gleði-
stundir þegar við fengum að fara í
heimsókn að Búrfelli. Rúna var
alltaf kát og einlæg og við munum
geyma lengi minningarnar um
kvöldkaffið í stóra eldhúsinu hjá
henni.
Rúna var einstök manneskja,
var alltaf hún sjálf og gerði aldrei
mannamun. Þó að við systur hefð-
um ekki allar komið á sama hátt
inn í fjölskylduna gleymum við
aldrei þeim hlýhug og vinsemd
sem Rúna sýndi okkur öllum jafnt.
Við vottum börnum Rúnu og
fjölskyldum þeirra samúð okkar og
við vitum að barnabörnin hafa nú
misst yndislega ömmu.
Takk fyrir allt, Rúna, hvíl þú í
friði.
Auður, Petra og Kristjana
Þdrdís Jónsdætur.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar tii blaðsins
í bréfsíma569 1115, eðaá netfang þess (minning@mb!.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf-
undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Pað eru vinsamleg tilmæli
að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða
2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
JÓLAL.JÓS
Upplýsingar og pantanir varðandi lýsingu í
Gufuneskirkjugarði er hægt að fá hjá
Rafþjónustunni Ljós í síma 535 1055.
I Fossvogskirkjugarði hjá Raflýsingarþjónustunni í
Fossvogskirkjugarði í síma 869 1608.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og
bróðir,
SÍMON PÁLSSON,
Hörgslundi 6,
Garðabæ,
lést á Landspítala við Hringbraut sunnudaginn
10. desember.
Þuríður Vilhjálmsdóttir,
Jóhanna Símonardóttir,
Vilhjálmur Styrmir Símonarson,
Sveinn Orri Símonarson,
Jóhanna Símonardóttir, Páll Þorsteinsson,
Vigdís Pálsdóttir,
Áslaug Katrín Pálsdóttir,
Þorsteinn Pálsson,
Páll Ásgeir Pálsson,
Gylfi Þór Pálsson
og aðrir aðstandendur.
+
Elsku móðir, amma, dóttir, systir og mágkona,
GÍGJA HERMANNSDÓTTIR,
Vesturgötu 27,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 10. desember.
Sigríður Halla Guðmundsdóttir,
Geir Gígjar Ólason,
Sigríður Gísladóttir,
Smári Hermannsson, Ásdís Elva Jónsdóttir,
Dagný Hermannsdóttir, Páll Axelsson,
Hermann Hermannsson, Sigríður Guðmundsdóttir,
Gísli Hermannsson, Margrét Kristjánsdóttir,
Ragnheiður Hermannsdóttir, Hugo Þórisson,
Stefán Hermannsson, Arnfríður Einarsdóttir,
ívar Smári Ásgeirsson, Þórunn Árnadóttir
og systkinabörn.
+
Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GUNNAR INDRIÐASON
bifreiðastjóri
frá Lindarbrekku,
lést á Sjúkrahúsi Húsavíkur laugardaginn
9. desember.
Kristveig Árnadóttir,
Gunnar Ómar Gunnarsson, Hrafnhildur Stella Sigurðardóttir,
Árni Grétar Gunnarsson, Margrét Sigurðardóttir,
Hlédís Gunnarsdóttir
og barnabörn.
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
VALGERÐUR SÆMUNDSDÓTTIR,
Ljósheimum 4,
verður jarðsungin frá Áskirkju miðvikudaginn
13. desember kl. 13.30.
Indriði Indriðason,
Guðrún Indriðadóttir, Jón Ágúst Sigurjónsson,
Sólveig Indriðadóttir, Stefán K. Guðnason
og barnabörn.
Þegar andlát
... ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar.
Við Útfararstofu kirkjugarð- Prestur Kistulagning
anna starfa nú 14 manns Kirkja
með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá
útfararþjónusta landsins Val á tónlistafólki
Vesturhlíð 2 með þj5nustu a||an Kistuskreytingar Dánarvottorð
Fossvogi ^ v sólarhringinn. Erfidrykkja
Sími 551 1266 \ £ ÚTFARARSTOFA
www.utfor.is KIRKJUGARÐANNA EHF.