Morgunblaðið - 12.12.2000, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000 74*
UMRÆÐAN
Fiskeldi
Stærsta hættan í þessu
máli er að það takist,
segir Skúli Guðbjarn-
arson, að hindra virð-
ingarvert framtak til
þess að auka útflutn-
ingstekjur okkar.
fjörðum og Austfjörðum og mengar
ekki meira en fiskvinnsla. Rann-
sóknir sem gerðar hafa verið á
mengun frá fiskvinnslu sýna að nei-
kvæðra áhrifa hennar gætir aðeins á
mjög afmörkuðu svæði.
Algengt er að myndarlegur mat-
vælaiðnaður á Islandi mengi á við
heimili stærstu þéttbýlissvæða
,i landsins. Slík vinnsla þykir sjálfsögð
og sé hún vel rekin sjást ekki nei-
kvæð merki mengunar. Þetta er vert
að hafa í huga þegar verið er að bera
saman laxeldi og mengun frá fólki.
Þegar talað er um að fiskeldisstöð
mengi á við 40.000 manns þá ber að
hafa það í huga að mörg lítil byggð-
arlög ásamt fiskvinnslu menga mun
meira. Við malarbúar flykkjumst
þangað á sumrin til þess að njóta
ósnortinnar náttúru.
Laxeldið gæti orðið landsbyggð-
inni sú lyftistöng sem þörf er á. Hvað
væri heppilegra en að fiskeldi og
ferðaþjónusta yrði hluti af þeirri
enduruppbyggingu sem þörf er á í
dreifbýli. Þetta hefur Norðmönnum
tekist vel til með. í Noregi er mikil
laxagengd í veiðiár ásamt mjög
miklu fiskeldi á sömu svæðum.
Norðmenn hafa endurheimt margar
laxveiðiár sem urðu nánast fiski-
dauðar vegna mengunar frá Evrópu
(mest Bretlandi) og byggt upp fisk-
eldi um leið. Aðrar þjóðir geta lært
af Norðmönnum sem hefur tekist að
efla laxinn sem villtan fisk og eld-
isfisk samtímis.
Ég get ekki annað en dáðst að
þeirri framtakssemi sem nokkrir vel
menntaðir og reynslumiklir einstak-
lingar hafa sýnt með því taka frum-
kvæði að því að færa okkur inn á þá
braut í fiskeldi sem allar nágranna-
þjóðir okkar hafa farið sem hafa átt
þess kost. Þetta mun skila þjóðar-
búinu miklum gjaldeyristekjum, sér-
staklega vegna þeirrar verðmæta-
sköpunar sem á sér stað við
framleiðslu á laxi sem alinn er á fóðri
unnu úr innlendu hráefni.
Ég hef heyrt að verð á veiðidegi í
laxveiðiá kosti allt að hundrað þús-
und. Þá heyrði ég af manni sem þyk-
ir stangveiði svo ánægjuleg að hann
keypti sér um 100 veiðidaga síðast-
liðið sumar. Ég fylli þann hóp manna
sem skilja vel þá ánægju sem menn
hafa af slíkri útiveru og er glaður yf-
ir því að einhverjir ríkisbubbar séu
til sem greiða slíkar fjárhæðir í tóm-
stundagaman. Ég skil líka mætavel
að margir óttast um þá tómstunda-
iðju sem þeir eru tilbúnir að verja
jafn miklum fjármunum í, en ég deili
ekki þeim ótta með þeim. Ótti stang-
veiðimanna við fiskeldi minnir mig
mjög á ótta sonar míns við köngulær.
Skynsemin segir honum að ekkert sé
að óttast, en ef hann sér eða heyrir
minnst á köngulær fer enginn nær-
staddur varhluta af ótta hans.
Nokkrir einstaklingar hafa talað
eins og að eina hættan sem stafi af
villtum laxastofnum á íslandi sé eld-
islax. Rannsóknir hafa sýnt að loft-
mengun var þar mestur áhrifavaldur
víðast hvar á síðustu áratugurh.
Virkjanir, framræsla, gerð varnar-
garða, brúargerð ásamt landbúnaði
hefur allt áhrif á vistkerfi ánna.
Náttúrulegar sveiflur og fiskveiðar
hafa einnig áhrif á stofnstærðir. Fátt
hefur þó eins bein áhrif á laxinn og
stangveiðar.
Það er firra að halda því fram að
lífríki við strendur landsins stafi
stórfelld hætta af laxeldi. Laxeldi er
álíka umhverfisvænt og fiskiðnaður.
Þegar því er haldið fram að erfða-
mengunarslys sé beinlínis í uppsigl-
ingu vil ég benda á tvennt: laxinn
sem rætt er um að ala hér við land er
sömu tegundar og sá lax sem syndir í
íslenskum ám, laxinn sem syndir í ís-
lenskum ám er ekki ósnortinn villtur
lax. Fyrir mörgum árum vann ég
sumarpart í fiskeldi. Þá afhenti ég
hundruð þúsunda kynbættra eldis-
laxa sem sleppt var í margar ár.
Stærsta hættan í þessu máli er að
það takist að hindra virðingarvert
framtak til þess að auka útflutnings-
tekjur okkar.
Nú þegar það á að leyfa eflingu at-
vinnulífs í byggðum landsins með
framleiðslu heilnæmrar fæðu úr inn-
lendu hráefni, heyrast örfáir stang-
veiðimenn stilla saman strengi sína
og kyrja gamalkunna slagara um
auðvald og spillta ráðherra.
Höfundur er náttúrufræðingur.
HHH
mícrnk
"m
LÍMTRÉ hf. óskar Borgfirðingum til hamingju með Hyrnutorg, hið nýja og glæsilega
húsnæði við Borgarhraut 58—60, Borgarnesi.
LÍMTRÉ hf. þakkar jafnframt Borgarlandi ehf. fyrir viðskiptin með límtré og Yleiningar
ónægjulegt samstarf ó hinum stutta byggingartíma hússins.
Arkitektahönnun: Nýja teiknistofan
og
LIMTRE H F su*u” °9 tæknideild, Viðarhofða 2b, 110 Reykjavík,
sími 530 6000 - www.limtre.is
- loforð um góða lausn
f-