Morgunblaðið - 12.12.2000, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000 61
Khalifman úr leik eftir
harða baráttu við Anand
SKAK
IV ý j a II e 1 h í
Heimsmeistaramót FIDE
25.11.-27.12.2000
INDVERSKI stórmeistarinn
Viswanathan Anand varð að hafa
mikið fyrir því að sigi'a núverandi
heimsmeistara FIDE á heims-
meistaramótinu í Nýju-Delhí.
Þeir mættust í fimmtu umferð
og Khalifman virtist ætla að
hrifsa til sín frumkvæðið í einvíg-
inu með góðri frammistöðu í
fyrstu skákinni. Anand hafði hvítt
og lék kóngspeðinu fram í fyrsta
leik. Khalifman valdi hina hvössu
Marshall-árás og mætti greini-
lega vel undirbúinn til leiks.
Hann var á tímabili tveimur peð-
um undir, en öflugt frumkvæði
svarts varð til þess að Anand
eygði aldrei sigurmöguleika og
jafntefli var samið eftir spenn-
andi skák.
Khalifman hafði hvítt í seinni
kappskákinni og margir áttu von
á að hann mundi nú reyna að gera
út um einvígið. Anand slapp hins
vegar enn eina ferðina í þessari
heimsmeistarakeppni án þess að
sá sem stýrði hvítu mönnunum
reyndi eða tækist að skapa sér
frumkvæði. Jafntefli var samið og
þar með varð ljóst að úrslit ein-
vígisins mundu ráðast
í atskákum, eða jafn-
vel hraðskákum.
Fyrst voru tefldar
25 mínútna atskákir
og lauk þeim báðum
með jafntefli. Þá var
umhugsunartíminn
styttur í 15 mínútur
og tvær skákir tefldar
til viðbótar.
Úrslitin réðust í
fyrri skákinni þegar
Anand hóf skákina
með 1. Rf3 og Khalif-
man svaraði með
hvössu afbrigði af
slavneskri vörn sem
fól í sér mannsfórn.
Það var Anand sem sá betur í
gegnum flækjurnar og innbyrti
vinninginn.
Khalifman hafði hvítt í sjöttu
skákinni og þurfti að sigra til að
jafna metin. Það tókst hins vegar
ekki og Anand sigraði því sam-
anlagt 3V2-2V2, eftir fimm jafntefli
og eina sigurskák.
Anand mætir enska stórmeist-
aranum Michael Adams í undan-
úrslitum, en hann sigraði Topalov
í fjórðungsúrslitum IÍ/2-V2.
Alexei Shirov komst einnig í
undanúrslitin þrátt fyrir að hafa
tapað fyrri kappskákinni gegn
Bareev. Hann jafnaði metin í síð-
ari skákinni og vann síðan at-
skákirnar IV2-V2.
Shirov mætir
rússneska unglingn-
um og „íslandsvin-
inum“ Alexander
Grischuk í undanúr-
slitum, en þar erum
við komnir að þeim
skákmanni sem
mest spennandi
verður að fylgjast
með það sem eftir er
keppninnar. Það
mundi heldur betur
hrista upp í skák-
heiminum ef Grisch-
uk kæmist í úrslita-
keppni heimsmeist-
aramótsins, einung-
is 17 ára gamall, en
hann sigraði Vladislav Tkachiev í
fjórðungsúrslitum. Undanúrslit
heimsmeistarakeppninnar hefjast
í dag:
V. Anand - Michael Adams
A. Grischuk - Alexei Shirov
Mót á næstunni
16.12. TR. Jólaæfing
17.12. Hellir. Jólapakkamót
17.12. SA. 15 mínútna mót
19.12. TK. Jólapakkamót
22.12. SA. Fischer-klukkumót
26.12. TK. Jólahraðskákmót
27.12. TR. Jólahraðskákmót
28.12. SA. Jólahraðskákmót
30.12. SA. Hverfakeppni
Daði Örn Jónsson
Viswanathan
Anand
FRÉTTIR
Mótmæli Náttúruvernd-
arsamtaka Vesturlands
NÁTTÚRUVERNDARSAMTÖK
Vesturlands hafa sent frá sér eftir-
farandi ályktun um fyrii’hugaðar
vegaframkvæmdir við Vestfjarðaveg
á kaflanum frá Hringvegi að Brún-
kollugili:
„Náttúruverndarsamtök Vestur-
lands gera eftirfarandi athugasemd-
ir við annars tímabærar samgöngu-
bætur á leiðinni um Bröttubrekku.
Samkvæmt verkáætlun Vega-
gerðar ríkisins er gert ráð fyrir að
endurbyggður vegur muni liggja yfir
Bjarnardalsárgljúfur á ræsi í stað
brúar. Slíkt ræsi myndi verða á hæð
við 8 hæða byggingu eða á þriðja tug
metra og breidd þess við botn gljúf-
ursins yrði yfir 100 m. Þessi áform
eru óviðunandi frá náttúruverndar-
sjónarmiði. Náttúruverndarsamtök
Vesturlands mótmæla þessari út-
færslu á framkvæmdinni og telja
óhjákvæmilegt að byggð verði ný
brú yfir gljúfrið í stað þeirrar gömlu.
Það verður að teljast á ystu nöf af
hálfu Skipulagsstofnunar að veita
undanþágu frá lagakröfu um um-
hverfismat þessarar framkvæmdar
þar sem hún felur í sér nýbyggingu
vegar sem er yfir 6 km langur. Fyll-
ingar og skeringar á vegkaflanum
eru óvenju miklar vegna djúpra gilja
og brattra hlíða sem alls kalla á til-
flutning á 710.000 m3 jarðefna. Einn-
ig er fyrirhuguðu vegarstæði ætlað
að liggja yfir sex aðgreind mýrlendi
sem eru yfir þrír hektarar að stærð.
í þessu máli er því undanþága
Skipulagsstofnunar frá mati á um-
hverfisáhrifum framkvæmdanna
mjög ámælisverð. í framkvæmd sem
þessari verða framkvæmdaskilyrði
og verklagsfyrirmæli hins opinbera
eftirlitskerfis að vera mun skýrari en
raunin hefur verið með undirbúning
þessarar framkvæmdar. Slíkt hefði
verið betur tryggt með formlegu um-
hverfismati.
Náttúruverndarsamtök Vestur-
lands vilja minna á að umrætt land-
svæði heyrir til náttúruperlna Borg-
arfjarðarhéraðs og er hluti af þeirri
merku landslagsheild sem Norður-
árdalur og Baulusvæðið mynda.“
Nýr afþreying-
arvefur opnaður
SKEMMTI- og afþreyingai'vefurinn
www.listavefurinn.com var opnaður
1. desember sl. Á vefnum má finna
ýmiss konai' afþreyingarefni sem er
uppfullt af kolsvörtum kaldhæðnis-
húmor. Á vefnum eru til að mynda
teiknimyndir, tölvuleikir, ljóð, smá-
sögur, teiknaðar myndir, skissur, út-
varpsleikrit o.fl. Einnig má á vefnum
lesa furðufréttir, sem eru óvenjuleg-
ar fréttir, bæði innlendar og erlend-
ar, segir í fréttatilkynningu.
Stefnt er að því að uppfæra vefinn ■"
a.m.k. einu sinni í viku. I mjög náinni
framtíð geta svo ungir og upprenn-
andi listamenn komið verkum sínum
á framfæri á vefnum.
Kristinn Evertsson og Hrafn
Jónsson eru aðstandendur Listavefj-
arins.com.
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
Flensborgarskólinn
(Hafnarfirði
Laus störf í
Flensborgarskólanum
Eftirtaldar stöður eru lausartil umsóknar:
■ Kennsla í stærðfræði, 1 — 2 stöður.
■ Kennsla í jarðfræði/náttúruvísindum
12 — 18 stundir.
■ Kennsla í tölvufræðum 12—24 stundir.
Umsóknarfrestur er til 20. desember nk. Um-
sóknum þarf ekki að skila á sérstöku umsóknar-
eyðublaði en þær skulu sendartil Flensborgar-
skólans, pósthólf 240, 222 Hafnarfirði. Hvenær
ráðið verður í áðurnefndar stöður er háð lausn
yfirstandandi verkfalls. Nánari upplýsingar
veitir skólameistari í síma 565 0400 eða gegn-
um netfangið flensborg@flensborg.is .
Skólameistari.
ATVINNA ÓSKAST
Mjög skapandi kona
leitar að vinnu frá kl. 9—16. Þekki vel til tölvu-
umhverfis (Photoshop, Freehand, Fontpage,
Flash). Tala og skil ensku mjög vel. B.A. frá
M.H.Í. (hugmyndafræði, hljóðupptökutækni,
myndupptökutækni, handritagerð, textagerð,
markaðssetning og teikning). Áhugamál
(heilsa, sálfræði, læra, skapa, uppfinningar,
smáviðgerðir). Áhugasamir sendi fyrirspurnir
á eftirfarandi netfang: aura@nett.is .
ÝMISLEGT
Diskótek Sigvalda Búa
Tek að mér öll böll og uppákomur.
Allar græjur og tónlist fylgja.
Diskótek Sigvalda Búa,
nýtt símanúmer er 898 6070.
AU G LÝ S I N
ATVINNUHÚSNÆÐI
Til leigu atvinnuhúsnæði
1. Skrifstofuhúsnæði, vandað fullbúið með
tölvu- og símalögnum, 370 fm í virðulegu
húsi í hjarta borgarinnar við Austurvöll.
2. IMýleg 1.400 fm skemma, 7—8 metra loft-
hæð ásamt 180 fm skrifstofum við Suður-
hraun í Garðabæ. Aðkoma frá Reykjanes-
braut og Hafnarfirði. Stór malbikuð lóð.
Framtíðarstaðsetning.
1. 950 fm gott kjötvinnsluhúsnæði
við Garðatorg, Garðabæ. Skrifstofur og
starfsmannaaðstaða um 250 fm. Góð að-
koma. Laust 1. júlí 2001.
Traust fasteignafélag sem sérhæfir sig
í útleigu atvinnuhúsnædis.
Eignarhaldsfélagið
Kirkjuhvoll ehf.,
símar 562 3585 og 892 0160.
KENNSLA
Ertu eldri en 17 og hálfs?
jt
Islenski lýdháskólinn
fer til Danmerkur
Lýðskólinn á flug!
Skólastarfið í vetur fer fram í Vallekilde
Hpjskole á Sjálandi. Innritun er hafin fyr-
ir vorönn (4. janúartil 9. maí 2001).
Kostnaður aðeins kr. 7.900 á viku fyrir
fæði, herbergi og kennslu.
Styrkir fást vegna fargjalds.
Sækið um strax því fjöldi nemenda
er takmarkaður.
Upplýsingar veitir Oddur Albertsson í
síma 891 9057, netfang: oddura@itn.is.
Vefsíða skólans: www.vallekildeh.dk
G A
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Opinn fundur
Fjárhagsáætlun
Kópavogsbæjar fyrir 2001
Bæjarmálaflokkur Sjálfstæðisflokksins í Kópa-
vogi heldur opinn fund um fjárhagsáætlun
Kópavogs í Hamraborg 1, 3. hæð, í dag
kl. 20.00
Minnum á opið hús alla laugardaga milli kl.
10 og 12.
Sjálfsstæðisfélag Kópavogs.
TIL SÖLU
Fasteignasala
Lögmanna Suðurlandi,
Austurvegi 3, 800 Selfossi,
sími 482 2849 - fax 482 2801,
netfang loamsud@selfoss.is.
Jörð til sölu
Gerðar, V-Landeyjum. Jörðin er um 200 ha
grasgefið land. Á jörðinni er m.a. íbúðarhús,
147 fm frá 1946, og hesthús og hlaða. Húsa-
kostur þarfnast verulegs viðhalds.
Nánari upplýsingar á skrifstofu.
FÉLAGSSTARF
VFulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna
í Garðabæ
Aðalfundur Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna
í Garðabæ verður haldinn í dag, þriðjudaginn
12. desember, kl. 20.00 á Garðatorgi 7.
Dagskrá: x
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri fjallar um
helstu verkefni framundan.
3. Önnur mál.
Stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF □ Hamar 6000121219 Jf.
□ FJÖLNIR 6000121219 I Jf.
□ HL(N 6000121219 IVA/ I.O.O.F.R.b.1 = 15012127-Jv.* ’