Morgunblaðið - 12.12.2000, Blaðsíða 67
MORGÚNBLAÐIÐ
V
_____UMRÆÐAN____
Ég sá Guðna
kyssa Búkollu!
í EINU af jólalög-
unum er þetta sungið:
„Ég sá mömmu kyssa
jólasvein.“ Nú geta
börnin sungið: „Ég sá
Guðna kyssa Búkollu.“
Sumir segja, að þetta
sér þriðji frægasti
kossinn hér á íslandi.
Hinir eru, að kyssa
vöndinn og svo auðvit-
að fyrsti kossinn. Að
slepptu öllu gamni var
fjósræða Guðna
Agústssonar landbún-
aðarráðherra undan-
fari einhverra mestu
mistaka stjórnmála-
manns í langan tíma,
þegar hann gaf leyfi til að flytja inn
norska fósturvísa, til að eyðileggja
íslensku kúna.
Kúafósturvísar
Hvaða vísindalegar nið-
urstöður voru lagðar til
grundvallar ákvörðunar
landbúnaðarráðherra,
spyr Hreggviður
Jónsson, um að leyfa
innflutning á norsku
fósturvísunum?
í ljósi frétta af kúariðu, sem nú
hefur skotið upp kollinum í æ fleiri
löndum, væri nær að bjóða öðrum
þjóðum hreinan og ómengaðan
kúastofn til undaneldis. En það er
fleira, en sjúkdómar, sem valda
áhyggjum. í dag eru æ fleiri dýra-
stofnar að deyja út og húsdýra-
stofnar hafa verið eyðilagðir með
blöndun, sem oftar en ekki hafa
haft hörmulegar afleiðingar. Dr.
Stefán Aðalsteinsson hefur á mjög
einfaldan hátt bent mönnum á þessi
atriði og raunar margt annað, sem
lýtur að varðveislu á aldagömlu bú-
fjárkyni. Þá hefur dýralæknirinn
Sigurður Sigurðsson varað við
sjúkdómum og mörgu öðru í þessu
sambandi. Stór er, hin sögulega
arfleifð málsins. A síðustu árum
hefur víða erlendis vaknað áhugi á
vernda og viðhalda gömlum búfjár-
stofnum. Bæði er hér um þjóðararf
að ræða, sem ber að varðveita, og
svo er hitt að ýmsir hæfileikar, sem
hafa áunnist í aldanna rás við að-
stæður í hverju landi, eru ómet-
anlegir og óbætanlegir, ef þeir eru
eyðilagðir.
í ljósi ákvarðana landbúnaðar-
ráðherra er nauðsyn-
legt, að eftirfarandi
spurningum verði
svarað: Hver greiðir
kostnaðinn við að
flytja inn norsku fóst-
urvísana og hve mikið
mun sú tilraun kosta á
næstu tíu árum?
Hverjir munu stýra
rannsókninni? Hver
eru ákvæði Ríó-sátt-
málans um verndun
dýrastofna og hver á
að framfylgja þeim
hér á landi? Hvaða vís-
indalegar niðurstöður
voru lagðar til grund-
vallar ákvörðunar
landbúnaðarráðherra um að leyfa
innflutning á norsku fósturvísun-
um? Hvers vegna voru bændur
ekki spurðir í almennri atkvæða-
greiðslu hvor þeir væru með eða
móti málinu? Varð það vegna þess,
að yfir 70% þeirra eru á móti inn-
flutningi á norskum fósturvísum?
Er það rétt, að landbúnaðarráð-
herra hafi látið gera skoðanakönn-
un um málið og þori ekki að birta
hana? Þessar spurningar eru að-
eins hluti að því, sem landbúnaðar-
ráðherra hlýtur að upplýsa almenn-
ing um í kjölfar ákvörðunar sinnar.
Ekki þarf hann að óttast að fjöl-
miðlar muni ekki koma upplýsing-
unum á framfæri, en hitt er frekar,
að hann óttist sannleikann í þessu
máli og því meira, sem fleiri hafa
snúist á sveif með Búkollu.
Ekki er ólíklegt, að áhugafólk um
allt land muni stofna Búkollufélag-
ið til að vera sverð og skjöldur ís-
lenska kúakynsins og til að koma í
veg fyrir þetta voðaskot landbún-
aðarráðherra við aldarhvörf.
Höfundur er fyrrverandi þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Hreggviður
Jónsson
ÞRTDJUDAGUR '12. DÉSÉMÖÉR 2000 67
Notíð þægindin
Notaleg
bómutlarnáttföt á
> dömur og herra
Veröfrá kr. 3.900—0,900
Stærðir: XS-S, M, L, XL
ondirfataverslun,
1, hæð Kringlunni,
simi 553 7355
Sendum i jséstkröfu
*